Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 Það voru ekki allir lánsamir í akstrinum. Þessi kappi sveif hægri beygju með stæl, en missti tökin á vélsleðanum, fór út úr brautinni og á hliðina. Sleðinn vildi ekki í gang, þrátt fyrir ítrekeðar tilraunir við að starta honum. Jafnvel áhugi viðstaddra á meinsemdinni í vélarsalnum hjálpaði ekki og ökukappinn fórnaði höndum og var dreginn í mark. Hann sigraði ekki... mmmmmmmi] ^ *'w “ ■ ■ ■ ■ ■ iiTifTinrTfrniTn ■■■■■■ ■ ■■■■mmmmmn TEXTI OG MYNDIR: Gunnlaugur Rögnvaldsson SinRM.IKn OGSTOKKŒ) í hörkueinvígi vélsleðaumboðanna á Qölmennu móti, þar sem keppt var í fjallaralli, brautarkeppni og kvartmílu Polaris og Artic Cat. Hvor er betri og hvaða tegund vinnur? Þessi spurning brann á vörum eigenda og áhugamanna um þessa vélsleða sem voru mættir á árlegt vélsleðamót í Mývatnssveit fyrir skömmu, ásamt eigendum annarra vélsleða. En undanfarin ár hefur verið hvað grimmust keppni milli þessara tegunda, þó ökumenn annarra sleða hafi reynt að spyrna gegn yfirburðum þeirra tveggja. Keppendur og áhugamenn streymdu í hundraðatali á Mývatnsmótið, ýmist á vélsleðum yfir hálendið eða með þá í tengivögnum. Allir voru tilbúnir til að fylgjast með framvindu mála, einvígi vélsleðaumboðanna var í algleymingi — reyndar manna meðal löngu áður en mótið hófst. Fyrsta keppnisdaginn hóp- uðust sleðakapparnir sam- an við Hótel Reynihlíð og héldu skamman spöl að rásmarki fjallarallsins svonefnda, sem var 40 km keppnisakstur um hæðir og heiðar. Mikið erfiði bæði fyrir ökumenn og vélsleða, því ékið skyldi stanslaust allan tímann, sá fljótasti ynni, en Qallarallið var hreint einvígi umboðanna. Hvert umboð sendi þriggja sleða sveit, sem halda átti uppi heiðrinum. Á 30 sekúndna fresti þeystu kappam- ir af stað, á vélsleðum með undir 57 hestafla vél. Þeir aflmeiri voru ekki levfðir, enda var þetta í fyrsta skipti sem svo langur keppnisakstur fer fram hér á landi á sleða. Vélsleðameistarinn fljótast- ur Hvort sem það bar vitni um af- burðasleða eða ökumenn, þá röðuðu Polaris-menn sér í þrjú efstu sætin í fjallarallinu, en tími tveggja fyrstu sleðanna í hverri sveit gilti þegar árangur sveitanna var mældur. Það kom fáum á óvart að vélsleðameist- arinn Ingvar Grétarsson á Polaris var fyrstur að aka leiðina; langar sléttur, erfiðar brekkur, hóla og dulbúna stökkpalla. Og það erfið- asta var skyggnið, sem var mjög slæmt. Snjórinn endurkastaði bir- tunni þannig að ökumenn áttu í mestu vandræðum með að greina mishæðir á leiðinni. Tími Ingvars var 26.58,58 mínútur, sem þýddi að hann hélt 88,8 km meðalhraða á klukkustund, dágóð „sigling! það. Þorlákur Jónsson kom 40 sekúndum síðar í mark á sams- konar sleða og Jón Ingi Sveinsson batt endahnútinn á góðan árangur Polaris með því að ná þriðja sæti á tímanum 28.08,13. Yamaha Amórs Pálssonar kom svo næstur, en sveit Yamaha náði öðru sæti í fjallarall- inu á undan Artic Cat. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Véisleðagarpurinn Ingvar Grétarsson var fljótastur f tveimur erfiðustu greinum Mývatnsmótsins í vélsleðaakstri. Hann vann brautarkeppni sjötta árið f röð, nú á þessum Polaris 650 og varð fyrstur f 40 km fjallaralli og f sigursveitinni. Söngvari, gítarleikari og ókrýndur vélsleðakonungur Spjallað við sexfaldan Mývatnsmeistara, Akureyringinn Ingvar Grétarsson ÞEIR sem standa hæst í hvaða íþróttagrein sem er eru alltaf undir mestu álagi í keppni, það er óbifanieg staðreynd. Oft gerir fólk þær kröfur að viðkomandi fþróttamenn vinni, eða myndar bandalag til að fella þá úr sessi. Þess vegna mátti heyra fagnaðhróp frá litlum hópi manna, sem fylgdist með vélsleðakeppninni í Mývatnssveit, þegar tilkynnt var að Ingvar Grétarsson væri aðeins fimmti eftir fyrri umferð í brautarkeppn- inni. Þetta tvíefldi Ingvar og í næstu umferð sýndi hann algjöra yf irburði, náði langbesta tima og kórónaði góða frammistöðu á mótinu með þvi að vinna í tveimur erfiðustu greinum þess. Grunnurinn að velgengni Ingvars er mikil æfíng í æsku á vélsleða í nágrenni Akureyrar. „Þegar maður var yngri þótti ekkert mál að þeysa alla daga á vélsleða, klára svona einn bensíntank á dag. Núna er ég rólegri í tíðinni, keyri vélsleða lítið. Mest af mínum tíma fyrir utan vinn- una fer í spilamennsku með hljóm- sveit," sagði Ingvar í samtali við Morgunblaðið. Blaðamaður sat með honum á lítilli skrifstofu í blikksmiðj- unni Boddí á á Akureyri, þar sem hann vinnur níu tíma á degi hveij- um. Annað slagið vinnur hann hjá Pólaris-umboðinu, þá við viðgerðir á vélsleðum, en hann er lærður bif- vélavirki. „Það snýst allt um spilamennsku utan vinnutíma, ég spila á gítar með hljómsveitinni Karlmönnum. Við leikum mikið á dansleikjum, höfum spilað um allt land. Ég syng líka með, hef svona meðalgóða rödd,“ sagði Ingvar aðspurður um hlutverk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.