Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 5

Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 5 Með útsjónarsemi í samningum við Sportsworld Travel í Eng- landi tókst okkur að útvega ferðir og aðgöngumiða á íþrótta- viðburði Ölympíuleikanna í Seoul í september 1988, sem verður aðteljasttil kraftaverka, því eftirspurnin ergífurleg. Við bjóðum íslensku íþróttaáhugafólki að slást í hópinn í stórkostlega Ólympíuferð á kjörum sem gera langferðina að leikeinum. Komdu á skrifstofur okkar og kynntu þér nánar ferðina og kjörin; hvernig þú átt möguleika á að fylgjast með íslensku keppendunum etja kappi við mesta afreksfólk íþróttaheimsins í dag; hvernig íþróttasagan verðurtil á elstu og virtustu Dæmi: kappleikum sögunnar, um leið og þú kynnist framandi landi og heillandi þjóð. - Komdu með til Seoul ’88! Ferðaveltan Þú byrjar strax að leggja fyrir þá upphæð sem þú ræður við í hverjum mánuði fram að brottför og færð sömu vaxtakjör og á góðum innlánsreikningum. Aðildarbanki okkar lánar þér síðan upphæð sem nemur 175% af heildarsparnaðinum - og þú hefur nægt fé til fararinnar - sem þú síðan greiðir á jafnlöngum tíma og þú sparaðir, að viðbættum tveimur mánuðum. Hvað um að byrja sparnaðinn með veglegri jólagjöf handa sjálfum sér? Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Upphæð í loktímabils Lán Ráðstöfunarfé m/vöxtum Mánaðarleg endurgreiðsla Endurgreiðslu- tímabil 9mán. 3.000,00 5.000,00 10.000,00 27.000,00 45.000,00 90.000,00 47,250,00 78.750,00 157.500,00 74.807,50 125.027,50 250.555,00 5.134,72 8.514,54 16.964,08 11 mán. Ath. Miðafjöidi er takmarkaður. Því borgar sig að sýna fyrirhyggju, bóka ferð strax og hef ja sparnaðinn sem fyrst. 0 Samvinnubankinn Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899 Hótel Sögu við Hagatorg ■ 91 -622277 Akureyri: Skipagötu 14 96-27200 Útvarpsstjóra stefnt vegna frétta af Svefneyjamáli Útvarpsstjóra, Markúsi Erni Antonssyni, hefur verið birt stefna vegna fréttaflutn- ingfs sjónvarpsins af svoköll- uðu Svefneyjamáli í ágúst. Sakborningur í Svefneyjamál- inu, hefur ákveðið að höfða einkarefsimál vegna ummæla sem komu fram um hann í frétt sjónvarpsins. Þær kröfur eru gerðar, að út- varpsstjóri verði dæmdur til þyngstu refsingar og að tiltekin ummæli um sakboming verði dæmd dauð og ómerk. Þá krefst hann þess að útvarpsstjóra og Ríkisútvarpinu verði gert að greiða honum tvær milljónir króna í miskabætur. Loks krefst hann 300 þúsund króna til að standa straum af kostnaði á birtingu dóms og að sú skylda verði lögð á sjón- varpið að birta niðurstöðuna í fyrsta fréttatíma eftir að dómur hefur verið kveðinn upp og birtur. Málið verður þingfest fyrir dómi þann 15. desember. Hluti þátttakenda ráðstefnu um sorg og sorgarviðbrögð sem haldin var í vor í Reykjavík. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð Á ÞRIÐJUDAGINN verða stofn- sem og syrgjendur og aðstandendur uð samtök um sorg og sorgarvið- brögð og verða þau öllum opin til þátttöku. Undanfarin misseri hefur umræðan í þjóðfélaginu um dauðann, sorgina og viðbrögð fólks við miklum missi aukist mjög. Mjög fjölmennar náms- stefnur hafa verið haldnar, bæði í Reykjavík og á Akureyri og hefur þar komið skýrt fram hversu brýn þörf er fyrir félags- skap fólks, sem þekkir sorgina og þrautir hennar af eigin raun. Því hefur verið ákveðið að mynda samtök um sorg og sorg- arviðbrögð og verður stofnfund- ur í Templarahöllinni, Eiriksgötu 5, kl. hálf níu á þriðjudagskvöld- ið. þeirra. Er leitað eftir sem víðtæk- ustum hugmyndum hvemig slíkur félagsskapur getur sem best komið þeim að gagni sem honum er ætlað að þjóna. Einnig er lýst eftir heppi- legu nafni fyrir slík samtök. Sem fyrr segir verður stofnfund- urinn í IOGT húsinu, Eiríksgötu 5, þriðjudaginn 8. desember kl. 20.30. Hugsanlega verða samskonar sam- tök stofnuð víðar um landið enda þörfin állstaðar jafnbrýn fyrir slíkan stuðningsaðila, því að sorgin gleym- ir engum. (Fréttatilkynning) Markmið samtakanna verður að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra. Þeim tilgangi hyggjast væntanleg samtök ná með því að: a. Efna til almennra fræðslufunda og samverustunda b. veita þá upplýsingaþjónustu sem auðið er á hvetjum tíma c. vinna að stofnun stuðningshópa fyrir syrgjendur d. greiða fyrir heimsóknum stuðn- ingsaðila til syrgjenda e. gangast fyrir námskeiðum og þjálfun slíkra stuðningsaðila og handleiðara f. efla almenna fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð í fjölmiðlum og sem víðast á opinberum vett- vangi. í undirbúningshóp sem unnið hefur að stofnun þessara samtaka er bæði fagfólk, læknar, prestar, hjúkrunarfræðingar sem og fólk sem hefur orðið fyrir missi. Þar hefur það komið skýrt fram hversu mikilvægt er fyrir fólk að vinna sig út úr sorginni með því að tjá sig, tala og hlusta. Enginn skilur betur tilfinningar fólks í sorg og þjáningu en þeir sem hafa af svipaðri eða sömu reynslu að segja. Það er og alkunna að margir hafa þurft að takast á við sinn harm og missi í einrúmi, án þess stuðnings sem öll- um er nauðsynlegur við slíkar aðstæður. Slík samtök ættu að geta orðið farvegur fyrir slíkan stuðning. Þess er vænst að sem allra flest- ir sjái sér fært að koma til stofn- fundarins, bæði það fagfólk sem vinnur með fólki sem býr við sorg, m Með SL ferðaveltunni kemstu auðveldlega í för með íslensku Ólympíukeppendunum - upplifun ævinnar á laufléttum kjörum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.