Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 15
r MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988 B »15 nú einmitt benda til þess að sá hinn sami nýtist einmitt ekki í nýja starf- ið, kannski hvergi, eða þá að hann er mjög hæfur þar sem hann er en kann t.d. ekki að stjóma verkum eða fólki? Sem próf í sérfagi og reynsla í undirmannsstöðu segir lítið til um. Er kannski æskilegt að öllum sem á staðinn þurfa að koma líði eins og ánamaðki á malbiki, eins og Piet Hein orðar það í þýðingú Helga Hálfdánarsonar: Æ heyrðu litli ánamaðkur, hvað ég skil þig vel oft hef ég tal af fólki sem er bara grjóthörð skel; ég leita um allt að smugu, já ég leita en finn þó eigi, og mér líður eins og ánamaðki á malbikuðum vegi. Spumingamar ryðjast fram, hver leiðir af annari. Er það þá umsækj- anda í hag að hrópað sé upp á torg- um um kosti hans og galla ef hann sækir um stöðu? Jafnvel á fórum alþingis, með orðbragði um annarr- ar skoðunar-fólk á borð við það sem við við sáufn öll í sjónvarpinu í vik- unni frá umræðum um bjór. Detti nú einhveijum í hug að lítt sé eftir- sóknarvert að þeim sem undir við- komandi eiga að sækja, starfsfólki og aðkomnum, líði eins og ána- maðki á malbiki og reynslulíkur benda til að svo verði, er þá til bóta að kryfja annars ágætlega hæft fólk á opinbemm aftökustað í blöðum og mannamótum. Stefnir ekki í þá átt hjá okkur? Og er þá líklegt að hæfasta fólkið sæki um stöðu til að fá slíka krufningu, jafn- vel opinbera mannorðsaftöku. Hingað til hafa ráðninganefndir eða stjómir yfirleitt ekki undir árásum og áburði um illar hvatir látið draga sig í yfirlýsingar um mannlega bresti fólks fyrir það eitt að það sækir um störf. En hversu lengi? Kannski að allir mannlegir sam- skiptaþættir hrapi í þessu samhengi í verði úr 75% ofan í 0? En hvers vegna ætli fólk, sem ekki virðist vilja taka á sig skyldur sækist svona eftir ábyrgðarstöðum? Og fólk sem hefur sýnilega ama af því að umgangast fólk am stjórn- unar- og þjónustustörf? Kannski til að afla virðingar og virðingarstöður fara vel í minningargreininni. Oftar þó líklega til að hækka í launum. I allri íslenskri löggjöf og meðfýlgj- andi reglugerðum hafa réttindi löngum komið á undan skyldunum - góður maður sagði mér að skyld- ur á undan réttindum fyndust að- eins á einum stað í lögum, og það hefði orðið fyrir slysni hjá löggjaf- anum sem lét embættismann af gamla skólanum lauma því inn. En í launaskalanum eru skyldur og ábyrgð síðan hátt metin. Eða er það ekki það sem borgað er fyrir? Því hækka menn nú oft í tign og titlum án þess að breyta um starf - bara í launum. Ekki alls fyrir löngu heyrði ég umræðu um að starfs- maður iiótaði að hætta ef hann fengi ekki launashækkun. Var þá spurt hvort ekki mætti bara finna honum nýtt stöðuheiti. Vildi hann þá og gat tekið að sér slíkt starf og það sem því fylgdi af ábyrgð? Nei, nei, það gat hann ekki eða vildi. En, sagði einhver, bara ef hægt er að láta það heita eitthvað, þá er þeim alveg sama þarna niðri í ráðuneyti og ekki sá ég betur en að aðrir samþykktu það. Utan sá sem þar ræður ríkjum, sennilega af gamla skólanum. Eru menn ann- ars nokkuð látnir' afhenda þessa ábyrgð sem þeim er borgað fyrir? Eru þeir ekki jafn ábyrgðarlausir og hinir? Hvemig ætli þessi gáfaða þjóð, eins og við auðvitað erum, hafí annars komið sér í allar þessar flækjur og ógöngur? Við eðlilegar aðstæður getur mjólk dregið úr tannskemmd- um. Hið háa hlutfall kalks, fosfórs og magnium er verndandi fyrir tennurnar. & í 1 * Hvernig ertu inn viö beinið? Hefurðu hugsað út í það að beinin eru kalkbanki líkamans-banki sem er í stöðugri endurnýjun, líka áfullorðinsárum. Ef líkaminn fær ekki nægilegt kalk úr fæðunni gengur hann á forða kalkbankans og úrkölkun beina (beingisnun) á sér stað. Þess vegna er afar mikilvægt að tryggja sér nægilegt magn af kalki úr fæðunni alla ævi. Mjólk og mjólkurvörur eru lang mikilvægasti kalkgjafinn og alhliða næringargildi mjólkurinnar er með því besta sem við þekkjum. Kalkþörfin er mismunandi eftir kyni og aldri frá 2-4 mjólkurglös á dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.