Morgunblaðið - 27.04.1988, Qupperneq 48
Yfirdráttur
á tékkareiknii
launafólks
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Nýtt
numer
692500
SJÓVÁ
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Líkur á að verkfallið
Tjörnin breytir um svip
Morgunblaðiö/Kax
Undanfarna dag-a hefur um 5.000 rúmmetrum af möl verið ekið
í uppfyllingu út í Tjörnina en gert er ráð fyrir um 2.000 rúm-
metrum að auki, að sögn Guðjóns Samúelssonar verkfræðings
hjá ístak hf. Verkinu á að ljúka í þessari viku og verður þá haf-
ist handa við að reka niður stálþil og grafa grunninn, sem verður
7 metrar að dýpt. Grunnflötur kjallarans er 3.600 fermetrar en
grunnurinn verður mun stærri eða um 20 metrar frá hlið hússins
vegna nauðsynlegra fláa.
Fiskmarkaðir:
Flensa veld-
ur verðfalli
LÁGT verð fékkst fyrir þorsk
og ýsu á fiskmörkuðunum í
Hafnarfirði og Reykjavík í gær.
Ein ástæðan er sú, að sögn
Bjarna Thors framkvæmdastjóra
Faxamarkaðar, að flensa hefur
Iagt margt starfsfólk frystihús-
anna í rúmið og færri buðu í fisk-
inn en venjulega. Samkvæmt
upplýsingum lækna hefur skæð
innflúensa af A-stofni stungið
sér niður í höfuðborginni og ná-
grenni undanfarna daga.
Fiskurinn, sem boðinn var upp í
gær, var frekar smár ög því borgar
sig ekki að vinna hann í dýrar
pakkningar vegna stöðu dollars en
verðið á mörkuðunum ræðst m.a.
af skilaverðinu, að sögn Bjarna
Thors. Bjami sagði að óvissa í efna-
hagsmálum og verkfall verslunar-
manna hefðu einnig valdið þessari
verðlækkkun á mörkuðunum.
Á fiskmarkaðinum í Hafnarfirði
voru seld um 80 tonn af slægðum
þorski fyrir 24,64 króna meðalverð
og um 12 tonn affysu fyrir 21,08
króna meðalverð. Á Faxamarkaði í
Reykjavik voru seld um 80 tonn af
þorski fyrir 30,19 króna meðalverð
og um 12 tonn af ýsu fyrir 29,90
króna meðalverð.
Sjá Fiskverð á uppboðsmörk-
uðum á biaðsíðu 26.
Mjólk keyrð
út til stofn-
ana í dag
standi fram á helgina
Frestun kemur ekki til greina, segir Magnús L. Sveinsson
BÚIST er við að Guðlaugur Þor- á kjörstað telst tillagan samþykkt,
valdsson rikissáttasemjari leggi hvemig sem atkvæði hljóða. Ef þátt-
fram miðlunartillögu í deilu versl- taka er meiri en 35 af hundraði
unarmanna og vinnuveitenda
síðdegis í dag. Ekkert hefur verið
látið uppi um efni tillögunnar, en
samkvæmt heimildum blaðsins
hafa vinnuveitendur lagt hart að
ríkissáttasemjara að halda launa-
þarf minnst helming atkvæða til að
fella tillöguna. í seinni atkvæða-
greiðslu VR um samningana, áður
en verkfall skall á, greiddu um 25%
félagsmanna atkvæði.
Miðlunartillaga hefur einu sinni
verið felld. Í deilu Sjómannafélags
Reykjavíkur og útgerðarmanna í
ársbyijun 1987 felldu báðir aðilar
tillögu sáttasemjara og náðust
samningar ekki fýrr en viku síðar.
Atkvæðagreiðsla í hveiju félagi
um sig verður látin ráða. Þannig
gæti verkfallinu hugsanlega lokið
fyrr í einum landshluta en öðrum.
Talning atkvæða hefst allstaðar á
sama tíma, þegar síðasta kjörstaðn-
um verður lokað. Búist er við að
kjörfundur í VR, fjölmennasta félag-
inu, ljúki kl. 18.00 á laugardag.
Sjá einnig fréttir á bls. 2, 3 og
28.
ENGIN mjólk hefur verið af-
greidd frá Mjólkursamsölunni
frá því á föstudag, en i dag verða
keyrðir út um 12.000 lítrar til
dagheimila, elliheimila og
sjúkrahúsa, að sögn Guðlaugs
Björgvinssonar, forsijóra Mjólk-
ursamsölunnar.
