Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 66
66
MORGUNBLAÐŒ), SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
-METRO A/S
hitamælar-þrýstimælar
Þekkíng Reynsla Þjónusta
m § "li W
llv° So- !■
v JH/
FÁLKIN N
SUOURIANDSBRAUT 8. SIMI 84670
t
Móöursystir mín,
PÁLÍNA JÓNASDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlið,
andaöist föstudaginn 8. apríl í sjúkrahúsi Akureyrar.
Jarðarförin ákveðin síöar. Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Sigtryggsson.
Móöir mín.
t
ANNA LÍNDAL,
er látin. Jaröarförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Þorsteinn Lindal.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
TRYGGVI HJÁLMARSSON
húsgagnasmiður,
Heiðarási 1,
áður Ólafsfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. apríl kl.
10.30.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi,
HELGI KRISTINN GÍSLASON
bifreiðarstjórl,
Skúlagötu 64,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 13. april kl.
15.00. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess.
Ingunn Jónasdóttir,
Þóra Helgadóttir,
Kristbjörg Helgadóttir, Andrós Ólafsson,
Jónas Helgason, Eyþóra Vattnes,
Gísli Helgason, Hrafnhildur Sigurbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Steinþór Stefáns
son - Kveðjuorð
Fæddur 10. nóvember 1961
Dáinn 27. mars 1988
Við vorum fjórir ungir reiðir menn,
með eld í augum og háleitar hug-
myndir um að breyta þyrfti heimin-
um. Slógum um okkur og höfðum
hátt. En við vorum á Akureyri, litlum
bæ sem er langt frá því að vera nafli
alheimsins, þó okkur hafi fundist það
þá. Svo fórum við allir suður með
tímanum og hugsjónimar og ákaflnn
minnkaði. Við samlöguðumst því
samfélagi sem við höfðum mótmælt
sem hæst áður, nema einn okkar,
Steinþór Stefánsson, hann hætti aldr-
ei.
Stundum þótti manni hann hafa
staðnað í uppreisninni, en í hina rönd-
ina skammaðist maður sín. Tilvist
hans minnti mann á að maður hafði
gefist upp, ekki getað staðið við hin
stóru orð. Hann hinsvegar var sjálf-
um sér samkvæmur og hætti aldrei
að leita og reyna.
En að lifa sem náttúrubam, sem
baðar sig nakið í dögginni á Jóns-
messunótt, í þessu steinsteypu sam-
félagi okkar er ekki það auðveldasta
sem menn taka sér fyrir. Árekstrar
og misskilningur eru óumflýjanlegir.
Eg hef hitt marga sem dæmdu hann,
en þeir dæmd eingöngu yfirborðið.
Fáir þekktu að sem undir bjó, enda
var það sjaldnast til sýnis, og flestar
tilraunir til útskýringa af hans hálfu
hróplega misskildar.
Undir þessu yflrborði bjó sál sem
aldrei gerði nokkmm mein, nema
sjálfum sér. Það var sem fmmöfl
heimsins væm að takast á í brjósti
hans á stundum. Það vom mikil átök
sem fóm sjaldnast fram hjá neinum,
þau beindust aldrei gegn öðmm, áttu
aldrei að snerta neinn annan. En það
er fólk allstaðar. Fólk hefur augu og
fólk dæmdi, en það vissi ekki neitt,
fæstir gerðu það.
Svo núna er hann farinn. Horfínn
Petur Þórisson,
bóndi — kveðjuorð
Fæddur 18. mars 1933 Það er sumarkvöld í Baldursheimi.
Dáinn 27. mars 1988
Að leiðarlokum langar mig að
þakka föðurbróður mínum alla þá
alúð og vinsemd sem hann sýndi
mér. Þetta verða bara nokkrar per-
sónulegar myndir frá liðnum árum
og fáein þakkarorð.
Það er miður vetur og allt á kafi
í snjó. Ég á að fara til Húsavíkur á
sjúkrahús. Ég hef aldrei komið á
sjúkrahús og ég hef ekki heldur ver-
ið á Húsavík. Pétur frændi minn fer
með mér. Ég verð sjö ára á sjúkrahús-
inu og fæ bók í afmælisgjöf. Pétur
situr hjá mér á daginn og talar við
mig, les fyrir mig. Bókin heitir Vinir
vorsins. Þetta var gaman — ég þakka
fyrir það.
