Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 60
60
ratu o ímDAxtilitfVíí)£ íítha.rítMtrn.tioM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
H
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL BJARNASON,
Tjarnarbóli 14,
sem andaðist 30. nóvember sl. yerður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 8. desember kl. 13.30.
Anna Guðjónsdottir,
Geirlaug Karlsdóttir,
Guðjón B. Karlsson,
Dagný Karlsdóttir,
Auðunn Karlsson,
Sigurður Karlsson,
Anna Karlsdóttir,
Hörður Sófusson,
Erling Bang,
Fríður Jónsdóttir,
Hallf ríður Jónsdóttir,
Erlendur Erlendsson
og barnabörn
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HAFSTEINS ÓLAFSSONAR,
Eskihlíð 33.
Sérstakar þakkir sendum við læknum og starfsfólki Borgarspítal-
ans á deild B-6.
Steinunn Lilja Sigurbjörnsdóttir,
Grétar Hafsteinsson,
Aðalheiður Hafsteinsdóttir,
Jóna Hafsteinsdóttir,
Hulda Hafsteinsdóttir,
Lilja Hafsteinsdóttir,
Guðlaug Hafsteinsdóttir,
Ólafur Hafsteinsson,
Guöbjörg Hafsteinsdóttir,
Atli Hafsteinsson,
barnabörn og
Hafþór Jóhannsson,
Kristján T ryggvason,
Agnar Árnason,
Sigþór Guðmundsson,
Steinn Halldórsson,
Kristin Siggeirsdóttir,
Ólafur Magnússon,
Brynja Gunnarsdóttir,
barnabarnabörn.
Skrifstofutæknir
Eitthvad
fyrirþig?
Tölvufræðslan mun í janúar endurtaka hin vinsælu
námskeið fyrir skrifstofufólk sem haldin hafa verið
sl. ár. Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám
í vinnuaðferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu
á notkun PC-tölva, sem nú eru orðnar ómissandi við
öll skrifstofustörf.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
NÁMIÐ HEFST 5. JANÚAR 1988
Á skrifstofu Tölvufræðslunnar er hægt að fá bækl-
inga um námið, bæklingurinn er ennfremur sendur
í pósti til þeirra sem þess óska.
Innritun og nánari upplýsingar veittar
í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 23
Kristín Bessadóttir
Bjerring — Minning
i
Frænka mín, Kristín Bessadóttir
Bjerring, lést í Danmörku 2. nóvem-
ber sl. Mér finnst eðlilegt að hennar
sé minnst með fáeinum orðum.
Kristín Bessadóttir var fædd á
Saurbæ í Fljótum, Skagafírði, 26.
september 1898. Foreldrar hennar
voru Ólafía Ingibjörg Laxdal og
Bessi Einarsson frá Hraunum í
Fljótum, sonur Einars Baldvins
Guðmundssonar, bónda á Hraunum
og Kristínar Pálsdóttur. Ólafía móð-
ir Kristínar Bessadóttur átti við
vanheilsu að stríða og lést rúmlega
þrítug 1904, er Kristín var 6 ára.
Kristín ólst upp frá frumbemsku
hjá föðursystur sinni, Ólöfu Einars-
dóttur á Hraunum óg manni
hennar, Guðmundi Davíðssyni. Þau
Ólöf og Guðmundur höfðu misst
yngri son sinn á 3ja ári 1899. Þau
tóku Kristínu í fóstur skömmu síðar
og ólu hana upp sem sína eigin
dóttur og Einar, einkasonur þeirra,
leit alla ævi á hana sem systursína.
Hraunaheimilið var í tíð Ólafar
og Guðmundar mannmargt og glað-
vært rausnar- og menningarheimili.
Þar var alltaf margt af ungu fólki
og lögð rækt við bóklestur og tón-
list. Kristín óx upp og varð falleg
og glaðlynd stúlka. Hún fór í
kvennaskóla og síðan tjl Danmerkur
til að menntast og hleypa heimdrag-
anum. En þar kynntist hún ungum
manni, Jens Bjerring, bóndasyni frá
Helgenæs á Jótlandi. Hann var
hávaxinn og glæsilegur og lék á
fíðlu fyrir dansi. Þessi kynni urðu
til þess að Kristín flutti til Dan-
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, systur og mágkonu,
KRISTÍNAR INGVARSDÓTTUR
framkvæmdastjóra,
Hvassaleiti 3.
Guð blessi ykkur öll.
Bragi Hannibalsson,
Bryndís Bragadóttir, Hörður Bragason,
Sólrún Bragadóttir,
Ingibjörg Svava Helgadóttir, Ingvar Þórðarson,
Dóra Ingvarsdóttir, Ólafur Oddgeirsson,
Helgi Ingvarsson, Bára Sólmundsdóttir.
gFiggjoaB
BLEIM LÍIV4IN
- mjúkar línur - mjúkir litir -
Nýtt og heillandi útlit á hinum vinsæla
FIGGJO-heimilisborðbúnaði. Litskreytinginerundir
glerungi og endist því ótakmarkað.
