Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 63

Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 Ásgeir Þröstur Bentsson — minning Fæddur 22. mai 1965 Dáinn 1. apríl 1988 í sívaxandi mæli leitar fólk inn til hálendis íslands í fríum sínum, og nú hin síðari ár ekki einungis að sumri_ til, heldur og á vetrum. Hálendi íslands er viðsjárvert svo sem dæmin sanna. í faðm fjallanna skal halda með fyllstu aðgát jafnt vetur sem sumar. Slys gera ekki boð á undan sér, og verum öll minn- ug þess að þau henda ekki einung- is á hálendinu, fjarri fer því. Sjálfsagt mun mörgum reynast erfitt að skilgreina út í hörgul, hvað það er sem dregur menn til fjalla — eitthvað hrikalegt, eitthvað spennandi. Engum verður álasað fyrir að fyllast ævintýraþrá. Asgeir Þröstur Bentsson var smitaður af aðdráttarafli fjallanna. Til fjalla stefndi hugurinn og þang- að var haldið í góðra vina hópi á snjósleða á föstudaginn langa í besta veðri. Um endalok þeirrar ferðar verður ekki fjölyrt hér. Ásgeir heitinn var nemandi hér í Varmahlíðarskóla í þtjá vetur og lauk námi hér vorið 1981. Hann var dagfarsprúður nemandi, sam- vinnuþýður og þægilegur í allri umgengni og vel látinn í hópi skóla- félaganna. Síðan hann fór úr skól- anum hér hafa leiðir okkar lítið sem Birkir Steinn Frið- bjömsson — kveðjuorð í Keflavík. Birki var vel til vina. Hann var vinsæll og góður félagi allra sem hann þekktu. Hann var eftirsóttur til allrar vinnu sakir dugnaðar og ósérhlífni, en hugur hans sótti alltaf til sjávar og undir hann sér best við sjósókn. Fæddur 16. maí 1970 Dáinn 12. mars 1988 Mann setur hljóðan þegar ungt fólk í blóma lífsins er kallað á burt. Þannig var með okkur systkinin þegar sú fregn barst okkur að ást- kær frændi okkar og vinur, Birkir Steinn Friðbjömsson, hefði farist ásamt félögum sínum þegar þeir voru að sækja líísbjörg á hafíð. Birkir fæddist í Keflavík en kom til ömmu sinnar og afa að Skógum í Oxarfirði ijögurra mánaða gam- all. Þá kynntumst við honum og var hann strax eins og eitt af okk- ur systkinunum þar sem mikill sam- gangur var á milli bæjanna. Oft var Canon Rétti tíminn til reíknivólakaupa. IVIikið úrval. Lækkað verð. Suðurlandsbraut 12. S: 685277 — 685275 glatt á hjalla vegna þess hversu Birkir var fjörugt og skemmtilegt bam. Hjá ömmu sinni og afa ólst hann upp til tíu ára aldurs, en flutt- ist þá til Húsavíkur til móður sinnar og bróður. Síðustu ár hafi þau búið Elsku Ólöf og Guðbjöm, við send- um ykkur dýpstu samúðarkveðjur og megi minningin um góðan dreng styrkja ykkur og varðveita. Með söknuði. Systkinin frá Sandfellshaga ekkert legið saman, en ég hefi það til hans spurt, að hann hafi hvar- vetna komið sér vel. Ásgeir hefur stundað ýmsa vinnu og nú síðast var hann starfsmaður hjá Króks- verk hf. á Sauðákróki. Það er oft erfitt að skilja vilja þess sem’ öllu ræður. Þótt spurt sé hvers vegna ungt fólk í blóma svo snögglega er hrifíð á braut úr þess- um heimi, þá verður oss fátt um svör. Við hljótum að trúa því að allt hafi sinn tilgang hvort heldur um er að ræða líf eða dauða, auk heldur það er þá tekur við. Það er erfitt fyrir ástvini að horfa á eftir hinum unga manni yfir landamærin svo skjótlega. Megi hinn almáttugi hugga í sorginni og styrkja. Eftir lifir fögur minning um son, bróður, unnusta. Ég sendi öllum aðstandendum innilegustu samúðarkveðjur. Páll Dagbjartsson RIGQHTTO80 ÆTLARÐU AÐ HJAKKA ENDALAUST í SAMA LJÓSRITUNARFARINU ? Þetta er örstutt kynning á hinni nýju FT-4480 Ijósritunarvél frá RICOH. Það má segja að hún dragi að sér athygli fyrir allt nema stærðina. FT-4480 býr yfir ýmsum sérstökum möguleikum og kostum. Stýrikerfið sparar tíma. Tími, sem áður fór i að standa yfir verki, nýtist nú til annars eftir að búið er að velja og ýta á takka. Sjálvirk stækkun og minnkun og sjálfvirkt pappírsval. Hægt er að stækka að óskum eftir þremur leiðum. Auðveldir valkostir við frágang og útlit gera öllum unnt að setja fagmannlegan svip á árangurinn. Síðast en ekki síst: hæfni RICOH hvilir á traustum grunni langrar reynslu sem notendur í 130 löndum hafa sannprófað. ■tnrröffn m UiJ aCQhf SKIÞHOLT117 105 REYKJAVlK SÍMI: 91 -2 7333 NR. 103KR. 28.895.- Stakir og stækkanlegir. Breiddir: 100 eða 150, 200 eða 250, 300-500 cm. Franskar hurðir. Litir: Hvítt, svart eða í eikarlíki, með eða án kristalspegla. Skóhillur úr vír eða tré. Fataskápar frá byPACK eru meðfærilegir í flutningum og einfaldir í uppsetningu. Vestur-þýskir skápar sem þú getur treyst. FATASKÁPM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.