Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 10

Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 10 B HJÓLAÐ YFIR SAHARA skipti sofið úti undir alstimdum himni. Við vorum nú farin að kveikja eld á hveiju kvöldi og notuðum þymirunna í uppkveikju og úlfalda- tað var góður eldiviður sem brann hægt. Ég bakaði brauð í sandinum með því að blanda saman hveiti og vatni og hnoða það á steini. Þegar eldurinn logaði glatt var deigið sett niður í heitan sandinn og glæðunum stráð yfir. Tuttugu mínútur á hvorri hlið og við fengum n\jög fiart, flatt og ósýrt brauð, dálítið- sendið að utan, en mjög bragðgott heitt með sultu. Þegar við komum til Tamanrass- et, syðstu vinjarinnar í Alsír, um 400 kílómetra norðan landamær- anna, var leið okkar hálfnuð, og þangað komum við í lok janúar eft- ir að hafa farið 2.200 kílómetra leið frá Algeirsborg á sex vikum. Hér gáfum við tvímenningshjólinu smáfrí og fórum á úlföldum um Hoggar-fjöllin í fylgd Tuareg hirð- ingja. Við skrifuðum, hvíldumst og birgðum okkur upp fyrir erfíðasta viðfangsefnið framundan, sandslóð- inni til Níger. Sandslóðin til Níger Milli 50 kílómetra merkisins fyrir sunnan Tamanrasset og Arlit, fyrstu borgarinnar í Níger, er 600 kílómetra sandbreiða, leiðin aðeins mörkuð af hjólförum og stöku olíu- tunnum. Þetta var það sem dregið hafði okkur alla þessa leið: Að sjá hvort fótstigsorkan gæti flutt okkur yfír eyðimörkina. Áður en lagt yrði af stað urðum við að birgja okkur upp á ný af mat til eins mánaðar og þá reiknuð- um við með því að komast að minnsta kosti 150 kílómetra á viku. Við þurftum 20 pund af hveiti, 20 pund af hrísgijónum og eins mikið af blönduðum osti, sardínudósum, kexi og brauði og fáanlegt var. En innkaup í Tamanrasset voru ekki auðveld, „stórmarkaðurinn" var oft aðeins tómar hillur og ef vörusend- ing var ekki nýkomin fékkst þar aðeins dósamjólk og ávaxtasulta. í neyðarbúnað þurftum við að hafa blys og plastdúk ef við yrðum vatnslaus og þyrftum að útbúa okk- ur eimingartæki. Sex hjólbarða- slöngur og þijú dekk auk varaöxuls voru einu varahlutimir sem við höfðum pláss fyrir og svo verk- færataska. Við hjóluðum af stað, full af sjálfstrausti, þessa síðustu 50 kíló- metra sem lagðir voru varanlegu slitlagi áður en við lentum í sandin- um. Breytingin var mikil, við urðum að skipta í neðsta gír og þurftum að hamast við að stíga svo hjólin sykkju ekki og við yrðum föst. Þeg- ar við höfðum komist 30 kflómetra á þennan hátt hjóluðum við inn í of djúpan sand og duttum af hjól- inu. Framgjörðin hafði bognað og við þurftum að sníkja okkur far til baka til Tamanrasset til að gera við hana. Þegar við komum þangað eftir ömurlega rigningamótt var skapið ekki upp á það besta. Það vom engir viðgerðarmenn í bænum, sem gátu gert við gjörðina, svo við tók- um teinana úr og hoppuðum svo á gjörðinni til að rétta hana. Við héld- um af stað á ný tveimur dögum seinna og þá kom með okkur ítalsk- ur hjólreiðamaður, kallaður Gio- vanni, sem „langaði til“ að bregða sér þvert yfír eyðimörkina. Hann reyndist sérfræðingur í að kveikja eld og matreiða spaglietti og hapn átti það til að syngja fyrir okkur, " í annarri tilraun okkar til að halda ferðinni áfram vorum við staðin að því að fara í óleyfi um síðustu þijá kílómetra góða vegar- ' ins pg handtekin af alsírskum her- mönnum. Okkur hafði þótt það hálf kjánalegt að hjóla í sandinum þegar vegurinn var þarna, að vísu ófullgerður, svo við færðum.hindr- anirnar, sem á stóð „aðgangur bannaður", til hliðar og héldum áfram. Við vorum stöðvuð og okkur sagt hve alvarlegt það væri, að við hefðum vísvitandi farið framhjá- aðvörunarskiltinu, svo voru vega- bréfin tekin af okkur og við látin sitja á sandinum allan daginn í brakandi sól. Hermennimir, sem voru að leggja veginn, færðu okkur „cous-cous“ og appelsínur og ræddu við okkur um sósíalisma, bersýni- lega í þeirri trú að okkur veitti ekki af tilsögn. Við