Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
við hina hefðbundnu framleiðsluat-
vinnuvegi, landbúnað og sjávarút-
veg, en framfaramál annarra at-
vinnugreina og nýsköpun fyrir-
tækja á fremur ógreiða leið inn í
ríkisfjölmiðlana, nema helst þegar
um stórfyrirtæki er að ræða.
Iðnnám góð undirstaða
frekara tæknináms
Ýmsar jákvæðar breytingar hafa
verið gerðar á iðnnáminu á undan-
fömum árum, er kynning á þeim
virðist alls ekki hafa komist nægj-
anlega vel til skila. Ein þýðingar-
mesta breytingin, sem Landssam-
band iðnaðarmanna hefur lengi
hvatt til að yrði gerð, er sú, að iðn-
námið er nú alls ekki lokuð náms-
braut, eins og það var áður. Þeim,
sem lokið hafa sveinsprófí, bjóðast
nú ijölbreyttir möguleikar til fram-
haldsnáms. Þannig gefst iðnsvein-
um kostur á að leggja fyrir sig frek-
ara hagnýtt tækninám, þ.e. iðn-
fræði, iðnrekstrarfræði eða tækni-
fræði og verkfræði. Þá getur iðn-
nám einnig verið ákjósanleg undir-
staða t.d. undir nám í húsgagna-
og innanhússarkitektúr eða iðn-
hönnun. Og þá hillir nú loks undir
það, að nám fyrir verðandi iðn-
meistara, sem samiýmist lögum um
iðnfræðslu, komist á fót. Jafnframt
hefur nú verið komið á tengslum
iðnnáms við aðrar brautir í fram-
haldsskólum. Til dæmis geta þeir,
sem hafa farið í iðnnám, lokið stúd-
entsprófí á tæknibraut, ef þeim
sýnist svo, og nýtt tiltekna áfanga
í iðnnáminu. Síðast en ekki síst
skal nefnt, að margvíslegar endur-
bætur á iðnnáminu sjálfu hafa
ýmist þegar verið gerðar eða eru í
undirbúningi, og er unnið að þeim
málum á mörgum vígstöðvum.
Þannig hafa rafiðnaðarmenn af eig-
in frumkvæði og dugnaði gerbylt
námi á sínu sviði og komið á fót
öflugri eftirmenntun, enda ekki
vanþörf á að bjóða nýtísku kennslu
á því sviði, þar sem tækniframfarir
eru hvað örastar. Er nú svo komið,
að langskólagengnir tæknimenn
eru famir að sækja námskeið Raf-
iðnaðarskólans. Þá má nefna, að
nú fer fram gagngert endurmat og
endurskoðun á námi í húsgagna-
og trjávöruiðnaði, og í málmiðnaði
er nú sömuleiðis að hefjast átak á
þessu sviði.
Fleiri jákvæðar hliðar á iðnnámi
hafa viljað falla í skuggann. Þannig
sýnir reynslan, að hæfum og dug-
legum iðnaðarmönnum gengur yfír-
leitt vel að „vinna sig upp“, jafnvel
án frekara skólanáms, t.d. í stöðu
verkstjóra, framleiðslustjóra eða
framkvæmdastjóra í stærri fyrir-
tækjum, eða með því að hefja sjálf-
stæðan rekstur. Segja má, að allt
bendi þetta til þess, að iðnnámið
sé hagnýtt nám, sem reynist mönn-
um vel í lífínu. Iðnnám hefur einnig
þann kost fram yfír flest annað
nám, að þar er nám og starf samein-
að í ríkari mæli en gerist um flest
annað nám. Auk þess sem það
stuðlar að því, að námið sé hagnýtt
og í samræmi við þarfír atvinnulífs-
ins, hefur þetta fyrirkomulag þann
mikilvæga kost, að fólk aflar sér
nokkurra tekna um leið og það
stundar nám.
