Morgunblaðið - 28.02.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 28.02.1988, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988 Jónas Jónson framkvæmdastjóri. Myndin til hliðar er af verksmiðju Síldarbræðslunn- ar á Seyðisfirði sem Jónas vann við árin 1938 til 195G. Jónas Jónsson á skrifstofu sinni. sjón hennar ásamt verksmiójunni á Seyðis- fírði. En hvemig var að skipta sér svona milli landshluta? „Það var í sjálfu sér ekki svo erfítt. Starf- semin á Seyðisfírði var í hámarki á sumrin og dvaldi ég þá mikið þar en að mestu í Reykjavík að vetrinum. Að sjálfsögðu stóð ég ekki einn í þessum því á báðum stöðum voru margir góðir starfsmenn. En þetta stóð heldur ekki lengi því árið 1956 var verk- smiðjan á Seyðisfírði seld og ég hef síðan einbeitt mér að starfínu hér syðra.“ Menn voru uggandi — Voru þetta góð ár eða erfíð í sjávarút- veginum? „Reksturinn stóð í sjálfu sér ekki nógu vel og menn voru uggandi. Hráefnisöflun var ótrygg en ég fékk fljótt hráefni og við komum "élunum í verksmiðjunni að Kletti í lag og verksmiðjan tók nokkum úörkipp þó ég segi sjálfur frá! Aðaleigendur verk- smiðjunnar voru íjögur frystihús í Reykjavík og þama sáu menn mögulegt að hefja eigin útgerð. Við réðumst í það og á einu ári vom keyptir þrír togarar og einn árið eftir. Þessir togarar vom Geir, Hvalfell, Askur og Haukur og þama höfðum við um leið tryggt okkur stöðugt hráefni til verksmiðj- unnar. Togarana rákum við í ein 10 ár og seldum þá árið 1966.“ En jafnframt því sem félagið keypti tog- ara segir Jónas fjármuni hafa verið lagða f að endumýja vélar og tæki í verksmiðj- unni. Soðkjamatæki, ein þau fyrstu hérlend- is, vom sett upp en með þeim var hægt að nýta hráefnið um 20% betur en verið hafði. „Það munaði um slíkt,“ segir Jónas. „Af- koman varð allt önnur og við þurftum ekki að sjá eftir að hafa drifíð í þessu. Hvalur hf. og Lýsi og mjöl komu líka upp soðkjama- tælqum um svipað leyti og við.“ Þegar Jónas varð sjötugur skrifaði Ingvar Vilhjálmsson meðal annars svo um hann: „í öllum þessum framkvæmdum kom glöggt í ljós, að Jónas bjó yfír þeim hæfíleikum sem best prýða góðan stjómanda. Hann hefír alla tíð verið vakinn og sofinn í starfi sínu . . . Af framsýni, atorku og árvekni hefur honum tekist að verja félagið þeim áföllum sem á undanfömum ámm hafa svo mjög sett svip sinn á rekstur flestra fyrir- tækja, er í sjávarútvegi starfa." Samstarfsmaður Jónasar hjá Síldar- og fískimjölsverksmiðjunni í mörg ár hefur svipaða sögu að segja: „Þessir persónulegu eiginleikar Jónasar sem stjómanda em án efa skýringin á því, hversu margir fastir starfsmenn hafa unnið ámm og jafnvel ára- tugum saman hjá Síldar- og fískimjölsverk- smiðjunni hf.