höfðum vonast til að ná til In Guezzam og landamæranna, 400 „Furðuleg spor“ í sandinum. kílómetra leið, á sjö dögum. En það tók okkur reyndar 15 daga og dagleiðirnar voru að meðaltali þetta 15 til 30 kílómetrar. Við tókum daginn eins snemma og unnt var og forgangsverkefnið var að bursta tennurnar, sem við lærðum að gera í 1 sentímetra vatni. Svo fengum við okkur sterkt te og skál af hafra- graut. Þetta var besta leiðin til að byija daginn því enn var allkalt á morgnana. Matarílátin voru hreins- uð með sandi og síðan skolað af þeim ef við áttum nægt vatn. Allt aukavatn notuðum við til að þvo okkur, þótt við ættum venjulega ekki nóg. En þar sem við öll lyktuð- um eins vöndumst við þessu fljótt. Það var ekki alltaf auðvelt að vera kona úti í eyðimörkinni. I þess- ari víðlendu auðnarflatneskju var stundum ekki einu sinni stein- hnullung að fínna til að hægja sér á bak við. Ég vandist því fljótt að segja strákunum að horfa eitthvert annað meðan ég gekk örna minna. Eftir að hafa borðað og þvegið upp felldum við tjaldið. Við þurftum ekki lengur alltaf að gera það, en eftir að hafa áður lent í sandbyl tjaldlaus vissum við á hveiju gat verið von. Nóttin sú er ein hin versta sem ég man eftir; sandurinn er alltaf þéttastur neðst svo versti hugsanlegi staðurinn til að sofa á var á jörðinni. Eftir að hafa verið svefnlaus alla nóttina og í hræði- legu skapi morguninn eftir fannst mér ekkert mál að tjalda. Eftir að hafa komið farapgrinum fyrir á hjólunum var haldið af stað. Stundum var jarðvegurinn harður, með þjappaðri sandskorpu þar sem bílar höfðu áður farið. Þarna náðum við upp hressilegum hraða og gát- um halaið honum í klukkustund eða svo, ef við vorum heppin, með því að fara í krákustígum framhjá mýkri blettum. Svo gátum við lent í hjólfari, sem sokkið hafði niður úr skorpunni, þá snarminnkaði ferð- in í mjúkum sandinum og við stigum hjólin allt hvað af tók, skiptum um gír og oftast, duttum af hjólinu. Dauðþreytt stauluðumst við á fætur og teymdum hjólin næstu kílómetr- ana. Við reyndum alltaf að komast að vörðu í hádeginu. Þetta voru staurar í olíutunnum, sem áttu að vera með fimm kílómetra millibili, mjög hentugir til að binda tjaldið við og mynda skugga. Við drukkum te í lítratali undir þessu bráða- birgðaskýli okkar og hvíldum okkur meðan heitast var. Svo hófst sama hjakkið fram til sólseturs. Eitt af þvi sem mér fannst skemmtilegast var að fylgjast með stjörnunum. Á næturnar var him- inninn alþakinn skærum stjörnum hvert sem litið var og ég skoðaði venjulega stjömukortið á daginn en leitaði síðan að stjömunum á nótt- inni. Að liggja út af í svefnpokanum að næturlagi og fylgjast með stjörn- unum svífa hægt um himinhvolfið frá austri til vesturs heillaði mig meira en nokkuð annað og það rétt- lætti allt erfiði dagsins. Þegar við komum sunnar kom ég auga á Suðurkrossinn, stjörnumerkið næst Suðurpólnum. Merkið er tengt þjóð- sögum hér um slóðir og innlendir listamenn nota útlínur þess við smíði skrautmuna úr silfri og ann- arra minjagripa. Þar sem okkur hafði verið sagt að tíma sandbyljanna væri lokið að sinni furðuðum við okkur á því hve mörgum við lentum í. I fyrstu sett- umst við í skjól undir kletti, en fljótt fór okkur að fínnast þetta sóun á hjólatíma, svo við héldum áfram að hjóla. Það er ekki ýkja gaman þeg- ar heit sandrokan lendir á húðinni. Fötin drógu úr óþægindunum, en komu ekki í veg fýrir að sandurinn smygi út um allt. Eftir nokkra tíma í sandbyl vorum við alvég niðurbrot- in; augun rauð og sár, þrátt fyrir hlífðargleraugu og hárið þykkur flóki. Sem betur fer er eyðimörkin þakin biluðum bílum, í hundraða tali, sem ekki hafa komist leiðar sinnar yfir sandinn, og þeir reynd- ust okkur dásamleg sandlaus hæli og inni í þeim var nægt rými til að elda, borða og sofa, þótt við yrðum fyrst að ganga úr skugga um að hvorki snákar né sporðdrek- ar hefðu fundið sér þar skjól á und- an