Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
Ungir ökumenn á ofsa
hraða í kappakstri
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Flóð hljóp í bæjarlækinn við Læk í Ölfusi og flæddi hann yfir veginn.
Vegaskemmdir í Ölfusi
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv-
aði fjóra unga ökumenn á mánu-
dagskvöld, þar sem þeir stund-
uðu kappakstur á götum borgar-
innar. Okumennirnir ungu, tveir
piltar og tvær stúlkur, misstu
ökuréttindin. Alls voru 35 öku-
menn teknir fyrir of hraðan akst-
ur þetta kvöld.
Það var um kl. 22.15 um kvöldið
sem lögreglan var við hraðamæling-
ar við Elliðavog. Þá mældust tvær
bifreiðar þar á ofsahraða. Önnur,
af gerðinni Toyota Twin Cam,
reyndist á 142 km hraða og var
ökumaðurinn ung stúlka, sautján
ára gömul. Hinni bifreiðinni, af
gerðinni Chevrolet, ók 19 ára piltur
og mældist hraði hennar 110 km á
klukkustund. Ökumennimir, sem
ekki þekktust, játuðu að hafa verið
í kappakstri eftir Elliðavogi. Þegar
kappaksturinn fór fram var myrkur
og gatan blaut, svo skilyrði til hrað-
aksturs voru afleit. Ókuskírteini
piltsins og stúlkunnar era nú í hönd-
um lögreglu.
Um þremur stundum síðar mæld-
ust tvær bifreiðar á 95 km hraða
efst á Hverfisgötu. Annarri bifreið-
inni, Fiat Uno, ók 19 ára stúlka,
en hinni, sem var af gerðinni Honda
Civic, ók tvítugur piltur. Þau sögðu
lögreglu að á móts við hús nr. 61
við Hverfísgötu hefðu þau ákveðið
að reyna með sér upp götuna. Öku-
skírteini þeirra vora einnig tekin
af þeim.
Þess má geta að fyrir viku varð
banaslys á Hverfísgötu. Þar lést
ung kona þegar hún varð fyrir bif-
reið, sem var í kappakstri upp göt-
una. Að sögn lögreglu virðist sem
sumir ökumenn læri aldrei af eigin
óföram eða annarra, en það kom
lögreglu nokkuð á óvart að í þessum
tveimur tilvikum skyldu stúlkur
vera við stýri. „Stúlkur hafa yfír-
leitt sýnt af sér meiri ábyrgðartil-
fínningu í umferðinni^ en piltar,"
sagði Ómar Smári Armannsson,
aðalvarðstjóri. „Við verðum að vona
að einhveijir láti sér þetta að kenn-
ingu verða. Það verða allir að leggj-
ast á eitt ef okkur á að takast að
fækka slysum."
Hveragerði.
í HINU mikla rigningaveðri sem
var hér aðfaranótt þriðjudags
hijóp svo mikið flóð í bæjarlæk-
inn við Læk í Ölfusi að hann
flæddi yfir veginn og braut í
hann mikið skarð.
Við flóðið losnaði stórt stálrör,
sem vera mun tveir og hálfur metri
í þvermál og flaut niður fyrir veg.
Að sögn Steingríms Ingvarssonar
umdæmisverkfræðings hjá Vega-
gerðinni er nú beðið eftir að sjatni
í ánni svo hægt verði að kanna
skemmdir á rörinu, en síðan verði
hafíst handa um viðgerð á veginum.
Víðar á leiðinni að Læk flæddi
yfír veginn og alveg er ófært heim
að Þurá.
. - Sigrún
Eimskip svift undanþágu
vegna meintra verkfallsbrota
Brotum hefur fækkað hjá VR
VerkfaLIsstjóm Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur ákvað
í gær að afturkalla undanþágur
fimm starfsmanna hjá Eimskip,
en VR hafði rökstuddan grun um
verkfallsbrot hjá Eimskip, að
sögn Einars Nikulássonar, sem
sæti á í verkfallsstjóm. Einar
sagði að verkfallsbrotum hefði
fækkað mikið frá byrjun verk-
falls verslunarmanna.
