Morgunblaðið - 27.04.1988, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
félk i
fréttum
SPURNINGAKEPPNI FRAMHALDSSKOLANNA
Að vita mikið um
einskisnýta hluti
Lið Menntaskólans í Reykjavík
bar sigurorð af liði Menntaskól-
ans við Sund í úrslitaumferð Spum-
ingakeppni framhaldsskólanna sem
sjónvarpað var beint síðastliðið
föstudagskvöld. Þetta er þriðja árið
sem keppnin er haldin, í fyrra sigr-
aði Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
en árið áður Fjölbrautarskóli Suður-
lands.
Sigurlið MR skipuðu þeir Birgir
Armannsson, Bjöm Friðgeir Björns-
son og Þorsteinn Davíðsson. Bjöm
og Birgir sem útskrifast í vor tóku
einnig þátt í spumingakeppninni
1986 en Þorsteinn hóf nám við skól-
ann í haust er leið. Þremenningamir
gáfu sér tíma frá próflestrinum er
stendur nú sem hæst í dálítið spjall.
Aðspurðir um hvort þeir væm
mikil „séní“ eða gefnir fyrir sviðsljó-
sið sögðust þeir einfaldlega hafa
orðið efstir í forkeppni sem haldin
var í skólanum til að veljá menn í
liðið. Annars væri lykillinn að vel-
gengni í svona keppni að vita sem
mest um gagnslausa hluti. Þeir
kváðust ekki hafa skipt sérstaklega
með sér verkum, allir væru þeir
nokkuð vel að sér í mannkynssögu
en hver um sig ætti áhugamál sem
að gagni kom í keppninni. „...Bjöm
veit allt um enska knattspymu og
Þorsteinn um síðari heimsstyijöld-
ina,“ sagði Birgir. Þegar spurt var
um sérsvið Birgis svaraði Bjöm að
bragði að það væri nú eiginlega allt
hitt.
24 skólar tóku þátt
Fyrsta umferð af fimm í Spum-
ingakeppni framhaldsskólanna fór
fram fyrir liðlega þremur mánuðum
og hófu 24 skólar keppni. Fyrir
hveija umferð var dregið um hvaða
skólar skyldu eigast við. Keppni í
þrem fyrstu umferðunum var út-
varpað en undanúrslit og úrslita-
keppni fóm fram í sjónvarpssal.
Páll Lýðsson samdi spumingar og
annaðist dómgæslu en Vemharður
Linnet var stjómandi.
Um var að ræða útsláttarkeppni,
en engu að síður komust Qögur lið
sem töpuðu keppni í fyrstu umferð
áfram, til að ijöldi liða í annarri
umferð hentaði. Þetta varð til þess
að MR keppti tvisvar við Mennta-
skólann á Akureyri, í fyrstu og
þriðju umferð. Að sögn MRinga var
seinni keppnin við MA ákaflega
var liðsstjóri hins sigursæla ræðu-
liðs skólans í vetur og frummæl-
andi liðsins í fyrravetur. Veturinn
1985-86 var hann forseti Fram-
tíðarinnar, málfundafélags skólans.
BIO
Af Illum grun
Einu gildir hvaða fólk ég geri
myndir um, hvenær það er uppi
hvers lenskt það er, hvort það er
ríkt eða fátækt, gott eða vont. Ég
vil einfaldlega segja sögur af áhuga-
verðu fólki í óvenjulegum aðstæðum.
Ég leita að myndum sem er gaman
að gera, vil skemmta mér í vinn-
unni,“ segir Peter Yates leikstjóri
myndarinnar„Suspect“ sem á
íslensku neftiist Illur grunur. Þetta
er átjánda mynd leikstjórans, en af
fyrri myndum hans má neftia eins
ólíkar ræmur og „Bullitt", „The
Deep“, „The Dresser" og „Eyewit-
ness“.
í Illum grun segir af lögfræðingn-
um Kathleen Riley, sem Oskarsverð-
launahafinn Cher leikur, og vanda
sem hún ratar í vegna starfs síns.
Hún er veijandi manns sem ákærður
er fyrir morð. Einn kviðdómenda,
EMdie Sanger, kemst á snoðir um
mikilvæg málsatriði og ákveður að
skýra Riley frá vitneskju sinni. Þar
með brýtur hann lögin, hrindir af
stað dæmalausri atburðarás og
stofnar eigin lífi og lögfræðingsins
í hættu.
Dennis Quaid leikur Eddie Sanger
talsmann þrýstihóps í Washington
sem skikkaður er til að sitja í kvið-
dómi. Bíógestir gætu kannast við
Quaid úr myndum eins og „Enemy
Mine“, „The Right Stuff" og „The
Big Easy“.
Cherily Sarkisian eða Cher er
fædd i Kalifomíu af armönsku fað-
emi, en móðir hennar er frönsk í
aðra ætt og Cherokee indíáni í hina.
Hún kveðst snemma hafa ákveðið
að verða fræg án þess að hafa hug-
Morgunblaðið/Ámi Sæberp
Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði í Spumingakeppni Framhaldsskólanna. Frá vinstri: Birgir Ar-
mannsson, Þorsteinn Davíðsson og Björn Friðgeir Bjömsson.
hörð og næstum eins tvísýn og úr-
slitakeppnin.