okkur. Þótt við hefðum í fýrstu furðað okkur á því hve fáa bíla við sáum virtist okkur eftir þetta eins og eyðimörkin væri full af þeim. Slóðin sem við fylgdum er aðalleiðin þvert yfír Sahara, sem margir ferðamenn, heimamenn og verzlunarmenn fara eftir þegar þeir vilja hagnast á því að selja bíla sína í Vestur-Afríku. Við urðum aldrei alveg uppiskroppa með vatn þótt við hefðum einu sinni eða tvisvar verið að bergja síðustu dropana þegar vingjarnlegur ferða- maður birtist alveg á réttum tíma. Landsmenn voru tortryggnir, en við eignuðumst fjölda vina úr hópi vörubílstjóranna sem aka milli Tam- anrasset og landamæranna. Þeir fylgdust gjarnan með okkur og færðu okkur ný brauð. Lúxus! Allir urðu þeir hissa þegar þeir mættu hjólreiðafólki, ekki síst á tvímenn- ingshjóli. Einn náunginn hafði eytt þó nokkrum tíma í að furða sig á þessum furðulegu förum í sandinum sem hann hafði fylgt. En við vorum ekki eina geggjaða fólkið í eyði- mörkinni. Einn hafði farið þama yfír gangandi með kerru í eftir- dragi og eitt sinn sást til þriggja Svisslendinga sem festu reipi aftan í Landroverinn sinn og létu hann draga sig á skíðum yfír sandinn. Seinna hittum við náunga sem var einn á ferð ríðandi á úlfalda á leið frá Nouakchott í Mauritaniu til Mekka. Samanborið við þetta virt- umst við bara þó nokkuð heil á geðsmunum. Hvað heilsuna varðar vorum við öll frísk og hress þar til við fómm að borða í matsölum landsmanna. Ég hafði tvisvar fengið matareitmn í Alsír og seinna veiktis Paul í Níger. Meðan við löguðum okkar eigin mat, jafnvel með áhöldum sem hreinsuð höfðu verið með sandi, vomm við ekki í neinum vandræð- um. Þar fyrir utan vom fótasveppir það eina sem angraði okkur. Síðasti áfanginn Við vomm aðeins á eftir áætlun og hitinn var 38 gráður í skbgga. Við komum af sandinum um mjðjan mars, nákvæmlega 27 dögum eftir að við fómm frá Tamanrasset í seinna skiptið, og við vomm himin- lifandi yfir að komast aftur á mal- bikið. Níger var litríkt, Tuareg-hirð- ingjar alls staðar, í hópum um- hverfís vatnslindimar með úlfalda sína, og Fulani-hjarðmenn með afríska nautgripi sína. Meðan við hjóluðum suður eftir breyttist landslagið smám saman til batnað- ar, úr sviplausum sandi í þymi- mnna, mangótré og ræktað land. Eyðimörkin var að baki. Við landamærin var okkur neitað um að fara inn í landið þar sem við vomm ekki með vegabréfsárit- anir, þótt sendiráð landsins í Lon- don hefði fullvissað mig um að við gætum fengið áritanimar á landa- mæmnum. Við þurftum að taka á okkur 400 kílómetra krók fram og til baka til Niamey, höfuðborgar Níger, til að fá þær. Éftir þetta var okkur hleypt inn í landið og þar vöktum við ekki síður eftirtekt en annars staðar; þar vom tvímenn- ingshjól óþekkt fyrirbæri. Við vor- um nú orðin ein þar sem Giovanni hafði slegist í för með tveimur þýsk- um hjólreiðamönnum og var ferð- inni heitið alla leið til Suður-Afríku. Síðustu nokkur hundmð kíló- metrana til Kaduna gekk ferðin vel, þótt tvímenningshjólið vildi hafa síðasta orðið, því annar hjól- barðinn eyddist upp á heitum veg- unum. Ég hef aldrei séð hjólbarða svona slétt slitinn. Þar sem við gátum hvergi keypt rétta stærð af hjólbarða urðum við að nota hug- myndaflugið. Við keyptum of stór- an hjólbarða og bundum hann yfír þann sköllótta með stálvír, sem við vöfðum utan um barðann og milli teinanna. I lok apríl höltmðum við inn í Kaduna og höfðum þá farið 5.000 kflómetra leið frá London á fímm mánuðum. Það brakaði og brast í tvímenn- ingshjólinu eftir baráttu þess við sandinn, „auka“-dekkið sveiflaðist til og frá við snúning hjólsins og auðséð var að hér var á ferð sann- ur sigurvegari eyðimerkurinnar. Þeir hjá British Airways urðu svo hrifnir, að þeir gáfu okkur ókeypis flugfar heim. Ferð sem tekið hafði fimm mán- uði tók nú fímm tíma á bakaleiðinni. Höfundur er ensk að uppruna og ernú húsmóðir i Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.