Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
SEM VALIÐ HAFA MAZDA 323 HUÓTA AÐ HAFA RÉTT FYRIR SER!!
MAZDA 323 hefur jafnan verið ímynd hins fullkomna
fjölskyldubíls því hann býður upp á fullkomnun þeirra
þátta, sem skipta mestu máli í slíkum bíl. Hann er
fallegur, lipur í akstri, aflmikill, sparneytinn og óvenju
rúmgóður. 1988 árgerðin af þessum geysivinsæla bíl er
með ýmsum útlitsbreytingum, fjölmörgum tæknileg-
um nýjungum og nýrri luxusinnréttingu. MAZDA 323
fæst í yfir 20 gerðum: 3, 4, 5 dyra eða Station. Einn
þeirra hentar þér örugglega!
MAZDA 323 kostar nú frá aðeins kr.449.000
(gengisskr. 04.03.88)
Þjóðkirkjan í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarkírkja:
Tónlistar-
flutning-
ur um páska
í Hafnarfjarðarkirkju verður
mjög vandað til alls tónlistar-
flutnings komandi bænadaga og
páska. Fögur tónlist ásamt helgu
orði fá öðru fremur skapað þau
hughrif og kennd sem numið fá
innihald og þýðingu þeirra helgu
trúarleyndardóma sem uppljúk-
ast þessa dýru daga.
Við kvöldmessu á skírdag, sem
hefst kl. 20.30, mun Kór Öldu-
túnsskóla syngja undir stjórn Egils
Friðleifssonar. Við guðsþjónustu
föstudaginn langa, sem hefst kl.
14.00, munu þau Guðný Árnadóttir
söngkona, Gunnar Gunnarsson
flautuleikari og Oliver Kentish
sellóleikari flytja valin verk.
Við hátíðarguðsþjónustu á
páskadag, bæði kl. 8 árdegis„og
kl. 2 síðdegis, mun kór Flensborgar-
skóla flytja ásamt Kór Hafnarfjarð-
arkirkju þætti úr „Messu í G-dúr“
eftir Franz Schubert undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur.
(Fréttatilkynning)
Velkomin, elskan
Vegno mikillor oukningor í flutningum tökum við nýjo vél
í notkun nú um mánoðomótin.