Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
t2T
Afmælí á hlaupársdag
Tímaútreikningur og hvað llði tíma hefur alltaf verið okkur mönnunum
hugleikið. Krakkarnir í Flóanum stungu niður hrífu og miðuðu skuggann
af henni við Búrfell, Vörðufell, Hestfjall og Heklu og gátu þannig sagt
sér hvað tímanum liði, enda bráð nauðsyn úti á engjum að vita, hvenær
von væri á kandís og kaffi, en þetta var nú á þeirri tíð, er börn fengu ekki
úr fyrr en í fermingargjöf.
Skuggaaðferð bamanna í Fló-
anum var svo sem ekki ný af
náiinni. í Biblíunni, II. Konunga-
bók 20. 9—11 eiga þeir orðastað
saman Hiskía Júda-konungur og
Jesaja spámaður, en sá skuggi,
sem þar var til umræðu var ekki'
myndaður úr hrífuskafti, heldur
líkast til af sólúri, sem líkst hefur
skugga-klukku Fom-Egypta.
„Þá svaraði Jesaja: Þetta skalt
þú til marks hafa af Drottni, að
Drottinn muni efna það, sem
hann hefur heitið: Á skugginn
. að færast tíu stig fram, eða á
hann að færast aftur um tíu stig?
' Hiskía svaraði: Það er hægðar-
leikur fyrir skuggann að færast
niður um tíu stig — nei, skugginn
skal færast aftur um tíu stig.
Þá hrópaði Jesaja spámaður til
Drottins, og hann lét skuggann
á stigunum, sem færst hafði nið-
ur á sólvísi Akasar, færast aftur
um tfu stig.“
Árið 46 fyrir Kristsburð var
Júlíus Cæsar orðinn ráðandi í
- Róm, og heimsveldi verður ekki
stjómað svo í lagi sé, nema da-
gatalið sé það sama hjá þegnun-
um. Cæsar fékk til liðs við sig
alexandrískan stjömufræðing,
Sosigenes að nafni, til þess að
lagfæra dagatalið. Árið skyldi
vera 365 dagar nema §órða hvert
ár 366 dagar, einum degi bætt
við febrúar og er þar kominn
hlaupársdagur. En skekkja var í
þessum útreikningum. Sólarárið
var talið 365V4 dagur, en er 11
mínútum styttra, og er aldir liðu,
þurfti þetta leiðréttingar við.
Fólk fæðist og á afmæli á
hlaupársdag eins og aðra daga —
en á raunar ekki afmælisdag
nema Qórða hvert ár. Þó munu
flestir halda afmæiið hátíðlegt
28. febrúar eða 1. mars hin árin.
En þegar afmælið ber upp á rétt-
an dag, er sjálfsagt að halda enn
betur upp á það en ella, því er
tækifærið nú.
Klukkukaka
Botnamir:
3 eggjarauður
3 msk. heitt vatn úr krananum
125 g sykur
1 msk. vanillusykur
15Q g hveiti
50 g kartöflumjöl
3 msk. kakó
1 tsk. lyftiduft
3 eggjahvítur
50 g sykur saman við hvftumar
1. Setjið eggjarauður, vatn,
sykur og vanillusykur í skál og
hrærið þar til þetta er ljóst og
létt.
2. Sigtið saman hveiti, kart-
öflumjöl, kakó og lyftiduft.
3. Þeytið eggjahvítumar, setjið
sykurinn smám saman út í. Þey-
tið þar til þetta er alveg stíft.
4. Setjið eggjahvítumar ofan
á eggjarauðuhræruna, setjið
sfðan mjölið yfir og blandið sam-
an með sleikju.
5. Smyijið springmót, 22 sm
í þvermál. Setjið deigið í mótið.
6. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn f 180°C. Setjið kök-
una neðarlega f ofninn og bakið
í 30 mínútur.
7. Hvolfið mótinu með kökunni
á kökugrind og látið kólna að
mestu. Losið þá kökuna úr mót-
inu og látið kólna alveg.
