Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 46

Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Sporðdrekinn Eins og við vitum hófst mán- uður Sporðdrekans 23. október og stendur fram til 21. nóvember. Ég mun þvi fjalla töluvert um þetta ágæt- is merki á næstu dögum. Ég ætla að byija á þvf að birta bréf sem lesandi sendi þættin- um. Bréffrá lesanda „Þannig var að ég byijaði á njjum vinnustað fyrir tæpum flórum árum. Þetta er vinnu- staður þar sem konur eru í miklum meirihluta og er starfið fólgið í umönnun fólks. Til að gera langa sögu stutta þá kynntist ég mínum vinnufélögum með tímanum þó svona eins og gengur ein- um betur en öðrum. Ein kona vakti þó strax athygli mína (ég hef alltaf laðast að Sporð- drekum án þess að vita ástæðuna), en það var sama hvað ég reyndi að nálgast hana, það var hreint eins og hún ýtti mér frá sér á hæ- verskan en kuldaiegan hátt. Eftir að hafa unnið með henni I rúmt ár þekkti ég hana jafn mikið og fyrsta daginn í vinn- unni. „ Gleypugangur “ Eftir eitt ár veiktist hún og var frá vinnu í lengri tima. Þegar ég svo hitti hana aftur varð ég að vonum glöð og legg hönd á öxl hennar og segi: „Velkomin X mín, mikið er gaman að sjá þig. Hvemig er heilsan?" Og nú kemur að kjama málsins. Svar hennar var að hrista hönd mína í burtu, líta á mig köldum aug- um og segja: „Ég þoli ekki fólk sem ætlar mann lifandi að gleypa og er með falslæti og glennur." Með það gekk hún I burtu. Versterégunni... Krabbinn ég stóð hins vegar eftir í sámm, löðrunguð á báða vanga. Eftir þetta sann- aðist tvennt fyrir mér, Krabbinn geymir en ekki gieymir og það má segja um Sporðdreka að þeim var ég verst er ég unni mest. Þvi að eftir þessa útgufun hjá X urðum við bestu vinkonur. Ég spurði hana hvort hún væri Sporðdreki og svarið var já. Eftir það skil ég hana betur og horfi fyrst á hana áður en ég tala því það er vist betra að sjá skap Sporð- drekans áður en talað er. Nú svo er bara að haga orðum eftir lund. Varast hlýju Þessi reynsla mín af þvi að reyna að kynnast Sporðdreka hefur kennt mér að þó margt neikvætt megi um hann segja þá fínn8t sennilega sjaldan tryggari vinur. Að visu er oft erfitt að finna út hvað þér leyfist í samskiptunum. Eitt hef ég þó lært, að halda hönd- unum að mér í návist Sporð- dreka og ekki sýna of mikla hlýju, þvi þá fælist drekinn. Vertu kuldalegur á yfirborð- inu og kannaðu drekann á sama hátt og hann kannar þig. Ekki víðlesin, en .. . Mér þætti gaman að heyra hvort þú, Gunnlaugur, sért á sama máli og hvort þessi speki mín sé ijarstæðukennd. Eg er nú ekki víðlesin i stjömuspekinni en kannski innra eðli segi til sin svona stundum. Reynsla best Ég vil þakka kærlega fyrir þetta ágæta bréf og segja að ég er sammála því sem þar stendur. Það er og von mín að fleiri lesendur skrifi þætt- inum og skýri frá reynslu sinni af merkjunum, enda er það svo með stjömuspeki, sem er fag sem fjallar um mannlífið, að raunvemleg reynsla okkar er margfalt meira virði en lestur bóka. GARPUR GRETTIR EKT ÖU&Bfii ,QRETT\R, f\F HVERJU ERT þú EKKI PKinNN El / jpii 'f\TT f\Ð PUO ÞÉR Sl/ONA, ) VVEISTO