Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 31 Þessi fyrirtæki styrkja brunavarnaátak Reykskynjarar Slökkvitæki Slökkvitækjahleðsla Í I | Í I Ármúli 36 - sími 82466 TOYOTA á — jt/r RONNING heimilistæki KRINGLUNNI —SÍMI (91)685868 s KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA -------------í (f^lnaust^ Í BORGARTÚNI 26, SlMI 62 22 62 -------------1 i /Nnrnmb TRYGGINGAR { L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna OSTA- OG SMJÖRSALAN Bitruhálsi2 Reykjavik Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis l ^=^SPARISJOÐUR í ^mvÉLSTJÓRA 1 BORGARTÚNI 18, SÍMI 28577 SÍÐUMÚLA 1, SÍMI 685244 *ma****al LSS, er til húsa á Laugavegi 59, Reykjavík, sími 10670. Veitir ráðgjöf, þjónustu og námskeið varðandi bruna- varnir. Útvegum eldvarnabún- að til heimila, fyrirtækja ogi slökkviliða. í ER í DAG UNNIÐ AF SLÖKKVEiÐSMÖNNUM Á REYKJAVÍKURFLUGVELU. Sú lagaskylda er lögð á sveitarfélög að annast brunavarn- ir, að greiða kostnað við slökkvilið og eldvarnaeftirlit. Þótt slökkvistarf sé mikils virði, er þó þýðingarmest að koma í veg fyrir, að eldur verði laus og valdi tjóni á mönnum og munum. Þess vegna er BRUNAVARNAÁTAK ’87 geysi þýðingarmikið. Samband íslenskra sveitarfélaga þakkar Landssambandi slökkviliðsmanna frumkvæði þess og framtak í sambandi við brunavarnir og BRUNAVARNAÁTAK '87 og hvetur alla landsmenn til þátttöku í brunavarnaátakinu. Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfé laga. Verum eldklár og tökum þátt í brunavarnaátaki ’87, Þá er desember upp runninn og skammt til jóla og áramóta. Eitt árið enn stendur þjóðin frammi fyrir þeirri staðreynd, að hún hefur fórnað hundr- uðum milljóna króna á altari eldguðsins, og það sem verra er, enn höfum við misst mannslíf í eldsvoðum á íslandi. Hvers vegna? Hvað er til ráða? Við slökkviliðs- menn gerum okkur grein fyrir, að eldurinn kviknar ekki bara sí svona, heldur kveikjum við hann alltaf sjálf. Við höfum því ákveðið, í samvinnu við Brunabótafélag íslands, að efna til bruna- varnaátaks hér í Morgunblaðinu annan hvern dag til jóla. Við munum kappkosta að fjalla um sem flesta þætti brunavarna og höfum fengið hina ýmsu aðila til liðs við okkur. Þinn þáttur, lesandi góður, í Brunavarnaátaki ’87 er einfald- lega sá, að við biðjum þig að lesa og kynna þér efni þeirra blaðsíðna sem við munum birta. Ef við slökkviliðsmenn fáum þig, almenning í þessu landi, á heimili eða á vinnustað, til liðs við Bruna- vamaátak '87 erum við þess fullvissir að okkur tekst sameiginlega að fækka eldsvoðum. Bamagetraun verður í gangi á öllum síðum okk- ar og verða dregin 20 nöfn úr réttum lausnum á þrettánda dag jóla og fá þeir heppnu viðurkenn- ingu og veröiaun. Guðmundur Helgason, formaður Landssambandi slökkviliðsmanna. Hvad er eldur? Til þess að eldur geti lifað þarf þrennt að vera til staðar þ.e.a.s. ELDS- NEYTI, SÚREFNI og HITI. Ef eitthvað eitt af þessu þrennu fell- ur út slokknar eldurinn. Eldflokkarnir Eini breytilegi hluti þríhyrningsins á myndinni hér á undan er eldsneytið. Eldsneytið getur verið í föstu formi svo sem timbur, pappír, klæði o.fl. Eða fljótandi formi svo sem olíur, bensín, feiti og aðrir eldfimir vökvar. Og í þriðja lagi í loftkenndu formi svo sem gas. Flokkarnir eru: A: eldar í föstum efnum. B: eldar i fljótandi efnum. C: eldar í loftkenndum efnum. Handslökkvi- tæki Handslökkvitæki eru merkt með bók- stöfunum A, B og C og segir það til um hvaða efni eru i þeim og hvaða elda þau notist á. Algengustu slökkvitæki á markaðin- um í dag eru: Vatnsslökkvitæki, duftslökkvitæki, kolsýrutæki og hall- ontæki. Vatnstæki: Með því