Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
45
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Unnið við lokauppsetningu hraðahindrunarinnar á Vesturgötu í
Keflavík og árangur hefur ekki látið á sér standa, þvi stórlega hef-
ur dregið úr umferðarhraðanum.
Hraðahindranir á þijár
götur í Keflavík
Keflavfk.
HRAÐAHINDRANIR hafa verið
settar upp á tveimur stððum i
Keflavík að undanfömu. Að sögn
Karls Hermannssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns hefur stórlega
dregið úr umferðarhraðanum á
þessum götum í kjölfar fram-
kvæmdanna.
Hindranimar em lagðar með
múrsteini og er fyrirmyndin fengin
í Kópavogi. Karl, sem á sæti í
umferðamefnd, sagði ennfremur að
fyrirhugað væri að setja upp þriðju
hraðahindrunina á Faxabraut við
Fjölbrautaskóla Suðumesja.
Hraðahindranimar sem settar
hafa verið upp em á Aðalgötu og
Vesturgötu. Aðalgatan var tengd
Reykjanesbraut í sumar og er um-
ferð á þessum götum, sem báðar
liggja um íbúðahverfi, mikil. Yfir
þær liggja leiðir skólabama í og
úr skólanum og em hindranimar
jafnframt notaðar sem gangbrautir.
- BB
Framhaldsstofnfundur
Sögufélags Ámesinga
Framhaldsstofnfundur Sögu-
félags Ámesinga verður haldinn
að Hótel Selfossi fimmtu daginn
29. október og hefst kl. 20.30.
Á síðastliðnu vori var haldinn
stofnfundur Sögufélags Ámesinga
að Boig f Grímsnesi og mættu þar
á flórða tug manna víðsvegar að
úr sýslunni. Þá var ekki gengið
endanlega frá stofnun félagsins
heldur ákveðið að boða til fram-
haldsstofnfundar, sem verður nk.
fimmtudag.
Markmiðið stofnunar félagsins
er að koma af stað útgáfu héraðs-
sögurits Ámesinga, auk héraðssögu
verður félagið vettvangur þjóðfræði
og þjóðháttarannsókna.
Kyrniingarfundur mál
freyja í Gerðubergi
MÁLFREYJUR i ITC-deildinni
Melkorku halda kynningarfund
í Gerðubergi miðvikudaginn 28.
október kl. 20.00. Yfirskrift
fundarins er „Leiðin til að vera
ekkert, er að gera ekkert".
Undanfarin ár hafa málfreyjur
kynnt starfsemi sfna á sérstökum
fundi sem haldinn er f upphafi
starfsársins. Málfreyjur á Islandi
em nú um 500 talsins og starfa f
23 deildum. Málfreyjudeildimar
leitast við að veita þjálfun í fundar-
sköpum, ræðumennsku og almenn-
um félagsstörfum.
Smyrill
hf. flytur
SMYRILL hf. hefur flutt f stærra
húsnæði að BQdshöfða 18 f
Reykjavík.
Fyrirtækið Smyrill sem er bæði
heildsölu- og smásölufyrirtæki var
stofnað árið 1955 og verslar aðal-
lega með varahluti og aukahluti í
bíla. Smyrill hefur m.a. umboð fyr-
ir Koni höggdeyfa og bílalyftur.
Top-Lamp bílapemr og ljóskastara
og Turbo-Wash þvottatækið.
Starfsmenn fyrirtækisins em flórir.
Morgunblaðið/Kjartan
Á myndinni eru taldir frá vinstri: Reynir Jóhannsson, Konráð Jó-
hannsson og Guðbrandur Bjarnason.
Vantar teppiá stigaganginn ?
yy Þegar velja skal teppi á stigahús,
er ekki nóg ad teppid sé bara mjúkt
og áferðarfallegt, það verður að vera
hljóðeinangrandi og auðvelt í þrifum,
- teppi sem er brunaþolið
og teppi sem mun þola
hinn ótrúlegasta yfirgang
um ókomin ár. «
yy Þessi teppi eru til og
þú fœrð þau hjá okkur,
sérhönnuð teppi á
stigahús og skrifstofur.M
1 .hjá okkur nágœdin jgegrj'
Teppaland * Dúkaland
Grensásvegi 13 - Símar 83577 - 83430
Þegar þú
biðurum
ríssúkkulaði
meinarðu
örugglega
þetta hér
if
$
FREYJA HF. SÆLQÆTISQERÐ.
KAR8NESBRAUT 104, KOPAVOQI