Iðnnám aðlagað nýrri tækni
Síðast en ekki síst skal ítrekað
það, sem áður sagði, að mjög mikl-
ar hræringar eru nú í allri fram-
leiðslu- og verktækni í iðnaði, tölvu-
byltingin hefur bæði áhrif á stjóm-
un fyrirtækjanna, þ.m.t. sölu- og
markaðsmál, og framleiðsluna
sjálfa. Einhæf færibandafram-
leiðsla er að víkja fyrir þeirri fjöl-
hæfni í framleiðslu — eins konar
samblandi sf fjöldaframleiðslu og
sérsmíði — sem samspil rafeinda-
tækni og nýjunga í véltækni hefur
gert mögulega. Nýjar vélar og tæki
eru stöðugt að líta dagsins ljós, og
sömuleiðis eru sífellt að koma fram
ný efni og efnismeðferð. Þessi þró-
un kallar auðvitað á gagngert end-
urmat á iðnmenntun og raunar
starfsmenntun aímennt, og eins og
áður sagði eiga sér nú stað margar
jákvæðar breytingar á sviði iðn-
fræðslunnar, þótt gjaman mætti sú
þróun gerast hraðar. Mörg gmnd-
vallaratriði í iðnnáminu halda gildi
sínu, en áherslumar þurfa að breyt-
ast. Efla þarf grundvallarmenntun-
ina, s.s. tungumála-, stærðfræði-,
stjómunar- og tölvumenntun, og
ennfremur að auka stórlega kennslu
í meðferð nýjustu véla, tækja og
efna. Aðalatriðið er það, að tækni-
þróunin er þess eðlis, að iðnnám
og iðnaðarstörf ættu að verða sífellt
meira spennandi vettvangur fyrir
ungt fólk, ef við bemm gæfu til
-20%*
afsláttur á
GAGGENAU
Halogen helluborðum
* Fengum takmarkaö magn
sem hægt er að bjóöa á þessu
verði. Gildirtil 16.4’88
Halogen enn ein byltingin í hraðhitun
sem kemur frá GAGGENAU Halogen
er mun fljótvirkari en venjulegar hellur
Kynnið ykkur
þessar frábæru vörur
og þetta einstaka tilboð.
Sjón er sögu ríkari.
GAGGENAU
Gæði - Glæsileiki - Góð fjárfesting
að sjá til þess, að iðnfræðslann og
skipulag og starfsemi fyrirtækja í
iðnaði þróist í samræmi við tækni-
þróunina.
Iðnskóladagurinn og Norr-
ænt tækniár
Ég nefndi áður, að iðnaðurinn
og iðnnámið væri lítið og illa kynnt.
Ur því þarf vitaskuld að bæta.
Dæmi um jákvæða kynningu er
hins vegar iðnskóladagurinn, sem
haldinn hefur verið árlega í
Reykjavík, þar sem leitast er við
að kynna það nám, sem fram fer
við skólann og þau margvíslegu
störf, sem nemendur vinna. í dag,
sunnudag, er einmitt haldinn slíkur
dagur í Iðnskólanum í Reykjavík,
sem er stærsti iðnskóli landsins.
Skólinn er opinn almenningi milli
kl. 13 og 17, og nemendur og kenn-
arar taka höndum saman um starfs-
kynningu á þeim iðngreinum, sem
kenndar eru við skólann.
Nú stendur yfir svonefnt Nor-
rænt taékniár, sem er vettvangur
fyrir kynningu á nýrri tækni í at-
vinnulífinu, og er það vel. Meðal
annars hafa fyrirtæki og stofnanir
að undanfömu haft opna daga til
að kynna starfsemi sína fyrir al-
menningi. Af tilefni Norræns
tækniárs verður iðnskóladagurinn
að þessu sinni með veglegasta móti,
og hefur verið lagt mikið í undirbún-
ing hans. Það er því sérstök ástæða
til þess a hvetja ungt fólk, sem
stendur á þeim tímamótum að þurfa
að velja sér framtíðarstarf, að
kynna sér það, sem fram fer í Iðn-
skólanum í Reykjavík í dag. Raunar
er einnig fyllsta ástæða til að hvetja
þá, sem eldri og reyndari eru, ekki
síst atvinnurekendur í iðnaði, að
kynna sér stöðu iðnnáms um þessar
mundir.
Eftir því sem atvinnulífið verður
fjölbreyttara og möguleikamir fleiri
verður æ erfiðara fyrir ungt fólk
að velja sér störf við hæfí, nema
að til komi öflug starfskynning. Því
ber að fagna hverri viðleitni, sem
sýnd er til þess að bæta starfskynn-
ingu, og hvetja sérstaklega ungt
fólk til þess að fylgjast vel með
því, sem gert er á þessu sviði.
Höfundur er byggingameistari og
forseti Landssambands iðnaðar-
manna — samtaka atvinnurekenda
í löggiltum iðngreinum.
á AP farsámann
PHILIPS ap símsvarinn
er þægileg viðbót við handhægan farsíma.
Ap símsvarinn svarar og geymir síðan í tónvalsminni númerið
sem hringt var úr. Minnið geymir 9 númer.
Með einum hnappi kallarðu síðan upp númerin og hringir
þegar þér hentar.
<H)
i
PHILIPS
anau j