Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 52

Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Stjómskipiilag RÍkisútvarpsins og ábyrgð á fréttum Inga Jóna Þórðardóttir dn Nýja.ptyarpshúsið, Efstaleiti 1 Frétt Ríkisútvarpsins um meint samskipti Stefáns Jóhanns Stefánssonar, forsætisráðherra (1947-1949) og lengi formanns Alþýðuflokksins, við leyniþjónustu Bandaríkjanna, höfð eftir fréttaritara RÚV í Osló, vakti alþjóðaathygli. Fréttastofan sagði síðar að fréttin hafi reynst „úr lausu lofti gripin“ og að engin skjöl hafi fundist, „sem bendi til slíkra samskipta ... Fréttastofan harmar, að heimild, sem hún taldi ekki ástæðu til að vefengja, skyldi reynast ótraust“. Loks vísaði Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóri, málinu til umsagnar siðanefndar Blaðamannaf élags íslands. Morgunblaðið lagði af þessu til- efni eftirfarandi spurningu fyrir Sverri Hermannsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, Ingu Jónu . Þórðardóttur, formann útvarpsráðs, Markús Örn Antonsson, útvarps- stjóra, Kára Jónasson, fréttastjóra hljóðvarps, Ingva Hrafn Jónsson, fréttastjóra sjónvarps, og Hrafn Gunnlaugsson, deildarstjóra inn- lendrar dagskrárdeildar Sjónvarps- ins: Sú spurning vaknar hvernig háttað er ábyrgð - á því að fráttir af þessu tagi birtast og valdmörkum í yfirstjórn útvarps. Er nauðsynlegt að vísa málum af þessu tagi út fyrirveggi útvarpsins? Erekki stjórnskipulag útvarpsins þannig, að stjórnendur deilda, fróttastjórar, útvarpsstjóri eða útvarpsráð getl tekist á viðþað? FYLLSTU ÓHLUTDRÆGNI SKAL GÆTT - segir Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs Það er eitt af hlutvekum út- varpsráðs að gæta þess að ákvæð- um 15. gr. útvarpslaga sé fylgt. Þar segir m.a.: „Ríkisútvarpið skal halda í heiðri lýðræðislegar grund- vallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Það skal gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð." Þá er kveðið á um það í lögunum að útvarpsstjóri skuli gefa út reglur um fréttaflutning að fengnu sam- þykki útvarpsráðs. í 1. gr. reglna um fréttaflutning segir m.a.: „Fréttir þær, sem Ríkisútvarpið flytur af eigin hvötum og á eigin ábyrgð, mega ekki vera mengaðar neins konar ádeilum eða hlutsömum umsögnum, heldur skal gætt fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokk- um og stefnum í opinberum málum, atvinnustofnunum, félögum eða einstaklingum." Ákvæði laga og reglna eru skýr, en misbrestur hefur stundum orðið á framkvæmd. Útvarpsráð getur eðli málsins samkvæmt ekki brugð- ist við fyrr en eftir á — eftir að skaðinn er skeður. Þar sem sá fréttaflutningur sem er tilefni spumingar Morgunblaðs- ins er því miður ekki einsdæmi þótti útvarpsráði nauðsynlegt að óska eftir því að sérstaklega yrði farið ofan í saumana á þeim vinnubrögð- um og starfsháttum á fréttastofu sem urðu þess valdandi að umrætt atvik varð. Tilgangurinn er að koma í veg fyrir að sambærileg óhöpp endurtaki sig. ALVARLEGUR DÓMUR ÚRSKURÐARAÐILA - sagði Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri Á fundi útvarpsráðs hinn 20. nóvember sl. var samþykkt eftirfar- andi bókun: „Útvarpsráð átelur harðlega þau vinnubrögð sem við- höfð voru við fréttaflutning um Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrv. forsætisráðherra, dagana 9.—14. nóvember og beinir því til útvarps- stjóra að hann láti hlutlausan aðila kanna með hvaða hætti slíkt getur gerst.