Að lesa blöðin
Félagamir hittust fyrir tvær
fyrstu umferðir keppninnar til að
undirbúa sig. Skólabróðir þeirra,
Sverrir Öm Þorvaldsson, spurði þá
í þaula og að sögn Birgis var aðal-
tilgangurinn með þessu sá að ná
upp hraða í svömm og venjast við
að grípa ekki hver fram í fyrir öðr-
um. „Við hlustuðum á hinar keppn-
imar í útvarpinu til að vita á hvers
konar spumingum væri von, en að
öðm leyti var lítið hægt að undir-
búa sig,“ sagði Bjöm. „Nema þá
helst með því að lesa blöðin," bætti
Þorsteinn við.
Birgir er nú Inspeetor eða for-
maður skólafélagsins í MR. Hann
Bjöm kvaðst hafa haldið sig utan
við félagslífið að mestu leyti. Hann
hefur þó starfað innan Vísindafél-
ags Framtíðarinnar og setið í rit-
stjóm blaðs sem gefið er út á vegum
þess félags. Þorsteinn kímdi þegar
litið var spyijandi á hann og sagð-
ist vera óvirkur þiggjandi í fé-
lagslífi skólans. Bjöm maldaði í
móinn og sagði hann þvert á móti
óvenju afkastamikinn þiggjanda.
Otækt hefði verið að kveðja þessa
efnispilta úr Lærða skólanum án
þess að spyrja þá hvað framtSðin
beri í skauti sér. Bjöm sagði að
hann hyggði á hagfræðinám næsta
vetur, líklega í Bretlandi. Birgir
ætlar að skella sér í lögfræðina en
Þorsteinn lætur ekkert uppi um
framtíðaráform sín, er enda ungur
enn.
Deilt um úrslitin
Eftir úrslitakeppnina risu deilur
um hvort sigur MR hefði verið rétt-
mætur. Haldinn var fundur með
fulltrúum Ríkisútvarpsins og liðum
beggja skólanna þar sem atriðið
sem deilt var um var skoðað á
myndbandi. Niðurstaða fundarins
var sú að MR hafi sigrað í keppn-
inni og var fréttatilkynning þess
efnis send ijölmiðlum. Þar segir
meðal annars: „Ágreiningur varð
um úrslit í myndagetraun í lok
keppninnar. Samkvæmt leikreglum
máttu liðin telja upp tólf nöfn. í
umræddu tilviki mistaldi dómari og
stöðvaði lið Menntaskólans í
Reykjavík án þess að gefa þeim
tækifæri til að ljúka svarinu."
Fyrir myndaspumingamar var
staðan 28:27 MS í viL Bæði liðin
völdu að nefna tíu menn af tólf sem
birtust á skjánum. MSingar gátu
neftit sjö og MRingar nefndu níu
áður en þeir vora stoppaðir af dóm-
ara og sagt að þeir væra komnir
með tíu nöfn. Þeir sögðust hafa
skráð niður fleiri nöfti, þannig að
þeir hefðu getað fyllt tuginn. End-
anleg úrslit í keppninni vora á þann
veg að MR hlaut 37 stig og MS
28 stig.
FRANSKUR FJALLGÖNGUMAÐUR
Kleif fyrsta fjallið fimm ára
COSPER
9ÍPIB
ioí.97 COSPER
- Maðurinn minn fékk hjartaáfall, þegar hann frétti um af-
drif bjórfrumvarpsins.
Þegar franski pilturinn Zébulon
Roche hóf ijallgöngur var
stærsti vandi hans að finna réttan
útbúnað. Því miður era ekki fram-
leiddir fjallgönguskór fyrir fimm
ára og ísaximar reyndust allt of
stórar fyrir smágerðar hendur. Um
tólf ára aldurinn horfðist Zébulon
í augu við annað vandamál. Nú
beindist áhugi hans að fallhlífa-
stökki á skíðum en fallhlífamar
vora miðaðar við mun þyngri menn.
Litlu munaði að vindurinn bæri
Zébulon burtu þegar hann rendi sér
fram af hengiflugi og sveif til jarð-
ar.
Drengurinn Roche komst á topp
Mont Blanc ellefu ára og kleif óá-
rennilegasta hamarinn í Yosemite
þjóðgarðinum í Bandaríkjunum ári
síðar. Hann öðlaðist nýlega nafn-
bótina „Ævintýramaður ársins" í
Frakklandi. Var hún veitt fyrir
nærri 2000 kílómetra langa skíða-
göngu Zébulons með föður sínum
yfir Alpana.
„Ég er bara venjulegur strákur,"
segir Zébulon aðspurður en sjálf-
sagt eiga erfðir einhvem hlut að
máli. Faðir hans er skíðakennari,
leiðsögumaður, smiður og hefur
farið í ijallgöngur í Himmalayaijöll-
unum.
Í. vetur hefur Zébulon æft sig
Zébulon með fallhlifina á bakinu,.
reiðubúinn að ganga á fjall í
nágrenni heimilis síns.
fyrir fjallgöngu sem þeir feðgamir
hyggja á í Kenya. Æðsti draumur-
inn er að ganga á Everest en Zébul-
hryllir eins og fleiram við til-
hugsunina að snúa við á miðri leið.
Hann gælir enn við hugmyndina
um að taka fallhlífar með í ferðina,
stökkva síðan af fjallinu og svífa
til jarðar heilu og höldnu.-i-iáa
Tólf ára að aldri kleif Zébulon
hamarinn E1 Capitan í Yosem-
ite-þjóðgarðinum.