Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 24

Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Rœtt viÖ ísraelska fiðluleikarann Yuval Yaron sem spilaÖi hér um daginn. TONUSTIN ER ANDSTÆÐA VIÐ SORGINA OG ERFIÐI EIKANA .. Ætli íslendingar og gyðingar séu ekki álíka uppteknir af fortíð sinni, þó með ólíkum móti sé? Yuval Yaron er 34 ára fíðluleikari sem lagði leið sína hingað um daginn og spilaði á tónleikum hjá Tónlistar- félaginu 21. nóvember. I sumra augum er fiðlan kannski ekki jafn augljóst einleikshljóðfæri og píanóið, en í höndum fiðluleikara eins og Yarons hljóta slíkar vangaveltur að gleymast. Auk þess sem spila- mennska hans er ósvikin, þá virðist það nánast krefjast ofurmannlegrar yfirvegunar og sálarstyrks að spila nótnalaust og aleinn á sviðinu í tvo tíma. Ef einhvetjum dettur í hug einmanaleg mynd fiðlarans á þak- inu, þá er sú mynd ekki fjarri lagi, því Yaron er gyðingur frá ísrael og myndin af fíðluleikaranum dapur- lega því hluti af þjóðarímynd hans. Reyndar spurði þýzkur fréttamað- ur Yaron einhvem tímann hvers vegna það væru svo margir góðir fíðluleikarar í hópi gyðinga. Yaron svaraði að bragði að fíðlan væri þjóð hans töm, og auðveldara að flýja með fíðlu á bakinu en píanó. Og þeim er ekki aðeins fíðlan töm, held- ur tónlist yfírleitt. „Tónlistin er ríkur þáttur meðal okkar, því hún er and- stæða við sorgina og erfíðleikana, sem við þekkjum svo vel,“ bætti hann við um daginn, þegar hann rifjaði tilsvarið upp. Hann og þjóð hans er nefnilega ekkert á því að fortíðin eigi að gleymast. Og senni- lega er erfítt að gleyma nokkru, þegar á heitum sumardegi í Tel Aviv sézt kannski til miðaldra konu í stutterma kjól, og þegar hún stend- ur í strætó og heldur sér í slána, blasa við á handlegg hennar tattó- veruð númerin úr þýzkum fangabúð- um frá því fyrir margt löngu .. . Yaron er prófessor við tónlistar- deild Indiana háskóla í Bloomington, þessarar risastóru deildar, þar sem svo margir frábærir tónlistarmenn kenna. Einhver man örugglega eftir sellóleikaranum Janos Starker, sem spilað með sinfóníunni og hjá Tón- listarfélaginu fyrir nokkrum árum. Þeir Yaron kenna þama báðir, eru góðir vinir og það var reyndar Stark- er, sem benti stjóm Tónlistarfélags- ins á Yaron. Hann hefur verið í nokkur ár í Bloomington, en það var ekki efst í huga hans framan af að fara að kenna, þó hann kunni því mæta vel núna. Yaron var fljótur til á fiðluna og farinn að koma fram með hljómsveit- um sem unglingur, . spilaði meðal annars með ísraelsku fílharmóníunni heima og heiman, undir stjóm Zubin Mehta. Svo lá leiðin til Banda- ríkjanna 1973, hann var í Blooming- ton og ekki sízt nemandi Jascha Heifetz í háskólanum í Suður-Kali- fomíu. Þegar tónlistin er annars vegar talar Yaron frekar um aðra en sjálfan sig og Heifetz er nemand- anum tungutamur. Heifetz hafí komist svo langt í leik sínum, náð æðri víddum, þangað sem hann verði ekki svo auðveldlega spilaður uppi. Áhrif hans verið slík að hann hafí hrifíð alla meðspilara sína til betri verka með leik sínum, jafnvel túbu- leikarana. Eftir að Yaron yfírgaf Ísrael var hann kallaður í herinn. Herskyldan er þijú og hálft ár, ekki fysilegt í miðjum tónlistarferli, svo hann fékk greiðlega undanþágu. Þegar hæfí- leikamir eru nægir og átakaþörfín takmarkalítil, liggur beint við að taka þátt í keppni. 