Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
59
Athyglisverður
draumur
Kæri Velvakandi
Fyrir skömmu átti ég samtal við
103 ára gamla konu á sjúkrabeði.
Sagði hún mér allmerkilegan draum
sem mig langar til að deila með
fleirum og veit að hún leyfír mér
það. Henni fannst hún vera dáin
og komin upp í himinhæðir, eins
og hún orðaði það. Þar tók á móti
henni maður sem hún nefndi Herra
og leiddi hana eftir langri götu þar
efra. Við götuna stóð fjöldi húsa
og voru þau öll númeruð.
Gamla konan spurði hvernig þeir
þama uppi færu að því að byggja
öll þessi hús. Þá sagði hann henni
að mennimir sjálfír, hver og einn
byggðu sín hús sjálfír þama uppi
með hugsunum sínum og verkum á
jörðinni, og að hver maður hefði
sama númer á enni sér og væri á
hans húsi í himinhæðum. Maðurinn
sagði gömlu konunni einnig að
fylgst væri með mönnunum á jörð-
inni því í jarðvistinni væm þeir að
búa sér framtíð og íverustað eftir
dauðann. Þá minntist ég orða Drott-
ins Jesú Krists, Herrans í hæðun-
um, er hann sagði: „í húsi föður
míns eru mörg híbýli."
Mörg ár eru liðin síðan þessi
ágæta gamla kona dreymdi draum
þennan og lengi hefur hún þráð að
hann yrði færður í letur. Nú er það
gert hér með. Þegar hún í dag bíður
dauða síns þráir hún að komast
heim til hæða þar sem húsið hennar
bíður hennar og mun það ekki vera
af lakara taginu. Þeir sem enn eiga
eftir að lifa hér á jörð í mörg ár
ættu að hafa sögu þessa í huga,
því ævin er stutt og hægt er að
byggja upp fallegan heim með góð-
um hugsunum og verkum, bæði hér
á jörð og handan grafar í himin-
hseðum.
Einar Ingvi Magnússon
t-
Þessír hringdu ...
Er kirkjan ekki
siðfræðistofnun?
Sverrir Bjarnason hringdi:
„Að undanfömu hafa birst um
það fréttir í blöðum að í ráði sé
að koma upp svokallaðri siðfræði-
stofnun á vegum kirkjunnar. Ég
hef alltaf staðið í þeirri meiningu
að kirkjan væri siðfræðistofnun.
Ég hélt að skólinn sem rekinn
hefur verið í Skálholti væri skóli
þessarar siðfræðistofnunnar þ.e.
kirkjunnar. Ef það er ekki rétt
hjá mér að kirkjan sé siðfræði-
stofnun til hvers em þá prestamir
að predika yfír okkur á hveijum
sunnudegi? Ég óska eftir því að
þjóðkirkjan upplýsi hvort þetta
álit mitt er rétt eða rangt."
Stórvaxin læða
Stórvaxin læða, hvít með gul-
brúna flekki og ómerkt, hefur
verið í óskilum í húsi á Melunum
I rúmlega viku. Eigandi hennar
er vinsamlegast beðinn að hringja
f sfma 25858.
Svart reiðhjól
Svart kvenreiðhjól með hvítri
flutningagrind framaná fannst
fyrir skömmu. Eigandi þess getur
hringt í síma 12729.
Bíldudalsmálið
er alþingi til
vansa
Hulda Guðmundsdóttir -
hringdi:
„Mér fínnst að alþingi hafí sett
ofan vegna Bíldudalsmálsins. Við
neytendur eigum skýlausan rétt á
að heilbrigðiseftirlit sé haft með
sláturhúsum. Við verðum að geta
treyst því að matvara sem við
kaupum sé í lagi. Ég tel að heil-
brigðiseftirlit í sláturhúsum sé vel
komið í höndum dýralækna og
mér fínnst það vanvirðing að ráð-
ast að dýralæknum með þessum
hætti þegar þeir eru að sinna sínu
starfí."
