Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 31

Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 31 Blikur á lofti í persaflóa ''"'"js-srarasb. mi Alnæmi í Bandaríkjunum: Varð fyrsta til- fellis vart 1969? Chicago, Reuter. VÍSINDAMENN í Missouri hafa komist að því að alnæmi hafi að öllum líkindum verið banamein pilts nokkurs, sem lést árið 1969, en það er um áratug áður en talið var að fyrsta tilfellis hefði orðið vart. Kom þetta fram í Chicago Tribune um helgina. í greininni sagði að til þessa hefði banamein hins fimmtán ára gamla negra, sem kallaður er Rich- ard R., verið ókunnugt. Læknar voru þá ráðþrota um hvað amaði að piltinum og þegar hann lést voru sýni tekin úr honum og fryst. í nýlegum prófunum á sýnunum hef- ur hins vegar komið fram að hann hafði komist í kynni við alnæmis- veiruna. Fyrsta tilfellið í Banda- ríkjunum hefur til þessa verið talið hafa komið fram í New York-borg árið 1979. Sjúkdómurinn kann þó að eiga sér mun lengri sögu, því læknar í Afríkuríkinu Zaíre segjast hafa fundið merki um alnæmi í blóð- sýni, sem tekið var 1959. Margir vísindamenn telja að al- næmi sé upprunnið í AJEríku og hafí breiðst þaðan út til annarra landa. Yfirleitt hefur verið talið að alnæmi hafi fyrst komið til Banda- ríkjanna á miðjum áttunda áratugn- um, annað hvort frá Haitibúum eða öðrum innflytjendum, sem hneigjast til beggja kynja, eða frá banda- rískum hommum, sem smitast hafi erlendis. í ljósi þessara nýju upplýsinga er þó ljóst að endurskoða verður kenningar um hvenær og hvemig alnæmi barst til Bandaríkjanna. Morgunblaðið/Emilía Steingrímur Hermanusson utanríkisráðherra ásamt Róbert Trausta Ámasyni, starfsmar.ni utanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundin- um f gær. lega í það. Aðspurður kvaðst Steingrímur ekki geta skýrt þessar ólíku yfirlýsingar. Fram hefði kom- ið í máli Shultz á fundinum í Briissel að Gorbachev hygðist senda Reag- an forseta bréf og hefði Shultz sagt að menn hygðust „bíða eftir póstin- um“. Stein.Trímur gat þess einnig að utanríkisráðherrar NATO-ríkj- anna hefðu ekki þrýst á Bandaríkja- menn um að koma slíkum fundi á. Steingrímur sagði það hafa kom- ið fram í máli Shultz að vel hefði miðað í viðræðum um mannrétt- indamál og svæðisbundin mál svo sem Afganistan og Persaflóa. Varð- andi Persaflóa væri ljóst að meiri samstaða væri að nást með risa- veldunum og greinilegt væri að Sovétmenn vildu leita leiða til að geta kallað innrásarlið sitt frá Afg- anistan með fullri reisn. Sagði ráðherra Sovétmenn eiga við svip- aðan vanda að etja þar og Banda- ríkjamenn í Víetnam-stríðinu á sínum tíma. Steingrímur var spurður hvort utanríkisráðherramir hefðu lýst yfir stuðningi við geimvamaráætlun Bandaríkjastjómar og sagði hann það hafa verið gert á fundi sem Islendingar hefðu ekki sótt. Kvaðst hann persónulega hafa ýmsa fyrir- vara á þeim stuðningi og vísaði til fyrirvara sem stjómvöld í Noregi hefðu sett inn í ályktun þess fund- ar. Steingrímur kvaðst á hinn bóginn telja að rannsóknir í tengsl- um við geimvamir gætu leitt til gríðarlegra tækniframfara á öðrum sviðum. Loks gat utanríkisráðherra þess að ekki hefðu verið ræddar sérstak- lega hugmyndir sem Gorbachev hefði sett fram í ræðu sinni í Múr- mansk á dögunum. Þar lagði leið- toginn til að fram færu sérstakar viðræður um leiðir til að draga úr vígbúnaði á norðurslóðum. Shultz hefði tjáð sér að Bandaríkjamenn vildu að mál þetta yrði fyrst rætt ítarlega á vettvangi Atlantshafs- bandalagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.