Morgunblaðið - 08.05.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐURB
104. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 8. MAI 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bardaffar
P TWT 0 * ^
aNjr|u
Kaledóníu
Noumea og Paris, Reuter.
BARDAGAR brutust út að nýju
milli aðskilnaðarsinna kanaka og
franskra hersveita á Nýju Kaled-
óníu í gær, daginn fyrir frönsku
forsetakosningamar, sem fram
fara í dag.
Um 8.000 franskir hermenn og
lögregluþjónar voru í viðbragðsstöðu
ef til átaka eða mótmælaaðgerða
kæmi. Atökin, sem skýrt var frá í
gær, áttu sér stað víða í eyjaklasan-
um. Engar fregnir fóru af mannfalli.
Leiðtogar kanaka hvöttu lands-
menn til að sitja heima á kosninga-
daginn. FVanskir landnemar, sem eru
36% íbúa Nýju Kaledóníu, styðja svo
til allir framboð Jacques Chirac, for-
sætisráðherra, og sögðu í gær að
óöld mundi heíjast á eyjunum ef
FranQois Mitterrand, yrði endurkjör-
inn forseti.
Allt hafði verið með kyrrum kjör-
um frá því frönsk víkingasveit frels-
aði 23 gísla úr klóm aðskilnaðarsinna
á fimmtudag.
Flugslysið í Noregi:
Morgunblaðið/Magnús Reynir
Á fullri ferð
Seyðfírðingurinn Páll Jónsson lætur gamminn geysa á snjóbreiðunni í Neðri-Staf neðst í Fjarðarheiði. Myndin er tekin um sumarmál í sól og
sumaryl og notuðu Seyðfirðingar blíðviðrið óspart til útivistar.
Beirút:
Akafir bardagar shíta með
skriðdrekum og stórskotaliði
Hörðustu átök frá komu Sýrlandshers til borgarinnar
Beirút, Reuter.
ANDSTÆÐUM fylkingum shíta í
Öeðlilegt hljóð
heyrðist frá
flugvélinni
ösló. Reuter.
AÐ SÖGN sjónarvotta barst óeðli-
legt hljóð frá hrej'flum DASH-7
flugvélarinnar, sem flaug á kletta-
vegg á eyju, skammt frá bænum
Bronnoysund i Mið-Noregi i fyrra-
kvöld. Um borð voru 36 Norðmenn
og biðu þeir allir bana.
Orsakir slyssins voru ókunnar í
gær, en fólk, sem býr undir aðflugs-
línu flugvélarinnar skammt frá slyss-
staðnum sagðist hafa séð flugvélina.
„Það bárust óeðlileg hljóð frá henni
þegar hún flaug yfir húsið okkar,"
sagði kona nokkur. „Við heyrðum
sprengingu og gerðum flugtuminum
viðvart. Sonur minn fór út fyrir hús-
ið og fann brunalykt. Hann sá að
flugvélin hafði flogið á klettavegg
og aðeins stélið var heillegt," sagði
önnur kona.
Flugvélin fórst 16 km suðvestur
af flugvellinum í Bronnoysund, sem
var áfangastaður hennar. Veður var
slæmt, lágskýjað og rigningarsuddi,
en Petter Nissen, forstjóri Widerö,
sagði flugmenn félagsins alvana flugi
í miklu verra veðri.
Beirút laust saman í gær og háðu
þær harða bardaga með skrið-
drekum og stórskotaliðsárásum i
úthverfum í suðurhluta borgar-
innar. Þar með lauk skammæju
vopnahléi, sem íranir höfðu stuðl-
að að, en þetta eru hörðustu átök
í borginni frá þvi að Sýrlandsher
kom til borgarinnar í febrúar,
þeirra erinda að ganga á milli
hinna stríðandi afla. Bardagarnir
milli Amal-sveitanna, sem fylgja
Sýrlendingum að málum, og Hiz-
bollah (Flokks Guðs), sem nýtur
stuðnings íransstjórnar, brutust
út í dögun, en um nóttina hafði
allt verið með kyrrum kjörum.
Að sögn lögregluyfírvalda féllu að
minnsta kosti fjórir í átökunum á
laugardagsmorgun og höfðu þá alls
tuttugu manns fallið í borginni á
undanfömum sólarhring. Tilkynnt
var um 51 særðan mann eftir átökin.