1975 kom Yaron til Helsinki til að taka þátt í Síbel- íusarkeppninni og fór þaðan með þau þrenn verðlaun, sem em veitt þar: verðlaun fyrir sigur í keppninni, fyr- ir beztu túlkun á tónlist Sibelíusar og verðlaun gagnrýnenda. Svo tók við þetta venjulega eftir slíkan árangur, ferðalög hingað og þangað um heiminn, bara spila, ferðast og spila. 1977 komst harðlínumaðurinn Begin til valda og undanþágan til herþjónustunnar var afturkölluð, Yaron skyldi í herinn, en hlýddi ekki, svo 1978, þegar vegabréf hans rann út, var það ekki endumýjað og hann sat í Bandaríkjunum skilríkjalaus. Þar með vom ferðalögin úr sögunni og það skarst á mörg sambönd. Næstu árin hafði Yaron hægt um sig, var aðstoðarkennari í Blooming- ton og hélt sér og fíðlunni við efnið. 1983 fékk hann bandarísk skilríki, ekki fullgilt vegabréf þó, þannig að hann gat aðeins farið til landa, sem ekki kröfðust vegabréfsáritunar. Fyrir skömmu sættust yfirvöldin heima á að hann skyldi fá að kvitta fyrir herþjónustuna með fjögurra mánaða herskyldu, án þess að munda skotvopn, heldur með því að spila og kenna. I sumar fór hann til ísraels í fyrsta skipti eftir tíu ára útivist. Ferðin hingað var fyrsta ut- anlandsferðin á nýja vegabréfínu. — Langur inngangur, en óvenjuleg saga. Mál til komið að snúa sér að tónlistinni og orðum Yarons ... Yaron er kvikur og strákslegur, var forvitinn um Ísland og íslend- inga, sem hann vissi lítið um áður en hann kom. Hann talar fumlaust eins og hann spilar, enskan orðin honum nægilega töm til að tala um tónlistina, þó hún hljóti að hefta hann, þegar hann stekkur upp á nef sér, sem hann getur vísast hressilega eins og aðrir Miðjarðarhafsbúar. Og eins og fleiri þar um slóðir, þá keðju- reykir hann meðan hann talar, ekki af áfergju, en reykir samt. Þykk gleraugu setja svip á hann, segist vera nánast blindur án þeirra. - Það þarf ekki mikið innsæi til að gera sér grein fyrir, að þegar ungur maður, sem hefur keppt að því að komast í fremstu röð í sínu fagi og er á góðri leið, er skyndilega negldur niður og neyddur til að draga sig í hlé, þá hlýtur að verða stormasamt í sálartetrinu um hríð, eða hvað? „Stundum er lífíð auðvelt, stund- um erfítt, stundum gengur vel og stundum illa. En þegar illa gengur og maður er eins og í dimmum göngum, þá glittir nú samt alltaf í ljós, ef vel er að gáð. Það gengur allt yfír, líka erfiðleikamir. Ég komst að sem aðstoðarkennari í Bloomington og var í fyrstu kannski ekki sérlega sáttur við að kenna. En ég fann fljótlega að það var gaman, las mér svolítið til í sálar- fræði og velti kennslunni fýrir mér. Nú veitir kennslan mér djúpa ánægju og ég er fastráðinn þama sem prófessor. Ég er með mjög góð- an hóp nítján nemenda. í hverri viku fær hver og einn einkatíma og einn hóptíma. Það er annars makalaust að sjá hvað er til mikið af afburða- nemendum, krökkum á aldrinum tólf til sextán ára. Og hjá þeim beztu er þetta ekki aðeins fíngralipurð. Leikur þeirra hljómar eins og inn- blásinn af æðri sviðum. Ég veit um einn slíkan, fjórtán ára fíðluleikara, sem er auk þess búinn að taka BS próf í stærðfræði. Ungum einleikur- um er líka veitt mikil