að sprauta vatni á eldinn náum við niður hitanum sem er eitt af þrennu sem þarf til að eld- ur geti brunnið og með þvi móti slökkvum við eldinn. Dufttæki: Með notkun dufts á eld skeður tvennt. Duftið hindrar aö súr- efni komist að eldinum og duftið dregur einnig í sig hita frá eldinum og hann slokknar. Kolsýrutæki: Vinna eingöngu þannig að þau útiloka að súrefni komist að eldinum þannig að hann kafnar. Hallontæki: Vinna efnafráeöilega á eldinum þannig að keðjuverkunin sem þar á sér stað rofnár. Rétt er að geta þess að þrátt fyrir-gífurlegan slökkvimátt hallontækja er sá galli á gjöf Njarðar, að notkun þess eyöir ósonlaginu og þau eru vafasöm við eld í fólki. Rafmagn: Það er sama hvort um er að ræða A, B eða C eldflokk raf- magn getur alltaf verið til staðar. Þess vegna er ekki sama hvaða slökkviefni er notað þar sem rafmagn Hefjid slökkvistarf vid jadar eldsins, undan ykkur Eydid ekki dýrmaetu slökkviefni í prófun. Til umhugsunar Fyrir hálfri öld eða svo var varla á færi almennings að eiga önnur slökkvitæki en fötur með vatni eða sandi. Trúlega eru slík slökkvitæki ekki á mörgum heimiium í dag. EN HVAÐ ER Á ÞÍNU HEIMILI? Á hverju heimili á íslandi ætti að vera: HANDSLÖKKVITÆKI REYKSKYNJARI ELDVARNATEPPI Að sjálfsögðu er varkárni og góður búnaður besta eldvörnin. Þó er enginn svo viss að ekki sé sjálfsagt að eiga slíkan búnað á heimili sínu. er annars vegar. Vatn leiöir rafmagn og er því beinlinis hættulegt að nota það á rafmagnselda. Ef um raf- magnseld er að ræða skal nota annaðhvort duft, hallon eða kolsýru, en þessi efni leiða ekki rafmagn. Ef um er að ræöa fljótandi eld svo sem i olíu, bensínu eða feiti má alls ekki nota vatn vegna þess að vatnið eykur súrefnisstreymið að eldinum. Og einnig orsakar vatn útbreiöslu eldfima vökvans þannig að eldurinn magnast. Ef um slíkan eld er að ræða ber að nota duft, hallon eða kolsýru. Leiðbeiningar eru prentaðar á öll slökkvitæki bæði hvemig á að opna tækið og einnig hvernig á að beita slökkviefninu á eldinn. Lesið þessar leiðbeiningar vel. Við val á handslökkvitækjum þarf að hafa í huga aðstæður þar sem tæk- ið á að notast og er best að leita til fagmanna svo sem eldvarnaeftir- litsmanna, slökkviliðsmanna eða söluaðila. Staðsetning Slökkvitækja Þegar slökkvitækjum er valinn staður á heimilum eða á vinnustaði vinnustöðum þurfa aö gefa sér tima til að hugsa og þjálfa viðbrögð ef eldur kemur upp. Haldið þvi fjölskyldufund og vinnu- staðafund strax. Nokkur minnisatriði sem vert er að athuga og leggja á minnið. - Hvert er símanúmer slökkviliðs á þinum stað? - Hvar eru handslökkvitækin og eld- varnateppið og hvað átt þú að nota í hverju tilfelli? - Hvar eru útgönguleiðir? - Hverja getur þú látið vita sem eru í hættu af völdum eldsins? - Eru tækin í lagi? Hafa slökkvitæki verið yfirfarin samkvæmt leið- beiningunum? -Er reykskynjarinn i lagi og hvenær þarf að endurnýja rafhlöður? Mundu að ÞITT eldvama- eftirlrt er bésta tryggingin fyrir því að FJÖLSKYLDA ÞÍN EÐA HEIMILI verði ekki eldinum að bráð. GETRAUIXI: Nefndu flórar mismunandi tegundir af handslökkvitæigum. þarf að hafa í huga að: i - Tækin séu staðsett við útgöngu- leiðir t.d. i kyndiklefum eða á i svæðum þar sem eldhætta er I mest. Nafn: - Ekkert hindri aðgang að slökkvi- tækinu. - Tækin séu staðsett það hátt að • Heimilisf.: óvitar nái ekki að losa þau úr fest- I ingunum og skaði sig ekki á tækinu sjálfu eða innihaldi þess. j Póstnr.: Gefið ykkur tima til að hugsa: Bæði fjölskyldur og samverkafólk á Sendið svörin til: Skrifstofa LSS, Laugavegi 59, 101 Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.