Það hlýtur að vera framorðið því
Baldar eru hættir að vinna. Pétur er
búinn að útbúa sér langstökksgryfju
austur á barði. Hann er að stökkva
langstökk. Mér finnst gaman að fylgj-
ast með.
Það er vetur. Pétur er hjá okkur
þvi að hann hefur fengið eitthvað í
bakið. Hann er við rúmið og er í
miðherberginu. Nú get ég að vísu vel
lesið sjálfur en samt les hann enn
fyrir mig. Hann les aðallega kvæði
eftir Einar Ben. Sumt af þessu man
ég ennþá: „í skotsilfri bruðla ég hjarta
míns auði", „paðreimur", „Hans
þroski er skuldaður bemskunnar
byggð“...
En annars er Pétur yfirleitt manna
hressastur og hraustastur. Þá kemur
t Faöir okkar, JÓN ÁRNASON frá Vatnsdal, lést 4. apríl sl. Útför hans veröur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. apríl kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkað. Bergsteinn Jónsson, GunnarJónsson.
t Útför GESTS MAGNÚSSONAR cand. mag. Drápuhlfö 41, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 12. apríl kl. 15.00. Gyða Guðmundsdóttir, Soffía Magnúsdóttir.
t Innilegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu eiginkonu, móöur, ömmu og systur okkar, MARÍU BJÖRGVINSDÓTTUR, Yrsufelli 3, áður Freyjugötu 6, Reykjavík. Sigurjón Helgason, Kristin Birna Sigurbjörnsdóttir, Maria Thejll, Rannveig Ingibjörg Thejll, Guðlaug Björg Björgvinsdóttir.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför EYJÓLFS BJARNASONAR, Langholtsvegi 79. Sérstakar þakkirtil Kvenfélags og Braeðrafélags Langholtssóknar. Fyrir hönd vandamanna, Anna Pálsdóttir.
af sviðinu sem hann stóð svo oft á.
Bassinn sem hann smiðaði er þagnað-
ur og verkfærin liggja óhreyfð. En
hann er ekki farinn langt ef ég þekki
hann rétt. Hann er genginn út í nátt-
úruna, inn í klettana, til þeirra afla
sem skópu hann.
Bragi Halldórsson
hann stundum og fer í skollablindu
með okkur skólastrákunum eða
glímir við okkur. Það er ekki ónýtt.
Við erum að setja hey upp á vagn
uppi við Geitakofa. Pétur hefur verið
fyrir sunnan og séð Mýs og menn.
Þeir eru að tala um leikritið. Seinna
ætla ég að lesa bókina og sjá leikritið.
Ég er í Baldursheimi að vetrar-
lagi. Það er komið kvöld — stóra
klukkan í stofunni segir „eilíbbð,
eilíbbð" eins og klukkan í Brekkukot-
sannál. Pétur er að tefla við mig.
Þetta er notalegt.
Ég kem í Baldursheim á sumrin.
Oftast reyni ég að gera eitthvað til
gagns í heyi. Pétur dregur ekki af
sér — ekki heldur eftir að óvinurinn
er byijaður að heija á hann. Það er
góð tilbreyting að koma á svona stað.
Hér er líka einhvers staðar „gamalt
spor eftir lítinn fót“ í grasrótinni.
Það er vetur og ég er búinn að
vera í útlöndum. Nú er það Pétur sem
er á sjúkrahúsinu. Ég finn að ég get
ekki launað honum það sem hann á
inni hjá mér. Það er orðið of seint.
En ég get þakkað fyrir mig. Ég geri
það núna.
Tóta, þú sem alltaf stendur eins
og klettur hvað sem á dynur. Við
Sigga og krakkamir sendum þér og
bömunum innilegar samúðarkveðjur.
Höskuldur Þráinsson
Blómostqfa
FriÖfmns
Suðuriandsbraut 10
108 Reylqavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öii tilefni.