Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Hvað segja þeir um samkomulagið? RÍKISSTJÓRNIN hefur nú ákveðið, hvernig tekjuhlið fjárlagafrum- varpsins verður eins og Morgunblaðið skýrði frá i gær. Morgunblaðið hafði i gærmorgun samband við nokkra aðila og spurði þá álits á samkomulagi stjórnarflokkanna. Svör þeirra fara hér á eftir: Mikilvægar breytingar sem ganga í réttaátt - segir Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri FÍI ÓLAFUR Davíðsson fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda segir að iðnrekendur telji að aðgerðir ríkisstjómarinn- ar feli í sér mjög mikilvægar breytingar, sem gangi í rétta átt. Þá sé mjög mikilvæg sú ákvörðun að taka upp virðis- aukaskatt í ársbyijun 1989. „Þama er um þrennt að ræða. í fyrsta lagi er eiginlega verið að ljúka þeim tollabreytingum, sem hófust með aðild okkar að EFTA 1970. Farið var að lækka tolla af innfluttum iðnaðarvörum og und- irbúa aðlögun iðnaðarins að lægri tollum. Þá voru gefin fyrirheit um það að tollar af aðföngum, hráefn- um og vélum, yrðu felldir niður. Það hefur verið gert að nokkru leyti, en var ennþá heilmikið eftir og það er verið að ljúka því verki núna,“ sagði ólafur. Hann sagði að til dæmis væru nú felldir niður tollar af lyfturum og varahlutum. í öðru lagi væri álagning vöru- gjalds mjög einfölduð. Mörg vörugjöld hefðu verið f gangi og það hefði valdið mísmunun á milli greina. Nú yrði vörugjaldið eitt og hið sama á þeim vörum sem væru vörugjaldsskyldar. Það væri mjög mikilvægt og iðnrekendur hefðu iengi barist fyrir því að einfalda vörugjaldskerfíð og draga úr þeirri mismunun sem það hefði orsakað. I þriðja lagi, sagði Ólafur, að söluskattskerfið yrði mun einfald- ara eftir þessar breytingar. Sölu- skatturinn yrði almennari og undanþágur mun færri. „Þá er það ekki síst að það liggur nú fyrir ákvörðun um að taka upp virðis- aukaskatt frá og með ársbyijun 1989 og þar með verður endi bund- inn á það misræmí sem er í óbeinni skattlagningu hér á landi annars vegar og hins vegar í helstu við- skiptalöndum, sem búa við virðis- aukaskatt. Þetta misræmi hefur leitt tíl svokallaðs uppsöfnunar- skatts, þ.e.a.s. fyrirtæki hérlendis verða að greiða söluskatt af ýmsum aðföngum, eins og rafmagni og olíu, og það þurfa þau að bera í fram- leiðslukostnaðinum. Þetta þurfa fyrirtæki í löndum þar sem virðis- aukaskattur er í gildi, ekki að greiða, því þau geta dregið þessa skatta frá þegar þau leggja virðis- aukaskatt á sína sölu. Við höfum lengi barist fyrir því að tekinn yrði upp virðisaukaskattur hér á landi,“ sagði Ólafur ennfremur. Gert á elleftu stundu í miklu írafan - segir Ólafur Ragnar Grímsson „ÞETTA er samkomulag sem gert er á elleftu stundu í miklu írafári. Það er enn ein aðgerðin til að auka skattbyrði á almenn- ing í landinu og mun gera nauðsynlegar aðgerðir til að bæta kjör þeirra, sem lökust hafa launin, mun erfiðari," sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins. Hann sagði að þessi aðgerð myndi hvorki verða til að draga úr verðbólgu, né bæta lífskjörin I landinu. Mætti sem dæmi nefna að almennar neysluvörur og algeng heimilistæki munu hækka í verði. Hér væri enn eitt dæmið um að ríkisstjómin segir eitt í dag og ann- að á morgun og virðist ekki hafa innri styrk til að móta sér einhveija varanlega heildarstefnu. „Alþýðubandalagið mun síðan leggja fram aðrar tillögur í skatta- málum á Alþingi í framhaldi af þeim tillögum sem við höfum þegar lagft fram. Tillagan verður lögð fram til að sýna fram á að það er hægt að draga úr halla ríkissjóðs og ná áföngum í baráttunni gegn verðbólgu eftir öðrum leiðum. Al- þingi mun geta valið milli tillagna