Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988 3 25 Meiri umfjöllun um keilu Kæri Velvakandi Ég vil taka undir með þeim sem skrifað hafa í Velvakanda og hvatt til þess að meira verði fjallað um keiluíþróttina í fjölmiðlum. Stöð 2 hefur staðið sig vel en betur má ef duga skal. Keilan er orðin mjög vinsæl íþrótt hér á landi og spurn- ing hvort keilusalir þyrftu ekki að vera fleiri. Keilan er íþrótt fyrir alla fjölskylduna og vil ég hvetja þá sem ekki hafa kynnst þessari íþrótt af eigin raun að fara ekki á mis við hana. Áliugasamur keilari Hollur er heimafengmn baggi Til Velvakanda. Mér blöskraði að frétta af nokkrum málglöðum alþingis- mönnum, sem vilja heldur éta egg og kjúklinga frá Hollandi, en inn- lenda framleiðslu. Allur málflutn- ingurinn bar vott um lítinn skiln- ing og illvilja í garð innlendrar framleiðslu. Þeir þykjast ekki vita að í öllum nágrannalöndum okkar eru landbúnaðarvörur stórkost- lega niðurgreiddar. Offramleiðsla í þessum löndum er áreiðanlega föl fyrir lítið. En er nokkur framtíð í því að ætla sér að lifa á gjöfum? Hvemig gafst Bretum að lifa á ódýru matvælunum frá nýlendun- um í fýrri heimsstyijöldinni? Síðan hafa þeir styrkt sinn landsbúnað manna mest. Ég tek fram að ég er hvorki eggja- né kjúklingaframleiðandi, en mér líst ekki á að fara að lifa á hálfgerðum bónbjörgum. Hvað er það annað, ef við forum að setja allt okkar traust á molana sem falla af borðum nágrannanna, það er af offramleiðslu þeirra, sem má fá næstum gefins. Hvað segja Hávamál um þetta? Bú er betra, þótt lítið sé, halur er heima hver. Blóðugt er hjarta, þeim er biðja skal sér í mál hvert matar. Svo gæti farið að matvæli, sem eru mjög dýr í ffamleiðslu, yrðu ekki boðin fram gefíns. En þessir alþingsmenn okkar virðast hvorki sjá aftur né fram. Hvar er þjóðin stödd ef matvælaframleiðslu í landinu yrði hætt? Ef nágrannar okkar næðu tök- um á sinni landbúnaðarframleiðslu þannig að ekki yrði um offram- leiðslu að ræða, yrði kannski ekki hægt að fá þessar vörur gefins, eða því sem næst. Það er hörmung að heyra af vörum alþingismanna slíkt rugl, sem við fengum að heyra í útvarpi sunnudag og mánudag, 7. og 8. febrúar síðast- liðinn. Svo mikill er ákafinn í þess- um málflutning að farið var með hann inn í pallborðsþátt Brodda á sunnudaginn, þar sem enginn var til andsvara. Það er sjálfsagt auð- velt fyrir verkfræðing að reikna út að ódýrara muni vera að lifa á vörum sem fást því sem næst gef- ins, heldur en framleiða þær í Til Velvakanda Oft er talað um hversu mikið fé ríkishítin tekur til sín í formi skatta, tolla o. fl. Því verður ekki neitað að þetta eru miklar upphæðir en oft vill það gleymast hversu mikið fólk fær til baka fyrir þessa pen- inga. Hér á landi þarf ekki að borga fyrir læknisaðstoð eða fyrir að liggja á sjúkrahúsi svo dæmi sé tekið. í löndum þar sem heilbrigðis- málin eru ekki á vegum ríkisins eins og t.d. Bandaríkjunum kostar læknisaðstoð og sjúkrahúsvist mik- landinu. E_n hvað lengi stendur slík dýrð? Ég teldi þessa háttvirtu alþingismenn vaxa í mínum aug- um ef þeir bæðu þjóðina afsökunar á barnaskap sínum. Steinar Pálsson ið fé. Á hinu hefur verið vakin athygli með réttu að hinu mikla fé sem ríkisvaldið hefur til meðferðar sé oft illa varið; og má stundum sjá þess merki. Eg vil nefna byggingu seðlabankahúss sem dæmi, hvenær skilar sú framkvæmd hagnaði? Ríkið ætti ekki að kasta peningum í slík gæluverkefni heldur ástunda að rækja vel þau þjónustuverefni sem þegnunum eru til hagsbóta. Eldri borgari Hvað fáum við fyr- ir skattana okkar Glugginn auglýsir 20% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar. Glugginn, Laugavegi 40, Kúnsthúsinu. Loftskeytamannatal Bókin „Loftskeytamenn og fjarskipti" er til sölu á skrifstofu FÍL í Borgartúni 18, mánudaga-föstudaga milli kl. 16.00 og 18.00. Sími 13417. ^ ........................ ^ Hæsti vinningur 100.000,00 kr.i Heildarverðmæti vinninga yfir 300.000,00 kr. Húsið opnar kl. 18.30. Nefndin Símar 35408 og 83033 SKERJAFJ. Einarsnes SELTJNES Látraströnd MIÐBÆR Lindargata 39-63 o.fl. Hverfisgata 4-62 Laufásvegur 58-79 o.fl. UTHVERFI Sæviðarsund hærriíölur GARÐABÆR Mýrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.