Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
21
Frakkland:
Leynisjóður ETA
g’erður upptækur
Bayonne, Frakklandi. Reuter.
FRANSKA lögreglan lagði hald
á leynisjóð spænsku hryðju-
verkasamtakanna ETA í gær
eftir skotbardaga við einn af
lykilmönnum samtakanna á
landamærum Frakklands og
Spánar. Talið er að atburðurinn
sé mikið áfall fyrir ETA.
Persaflói:
Flotavemd
hafin á ný
Kuwait. Reuter.
Bandaríkjamenn hófu aftur
flotavernd á siglingaleiðum á
Persaflóa í gær. Einnar viku hlé
var gert á flotaverndinni í kjöl-
far átaka milli Bandaríkjamanna
og írana á mánudag í síðustu
viku meðan siglingaleiðin var
hreinsuð af tundurduflum.
Það eru fyrst og fremst kúvæsk
skip, sem njóta flotavemdar Banda-
ríkjamanna á flóanum og í skipa-
lestinni, sem bandarísk, herskip
fylgdu í gær var a.m.k. eitt kúv-
æskt gasflutningaskip.
Bandarísk skip gerðu árás á
íranska. oliupalla í Persaflóa fyrri
mánudag til þess að refsa írönum
fyrir að leggja tundurdufl á flóan-
um. Bandaríska freigátan Samuel
B. Roberts sigldi á tundurdufl fjór-
um dögum áður undan Bahrain.
Heimildir innan bandaríska flotans
skýrðu frá því í gær að bandarískir
og franskir tundurduflaslæðarar
hefðu fundið 13 dufl á siglingaleið-
um í flóanum í síðustu viku.
Lögreglan handtók Jose Felix
Perez-Alonso, þrítugan lykilmann
ETA, og gerði upptækar 725 millj-
ónir peseta, eða jafnvirði 254 millj-
óna íslenzkra króna, sem hann
hafði í fórum sínum.
í fyrstu var talið að peningamir
væru lausnargjáld, sem greitt
hefði verið fyrir spænska kaup-
sýslumanninn Emiliano Revilla.
Það reyndist ekki rétt og neitar
fjölskylda Revilla að hafa greitt.
lausnargjald fyrir hann. Honum
var rænt í Madríd fyrir tveimur
mánuðum og er hahn enn í haldi
ETA.
Handtaka Perez-Alonso átti sér
stað í frönsku borginni Bayonne.
Lögreglan hafði fylgst með ferðum
hans um skeið, en hann er talinn
vera hægri hönd „Artapalo"
Mugica-Garmendia, leiðtoga
hryðjuverkadeildar ETA.
Perez-Alonso greip til byssunn-
ar er lögreglumenn stöðvuðu hann
og hugðust færa hann til yfír-
heyrslu. Særði hann lögreglukonu
og tókst síðan ekki betur til en
svo að hann skaut í lappimar á
sjálfum sér. Lauk þá skotbardag-
anum. Félagi hans, Ignacio Agu-
irre, komst hins vegar undan.
Perez-Alonso er eftirlýstur á
Spáni fyrir þátttöku í skotárás á
krá í Madríd og frönsk bíjaumboð
í baskahéruðum á Spáni. Honum
tókst að flýja til Frakklands fyrir
fímm árum og hefur farið þar
huldu höfði síðan. Talsmaður inn-
anríkisráðuneytisins í Madríd full-
yrti í gær að hvorki Perez-Alonso
né Aguirre væru í hópi leiðtoga
ETA.
Reuter
Mikil hersýning var í Kabúl í gær til að minnast þess, að þá voru
liðin 10 ár frá valdatöku kommúnista. Voru þessar vígalegu konur
meðal þátttakenda i henni en þær eru í heimavarnariiði stjórnarinnar.
Brottflutningur sovéska hersins frá Afganistan:
„Eg er að fara heim á
morgun, guði sé lof “
Kabúl. Reuter.
„ÉG hef gert skyldu mína hér en það er alltaf best að vera heima,“
sagði Oleg, 25 ára gamall, sovéskur hermaður í Afganistan, og Moham-
ad, aðeins 17 ára gamall liðsmaður afganska stjórnarhersins, kvaðst
vera feginn brottför Sovétmanna „en við verðum áfram vinir“. Brott-
flutningur sovéska hersins frá Afganistan, þessari „blæðandi und“
eins og Míkhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, kallaði landið og
ástandið þar, hefst í næsta mánuði og í Kabúl hafa viðbrögðiii frem-
ur einkennst af létti en sérstökum fögnuði. ’
Vestrænir fréttamenn, sem komu aftan á herbíl ásamt þremur öðrum
ERLENT
á mánudag til Kabúls frá Moskvu,
bjuggust við að verða leiddir í smá-
hópum um borgina eins og við fyrri
heimsóknir og því ráku þeir upp stór
augu þegar sagt var, að þeir mættu
fara hvert sem þeir vildu. „Farðu
með okkur til Rússanna," sögðum
við og leigubílstjórinn brunaði af
stað.
Rússneski björninn
Andrei, 25 ára frá Moskvu, sat
Finnskir þmgmenn kvartayf-
ir mengim frá Sovétríkjunum
Hclsinki, Reuter.