okkar og ríkisstjómarinnar í þeim efnum," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Rangt að leggja sölu- skatt á mat- vörur - segir Ásmundur Stef- ánsson forseti ASÍ „ÞESSAR breytingar eru mér mikil vonbrigði. Eg tel að það sé rangt að leggja söluskatt á matvörur. Þó mjólk og dilkakjöt sé niðurgreitt og svína- og ali- fuglakjöti sé haldið niðri í verði með lækkun kjarnfóðurgjaids, hækkar fiskur um 25%, skattur- inn leggst með fullum þunga á kartöflur, sömuleiðis á brauð og svo framvegis," sagði Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusam- bands íslands er bornar voru undir hann aðgerðir ríkisstjórn- arinnar. „Mér fínnst augljóst að aðgerðir af þessu tagi flytji skattbyrðí frá þeim sem hafa hærri tekjur, því þær vörur sem lækka í verði koma þeim f meira mæli til góða, yfir á þá tekjuminnstu, því þær leggjast þyngst á þá sem hafa fábrotnustu neysluna. Til viðbótar verð ég að segja að ég hef litla trú á að niður- greiðslur muni haldast til frambúð- ar. Reynslan hefur kennt manni að háar niðurgreiðslur eru almennt tímabundið fyrirbæri. Ég held ekki að um sé að ræða mikil söluskatts- svik á þessu sviði og að þessi svokallaða einföldun muni skila litlu f bættu skatteftirliti. Það er auglóst að aðgerðin er óréttlát og ég verð að vona að Alþíngi beri gæfu til að vinda ofan af þessari vitleysu," nagði Ásmundur ennfremur. Hann sagði rétt að minna á að í flestum öðrum Evrópulöndum, til dæmis öllum Evrópubandalagslönd- unum nema Danmörku, væru nauðsynjar annað hvort söluskatts- fijálsar eða á þær væri lagður mjög lágur skattur. Þama væri því ekki um samræmingu að ræða heldur þvert á móti. Ásmundur sagði að breytingar á tollum og vörugjaldi gengju í sömu átt og breytingamar á söluskattin- um, verið væri að leggja þyngri álögur á þá lægra launuðu. Um breytingamar á vísitölunum sagði hann að verið væri að spila með hana. „Það ér greinilega verið að nýta sér breytingar sem orðið hafa á neyslunni frá því vísitölugrunnur- inn varð til. Svoleiðis hundakúnstir eru því miður ekki gerðar í fyrsta skipti. Stjómvöld hafa leikið slíka leiki fyrr, en þeir hafa aldrei þótt einkennast af heiðarleik eða virðu- leik.“ Breytingar í réttaátt - segir Jóhann J. Ólafs- son, formaður Verslunar- ráðs „ÞÓ AÐ við í Verslunarráðinu höfum ekki fengið allt sem við vildum, þa'eru þessar breytingar mikil framför, sagði Jóhann J. Ólafsson, formaður Verslunar- ráðs, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á skatta- og tollabreyt- ingum ríkisstjórnarinnar. „Það þarf að gera meira í næsta áfanga, en aðalatriðið er að tollar séu hlutlausir gagnvart neyslu, þannig að menn geti valið vörur eftir sínum þörfum, en ekki eftir því hvað ríkissjóðúr leggur á þær.“ Aðspurður sagði Jóhann að hann teldi að breytingamar myndu færa verslunina inn í landið, að minnsta kosti á vömm í hærri tollflokkum. Að vísu yrði alltaf eitthvað um utan- ferðir til verslunar, en líklega myndi draga úr þeim öfgum sem verið hefðu í þeim. Jóhann sagði að það væri of mikill tollur á vörum frá löndum utan EFTA og EB, þvi það drægi úr viðleitni manna til að leita sem hagstæðastra innkaupa. Hann sagði eínnig að honum litist illa á 10% gjald á sælgæti, kökur og kex, og að með því væri faríð í þveröf- uga átt við það sem stefnt væri að með breytingunum. Breytingin kemur illa við lágtekju- fólk - segir Kristín Hall- dórsdóttir, Kvennalista KRISTÍN Halldórsdóttir, þing- maður Kvennalistans, hafði eftirfarandi að segja þegar Morgunblaðið leitaði álits hennar á skatta- og tollabreytingum ríkisstjórnarinnar. „Það sem fyrst og fremst slær mann, er að þessi háa skattpró- senta, 25%, á að leggjast á