Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
\tr i/yywi W W 'U |f
Afram með Ljósvakann
Til Velvakanda,
í viðtali við útvarpsstjóra Ljós-
vakans í sjónvarpi nú fyrir skömmu
fullyrti hann að það væri ekki nægi-
lega stór hlustendahópur til að
halda uppi útvarpsstöð fyrir æðri
tónlist. Eg bara get ekki trúað því
að íslenska þjóðin sé orðin svo gegn-
umsýrð af annars flokks vinsælda-
tónlist áð hún geti ekki hlustað á
vandaða góða tónlist.
Þegar ég spyr félaga mína og
fullorðið fólk á hvemig tónlist það
hlustar fæ ég margvísleg svör svo
sem þungarokk, djass, óperur eða
sinfóníur. Margir segjast bara
hlusta á það sem er í útvarpinu
hveiju sinni en aðeins örfáir segjast
hinsvegar hlusta á po'pptónlist. Það
eru krakkar og unglingar sem svo
hátt heyrist í. Unglingsstelpur hefja
hina og þessa hljómsveit til skýj-
anna og fullvissa þjóðina um að nú
sé hún eina rétta á hveijum tíma.
Hringja í vinsældalista, óskalaga-
þætti, hlustendaþætti og allskonar
þætti til að láta spila sína tónlist.
Þá eru gerðar skoðanakannanir og
unglingar spurðir á hvað þau hlusti.
Hjá þeim sem hæst láta heyrist
náttúrlega popp og dægurlög. Ef
fullorðnir eru spurðir svara þeir
hinu sama enda ekki við öðru að
búast af heilaþvegnu fólkinu. Enn
einn kross í dálk síbyljunnar þó að
greyið fólkið vilji allt annað en vin-
sældapopp.
Dagskrá Ljósvakans var of sund-
urlaus til að hlustendur gætu notið
hennar til fullnustu. Það sem vant-
aði voru skýrt afmarkaðir þættir
með sem flestum tegundum tónlist-
ar. Þættir sem spönnuðu allt svið
hverrar stefnu en ekki aðeins örlítið
brot sem segði enga sögu. Banabiti
Ljósvakans voru þó klaufalegar
skoðanakannanir en það eru víst
þær sem auglýsendur taka mark á.
Til aðstandenda Ljósvakans: Lát-
ið ekki hugfallast af ómarktækum
skoðanakönnunum. Hlustendur
ykkar eru til staðar. Þeir eru bara
vaxnir upp úr því að æpa og veina
og troða sinni tónlistarstefnu fram.
Jón Páll Vilhelmsson
Máttlaus ríkisstjórn
Til Velvakanda.
Þríflokkastjóminni gengur ekki
sem best að koma efnahagsmálun-
um á rétta leið. Skatta og aftur
skatta það er ekki vandinn. En nú
rofar til. Bjórfrumvarpið verður að
lögum og þá komast efnahagsmálin
í lag af sjálfu sér. Frelsið, frelsið
og aftur frelsið, til að lofa og standa
ekki við, frelsi gróðahyggju og
brasks. Sem sagt allt leyfílegt. Mér
duttu í hug gamlar hendingar.
Skyldu þær ekki eiga við í dag:
Þegar þú kemur þar í sveit
sem þrímennt er á dauðrí geit
og tíkargöm er taumbandið
og tófuvömb er áreiðið.
Öllu er snúið öfugt þó
aftur og fram um hundamó
reiðlagið á ringli fer
og rófan horfir á móti þér.
Skyldi höfundur hafa haft okkar
máttlausu ríkisstjórn í huga og séð
svona langt fram í tímann?
Ámi Helgason
Þessir hringdu . . .
Skemmtilegnr
siður
Kona hringdi:
„Ég sé hérna út um gluggann
afskaplega skrautleg ungmenni
sem eru að útskrifast og hafa
klæðst alls konar furðufatnaði f
tilefni af því. Þetta er skemmtileg-
ur siður. Ég tel að fremur ætti
að birta myndir af þessu ánægða
unga fólki heldur en busavígslum
sem eru hreinasti viðbjóður."
Óréttlæti
H.G. hringdi:
„Maðurinn minn var að kaupa
föt fyrir um 30 þúsund krónur
fyrir nokkru. Það þurfti að breyta
þeim lítilsháttar og var það
innifalið í verðinu. Skijmmu síðar
keypti ég mér kjól fyrir um 15
þúsund krónur. Það þurfti að
stytta hann og var ég látin borga
sérstaklega fyrir það. Þetta gildir
í flestum kvenfatabúðum, að
greiða verður serstaklega fyrir
allar breytingar. í karlmannafata-
verslunum eru breytingar hins
vegar ókeypis. Þetta fínnst mér
bæði óréttlátt og hneykslanlegt."
