Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Jóhann tapaði, en er samt í efsta sæti STI& 1 2 3 H s (o 7 s 9 10 u 11 VINhl. RÓÐ -f KORCHNOI CSviss) Z<o2>0 '/// 0 /z 1 1 4 O 1 2 Tl MMAN CUollancíi) UhO 4 1 l/z % 4 'U 1 0 3 LTU60JEVIC CTúqéjl.) 1(15 /l ý4 y/Y yy/y 4 /x /z /L H G-LIGORIC ÍJ'úfjt’sl') 252S 0 % 0 /// ///y /4 0 4 o 5 MARTANOVIC(Jd5órl) 2S0S o 0 o Y/// O O tl O lo SA LOVCSovéintjy-iu/vn) 2575 0 /z 'A Yl % /z SHORTCEn3lancti) 2(10 4 /z m i o l O 0 i IVANOV[C(J~ú3óA) 2535 4 o 0 m 0 /l Yl 4 9 JÓNANN NJARTARS. 2550 % 4 II 1 4 ////. m 0 /l. 10 P 0 POV1C (J ÚqÍjIoiVÍu) 75(0 •/l 4 /z /z 0 /l 4 y/j 7VY/ U NIKOLIC (Júgóslai/iu) 2(20 0 /l o 4 /z 4 /l Y/M YM 11 OELJA VSlcy(Sovétr.) 200 o 4 l4 1 i 0 /z y/ý //// Skýk Margeir Pétursson Jóhann Hjartarson er nú efst- ur á Investbanka-skákmótinu í Belgrad i Júgóslavíu ásamt þeim Viktor Korchnoi, Jan Timman og Ljubomir Ljubojevic. Þeir hafa allir hlotið fjóran og hálfan vinning. Um helgina urðu úrslit í skákum Jóhanns þau að á laug- ardaginn hélt hann jafntefli með svörtu í mjög erfiðri skák við Sovétmeistarann Alexander Beljavsky. Á sunnudaginn tefldi hann síðan við júgóslavneska stórmeistarann Petar Popovic og fór skák þeirra í bið. Hún var tefld áfram i gærkvöldi og lauk með þvi að Jóhann varð að gefa skákina eftir að alls höfðu verið ieiknir 77 leikir. Það var þó ekkert uppgjafarhljóð í Jóhanni í gærkvöldi, þótt hann hafi beðið sinn fyrsta ósigur á mót- inu. Hann á eftir að tefla fjórar æsispennandi skákir. í dag við heimamanninn Predrag Nikolic og á morgun mætir hann sjálfum Vikt- or Korchnoi. Á fimmtudag teflir hann við Jan Timman og á laugar- daginn við Ljubomir Ljubojevic. Jóhann er fyrst og fremst á mótinu til að afla sér reynslu fyrir væntanlegt áskorendaeinvígi við Viktor Korchnoi. Hann hefur því teflt mjög hvasst og kollkeyrt sig í tveimur skákanna, fyrst gegn Ivanovic, en það ævintýri endaði vel, og síðan á sunnudaginn gegn Popovic. „Þetta fór alveg eftir þeirri kenningu Portisch að heppni og óheppni í skák jafni sig upp þegar til lengdar lætur," sagði Jóhann í gærkvöldi. Skáksérfræðingar hér heima voru almennt bjartsýnir eftir að staðan í biðskákinni við Popovic spurðist út í gær, því Jóhann virtist hafa viðunandi bætur fyrir að vera peði undir. En Júgóslavinn fann geysilega sterka leið og náði að koma Jóhanni í leikþröng, sem þýddi að hann varð að leika riddara sínum af bezta reitnum. Þar með var bjöminn unninn fyrir Júgóslav- ann, en sagan var þó ekki öll. í lokin gaf hann Jóhanni kost á að ná jafntefli með laglegri fléttu sem þeim báðum yfirsást. Önnur úrslit um helgina urðu þessi: 6. umferð á laugardag: Korc- hnoi vann Salov, Nikolic vann Short, Ljubojevic vann Gligoric og Timman vann Maijanovic. Jafntefli gerðu Popovic og Ivanovic