FINNSKIR þingmenn hafa kom-
ið á framfæri við sovéska starfs-
bræður sína kvörtun vegna
loftmengunar sem berst til Finn-
lands frá Sovétríkjunum, að því
er heimildarmenn innan finnska
þingsins sögðu í gær.
í niðurstöðu finnskrar könnúnar
sem birt var í síðustu viku segir
að mengun frá nikkelverksmiðjum
og öðrum sovéskum verksmiðjum
við landamæri ríkjanna á Kóla-
skaga valdi spjöllum á vötnum og
viðkvæmri náttúru Lapplands.
Finnskir þingmenn sögðu sovéskum
þingmönnum á fundi þeirra í Finn-
landi í gær að grípa þyrfti til ráð-
stafanna til að draga úr mengun-
inni og fínnska utanríkisráðuneytið
lagði einnig fram kvörtun. Finnar
benda á áð Míkhaíl Gorbatsjov, leið-
togi Sovétríkjanna, hafi lagt til að
komið yrði á samvinnu við önnur
ríki um umhverfísmál á norðlægum
svæðum í ræðu sem hann flutti í
Murmansk í haust.
Samkvæmt niðurstöðu fínnsku
umhverfískönnunarinnar berst
loftmengun til Finnlands frá Sov-
étríkjunum, Póllandi, Vestur-
Þýskalandi og nokkrum öðrum
vestrænum ríkjum. Forsvarsmenn
fínnskra . skógarhöggsfyrirtækja
hafa ítrekað lýst yfir að hætta sé
á spjöllum á skógum landsins vegna
mengunar og náttúruvemdarmenn
segja að náttúra Norður-Finnlands
sé mjög viðkvæm.
hermönnum í einu úthverfa Kabúls.
„ Við erum á eftirlitsferð til að vernda
þetta friðelskandi fólk,“ sagði hann
og benti á Afganana. ;,Við Rússar
erum eins og bjöminn. Oáreittir ger-
um við engum mein en ef á okkur
er ráðist svörum við fyrir okkur."
Andrei hefur gegnt herþjónustu í
hált annað ár og hann kvaðst hafa
tekið þátt í bardögum við skæruliða.
Hann vildi þó ekki segja neitt meira
um það.
Átökin á milli sovésku hermann-
anna og skæruliða.eru mest á lands-
byggðinni, annars staðar en í Kab-
úl, og á þessum mánudegi ríkti kyrrð
yfír borginni. Þegar kvöldaði fóru
hins vegar sprengjuglampamir að
lýsa upp fjöllin allt um kring.
Á þriðjudeginum var fyrirhuguð
mikil hersýning í Kabúl til að minn-
ast þess, að þá væru 10 ár liðin frá
valdatöku kommúnista. Sögðu vest-
rænir stjómarerindrekar, að þá
myndi Najibullah forseti reyna að
sýna styrk sinn og hersins og töldu
allt eins líklegt, að skæruliðar not-
uðu tilefnið til árása.
Pólitísk mistök
Ekki eru allir Sovétmenn í Kabúl
á sama máli og Andrei um að það
hafí verið rétt að ráðast inn í Afgan-
istan. „Þetta voru pólitísk mistök,“
sagði Alexander, 27 ára gamall túlk-
ur í hemum. „Ég er að fara heim- á
morgun, guði sé lof. Það er erfíðast
að horfa upp á örkumlamennina,
vini eða ókunnuga, það skiptir ekki
máli. Það er betra að deyja en ör-
kumlast."
Eins og aðrir Sovétmenn og
óbreyttir borgarar í Kabúl var Alex-
ander í mikilli óvissu um framvind-
una eftir brottför Rauða hersins.
Óttast blóðbað
„Ég er hræddur um, að hér geti
orðið blóðbað og ég er ekki viss um,
að byltingin muni hrósa sigri,“ sagði
Alexander en Afganimir virtust hafa
minni áhyggjur. „Við erum ekkert
hræddir. Þetta er okkar mál og við
munum leysa úr því einhvem veg-
inn,“ sagði Ali, opinber starfsmaður,
þar sem hann lét fara vel um sig
inni í verslun kunningja síns. Búðin
var sneisafull af alls kyns vamingi,
kínverskum klósettpappír og bresk-
um leikfangaskriðdrekum svo eitt-
hvað sé nefnt — hreinasta augna-
yndi miðað við ördeyðuna í sovéskum
verslunum.
Sovéskir hermenn, sem hafa snúið
heim frá Afganistan, segja, að þeim
reynist oft erfítt að laga sig aftur
að borgaralegu lífí og í blöðunum
er mikið um bréf frá fyrrverandi
hermönnum, sem segja, að almenn-
ingur vilji ekkert af þeim vita eða
því, sem þeir hafi orðið að ganga í
gegnum. Oleg, 26 ára gamall her-
maður frá Poltava í Úkraínu, hafði
þó engar áhyggjur af heimkomunni.
„Ég er 100% viss um, að mér
verður tekið eins og týnda syninum
þegar ég kem heim,“ sagði hann.
Staðgreibsluatsláttur
áfarsímumarneðan . . .
’ogíSSr HátaakwM
porCákshöfn
■'— - Etttrhádegi 0|
ssssb sssssa
Fvrlr hádegt
keflavik