allar neysluvörur, en um leið er upplýst að 22% virðisaukaskattur eigi að leysa söluskattinn af hólmi þegar þar að kemur. Þetta gengur auðvit- að þvert á það sem alltaf hefur verið notað sem réttlæting fyrir því að fækka undanþágum, nefnilega að þá yrði hægt að stórlækka skatt- prósentuna. Sú staðreynd að nú á að keyra upp skatt á matvæli, en skattur á þjónustu verður með lægri prósentu, segir auðvitað hvaða þrýstihópar það eru sem mark er tekið á. Það eru auðvitað hópar eins og lögfræðingar og verkfræð- ingar, en lágtekjufólk hefur ekkert að segja. Mikilvægustu neysluvörur eru svo taldar mjólk, dilkakjöt, smjör og skyr, sem er auðvitað út í hött að hluta til, því ekkert lág- tekjufólk hefur lengur efni á að kaupa dilkakjöt, en brauð og fískur má hækka fyrir þessum herrum sem ráðskast með matarreikning heimil- anna. Hækkun bamabóta og lífeyr- istrygginga kemur ekki til með að bæta þá hækkun matarreiknings um nær ■/< sem orðið hefur, og við Kvennalistakonur höfum margsinn- is mótmælt harðlega. Álagning á matvæli var engin, og þannig vild- um við hafa það áfram. Hvað tollalögin varðar þá var vissulega breytinga þörf, en mér sýnist á þeim dæmum sem tekin eru að sú einföldun sem menn þrá svo ákaft að ná, muni rétt einu sinni koma fram í að brýnustu nauðsynj- ar heimilanna hækka. Nægir þar að nefna ísskáp og þvottavél, sem talin eru ómissandi á flestum heim- ilum. Ég held að það sannist hér rétt einu sinni að einföldun og jöfn- uður geti snúist upp í andhverfu sína.“ Er að kaupa rúmlega aldar gamlan kastala i Englandi: Hefur venð draum- ur minn í mörg ár - segir Magnús Steinþórsson, sem hættir í gnllsmíðinni og hyggst hefja hótelrekstur „ÞETTA er búinn að vera draumur minn í mörg ár. Verkefnið er spennandi og ólíkt þvf sem ég hef verið að gera. Ég hef trú á þessu og legg allt mitt undir,“ sagði Magnús Steinþórsson gullsmiður sem vinnur að þvi að kaupa kastala i Torquay í Eng- landi þar sem hann ætlar að reka hótel. Kastalinn heítír The Manor hveiju í heimsókn. Magnús sagði að 400—500 íslenskir ferðamenn færu árlega á þessar slóðir og vonaðíst hann til að sjá marga landa á The Manor House Hotel. Þetta svæðí er vinsælt hjá Eng- lendingum og þeír sælcja mikið í hótel í gömlum húsum eða köstul- um með merka sögu eins og The Manor House, sagði Magnús. Þess má geta að í grennd víð hótelíð eru margir golfveilir. Magnús er einn af eigendum skartgripaverslunarinnar Gulls og silfurs á Laugavegi. Hann var búinn að koma sér vel fyrir hér og „ég var farinn að geta haft það notalegt. En ég átti þennan draum og hef raunar átt h.ann frá því ég var í Englandi á árunum House og var byggður árið 1867. Þar hefur verið rekið hótel undan- farin ár, með gistingu fyrir 70 manns og veitingasölum fyrir 300. Þó húsið sé gamalt er hótel- ið búið öllum þægindum. Öll herbergi eru til dæmis með baði og sjónvarpi. Kastalinn er á 2 hektara lóð og eru 200—300 metr- ar níður á ströndina. Magnús vildi ekki gefa upp kaup- verð kastalans. Magnús hyggst opna hóteiið eftir breytingar í lok marsmánað- ar og gera það með glæsibrag. Þar verður fslenzkt starfsfólk að hluta. Einnig er ætiunin að fá íslenska matreiðslumeistara öðru Magnús Steinþórsson gullsmiður, tiivonandi kastalaeigandi og Iiótel- haldari i Englandi. The Manor House Hotel í Torquay i Suður-Englandi. Morsunblaðið/Þorkell 1979—80 til að afla mér sérfræði- menntunar í demöntum," sagði Magnús. Hann skoðaði fjölda hót- ela í haust þar til þetta kom upp í hendumar á honum. Hann seldi meirihluta eigna sinna fyrir nokkru, fékk fyrirgreiðslu f ensk- um bönkum og byijar nú upp á nýtt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.