Morgunblaðið - 31.12.1987, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
Sauðárkrókur:
Líf í gamla bæ-
inn með tilkomu
Gránufélagsins
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Gránufélagar, talið frá vinstri: Gylfi Arnbjörnsson, Jón Gauti Jónsson, Unnur Krisljánsdóttir, Margrét
Soffía Björnsdóttir og Arnþrúður Osp Karlsdóttir. Auk þeirra er Sigurlaugur Elíasson í félaginu.
Sauðárkróki.
Laugardaginn 12. desember
hóf félagsskapur formlega starf-
semi sem nefnist Gránufélagið.
Heitið er dregið af húsnæði því
sem félagið starfar í, en það er
á efri hæð hins gamla skrifstofu-
húss Kaupfélags Skagfirðinga,
sem í daglegu tali var alltaf nefnt
Grána. Hópur sá sem myndar
Gránufélagið rekur ýmsa starf-
semi og þjónustu á þessum stað
og hefur húsnæðinu verið breytt
og það bætt verulega til þess að
svo geti orðið.
Við opnunina bauð Jón Gauti
Jónsson gesti velkomna og rakti í
stórum dráttum sögu húsins og
þeirrar starfsemi sem þar hefur
farið fram, frá upphafi og til þessa
dags. Þá bauð hann gestum að
skoða húsnæðið og að kynna sér
þá starfsemi og þjnoustu sem í
boði er.
Iðnráðgjafi Norður-
lands vestra
Starfsemi iðnráðgjafar á vegum
Iðnþróunarfélags Norðurlands
vestra hefur nú verið starfrækt í
tvö ár og núverandi iðnráðgjafi er
Unnur Kristjánsdóttir. Skrifstofa
iðnráðgjafa er á Blönduósi, en nú
mun Unnur fyrst um sinn verða til
viðtals á Sauðárkróki alla þriðju-
daga frá klukkan 09.00—16.00. Er
hér um stórbætta þjónustu að ræða
sem ætla má að skapi mun nánari
tengsl við fyrirtæki á Sauðárkróki
og í Skagafirði.
Hugmyndir sf.
Gylfi Arnbjörnsson cand. merc.
í rekstrar- og svæðishagfræði er
með ráðgjafarfyrirtæki sem nefnist
Hugmyndir sf. Fyrirtækið veitir
sérfræðilega ráðgjöf í gerð
byggðaáætlana sem unnar eru út
frá þeirri þekkingu og reynslu sem
fyrir er á hvetjum stað, ásamt al-
hliða ráðgjöf og aðstoð við rekstur
einstakra fyrirtækja. Þá geta Hug-
myndir einnig annast nákvæma
úttekt á atvinnuuppbyggingu og
vinnumarkaði sveitarfélaga til þess
að skilgreina ítarlega sérkenni og
forsendur fyrir atvinnuþróun kom-
andi ára. I þessu sambandi hefur
verið unnin mjög ítarlegur gagna-
grunnur sem hefur að geyma
atvinnuskiptingu hvers sveitarfé-
lags á landinu fyrir árin 1972—85.
I handraðanum
Þjónustufyrirtækið í handraðan-
um er eign Jóns Gauta Jónssonar
landfræðings. Jón Gauti var starfs-
maður Náttúruvemdarráðs á
árunum 1977 til ’85 og fram-
kvæmdastjóri þess þijú síðustu
árin. Þá átti hann einnig sæti í
Ferðamálaráði íslands. Frá hausti
1985 er hann kom til Sauðárkróks
hefur Jón Gauti verið kennari við
fjölbrautaskólann.
Aðalverkefni fyrirtækisins eru
gerð upplýsinga- og auglýs-
ingabæklinga, íjölmiðlun og ferða-
þjónusta.
Listvinnsla
Amþrúður Ösp Karlsdóttir,
Margrét Soffía Bjömsdóttir og Sig-
urlaugur Elíasson verða með
vinnustofur í Gránuhúsinu.
Amþrúður vinnur listmuni úr
leðri svo og mun hún þrykkja sáld-
þrykk, mála á þau, og einnig mun
hún bjóða þá þjónustu við félög og
fyrirtæki að þrykkja ýmiss konar
merki á búninga, veifur og fána svo
eitthvað sé nefnt.
Margrét Soffía vinnur að svart-
list á sinni vinnustofu, en hún
útskrifaðist sem grafiker frá Kaup-
mannahöfn árið 1984. Margrét
hefur stundað kennslu við mynd-
mennt við Grunnskólann á Sauðár-
króki auk þess sem hún hefur kennt
myndlist við fjölbrautaskólann. Hún
hefur tekið þátt í samsýningum
bæði heima og erlendis. Verk Mar-
grétar em til sýnis og sölu í Gránu.
Sigurlaugur Elíasson mun taka
til starfa í Gránu nú í janúar nk.
Sigurlaugur útskrifaðist úr mál-
aradeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1983. Hann hefur
haldið nokkrar einkasýningar og
tekið þátt í allmörgum samsýning-
um. Sigurlaugur vinnur bæði með
olíuliti og grafík, einnig hefur hann
fengist við ljóðagerð og gefið ljóð
sín út á bók.
Fjöldi gesta heimsótti þá Gránu-
félaga á opnunardaginn, þáði veit-
ingar og kynnti sér þá starfsemi
sem fram mun fara í gömlu Gránu.
Hefur með þessu enn aukist
umferð og athafnalíf í gamla bæn-
um, en Grána er eitt af nyrstu
húsunum í þessum bæjarhluta, áður
en komið er á hafnarsvæðið. Hafa
bæjarbúar haft af því áhyggjur að
þessi hluti kaupstaðarins væri að
eyðast af lífi, en nú hefur heldur
þokað til hins betra. Vonandi er að
hér sé aðeins byijun á frekari upp-
byggingu gamla bæjarins að ræða
og með auknum umsvifum verði
fleiri til þess að reka þjónustu eða
verslunarfyrirtæki í þessum hluta
bæjarins.
- BB
K.R. Heimitíð
er stœrsti
Eigin innflutningur
Verð 900,-
Verð 1250,-
Verð 1800,-
Verð 3000,-
Útsölustaðir: K.R. Heimilið við Frostaskjól, JL-Húsið við Hringbraut,
Borgartúni 31 (húsi Sindra Stáls), Leikfangahúsinu á Skólavörðustíg,
Byggingamarkaði Slippfélagsins og við verslun Hagkaups í Skeifunni.
Fjölskyldupakkar í fjórum stærðum. Eitt mesta úrval landsins af flugeldum,
blysum, bombum, tertum og öðru háloftapúðri á einum stað.
Við gerum vel við börnin og bjóðum þeim skemmtilegan glaðning í tilefni
áramótanna, komi þau með pabba og/eða mömmu á einhvern útsölustað
K.R. Flugelda.