Morgunblaðið - 06.12.1987, Qupperneq 42
42
VíHM a flífJU(ínr/H;U r|íí4/ iiVSÍKWOU
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
4
Tölvutækni
Tölvufræðslan mun íjanúarbjóða upp á hagnýtt
nám í tölvutækni, þar sem aðaláherslan verður
lögð í atriði sem koma að góðum notum við um-
sjón tölva og við gerð hugbúnaðar.
Náminu er skipt í tvo sjálfstæða áfanga.
Fyrri áfanginn hefst íjanúar 1988, en seinni áfangi
haustið 1988.
TÖLVUTÆKN I I
Námið hefst 12. januar 1988
Námsefni fyrirTölvutækni I
• Almenn tölvufræði
Kerfisgreining
Uppbygging stýrikerfa
Gagnasafnsfræði
Forritun idBase 111+
Forritun i Pascal
Hagnýt stærðfræði
Umsjón með kennslu hefur Óskar B. Hauksson, tölvu-
verkfræðingur, skólastjóri Tölvufræðslunnar.
BSRB og VR styðja sína fétaga til þátttöku á námskeiðinu.
Nánari upplýsingar í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgatúni 28
0
0
0
0
0
0
Afmæliskveðja:
Sveinn Ólafsson
deildarstjóri
CJ) PIONEER
HÁTALARAR
Sveinn Ólafsson, Silfurtúni, eins
og hann skrifaði sig í mörg ár áður
en hann flutti úr Garðabænum,
varð sjötugur í gær, 5. desember.
Sveinn er einn almesti sómamaður,
sem ég hef borið gæfu til að kynn-
ast. Hér fer enginn meðalmaður,
heldur slíkur áhugamaður um flest
það, sem fagurt er og gott, að hon-
um halda engin bönd, þegar af stað
er farið. Hver sá, sem rætt hefur
við hann að því er virðist um óskyld-
ustu hluti kemur margfalt fróðari
frá leik. Sveinn á sér nefnilega að-
ferð við flest, sem hann hefur
hugsað út sjálfur, óháð því sem
aðrir menn hugsa og jafnvel í trássi
við það. Þessum aðferðum beitir
hann með sannfæringu trúmanns-
ins og elju kappsmannsins, hvort
sem um er að ræða dýpstu rök til-
verunnar, eða hversdagslegustu
framfaramál. Því áhugamálum
Sveins eru engin takmörk sett,
þessa heims eða annars. Er hann
jafnvígur á heimsmynd Sveden-
borgs, duldar víddir alheimsins,
fúgur Bachs, hómópatíu, hreppa-
pólitík, og gangtruflanir í bílvélum,
svo að dæmi séu valin af handa-
hófi. Að ógleymdum ýmsum §öl-
múlavílum, sem hann er einatt að
hugsa út og skrúfa saman. Grunar
mig að margur hvítur flibbinn hafi
fundið fyrir ýmsum góðum hug-
myndum Sveins, sem hægt var að
reyna úti í bflskúr í uppljómun
augnabliksins milli súpu og steikar
á jólum eða endranær.
Ég nefndi fúgur Bachs. Úr þeim
hefur Sveinn leikið fyrir mig á píanó
eina rödd í einu og allar saman,
eins og á orgel væri, ég veit ekki
hvemig. Hitt veit ég að ég má ekki
heyra fúgu án þess að verða hugsað
til Sveins. En enginn skyldi halda
að Bach væri eini vinur Sveins í
tónlistinni. Hann hefur til að mynda
kyijað fyrir mig tóntegundaskipti
Wagners í þriðja þætti Valkyijunn-
ar, sem mér varð á að leika af
hljómplötu í eyra hans. Held ég
reyndar, að það hafi bjargað okkur
báðum að ég átti ekki allan Nifl- samt mest fyrir er hin óbifanlega
ungahringinn á plötum. réttsýni hans og sanngimi, sem
Þá hefur Sveinn reynt að skýra mér virðist reist á hinni vandrötuðu
út fyrir mér andann og efnið, þótt leið að gera ekki minni kröfur til
mér gengi stirðlega að skilja hann sjálfs sín en annarra. Ég trúi því
þegar út í fjórðu víddina og aðrar að þetta hafi lengi verið leiðarljós
enn hærri og ósýnilegri var komið. Sveins, því engan mann þekki ég
Hins vegar skildi ég betur lýsingar sem getur verið svo taumlaust upp-
hans á blöndungum, skrefateljumm tekinn af eigin sannfæringu, og
(Sveinn telur skrefin á ferð sinni samtímis svo fullkomlega ósér-
um heiminn), rafhlöðumæli sem hlífinn af tillitssemi við náungann.