Meira
brúðuleikhús
V.S. hringdi:
„Brúðuleikhúsið í Stundinni
okkar á sunnudögum nýtur mik-
illa vinsælda hjá yngstu bömun-
um. Jafnvel þau allra yngstu hafa
gaman að brúðunum þó annað
efni fari fyrir ofan garð og neðan
hjá þeim. Það er eins og böm á
öllum aldri hafí mest gaman af
brúðuleikhúsinu og fínnst mér að
það ætti að vera allan tímann."
Barnagalli
Ásgerður Einarsdóttir
hringdi:
„Ég keypti bamagalla með
merkinu Finnlaffie fyrir nokkm.
Því miður hefur gallinn ekki stað-
ist þær kröfur sem flík með þessu
merki á að gera. Fór ég þess á
leit við verslunareigandann að
hann gæfí mér upp nafn heildsöl-
unnar sem selur þessa galla. Því
miður liggja þessar upplýsingar
ekki á lausu Svo ég leita til ykkar
í þeirri von að einhver geti gefið
mér þessar upplýsingar sem mig'
vantar."
Frábær
sj ónvarpsþáttur
Ingibjörg hringdi:
„Fyrir hönd nokkurra sjón-
varpsáhorfenda vil ég færa Inga
Hrafni Jónssyni þakkir fyrir frá-
bæran sjónvarpsþátt er hann
kynnti menningar- og hugsjóna-
starfíð að Ástjöm í Þingeyjasýslu.
Þetta var vorboði á sumardaginn
fyrsta ásamt ræðu nýja skáta-
höfðingjans Gunnars Eyjólfssonar
í útvarpinu."
Góð ræða
Ingólfur Guðmundsson
hringdi:
„Mig langar að vekja athygli á
góðri ræðu Gunnars Eyjólfssonar
skátahöfðingja í skátamessuni á
sumardaginn fyrsta. Þessi ræða
þyrfti að koma á prenti og einnig
þyrfti að endurflytja hana I út-
varpi. Þessi ræða var mikill stuðn-
ingur við kristnihald í landinu og
baráttuna gegn fíkniefnum."
Frábærþáttur
Guðrún .Tónsdóttir hringdi:
„Ég vil þakka Sigríði Ingvars-
dóttur fyrir frábæran þátt í út-
varpinu um daginn um Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi. Mér
fínnst þættir hennar mjög góðir
og með þeim betri sem ég hef
hlustað á lengi. Sigríður Ingvars-
dóttir er með betri útvarpskonum
sem fram hafa komið í seinni4;íð.
Ég er mjög ánægð með allt sem
kemur frá henni og vonast til að
heyra fljótlega í henni aftur."
Saknaði morgun-
bænarinnar
Eldri borgari hringdi:
„Ríkisútvarpið byijaði að út-
varpa léttum lögum kl. 7 á sumar-
daginn fyrsta. Ríkisútvarpið bauð
hlustendum ekki góðan daginn
eins og oftast er gert þegar byij-
að er að útvarpa 15 mínútum fyr-
ir sjö. Ég saknaði þess að dagur-
inn var ekki hafínn hjá Ríkisút-
varpinu með morgunbæn á sum-
ardaginn fyrsta til að fagna sumri
og hækkandi sól. Með vinsemd,
þakka Ríkisútvarpinu margar
góðar stundir."
Vasahnífur
Ellefu ára gamall strákur varð
fyrir því óhappi að glata rauðum,
svissneskum vasahníf í Hlíðaskóla
fyrir nokkru. Hann hefur haft
mikið fyrir því að safna fyrir
hnífnum og sakanar hans mjög.
Hnífurinn er með alls konar verk-
færum og hjálpartækjum. For-
eldrar bama við Hlíðaskóla eru
beðnir að hafa samband við skrif-
stofuna þar ef þau verða vör við
að böm þeirra hafi komið heim
með hnífinn.
Gleraugu
Lítil gullhúðuð dömugleraugu
af tegundinni Brendel fundust við
Kringluna fyrir páska. Eigandi
þeirra getur hringt í síma 52906.
DVALARHEIMIU
Tekið hefur til staria i Skipholti 21 ÍReykjavik nýtt dvalar-
heimili fyriraldraða undir heitinu
DVALARHEIMILIÐ FELL
Dvalarheimilið er einkastolnun, sem starfar samkvæmt rekstrar-
leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins á grundvelli laga
nr. 91/1982 um málefni aldraðra. Heimilið er fyrir 30 vistmenn
og veitir alla þá þjónustu og umönnun, sem tilheyrir slíkri stofn-
un. Dválárheimilið er rekið í húsnæði því sem sjúkrahótel Rauða
krossins var rekið í um árabil.
Allar nánari upplýsingar um rekslur heimilisins, þjónuslu og
vislunarmöguleika veilir forslödumaóur þcss i sima 621671. v
TURBO BACKUP afritunarforritið
Fötin frá
Carole DeWeck
vekja athygli.
Þau eru vönduð, klassísk,
úr góðum efnum og verðið er
ótrúlega lágt miðað við gæðin.
húsgagnaverslun
landsins
er opin alla virka daga
eins og venjulega.
húsgagna-höllin
REYKJAVÍK
MOBLER