Mjólk verður aftur keyrð út til
viðkomandi stofnana á föstudag,
en verkfallstjóm VR hefur gefíð
undanþágu fýrir dreifíngu á mjólk
til þeirra. Ekki hefur verið gefin
undanþága fyrir dreifíngu á mjólk
til verslana og ekki hefur verið beð-
ið um hana.
hækkunum innan ramma Akur-
eyrarsamningsins. Deiluaðilar
þurfa að ganga til atkvæða um
efni miðlunartillögunnar og er
ljóst að verkfallinu lýkur í fyrsta
lagi um helgina ef því verður
ekki frestað.
„Það kemur ekki til greina af
okkar hálfu að fresta verkfalli með-
an á atkvæðagreiðslu stendur. Af-
staða vinnuveitenda gefur ekkert
tilefni til þess, þeir hafa ekki viljað
gefa eftir fímm aura í þessum samn-
ingum," sagði Magnús L. Sveinsson
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur í gærkvöldi. Aðspurður
kvaðst hann uggandi um að tillagan
yrði felld í VR, fæli hún ekki í sér
umtalsverðan ávinning fyrir félags-
menn.
Ríkissáttasemjari hefur aðeins
þrisvar sinnum lagt fram miðlunar-
tillögu í kjaradeilu enda er ekki grip-
ið til þess úrræðis nema í ítrustu
neyð. Báðirdeiluaðilarþurfa að sam-
þykkja tiliöguna til þess að hún öðl-
ist gildi en mjög strangar reglur
gilda um kosningaþáttöku. Mæti
innan við fímmtungur félagsmanna
Stjórnendur fiskviimslunnar:
Stefnir í þrot á næstu vikum
Fiskverð laust 1. maí o g sjómenn hafa sagt upp samningum
STJÓRNENDUR fiskvinnslufyrirtækja um land allt eru á einu
máli um að fyrirtækjunum sé stefnt í þrot, verði ekki gripið til
víðtækra efnahagsaðgerða á allra næstu vikum. Stjórn Landsam-
bands íslenskra útvegsmanna boðaði sjávarútvegsráðherra á sinn
fund í gær til þess að ræða stöðu greinarinnar. Kristján Ragnars-
son framkvæmdastjóri samtakanna telur að útgerðin standi eng-
an vegin undir launahækkunum sem sjómenn hljóti að krefjast.
Dreifa þurfi byrðinni á þjóðina alla í formi gengislækkunar.
Sjómenn hafa sagt samningum
sínum lausum og fískverð er laust
frá og með næstu mánaðAmótum.
Eyjólfur Martinsson hjá ísfélagi
Vestmannaeyja sagði að í Ijósi
þessa þyrfti að grípa til gengis-
breytingar og víðtækra ráðstaf-
ana samhliða henni. Aðeins þann-
ig yrði komið í veg fyrir áfram-
haldandi hækkanir á tilkostnaði
fískvinnslunnar.
I samræðum við fulltrúa físk-
vinnslunnar kom fram að staðan
væri misjöfn eftir físktegundum
og landshlutum og fyrirtæki á
Norðurlandi búi að betra og stöð-
ugra þorskframboði en í öðrum
landshlutum. Engu að síður standi
fyrirtæki á landinu öllu frammi
fýrir grundvallarvanda. Hann
megi meðal annars rekja til þess
að á árunum 1986 og ’87 hafi
auknu útflutningsverðmæti sjáv-
arafurða verið varið til að bera
uppi þenslu innanlands í stað þess
að treysta undirstöður efnahags-
lífsins. Þegar verðstöðvun og
síðan verðfall hafí orðið á erlend-
um mörkuðum í september síðast-
liðnum hafí menn staðið frammi
fyrir því að góðærið væri liðið án
þess að skilja eftir sig varanlegan
ávinning fyrir efnahagslífíð.
Útgerðin stendur höllum fæti
eftir fádæma léleg aflabrögð í
vetur. Það á einkum við um neta-
báta á suðvesturhomi landsins. Á
fundinum með sjávarútvegsráð-
herra reifuðu útgerðarmenn með-
al annars hugmyndir sínar um að
stemma stigu við útflutningi á
ferskum fiski. Breskar fisk-
vinnslustöðvar hafa undanfarið
getað keypt íslenskan físk og
undirboðið afurðir sem unnar eru
hér á landi. Stjóm LÍÚ telur að
tímabundið bann við útflutningi á
ferskum fiski sé eina ráðið til að
ná jafnvægi.
Sjá nánar á miðopnu.