“ Góðir samstarf smenn „Ég hef reynt að sinna þessum störfum mínum eins og ég hef talið réttast hvetju sinni og átt því láni að fagna að eiga góða samstarfsmenn. Þá má segja að ég hafí lítið varið tíma mínum í önnur og ólík áhugamál nema þeim sem teljast tengjast starfinu," segir Jónas, „en þar á hann við ýmsa þátt- töku sína : félagsstarfi. Þannig sat hann í stjómum Vinnuveitendafélags íslands, Fé- lags íslenskra fiskimjölsframleiðenda, Verð- lagsráðs sjávarútvegsins, Verðjöfnunarsjóðs fískiðnaðarins, Félags íslenskra botnvörpu- skipaeigenda og Landssambands íslenskra útvegsmanna. Eitt af því sem ráðist var í þegar elta þurfti uppi sfldina var að kaupa sérstakt sfldarflutningaskip til að flytja aflann frá bátum á fjarlægum miðum og til Reykjavík- ur. Þetta'var árið 1965.“ „Við, stjómendur og eigendur fyrirtækis- ins, vomm samhentir í því að leggja óhrædd- ir og bjartsýnir út á ýmsar brautir ef við töldum það koma að gagni. Slík aðgerð var tvímælalaust kaup okkar á þrjú þúsund tonna lýsisflutningaskipi frá Noregi. Við vomm svo heppnir að á leið frá Noregi gátum við látið skipið taka afla langt út af Austfjörðum og sigla með hingað suður. Eitt sumarið flutti skipið um 112 þúsund mál af miðunum. Yfír veturinn leigðum við síðan skipið til lýsisflutninga út í heim. Þessi rekstur gekk vel í nokkur ár eða þar til sfldin hvarf. Það var Einar Guðfínnsson í Bolungarvík sem fyrstur hrinti þessari sniðugu lausn í framkvæmd en skip hans var minna og hentaði ekki vel þegar afli var mikill." Jónas segist einkum hafa stofnað til við- skiptasambanda í Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Þýskalandi: „Venjulega fór ég tvær ferðir á ári til þessara landa og hef í sumum tilvikum átt samskipti við sömu mennina í áraraðir. Síðustu ferðina fór ég nú eftir áramótin og þá hafði ég með mér Gunnlaug Sævar Gunn- laugsson lögfræðing sem verður eftirmaður minn hér og tekur formlega við 1. mars.“ Ferðast — Var það erfíð ákvörðun að hætta hér? „Það má kannski segja það — það hefur tekið mig fímm ár! Þegar ég varð sjötugur var ég beðinn að starfa áfram um hríð sem ég samþykkti og sagði jafnframt að ég myndi standa upp um leið og eftirmaður væri fundinn. Það gerðist hins vegar ekkert í þeim málum í nokkur ár og á aðalfundi í fyrra tók ég af skarið og kvaðst ætla að hætta um síðustu áramót enda heyrir það til undantekninga að menn gegni svona erilsömu starfí fram til 75 ára aldurs. Ég er mjög sáttur við að hætta eftir 50 ára störf við þennan atvinnuveg, þar af í 45 ár sem framkvæmdastjóri." — Og hvað á svo að taka sér fyrir hendur? „Það er ekki gott að segja, ætli ég fari ekíci bara að ferðast! Meðan ég held svo góðri heilsu verður ekki erfítt að taka sér eitthvað fyrir hendur." ÚTGERÐARMEIMN - SKIPSTJÓRAR Viltu eignast Bátalónsbát? Fjölbreytt þjónusta við skip og báta. Hönnun - ráðgjöf - teiknistofa - skipasmíði - skipaviðgerðir - stálsmíði - trésmíði - rennismíði - vélaverkstæði - rafvirkjun - hreinsun - sandblástur - málun. Eigum smíðarett að nokkrum 9,8 tonna stál- bátum sem fá veiðiheimildir án úreldingar. Af- hendast fullbúnir til veiða, eða á öðru bygging- arstigi ef óskað er. Skammur byggingartími ef samið er strax. „BÁTALÓNSBÁTUR ER GÓÐUR KOSTUR" Farymann Smádíselvélar 5.4 hö við 3000 SN. 8.5 hö við 3000 SN. Dísel-rafstöðvar 3.5 KVA ■K—Lr Vesturgötu 16, sími 14680. l^ssr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.