Eimskip er fyrsta og eina fyrir-
tækið sem hefur verið svift undan-
þágu frá verkfalli verslunarmanna.
Fimm starfsmönnum Eimskips var
leyft að halda uppi sambandi við
skip öiyggis vegna og verkfalls-
vörðum átti að vera heimilt að
kanna að ekki væra fleiri en þeir
við vinnu á skrifstofum, að sögn
Einars Nikulássonar. VR-mönnum,
með Pétur A. Maack, formann verk-
fallsstjómar, í broddi fylkingar
hefði hins vegar ekki verið hleypt
inn hjá Eimskip í dag til að kanna
hvort fleiri væra þar við vinnu en
fengið hefðu undanþágu.
Fundur um þingstörfin í gær:
Umræðu um vantraust
sjónvarpað beint
Stefnt að þinglokum 6. eða 7. maí
STEFNT er að því að ljúka þing-
störfum 6. eða 7. maí. Forsetar
Alþingis, forsætisráðherra og
formenn þingflokka héidu fund
um þingstörfin í gær og var þar
farið yfir mál sem lögð er áhersla
á að verði afgreidd á þessu þingi,
þar á meðal eru milli 15 og 20
stjómarfrumvörp.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
forseti sameinaðs þings sagði við
Morgunblaðið í gær að ljúka þyrfti
ákveðnum stjómarfrumvörpum fyr-
ir þinglok. Síðan væri mikið fyrir-
liggjandi af fyrirspumum í samein-
uðu þingi, talsvert væri af þings-
ályktunartillögum sem ætti eftir að
mæla fyrir og síðan mætti gera ráð
fyrir að einhver framvörp kæmu
úr nefndum. Þá lægi fyrir van-
trauststillaga og sagði Þorvaldur
að umræða um hana yrði næsta
fímmtudagskvöld og yrði henni
bæði sjónvarpað og útvarpað. Síðan
þyrfti hefðbundin eldhúsdagsum-
ræða að fara fram í næstu viku.
Sagðist Þorvaldur gera ráð fyrir
þingfundum bæði n.k. föstudag og
laugardag en málin skýrðust betur
á næstu dögum.
Þegar Þorvaldur var spurður um
afgreiðslu þingmannafrumvarpa
eins og bjórframvarpsins sagði
hann að ef um væri að ræða ágrein-
ingslaus þingmál jrrðu þau sjálfsagt
afgreidd fyrir þingslit, og nokkuð
væri um slík mál. Þorvaldur Garðar
sagði að ekki væri hægt að segja
um bjórframvarpið að það væri
ágreiningslaust en þótt um það
væri efnislegur ágreiningur væri
ekki þar með sagt að ágreiningur
væri um að málið yrði afgreitt.
Suðurland:
Verkfalli ræstingafólks á
sjúkrastofnunum frestað
Selfossi.
VERKFALLI ræstingafólks á
sjúkrastofnunum á Suðurlandi
hefur verið frestað um eina viku,
til miðnættis aðfararnætur 4.
maí. Þetta varð niðurstaða samn-
Forsætisráðherra
heimsækir Finnland
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, fer í opinbera heim-
sókn til Finnlands 9. júni nk., að
sögn Guðmundar Benediktssonr
ráðuneytisstjóra í forsætisráðu-
neytinu.
Heimsóknin stendur í tvo daga
en dagskrá hennar hefur ekki verið
ákveðin, að sögn Guðmundar.
ingafundar sem lauk um níuleyt-
ið i gærkvöldi.