Bardagar þessir eru mikið áfall
fyrir íransstjóm, en á föstudag höfðu
þeir gengist fyrir vopnahléinu milli
hinna stríðandi fylkinga, sem berjast
um yfírráð í úthverfum borgarinnar,
en íbúar þar eru mestmegnis shítar.
Amal-sveitir munu hafa átt upp-
tökin í bardögunum í gær og í
óvæntri árás sinni í birtingu náðu
þeir aftur á sitt vald ýmsum hverf-
um, sem þeir höfðu tapað í bardögum
á föstudag. Amal-sveitimar beita
sovéskum skriðdrekum af gerðinni
TU-54 auk linnulausrar stórskota-
liðsskothríðar, en Hizbollah lætur
sitt ekki eftir liggja. Hafa átökin
breiðst út um allt svæðið, sem barist
er um, en það er um 41 km2 að
stærð. Vart hefur orðið mikilla liðs-
flutninga af beggja hálfu, sem reyna
í óða önn að treysta stöðu sína.
Drunumar af átökunum mátti
heyra um alla borg og hefur fjöldi
borgarbúa verið innilokaður frá því
á föstudag, en meðan bardagar
standa yfír hættir fólk sér ekki út á
götur.
„Bardagamir berast hús úr húsi
og götu úr götu ... Hizbollah og
Amal em að reyna á þolrif hvors
annars," sagði Hussein Dawali, en
hann býr í einu úthverfanna, sem
bardagamir standa um.
Talið er að flestum þeirra 22 er-
lendu gísla, sem eru í haldi hryðju-
verkamanna í Líbanon, sé haldið
föngnum í úthverfunum, en undan-
farin þijú ár hefur hvorki borgaraleg-
um yfírvöld né hemaðarlegum tekist
að ná hverfum þessum á sitt vald.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings:
Geimvarnafé veitt ffegn fíkniefnum
Wnahincrfnn Rputpr. ^ ^ ^ ^
Washington, Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti á fimmtudag að
350 milljónum dala (13,6 mil(jörðum fsl. kr.) af því fé sem ætlað
var til geimvamaáælunarinnar yrði veitt í baráttuna gegn fikni-
efnasmygli til Bandarikjanna. Deildin samþykkti einnig að skylda
bandarískar hersveitir, þar á meðal þjóðvarðliðið, til að taka þátt
í herförínni gegn smyglinu.
Þetta var samþykkt á sama tíma
og deilt var um frumvarp sem ger-
ir ráð fyrir að að veitt verði 299,5
milljörðum dala (11,7 billjónum ísl.
kr.) til varnarmála á fjárhagsárinu
1989, sem hefst 1. október. Á mið-
vikudag samþykkti fulltrúadeildin
að veita 1,4 milljörðum dala (58,6
milljörðum ísl. kr.) minna til geim-
vamaáætlunarinnar en Banda-
ríkjaforseti hafði farið fram á.
Frambjóðendur beggja flokka í
forkosningunum hafa lagt áherslu
á að beijast þyrfti gegn fíkniefna-
smyglinu. Ákvæðin um að banda-
rískar hersveitir taki þátt í barátt-
unni voru sett í viðbótartillögu, sem
gerir ráð fyrir að 600 milljónum
dala (23,4 milljörðum ísl. kr.) verði
veitt til vamarmála vegna herfar-
arinnar gegn fíkniefnum, auk
kaupa á nýjum herskipum og flug-
vélavarahlutum. Það fé var tekið
frá geimvarnaáætluninni.
Fulltrúadeildin samþykkti einnig
að veita 100 milljónum dala (3,9
milljörðum ísl. kr.) í MX-eldflaugar
og 600 milljónum dala (23,4 mill-
jörðum ísl. kr.) í Midgetman-eld-
flaugar. Bandaríkjastjóm hafði far-
ið fram á 200 milljónir dala (7,8
milljarða ísl. kr.) í MX-eldflaugam-
ar og 837 milljónir dala (32,6 millj-
arða ísl. kr.) í Midgetman-eldflaug-
Þessi samþykkt tengist deilum
um hvemig tryggja megi að banda-
rískar kjarnorkueldflaugar verði
ekki eyðilagðar í hugsanlegri árás.
Samkvæmt samkomulagi við þing-
ið lætur Bandarílq'astjóm næstu
ríkisstjóm um að velja milli þessara
vamarkerfa.