hann bjó til og gaf mér (vasaljósa- Þetta er einungis beztu mönnum
pera með áföstum vír, lýsir ef gefið.
eitthvert líf er í rafhlöðunni) og svo Ég óska Sveini Ólafssyni og frú
ótalmörgu öðm, sem ég man eftir Aðalheiði alls hins bezta í framtíð-
þegar ég rekst á það. inni.
Það sem ég met Svein Ólafsson
Hafliði Gíslason
Vörur sviknar
út úr verslunum
„VIÐ verðum að vekja athygli
verslunareigenda og annarra á
því, að gengið hefur verið milli
FEIN RAFMAGNSHANDVERKFfERI
Fremst í sínum flokki
Höggborvél
—fyrir alhlióa notkun
• Afturábak og áfram snúningur
• Tvö hraðastig með stiglausum rofa
• Handfang sérhannað fyrir rétt átak og grip
• Dýptarstillir í rennigreip
• Hraðastjórn með snúningslæsingu.
Hleðsluborvél
-aflmikil og fjölhæf
húsa og munum safnað á basar
í nafni Mígrensamtakanna. Sam-
tökin hafa hins vegar ekki haldið
slíkan basar og því er vísvitandi
verið að blekkja fólk,“ sagði
Björg Bogadóttir, formaður
Mígrensamtakanna.
Björg sagði að kaupmenn hefðu
haft samband við samtökin og lýst
furðu sinni á því að sífellt sé leitað
til þeirra eftir munum á basar hjá
Mígrensamtökunum. „Þessir kaup-
menn hafa tekið slíkum óskum vel,
en ég vil undirstrika að slíkar safn-
anir eru ekki á vegum samtakanna
og því vil ég biðja þá, sem fyrir
slíku verða, að biðja viðkomandi um
skilríki frá félaginu. Það er einkum
ein kona sem hefur stundað þetta
síðastliðin þijú ár, en hún hefur
ekki virt óskir okkar um að hætta
þessu. Enn sem komið er höfum
við ekki viljað kæra hana, en við
vonum að fólk haldi vöku sinni
gagnvart svikum í nafni Mígren-
samtakanna," sagði Björg Boga-
dóttir.
Afturábak og áfram snúningur
Tvenns konar snúningshraði
Átaksstillir fyrir skrúfuvinnu
Sjálfvirkt hleðslutæki með Ijósmerki
Laus hleðslurafhlaða
Löng ending hverrar hleðslu
Fer sérlega vel í hendi
Komið og kynnið ykkur mikið úrval FEIN
raf magnshandverkfæra.
Nákvæmni og öryggi
SKEIFUNNI3E, SIMAR 82415 & 82117
Umboðs- og þjónustuaðilar: Póllinn hf., Isafirði; Norðurljós hf., Akureyri; Rafvélaverkstæði Unnars sf., Egilsstöðum; Geisli, Vestmannaeyjum.
Tómstundabók-
in frá Setbergi
TÓMSTUNDABÓKIN er nafn á
bók sem Setberg gefur út fyrir
börn.
í bókinni er margt sem böm
geta dundað við í frístundum. Nefna
má leiki, þrautir, völundarhús,
punktateikningar, myndir til að lita
o'g ævintýri til að lita og lesa.
Bókin er 100 bls. að stærð.
4