Samninganefnd Alþýðusam-
bands Suðurlands frestaði verkfall-
inu með skilyrðum um að launa-
nefiid vegna Lundar á Hellu stað-
festi innan viku niðurstöðu um
launaleiðréttingu þar. Einnig að
starfslýsinganefnd skili niðurstöð-
um. Þá áskilur ASS sér rétt til
bakvirkniskröfu, leiði samningatil-
raunir á komandi dögum ekki til
jafngildis launataxta sem tilboð
þess hljóðar upp á.
Samningamenn sögðu viðræð-
umar í gær hafa verið árangursrík-
ar en enn ber nokkuð á milli varð-
andi beinan launalið. Sig. Jóns.
Þórður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Eim-
skips, sagði að starfsmennimir
fímm hefðu nú þegar hætt vinnu.
Hann sagði að ágreiningurinn við
VR snerist ef til vill um túlkunarat-
riði á því hveijir mættu vinna 5
verkfalli, báðir aðilar reyndu að
túlka sín sjónarmið til hins ýtrasta.
Rúmlega 20 manns sem störfuðu á
skrifstofu Eimskips ættu ekki aðild
að VR. Þórður sagðist ekki vita til
að undanþágur hefðu verið veittar
með því skilyrði að aðalskrifstofur
Eimskips yrðu opnar öllum og það
hefði reyndar verið tekið fram að
húsið í Pósthússtræti yrði lokað,
þar sem engin afgreiðsla færi þar
fram.
Verkfallsvarsla fór friðsamlega
fram í gær, að sögn Grétars Hann-
essonar, sem hefur yfíramsjón með
útköllum og verkfallsvörslu VR.
Hann sagði að menn hefðu haft
afskipti af 15-17 „alvarlegum mál-
um“, en náðst hefði samkomulag í
öllum tilvikum eftir að verkfalls-
verðir hefðu tekið sér stöðu fyrir
utan viðkomandi fyrirtæki og versl-
anir. Hann sagði að eitthvað á ann-
að hundrað manns hefðu unnið við
verkfallsvörslu hjá VR í gær á 17
afmörkuðum svæðum innan félags-
svæðis VR.
Verkfallsverðir lokuðu Hús-
gagnahöllinni í gær, en þar vora
nær allir starfsmenn, flestir VR-
félagar, í fullri vinnu, að sögn Ein-
ars Nikulássonar. Hann sagði að
enn gætti nokkurs misskilnings
meðal sumra félaga VR um það
hveijir væra í verkfalli og hveijir
ekki.
Þjófnaður úr sprengiefnagámi í Helguvík:
Stálu 8 kílóum af dína-
mítí og 104 hvellhettum
Tveir 17 ára pilt-
ar hafa viður-
kennt þjófnaðinn
Keflavik.
TVEIR 17 ára piltar viðurkenndu
við yfirheyrslu hjá rannsóknar-
lögreglunni í Keflavik í gær-
kvöldi að þeir hefðu stolið 8 kíló-
um af dinamíti og 104 hvellhett-
um úr sprengiefnagámi sem
staðsettur er á svæði Aðalverk-
taka við Helguvík.
Óskar Þórmundsson lögreglufull-
trúi í Keflavík sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að menn-
imir hefðu stolið sprengiefninu fyr-
ir viku og hefðu þeir geymt það í
farangursgeymslu bifreiðar annars
þeirra. Ekki væri ljóst á þessu stigi
málsins hvað ungu mennimir ætl-
uðu að gera við sprengiefnið. Lítið
hefði þurft til að koma af stað
sprengingu, aðeins veikan raf-
straum og því væri ljóst að ekki
hefði mátt mikið útaf bregða til að
stórslys hefði getað hlotist af. Þetta
magn hefði nægt til að sprengja
upp rammgert hús og því hefði
ekki þurft að spyrja að leikslokum
í því tilfelli.