þWÐ EKKI ? eVZJAÐU PÁ 'A ÞESSARI LÖPP l 06 VEKTU FLJÓTUR, þó ATT EFTIR ) AÐÞRÍFA < J, STÓRT SV/«€>I, ) T ^ J° Á » / ML ::f$RET pavío íN*rr~srz^: TOMMI OG JENNI DRÁTTHAGI BLÝANTURINN FERDINAND :::::::::::::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::::::::::::::::: !:' . ' ' .. !:': :"! : SMAFOLK here's tme ujorlpfamous 5UR6E0N ON HI5WAVT0 HAVE LUNCH IN THE H05PITAL CAFETERIA... Hér er skurðlæknirinn heimsfrægi á leið í mat á sjúkrahúsinu ... 50ME OF THE 00CT0R5 DON'T LIKE TO EAT IN THE CAFETERIA.. spenn- IT‘5 EXCITIN6 BECAU5E l'M T00 5H0RTT0 SEE UVHAT l'VE ORPEREO... Sumum læknunum likar ekki að borða f matstof- Það er spennandi vegna þess að ég er of stuttur til að sjá hvað ég er að panta... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Indveiji að nafni Jaggy Shiv- dasani er mjög áberandi f bandarísku bridslffi um þessar mundir. Hann þykir afburða snjall og hugmyndaríkur rúb- ertuspilari og í ágúst sfðastliðn- um kom í ljós að keppnisbrids á ekki síður við hann. Þá náði hann þeim árangri að verða fyrstur útlendinga til að vinna Spilgold-útsláttarkeppnina, og það með makker, sem hann hafði aldrei æft með áður! Hér er spil, sem Shivdasani spilaði f undan- úrslitum Spilgold-keppninnar Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ G105 ♦ 1083 ♦ Á9762 ♦ G9 Austur ♦ D962 II JDOW2 ♦ D105 ♦ 4 Suður ♦ K4 ♦ Á54 ♦ K83 ♦ ÁK1086 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 lauf Pass ltígull Pass 2grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Þrátt fyrir opnun Shivdasani f suður á eðlilegu laufí, valdi vestur að koma þar út. Shiv- dasani fékk fyrsta slaginn á gosa blinds og sneri sér að tfglin- um, tók kónginn og dúkkaði næsta slag. Austur yfirdrap gosa vesturs og spilaði hjarta. Shivdasani vék einu sinni undan, en drap svo á ásinn og tók þijá tfgulslagi. Sagnhafi var nú kominn með átta slagi og varð að sækja þann nfunda á spaða. Ætti austur spaðaásinn væri engin leið að vinna spilið, svo Shivdasani varð að gefa sér að vestur væri með það spil. En f stað þess að svfna spaðagosanum, sem hefði heppnast, tók Shivdasani ÁK í laufi og spilaði vestri inn á drottninguna. Þannig réð hann við hugsanlega ÁD f spaða á hendi vesturs. Vestur ♦ Á873 VK6 ♦ G4 ♦ D7532 Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu í Jurmala í Sovétrikjunum um daginn, kom þessi staða upp í skák sovézka stórmeistarans Aivar Gipslis, sem hafði hvítt og átti leik, og Pólveijans Sygulski. 22. Bxh6! — c5 (Svartur áræðir ekki að þiggja fómina. Ef 22. — gxh6 þá 23. Dd2! með óstöðvandi sókn. En nú tekur ekki betra við:) 28. Bxg7! - Rxg7, 24. Rf6+ - Kf8, 26. Rg5! (Hótar máti á h7.) 25. - Dd8, 26. Df3 - Ke7, 27. Rxe8 —Dxe8, 28. Df6+ -Kf8, 29. e6 og svartur gafst upp. Gipsl- is er þekktastur fyrir að vera einhver allra friðsamasti stór- meistari í heimi og það kom því mjög á óvart f Jurmala að hann skyldi verða efstur. Mótið var líka eins og sniðið fyrir hann, það vannst á svo lágu hlutfalli að hon- um nægði að vinna tvær skákir og gera hinar ellefu jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.