eftir að skák þeirra hafði farið í bið. 7. umferð á sunnudag: Short vann Korchnoi, Ljubojevic vann Marjanovic og Bcljavsky vann Glig- oric. Jafntefli gerðu Nikolic og Ivanovic, Timman og Salov. Mjög grannt var fylgst með síðastnefndu skákinni, því þeir tveir mætast í fyrstu umferð áskorendakeppninn- ar í janúar. Biðskák Jóhanns og Popovic tefldist þannig áfram í gærdag: Svart: Petar Popovic Pressa Kasparovs skilaði aðeins jafntefli Skýk Margeir Pétursson Sjöttu skákinni í einvígi þeirra Gary Kasparovs og Anatoly Karpovs um heimsmeistaratitil- inn í skák lauk með jafntefli í gærkvöldi. Áskorandinn, Karpov, heldur því enn eins vinn- ings forystu sinni. Hann hefur hlotið þijá og hálfan vinning, en Kasparov tvo og hálfan. Meistar- amir tefldu ekki í tvisýnu í gærkvöldi. Svo virtist helst sem þeir vildu jafna sig eftir mikla hasarskák á föstudaginn, sem Karpov vann eftir misheppnaða sókn heimsmeistarans. Kasparov beitti enn á ný enska leiknum og Karpov svaraði nú á Brids Arnór Ragnarsson Flugleiðamenn skák- uðu risaveldunum Um miðjan október fór stór hóp- ur bridsspilara á vegum Flugleiða til Möltu og tók þátt í keppni 10 flugfélaga víðs vegar að úr Evrópu. Var sveitin skipuð 22 spilurum en alls tóku 160 spilarar þátt í mótinu. Aðalkeppni mótsins var sveita- keppni með þátttöku 32 sveita og varð Flugleiðasveitin i öðru sæti. Árangur Flugleiðamanna í tvímenningnum var einnig athyglis- annan hátt en i annarri og fjórðu skákunum. í miðtaflinu kom upp svonefnt vængtafl, sem einkenn- ist af því að annar teflandinn fer í peðasókn á drottningarvæng en hinn á kóngsvæng. Það varð þó lítið úr kóngssókn Karpovs, hann kaus fremur að veijast ágangi hvítu mannanna hinum megin á borðinu. Kasparov fékk því rýmri og þægilegri stöðu og hafði að auki frumkvæðið, en Karpov stefndi að því að treysta varnir sínar. Heimsmeistaranum tókst ekki að finna snöggan blett á stöðu Karpovs og eftir uppskipti á drottningum og öllum hrókunum var mesti vindurinn farinn úr stöðu hans. Kasparov bauð jafn- tefli þegar svo var komið, þrátt verður. Jón Baldursson og Bjöm Theodórsson sigruðu í 60 para tvímenningi og í aukatvímennings- keppni unnu íslendingamir báða riðla. í blandaðri parakeppni urðu Flugleiðamenn f 2. og 3. sæti og í blandaðri sveitakeppni f 1. og 2. sæti. Alls var spilað um 24 bikara og komu 12 þeirra í hlut Flugleiða. Eftirtalin flugfélög tóku þátt í keppninni: SAS Noregi, SAS Svíþjóð, SAS Danmörku, British Airways, Air Lingus írlandi, Luft- hansa Þýzkalandi, Austrian Air- ways, A1 Italía og Air France auk Flugleiða. fyrir að staða hans væri ennþá örlítið skárri. Frá fræðilegu sjónarmiði var þessi skák nokkuð athyglisverð, Karpov sýndi að það er hægt að tefla vængtafl með svörtu á þann hátt að leggjast f vörn og fara ekki í gagnsókn, eins og flestall- ir kjósa. Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Enski leikurinn 1. c4 — e5 2. Rc3 — Rc6 3. g3 — g6 4. Bg2 — d6 Þessi staða er einnig vel þekkt með skiptum litum og nefnist þá lokaða afbrigðið í Sikileyjarvöm. 5. Hbl - Bf5 6. d3 - Dd7 7. b4 - Bg7 8. b5 - Rd8 9. Rd5 Hér hefur áður verið leikið 9. e3, en Kasparov er fús til að eyða tíma Bridsdeíld Barðstrendinga- félagsins Staðan í tvímenningskeppninni: Garðar Jónsson — Ingimundur Guðmundsson 549 Friðjón Margeirsson — Valdimar Sveinsson 541 Ragnar Bjömsson — Þorsteinn Þórarinsson 521 Stefán Ólafsson — Kristján Ólafsson 515 Ingólfur Lilliendahl — SigrúnJónsdóttir 514 Spilað er í Armúla 40 stundvís- lega alla mánudaga. í að framkalla leikinn c7-c6, því hann gerir sér vonir um að ná þrýst- ingi gegn c6 peðinu og nýta opna b lfnuna f framhaldinu. 9. - c6 10. bxc6 - bxc6 11. Rc3 - Re7 12. Ba3 - 0-0 13. Rf3 - h6 14. 0-0 - Be6 15. Da4 — f5 16. Rd2 - Rf7 17. Hb3 - Hab8 Svartur hefur teflt svo rólega að það þýðir ekkert að hugsa um gagn- sókn á kóngsvæng, heldur verður hann að valda veikleika sfna á drottningarvængnum. 18. Hfbl - Hxb3 19. Hxb3 - Hc8 20. Da6 - Rd8 Svo sem sjá má hefur Kasparov komið ár sinni nokkuð vel fyrir borð og hefur þunga pressu á drottningarvængnum. Karpov hef- ur ekkert mótspil, svo það kemur mjög á óvart að heimsmeistaranum tekst ekki að ávaxta sitt pund, held- ur sættist hann á jafntefli eftir aðeins átta leiki til viðbótar. Nú verður honum á ónákvæmni, er 35 63. - Kh6 Júgóslavinn lék þessu í biðleik. 64. Db7 - De2+ 65. Kh3 - Dc2! Eftir þennan geysisterka leik' getur hvítur engu leikið nema ridd- araleik og riddarinn hrekst því úr góðri vígstöðu á e4. 66. Dd5? geng- ur þannig ekki vegna 66. — Dc8+ og hvíta peðið á a6 fellur. 66. Rd6 - Ddl! 67. Dc6 - Dg4+ 68. Kh2 - De2+ 69. Kgl - De6! 70. Kg2 - Kh7 71. Kh2 - f5 72. Dc7 - De2+ 73. Khl - Dfl+ 74. Kh2 - Df2+ 75. Khl - Dxg37? Mjög slæmur afleikur sem Jó- hann nýtir sé því miður ekki. Hvítur gat nú leikið 76. Dxg7+!I — Kxg7 77. Rxf5+ — gxf5 og hvítur er patt! Líklega hefur Jóhann treyst andstæðingnum of vel og ekki dott- ið í hug að hann fengi svo einstakt tækifæri. Eftir 75. — f4! hefði svarta staðan hins vegar verið unn- in. 76. Dxa77? - Dxd6 77. Db7 - Ddl+ og hvítur gafst upp. Lokin gætu orðið: 78. Kg2 — De2+ 79. Kgl — Kh6 80. a7 — Bd4+ o.s.frv. Garri Kasparov hann leyfír Karpov að andæfa á b línunni. Betra virðist strax 21. Ra4. 21. Bb4?! - Hb8! 22. Ra4 - Kf7 23. Bc3 - Hxb3 24. axb3 - Dc7 25. e3 - Bc8 26. Da5 - Dxa5 27. Bxa5 - Re6 28. Bb4. Um leið og Kasparov lék þess- um leik bauð hann jafntefli, sem Karpov að sjálfsögðu þáði. Mér þykir líklegt að Karpov hefði teflt þessa stöðu áfram með hvítu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.