athygli og þess vegna geta þeir eldri jafnvel átt erfítt uppdráttar. Foreldrar þessara bama lifa fyrir þau, flytja sig hiklaust þangað sem beztu kennaramir em. Ef aðeins móðirin á heimangengt, hikar hún ekki við að fylgja bami sínu og sker þá hikstalaust á hjónabandið, ef með þarf. í þessum hópi er áberandi mik- ið af Japönum, Kóreubúum og núorðið Kínvetjum líka. Ég kann vel við mig í Blooming- ton, landslagið er fallegt og það fer vel um mig. Því fer fjarri að ég hafí hug á að flytjast heim aftur. Eftir dvölina í Bandaríkjunum virðist lífíð heima fyrir of erfítt og flókið. Mér Lauðst reyndar staða konsert- meistara í ísraelsku fílharmóníunni þegar ég yar heima í sumar, en af- þakkaði. Ég þekki vel til hljómsveit- arinnar frá því fyrmrn og auk þess er bróðir minn fyrsti flautuleikari í henni. En mér finnst starfíð of bind- andi, það veitir of lítið frelsi og svigrúm. Ég er víst orðinn vanur öðm. í þau næstum tíu ár, sem ég hef verið í Bloomington hef ég haldið mér við sem einleikari. Það hefur kostað heilmikla hörku og úthald, því það er erfítt að æfa sig án þess að hafa nóg af tónleikum framund- an, þegar það er orðið vaninn. En ég hef líka farið út í að spila kamm- ertónlist, sem ég hefði ömgglega ekki gert annars og haft mikla ánægju af því.“ - Það er fremur sjaldgæft að fíðluleikarar haldi einleikstónleika. Hvers vegna ræðst þú í slíkt? „Ég mundi ekki gera það, nema vegna þess að það em til svo stór- kostleg verk fyrir einleiksfíðlu. Það er hrein nautn að fást við verk manna einsog Bachs og Ysaýe. Svo hafa hagkvæmnissjónarmiðin sitt að segja. Það er einfalt að geta tekið að sér að koma einn fram, bæði fyrir mig og þá, sem halda tónleikana." - Um hvað hugsarðu áður en þú ferð upp á sviðið og þegar þú ert kominn inn? „Um fáránlegustu hluti, athuga hvort það er allt í lagi með fötin og annað álíka ómerkilegt. Hugsanir, sem hafa ekkert með tónlistina að gera. Þessar mínútumar er ég mjög viðkvæmur og næmur. Lykt, sem leggur fyrir vit mér, minnir mig kannski á máltíð, sem ég borðaði fyrir löngu ... En þetta em andar- tök, sem ég vildi helzt ekki þurfa að lifa, vildi geta hoppað inn á svið- ið umhugsunarlaust, án nokkurs aðdraganda. Þegar inn á sviðið er komið, er galdurinn að stöðva allar þessar hugsanir og komast inn í tónlistina. Ef þær halda áfram, þá er vandi á höndum. Stundum tekur aðeins augnablik að ná til tónlistarinnar, að ná þessari hér-og-nú tilfínningu, stundum allt kvöldið.“ — Hvað með viðfangsefnin, hvemig velurðu þau? „Fyrst og fremst eftir því hvað mér fellur við, hvað mér sýnist ögrandi viðfangsefni og þroskandi. Bach skrifaði til dæmis sex partítur fyrir fiðlu og það tekur þijár klukku- stundir að flytja þær. Ég hef stundum flutt þær allar á einu kvöldi, þá með tveimur hléum. Flutti þær nokkmm sinnum þannig á 300 ára afmæli Bachs 1985. Það er vits- munaleg ögmn að spila þriggja radda fúgu eftir Bach á þijá strengi fíðlunnar. Sérhver tónlistarmaður þarf að þroska í sér heilabúið, því hann notar heilasellur, sem em ann- ars ekki notaðar. Bach er einstæður. Hann höfðar til þess andlega og vitsmunalega. Víst veit ég að Bach vann fyrir kirkj- una og notaði Nýja testamentið, en 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.