Kremið:
150 g smjör
200 g flórsykur
2 msk. kakó
1 egg
3 msk. ijómi
8. Hrærið saman mjúkt smjör,
flórsykur og kakó.
9. Hrærið eggið og ijómann
út í.
10. Skerið kökuna í tvennt,
smyijið kreminu inn í hana.
Leggið þá botnana saman og
smyijið kreminu ofan á og utan
með kökunni.
Skreyting á kökunni:
100 g marsipan
1 msk. flórsykur
súkkulaðiskraut (krymmel)
11. Setjið skrautsykur á brún
kökunnar og kantinn í kring.
12. Hnoðið marsipan með flór-
sykri.
13. Mótið tölustafi eins og á
klukku úr marsipaninu. Búið til
smásívalninga til að móta stafína
úr.
14. Búið síðan til vísa, einn
stóran og annan lítinn.
15. Látið vísana vísa á þann
tíma, sem afmælisbamið er fætt
á.
Afmælisbaka
með kirsuberjum
Botninn:
450 g hveiti
225 g smjör eða smjörlíki
V4 dl kalt vatn
1. Setjið hveiti og smjör í skál.
Hrærið þar til þetta verður kor-
nótt deig.
2. Setjið vatnið út í og hnoðið
samfellt deig.
3. Skiptið deiginu í tvennt og
setjið í kæliskáp í 2 klst.
4. Takið helming deigsins úr
kæliskápnum.
5. Skerið pappírsmót, annað 4
sm breiðara en bökumótið, en
hitt 1 sm breiðara.
6. Fletjið annan deighelming-
inn út, skerið eftir stærra
pappírsmótinu. Leggið á böku-
botninn og látið ná upp með bör-
munum. Þrýstið vel niður.
7. Hitið bakaraofn í 190°C,
blástursofn í 170°C. Setjið bök-
una í ofninn og bakið í 15 mínút-
ur.
8. Takið bökuna úr ofninum.
Fyllingin:
’/2 stór pakki ijómaostur án
bragðefna (200 g)
V2 dós sýrður ijómi
2 egg + 1 eggjahvíta
1 dl flórsykur
1 krukka Dessert Topping & Fill-
ing — Cherry Flavour (382 g)
9. Hrærið saman egg, eggja-
hvítu, flórsykur, ijómaost og
sýrðan ijóma. Hellið á bökubotn-
inn.
10. Setjið kirsubeijamaukið
ofan á ostamaukið. Reynið að
láta það ekki blandast saman.
Ofan á bökuna:
Síðari helmingur deigsins
1 eggjarauða
1 tsk. vatn
A
V
I
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
12. Fletjið nú sfðari helming
bökudeigsins út eftir minni bréf-
hringnum.
13. Skerið 29. febrúar í deig-
botninn (sjá mynd). Takið síðan
deig úr stöfunum þannig að þar
myndist göt.
14. Hnoðið deigið, sem þið
skáruð úr stöfunum, í sívalning.
Þrýstið á brún bökunnar.
15. Leggið kökukefli ofan á
deiglokið. Vefjið það upp á keflið.
16. Leggið kökukeflið með
deiglokinu yfír bökuna og losið
lokið af kökukeflinu og leggið
varlega ofan á bökuna. Þrýstið í
deigsívalninginn á brúninni.
17. Hrærið eggjarauðuna út
með vatninu og penslið bökuna.
18. Hitið bakaraofn í 190°C,
blástursofn í 170°C. Setjið bök-
una í miðjan ofninn og bakið í
15—20 mínútur.
19. Kælið bökuna örlítið, en
losið síðan úr mótinu.
20. Berið bökuna fram heita
eða kalda.
Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi.
Afmæliskringla
500 g hveiti
V2 dl sykur
1 tsk. salt
1 kúfuð msk. þurrger
3 egg + 1 eggjahvíta
200 g smjörlíki
IV2 dl mjólk
4 kardimommur eða V2 tsk. drop-
ar
50 g smjör
1 dl rabarbarasulta
2 epli
1 eggjarauða
3 tsk. vatn
50 g heslihnetur eða möndlur
2 msk. sykur
1. Hrærið egg, eggjahvítu og
sykur saman þar til það er ljóst
og létt.