“ í þessari bókun, sem samþykkt var með sex atkvæðum gegn einu, felst mjög alvarlegur dómur æðsta úrskurðaraðila um dagskrármál Ríkisútvarpsins, sem kynntur hefur verið viðkomandi starfsmönnum og birst hefur í fréttum fjölmiðla. Innan stofnunar hefur þessu til viðbótar farið fram gagnrýnin um- ræða um vinnubrögð hjá Ríkisút- varpinu og hlutverk og ábyrgð fréttamanna varðandi mat á heim- ildum og aðrar meginreglur sem þeim og öðru dagskrárfólki ber að starfa eftir. Þeirri umræðu er hvergi nærri lokið og í því sambandi þykir mér rétt að taka fram að ég var fjar- staddur í stuttu orlofi meðan mál Stefáns Jóhanns Stefánssonar stóð yfir og fréttastjóri Útvarpsins var fjarverandi vegna veikinda, þannig að við áttum ekki fund saman fyrr en eftir útvarpsráðsfundinn 20. nóvember. Þá hafði fréttastofan þegar harmað opinberlega að heim- ild hennar hefði reynst ótraust. Af framangreindri bókun út- varpsráðs verður ekki annað ráðið en að ætlun þess sé, að leitað verði út fyrir stofnunina, eftir aðstoð hlutlauss aðila við könnun á starfs- háttum hjá Ríkisútvarpinu. Þetta var skilningur minn og að höfðu samráði við fráfarandi for- mann útvarpsráðs hóf ég þegar nauðsynlegar umleitanir og undir- búning. Niðurstaðan er sú, að formleg beiðni hefur verið send Félagsví- sindastofnun Háskóla íslands og þess óskað að hún eða starfsmenn hennar annist könnunina. Vænti ég þess að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst, en fyrirfram má ætla að hún léiði fyrst og fremst í ljós hvemig atburðarás og viðbrögð starfs- manna voru í þessum fréttaflutningi og annarri umfjöllun Ríkisútvarps- ins en ekki leiði af sjálfu sér, að könnunaraðili telji það hlutverk sitt skv. skilgreiningu útvarpsráðs á verkefninu að fella dóm eða úr- skurða um brot á starfs- og siða- reglum frétta- og blaðamanna. Varðandi þann þátt málsins, sem ég tel miklu skipa, hef ég sjálfur óskað umsagnar siðanefndar Blaða- mannafélags Islands. Hvers vegna leita ég til hennar? Vegna þess að hún er eini úrskurðaraðilinn hér- lendis sem starfar eftir ítarlegum reglum á sérsviði sínu og dæmir um ávirðingar frétta- og blaða- manna og skipar brotum í flokka eftir því hve alvarleg þau em met- in. í tveim hinum alvarlegustu er viðkomandi fjölmiðli gert að birta úrskurð nefndarinnar. Erlendis starfa siðanefndir eða klögunefndir og úrskurða úm fjölda mála sem skotið er til þeirra vegna meintra brota á siðareglum hjá fréttamiðlum. Þau mál hafa ekki enn þróast með sama hætti hérlend- is þó að geysileg breyting hafi orðið í fjölmiðlun landsmanna á skömm- um tíma og umhverfið sem frétta- menn hér á landi starfa í sé að verða öllu alþjóðlegra og með óvið- urkvæmilegri blæ en áður var. Og verður hér fátt eitt nefnt: íslenskir frétta- og blaðamenn hafa í góðri trú í litlu samfélagi til skamms tíma treyst einni heimild þó að starfs- reglur og fræðin, sem menn læra á erlendum blaðamannaskólum, segi annað og geri kröfur um frek- ari öflun heimilda. Risið hafa heilir starfshópar er vinna í þágu skoðanamyndandi hópa og fyrirtækja að því að hafa áhrif á fjölmiðla. Þetta er ekki óþekkt fyrirbæri hérlendis. Fréttamenn þurfa að vera sér- staklega á verði gagnvart innlend- um eða elendum aðilum sem beinlínis vilja leiða þá vísvitandi í villigötur með röngum upplýsing- um. Það er alþjóðlegt fyrirbæri, sem ekki verður lengur horft framhjá hér á landi. Með þessari örstuttu upptalningu er einungis reynt að varpa ljósi á gjörbreytt starfsskilyrði íslenskra fréttamanna. Við þetta bætist kappsemi, sem hefur gengið fram úr hófi á stund- um í hinni nýtilkomnu samkeppni ljósvakamiðlanna svo og mikil end- umýjun í röðum fréttamanna, og reyndar á blöðunum líka, þar sem nú reynir mikið á ungt og vel menntað fólk, sem hins vegar býr ekki enn yfir þeirri reynslu er fæst með löngum starfsaldri og nánari kynnum af mönnum og málefnum. Ég ætlast til þess að fréttastofur Útvarps og Sjónvarps njóti fulls trausts sem öflugustu ojg áreiðan- legustu fréttamiðlar á Islandi. Til þeirra er litið sem slíkra eins og m.a. kemur fram í hinum hvössu viðbrögðum sem verða út um allt þjóðfélagið þegar þeim verða á mis- tök. í þeirri viðleitni að brýna þennan ásetning minn fyrir starfsmönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.