Sprengiefnið var notað við hafn-
arframkvæmdimar í Helguvík,
svæðið er girt af og vaktmaður
gætir þess að engir óviðkomandi
fari þar um. _gg
Tillaga um lág-
markslaun í
borgarráði:
Ahrif álauna-
stiga könnuð
BORGARRAÐ hefur samþykkt
að visa tillögu um 42.000 króna
lágmarkslaun borgarstarfs-
manna til starfsmannastjóra
borgarinnar.
Er starfsmannastjóra falið að
kanna áhrif tillögunnar á launastiga
borgarstarfsmanna og um leið
hversu margir starfsmenn þiggja
laun lægri en 42.000 krónur á
mánuði. Að sögn Gunnars Eydals,
skrifstofustjóra borgarstjómar, er
ekki vitað nákvæmlega hvað þeir
starfsmenn era margir, en hann
taldi að þeir væra all margir.
Erfiðara að fella miðlunar-
tillögu en venjulega samninga
Aðeins þrisvar áður gripið tíl miðlunartillögu
AÐEINS þrisvar áður hefur
það komið fyrir i kjaradeilum
að ríkissáttasenyari leggi fram
miðlunartillögu í kjaradeilu,
enda er slíkt aðeins gert þegar
öll önnur sund virðast lokuð,
að sögn Elísabetar Ólafsdóttur,
skrifstofustjóra ríkissáttasemj-
ara. Nákvæm fyrirmæli eru um
afgreiðslu miðlunartillögu í
lögum um sáttastörf í vinnu-
deilum frá 1978, en mun erfið-
ara er að fella þannig tillögu
en veqjulega kjarasamninga. í
lögunum segir að minnst 50%
af greiddum atkvæðum hjá
stéttarfélögum þurfi að vera á
móti tillögunni til að hún teljist
felld og þá miðað við 35% þátt-
töku.
Ef þátttaka í atkvæðagreiðslu
er minni en 35% þarf mótat-
kvæðafjöldi að hækka um einn
af hundraði fyrir hvem hundraðs-
hluta sem vantar upp á 35%, til
að fella miðlunartillöguna. Ef
færri en 20% félagsmanna greiða
atkvæði telst miðlunartillagan
samþykkt, hvemig svo sem at-
kvæði falla. Ríkissáttasemjari
ákveður sjálfur hvenær miðlunar-
tillaga skuli borin upp undir at-
kvæði og talning atkvæða fer
fram undir hans stjóm. Hjá VSÍ
er það framkvæmdastjóm sem
tekur afstöðu til tillögunnar.
Sáttasemjari lagði í fyrsta sinn
fram miðlunartillögu í kjaradeilu
í deilu verkalýðsfélaga og Lands-
virkjunar og VSÍ í septemberlok
1982 og var tillagan þá sam-
þykkt, nema hjá trésmiðum, en
vegna ónógrar þátttöku hjá þeim
— aðeins þrír greiddu atkvæði —
taldist tillagan samþykkt þar líka.
Aftur var lögð fram miðlunartil-
laga í deilu vinnuveitenda og Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum
þann 17. apríl 1986 og var hún
samþykkt. Þriðja tilfellið þar sem
sáttasemjari lagði fram miðlun-
artillögu var í deilu Sjómannafé-
lags Reykjavíkur og vinnuveit-
enda þann 29. janúar 1987, en
þá var miðlunartillaga felld í
fyrsta og eina skiptið, og þá af
báðum deiluaðilum. Samningar
náðust hins vegar í deilunni rúmri
viku síðar.
Miðlunartillaga sáttasemjara er
samin í nánu samráði við deiluað-
ila, en það er þó sáttasemjari sjálf-
ur sem gengur endanlega fiá
henni og kynnir síðan deiluaðilum
hana á sameiginlegum fundi. Við
samningu miðlunartillögunnar nú
nýtur Guðlaugur Þorvaldsson að-
stoðar Guðmundar Vignis Jósefs-
sonar aðstoðarsáttasemj ara.