Seðlaveski
Brúnt kvenseðlaveski með
skilríkjum o. fl. tapaðist föstu-
dagskvöldið 23. október í leigubíl
frá BSR eða fyrir utan Frosta-
skjól 17. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 22721.
Of fáir Hreyfils-
bílar
Þ.E. hringdi og sagði að of fáir
leigubflar frá Hreyfli væru í mið-
bænum á kvöldin. Hún sagði að
á planinu fyrir neðan Amarhól,
þar sem Hreyfíll hefur leigubíla,
væri oft enginn bfll á kvöldin.
Sagðist hún nota Hreyfilsbflana
mikið og að það myndi koma sér
mjög vel fyrir marga ef Hreyfils-
menn gætu bætt úr þessu.
Taska
Hinn 22. ágúst sl. var ný grá-
leit taska tekin í misgripum með
öðrum farangri á ísafírði úr bif-
reiðinni Y-2327. í töskunni voru
bifreiðaverkfæri og fþróttaskór. Á
litlu merki á töskunni stóð skrifað
Y-2327, sími 44783. Sá sem hefur
töskuna undir höndum er vinsam-
legast beðinn að hringja sem allra
fyrst í síma 44783.
Hringnr
Silfurhringur með grænum
steini fannst í miðbænum um
síðustu helgi. Eigandi hringsins
getur hringt í síma 19592.
Fríhafnarpoki
Fríhafnarpoki með tollfrjálsum
vamingi var tekinn í misgripum
í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli
f byrjun mánaðarins. S’a sem po-
kann tók er beðinn að hringja ’i
síma 32970.
Taska
Grá Adidastaska gleymdist í
biðskýli í Arbæjarhverfí fyrir
skömmu. Finnandinn er beðinn
að hringja í síma 672769.
Hvar endaði
Skuggahverfið?
H.Ó. hringdi:
„Við höfum verið að deila um
hvar Skuggahverfið gamla en-
daði. Sumir segja að það hafi
endað í Kvosinni en aðrir að það
hafí náð allt að Ánanaustum.
Gaman væri að fræðast nánar um
legu þessa hverfís."
VISA
VIKUNNAR
Ólafí Ragnari ótal flokka
eignuð hafa verið sár.
Bak við fagra lambsins lokka
líta margir úlfa hár.
Hákur
Lnum eneklásamema^nn
„ ^uaí l 43. ! Kr-tln ÓUhöáUiT v»r.?or™£ur |
-------- rW,kk.fonn»»«u. “ »,b*«ub*nd»l»«»‘n» »»«ð‘ ,rt 1
f.0.,umenn >*«•
ón« h»f«
» viA .Hir »4 *f**rt.
4 |00 Und.fumUrí“»-
. . iL. A..k»nli.lknnU I
„ SufinMonnr fone«
uí&i 'kki koMungu
(rúi BiAir
SiíriAi S«»fin«Uttur i 'or
mnnn.kjöri fk.kk.in..
i Sv.v.r «>rt«on Mg* Motr^
I -Afnr »ð flokknum. »m» ■* n\»v*r
oTrtMon h»fð> '*,iA h»'» ******
asrsaBssss
ÆsrsrrsíKí
JOÍ.I h»,ur
(Vikkiun. i K*-ykj»vik. Sv.vt
lAk i ~«n» »‘r, ne-
utvdurtiluKKU n»fn»li»Unn
4dum.-fml». »»K* Þ»4
.ikri/ hmrauiv hcfði vvnö
Frá kr. 433.-
Pilskr.433.- "
Buxurkr. 693.-
Vendipeysa kr. 867.-
B.MAGNÚSSON
HÓLSHRAUNI 2-SÍMI 5 286 6-PÓ ST H Ó L F 410 HAFNARFIRDI
Pantið tímanlega fyrir jól
KAYS PÖNTUNARLISTINN
ÓKEYPIS meðan upplag endist m
GERID VERDSAMANBURÐ CB
Gengi 28.09 '87.
|