BLEIKA LÍNAN hefur fengið gæðastimpilinn V555 sem þýðir:
• Engin hætta á sprungum i glerungi
• Þolir vel alla venjulega meðhöndlun, uppþvottavélar og
örbylgjuofna.
1 ÁRSÁBYRGÐ
Verður þú svo óheppin(n) að brjóta hlut úr stellinu bætum við þér
skaðann þér að kostnaðarlausu - jafnvel þótt sökin sé þín,-
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Verslunin KÚNIGÚND, Skolavörðustig 6-Sími: 1 34 69
Verslunin RÓM, Tjarnargötu 3, Keflavík-Sími: 3308
merkur alfarin 1922 og kom aldrei
heim til íslands aftur.
Það var í maí 1963 að Einar
faðir minn hringdi í mig að morgni
dags og bað miga ð koma og tala
við sig. Erindið var að bjóða mér í
Danmerkurferð því að, „það er nú
meir en mál til komið að þú kynn-
ist henni Stínu Bessa,“ sagði pabbi.
Ég tók þessu boði með þökkum og
í júní fór ég út til Jótlands í heim-
sókn til Stínu og Jens. Stína hafði
þá búið í Danmörku í 41 ár, átti
danskan mann og tvær dönskumæl-
andi dætur og engir íslendingar
bjuggu í grennd við hana. Sámt
heilsaði hún mér á hreinni íslensku
með norðlenskum framburði. Ég sé
hana ennþá fyrir mér þar sem hún
stóð á tröppunum fyrir framan hús-
ið sitt smávaxin, grönn og kvikleg
og bauð mig velkomna. Eg dvaldi
hjá Kristínu og Jens í viku í þetta
sinn og tvisvar síðar heimsótti ég
hana og var hjá henni nokkra daga.
Þau Jens, svo og dætur þeirra, voru
höfðingjar heim að sækja. Ég held
að hvergi hafí verið dekrað við mig
eins og þar.
Kristín og Jens bjuggu myndar-
búi á bænum Svanesminde á
Helgenæs í 40 ár. Þá seldu þau
jörðina en héldu eftir dálítilli land-
spildu þar sem þau byggðu sér hús
og ræktuðu grænmeti og jarðarber.
Þar bjuggu þau til ársins 1984, er
Kristín fékk heilablóðfall og var upp
frá því bundin við hjólastól. Þá
fluttu þau, hún og Jens, á elliheim-
ili í Ebeltoft og þar lést Kristín
Bessadóttir. Jens lifír konu sína og
er við góða heilsu. Kristín og Jens
eignuðust 2 dætur, Hjördísi, sem
er bóndakona á Helgenæs og á 3
dætur, og Ingu, sem er fóstra og
býr í Arhus.
Kristín Bessadóttir átti 4 hálf-
systkin, samfeðra, sem náðu full-
orðinsaldri. Ekki veit ég um
samskipti hennar við þau, utan að
Ólafía, systir hennar, var oft hjá
henni og var mjög kært með þeim.
Ólafía fylgdi Kristínu síðasta spöl-
inn, ein íslenska frændfólksins.
Kristín var jarðsett í kirkjugarðin-
um á Helgenæs.
Það er orðið býsna langt síðan
hún Stína Bessa yfirgaf ísland.
Fósturlandið var henni gott og
elskulegt og fólk þar var orðið henn-
ar fólk. En hún var samt alltaf
íslendingur. Hún tók íslenska reið-
hestinn sinn með sér út til
Danmerkur og er hann dó fannst
henni eitthvað deyja innra með sér.
Ifyrri árin í Danmörku ætlaði
Kristín alltaf að fara heim og hitta
fólkið sitt og landið sitt, en fyrst
voru þau Jens með smábörn og
ferðalög erfið, síðan kom kreppan
og svo stríðið. Þegar hagur þeirra
batnaði eftir stríð voru svo margir
dánir og margt breytt, að Kristín
ákvað að fara ekki aftur „heim".
Hún vildi heldur muna fólkið og
landið sem var.
Að leiðarlokum kveð ég þig
frænka með kærri þökk fyrir allt.
Helga K. Einarsdóttir
Jólasýning
leirlistamanna
í Gallerí Borg
JÓLASÝNING tólf leirlistar-
manna var opnuð 3. desember i
Galleri Borg, Austurstræti 10.
Sýningin er sölusýning, og verð-
ur sá háttur hafður á að kaup-
endur geta tekið með sér munina
og ný verk koma í staðinn á sýn-
inguna.
Eftirtaldið listamenn eiga verk á
sýningunni: Borghildur Óskarsdótt-
ir, Bryndís Jónsdóttir, Daði Harðar-
son, Eídda Óskarsdóttir, Gestur
Þorgímsson, Guðný Magnúsdóttir,
Jóna Guðvarðardóttir, Kolbrún
Björgúlfsdóttir, Kolbrún Kjarval,
Ólöf Erla Bjamadóttir, Ragna Ingi-
mundardóttir og Sigrún Guðjóns-
dóttir.
Sýningin er opin frá kl. 10-16
virka daga og frá kl. 14-18 um
helgar. Henni lýkur sunnudaginn
13. desember.
4