Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 30

Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 því að þessi aðferð hefur gefíð góða raun.“ Líklega hafa Austur-Þjóðverjar 2.000 til 3.000 njósnara á sínum snærum í Vestur-Þýzkalandi og allt að 10.000 „smáfíska". Erfitt er að uppræta slíka moldvörpu-starfsemi af augljósum ástæðum. Sama tunga er töluð í báðum hlutum Þýzka- lands, frelsi ríkir í Vestur-Þýzka- landi og yfírvöld í Austur-Berlín virðast hafa óseðjandi þörf fyrir upplýsingar. Austur-Þjóðverjar trúa á kjörorðið „mennt er máttur" og telja allar upplýsingar skipta máli, þótt fæstar þeirra séu leynilegar og margar þeirra ómerkiiegar. A máli leyniþjónustumanna heitir þetta „ ry ksuguaðferðin". Austur-þýzkum útsendurum hef- ur víða verið komið fyrir í stjóm- kerfí Vestur-Þýzkalands, þótt það virðist tilviljunum undirorpið hvar þeir eru niðurkomnir. Vestur-Þjóð- veijar virðast stunda keimlíka starf- semi austan múrsins, en með öðrum ráðum. Þýzku ríkin fara því hvort tveggju nokkuð nærri um hvað vak- ir fyrir hinu og e.t.v. er þetta ein skýringin á því að þau ná oft sam- komulagi, þótt þau séu í ólíkum hemaðarbandalögum. Hvað sem því líður telur Frankfurter AUgemeine gagnkvæmar njósnir Austur- og Vestur-Þjóðveija „bersýnilega óhjá- kvæmilegar vegna skiptingar lands- ins“. Nýjar aðferðir í fyrra vom 33 teknir höndum í Vestur-Þýzkalandi vegna gmns um að þeir stunduðu njósnir fyrir aust- antjaldsríki og þessi taia fer oft upp í 50 á ári. Sumir hinna handteknu era útsendarar Varsjárbandalagsins, en flestir em þeir Vestur-Þjóðveijar, sem hafa verið vélaðir af ýmsum ástæðum. Dæmi em um að ellilífeyr- isþegar útvegi leiðaáætlanir almenn- ingsvagna vestan landamæranna til að drýgja rýrar tekjur og auðveldi IHandtökur veikja KGB íVestur- Þýzkalandi R U H N A U ráðuneytisstjóri (1974): „Falk stóð ekki vel í stykkinu." þannig smygl á þjálfuðum njósnur- um til Vestur-Þýzkalands. Ýmsir hafa verið beittir fjárkúgun og aðrir hafa þráð að lenda í ævin- týmm. Fjárkúgun hefur einkum ver- ið beitt gegn Vestur-Þjóðveijum, sem hafa skuggalegan feril úr stríðinu, en þeir er óðum að týna tölunni og sú aðferð á ekki eins mikið upp á pallborðið og fyrr. KGB hefur því bryddað upp á nýjungum og reynir talsvert að ginna skuldugt fólk, en telur „heillavænlegast" að hafa upp á fólki með skapgerðar- galla, án tillits til þess hvaða starf það stundar. Eins og brezka blaðið Sunday Times bendir á vilja Rússar „vita allt um Vesturlönd". „Oft vilja þeir vísindalegar og tæknilegar upplýs- ingar," segir heimildarmaður blaðs- ins. „Stundum em þær jafnvel ekki leynilegar, en það gildir þá einu. Þeir vilja umfram allt vita hvað fer fram á ríkisstjómarfundum, hvað þar er sagt og rætt fram og aftur.“ Þar koma njósnarar eins og ungfrú Falk að góðum notum og gagnnjósnarinn Gerhard Böden telur að þrátt fyrír minnkandi spennu verði Rússar stöðugt ágengari í njósnastarfsemi sinni. Hann segir að þeir vinni greinilega að því að stækka upplýsinganet sitt í Vestur- Þýzkalandi og annars staðar í Vest- ur-Evrópu. Síðustu handtökur í Vestur-Þýzkalandi hafa veikt þessa starfsemi, en henni verður haldið áfram. - GH WISCHNEWSKI (t.h.) og KOHL: aukin völd sama dag og Falk birtist. S T O P H (t.v.) og GAUS: Austur-þjóðveijar höfðu ljósrit af skjali um aðferðir Wischnewskis 1977. Nýir kjólar. St. 38-54. v/Laugalæk S. 33755. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! ipj!m zssr”; ■ {£ Viðurkenningarskjal STÚDÍÓ JÓNÍNU & AGÚSTU Skeifan 7, simi 689868 Námskeið fyrir eróbikk- og leikfimileiðbeinendur dagana 23. apríl til 1. maí. Námsefni: Vöðvafræði, hreyfingarfraði, lífeðlisfraði, næringarfraði, uppbygging eróbikktíma, þjálfun fyrir ófrískar konur, kennslufraði, sálfraði, meiðsli í eróbikk, raddbeiting, tónlistarval, mjúkt eróbikk, hjálp í viðlögum og hjartahnoð. (Þátttakendur fá skjal frá Rauða krossi íslands.) Nýtt: Allar nýjustu upplýsingar varðandi eróbikk og músíkleikfimi, kenndar æfmgar, farið yfir skaðlegar æfingaro.fl. o.fl. Leiðbeinendur: **Ágústa Johnson, eróbikkleiðb. Brynhildur Briem, næringarfræðingur Halldóra Bjömsdóttir, íþr.fraðingur **Jónina Benediktsdóttir, íþr.fræðingur **Mark Wilson, eróbikkleiðb. **Stefán E. Matthíasson, læknir ** Leiðbeinendur voru á námskeiðum í Bandaríkjunum nú í apríl ’88. Engin þátttökuskilyrði. Innritun í síma 689868. (Síðast komust færri að en vildu.) Allt námsefni er byggt á námsgögnum sem gefín eru út af IDEA (Intemational Dance & Exercise Association). Þekking skilar árangri Láttu ekki þitt eftir liggja, taktu þátt í að bæta heilsu íslendinga. Því vandaðri sem kennslan verður því fleiri verða með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.