2. Bræðið smjörlíkið, takið af
hellunni og hellið mjólkinni sam-
an við smjörlíkið í pottinum.
3. Setjið hveiti, salt og þurrger
í skál. Hellið mjólkur/smjörlíkis-
blöndunni út í ásamt eggjahrær-
unni. Hrærið saman.
4. Setjið volgt vatn í eldhús-
vaskinn, setjið skálina með deig-
inu ofan í vatnið. Leggið hreint
stykki ofan á skálina. Látið
standa þannig í 20 mínútur.
5. Takið deigið úr skálinni,
hnoðið örlítið með hveiti, og mó-
tið langa lengju, 80—90 sm að
lengd og 25 sm á breidd.
6. Smyijið helming smjörsins
yfír lengjuna, leggið hana saman
langsum. Fletjið út á ný þannig
að hún nái aftur sömu breidd og
smyijið síðari hluta smjörsins
yfír.
6. Smyijið sultunni á lengjuna.
Afhýðið eplin, stingið úr þeim
kjamana, rífíð gróft á rifjámi og
setjið yfír sultuna.
7. Vefjið lengjuna saman
langsum. Setjið á smurða bökun-
arplötu eða bökunarpappír. Mótið
kringlu. Látið samskeytin snúa
niður.
8. Hrærið eggjarauðuna með
vatninu og smyijið kringluna.
9. Saxið hnetumar gróft,
blandið sykri saman við og stráið
jrfír kringluna.
10. Leggið hreint stykki yfir
kringluna.
11. Setjið heitt vatn í eldhús-
vaskinn, setjið plötuna með
kringlunni milli barmanna á
vaskinum og látið lyfta sér í 20
mínútur.
12. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 190°C. Setjið
kringluna í miðjan ofninn og
bakið í 20—25 mínútur. Athugið:
Best er kringlan volg, en hana
er hægt að fíysta og hita upp.
Haframjöls/möndluterta
með piparmintubrjóst-
sykri
150 g smjör
150 g haframjöl
rúml. 100 g hveiti
V2 tsk. lyftiduft
150 g möndlur
V2 dl ijómi
V2 dl mjólk
1. Bræðið smjörið, setjið það
saman við haframjölið og blandið
vel saman. Látið bíða í 10 mínút-
ur.
2. Saxið möndlumar frekar
fínt.
3. Setjið möndlur og lyftiduft
saman við hveitið og blandið því
út í haframjölsblönduna.
4. Setjið mjólk og ijóma út í
og hnoðið deig. Ef deigið er mjög
lint, má hnoða hveiti upp í það.
5. Skiptið deiginu í 4 jafna
hluta.
6. Fletjið út milli smjör- eða
bökunarpappírsbúta. Mótið síðan
4 kringlótta botna úr deiginu.
7. Setjið botnana á bökunar-
pappír.
8. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn í 180°C. Setjið botn-
ana í ofninn og bakið í 12—15
mínútur.
Inn í og ofan á kökuna
2 pelar ijómi (-V2 sem fór í deig-
ið)
2 msk. flórsykur
1 tsk. kakó
1 tsk. duftkaffí
5 makrónukökur
100 g suðusúkkulaði (1 lítill
pakki)
5 piparmintubijóstsykurmolar
9. Þeytið ijómann, setjið flór-
sykur, kakó og kaffí út í hann;
10. Myljið makrónukökumar
og setjið út í ijómann.
11. Setjið súkkulaðið á eld-
fastan disk inn í 70°C heitan
bakaraofn. Það bráðnar á 7
mínútum.
12. Smyijið súkkulaðinu yfír
einn botninn. Notið sleikju.
13. Myljið bijóstsykurmolana
með kökukefli og stráið ofan á
súkkulaðið.
14. Leggið botnana saman
með ijómanum, en hafíð botninn
með súkkulaðinu og bijóstsykrin-
um efst.
15. Látið kökuna standa í 1
klst. f kæliskáp áður en hún er
borin á borð.