Morgunblaðið - 08.05.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
Stykkishólmur:
Staðfest aðalskipu-
lag til ársins 2005
Félagsmálaráðherra hefur
staðfest nýtt aðalskipulag fyrir
Stykkishólm. Skipulagið gildir
til ársins 2005, með þeim ákvæð-
um um endurskoðun, sem er í
Iðgum.
Með skipulaginu er mörkuð
stefna um uppbyggingu bæjar-
landsins næstu tvo áratugi. I
greinargerð með aðalskipulaginu
kemur fram að núverandi byggð
nær yfír um 50 hektara, en mun
ná yfír 95 hektara í lok áætlun-
artímabilsins.
í fólksfjöldaspá er áætlað að
1.600 íbúar verði í lok tímabilsins
og 590 íbúðir.
Aðalskipulagið gerir ráð fyrir
Tónleikar í Þrándheimi:
Selmu Guð-
mundsdóttur
vel fagnað
þéttingu eldri byggðar og nýjum
svæðum fyrir íbúðabyggð. Má þar
nefna Víkurland, Nónvíkurbakka,
Vatnsás og Grensás. Allt eru þetta
ákjósanleg svæði fyrir byggð.
Þá gerir aðalskipulagið ráð fyr-
ir tveimur hafnarsvæðum, í
Skipavík við dráttarbrautina og í
Stykkishöfn, en þar verður aðal-
höfnin, bæði vöru-, físki- og feiju-
höfn.
Merkasta nýmælið í aðalskipu-
laginu er útivistarsvæði við Grens-
ás og goífvöllur í miðri byggðinni,
sem golfklúbburinn Mostri hefur
fengið til uppbyggingar.
Aðalskipulagið var unnið á veg-
um Stykkishólmsbæjar og Skipu-
iagsstjórnar ríkisins samkvæmt
skipulagslögum. Að skipulaginu
hafa unnið Sigurður Thoroddsen
arkitekt og Bjami Reynarsson
landfræðingur af hálfu Skipulags-
stjómar og Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri og Erlar Kristjánsson
bæjarverkfræðingur af hálfu
Stykkishólmsbæjar.
Morgunblaðið/Þorkell
Hjólin og
hættur í
umferðmni
VORHUGUR er kominn í bömin
og eru merki þess farin að sjást.
Þannig em böm nú mörg hver
búin að dusta rykið af reiðhjól-
um sinum og því er brýnt að
ökumenn taki fullt tillit til þess
i umferðinni. Árlega verða
mörg slys á böraum í umferð-
.inni.
í fyrra slösuðust tólf hjólreiða-
menn í umferðaróhöppum í
Reykjavík. Flest urðu óhöppin í
maí. Þá eru nú mörg böm á ferli
á hjólaskautum og hjólabrettum
og hefur oft skapast mikil hætta
þegar þau, líkt og hjólreiðafólkið,
renna sér út af gangbrautum inn
á umferðargötur. Þó ástæða sé til
að benda ökumönnum á að fara
varlega vegna þessa er þó enn
nauðsynlegra að brýnt sé fyrir
bömunum að gæta sín.
Skoðun reiðhjóla hefst í skólun-
um á morgun, mánudag. Fyrsta
reiðhjólið sem lögreglan skoðaði
1988 var hjólið sem Helgi E. Eyj-
ólfsson fékk í verðlaun í happ-
drætti sem lögreglan til dreifði í
fyrra til bama sem vom spennt í
bílbelti í aftursæti bifreiðar.
Sjúkrastofnanir á Suðurlandi:
Samningurinn að mörgu leyti
betri en almennt hefur samist
- segir formaður verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi
Selfosfti.
SAMNINGUR Alþýðusambands Suðurlands og þriggja sjúkrastofn-
ana á Suðurlandi, Sjúkrahúss Suðurlands, dvalarheimilisins Lundar
á Hellu og Kirkjuhvols á Hvolsvelli, vom undirritaðir um tvöleytið
aðfaranótt föstudags. Samningar náðust eftir að fulltrúar Alþýðu-
sambands Suðurlands höfðu átt viðræður við fulltrúa sjúkrastofnan-
anna en launanefnd sveitarfélaga hafði skilað umboði sinu til þeirra.
Verkalýðsfélagið Boðinn i Hveragerði hafði þá frestað verkfalli og
hafið viðræður beint við stjómir dvalarheimilisins Áss og Heilsu-
hæli Náttúmlækningafélagins.
Áheyrendur i tónleikahöllinni i
Þrándheimi í Noregi fögnuðu
Selmu Guðmundsdóttir píanóleik-
ara innilega að loknum leik henn-
ar á píanókonsert i Es dúr eftir
Aram Katsjatúrian með sinfóniu-
hljómsveit borgarinnar fimmtu-
dagskvöldið 28. apríl sl.
Tónleikunum var einnig útvarpað
beint um allan Noreg. Selma kom
aftur til landsins nú fyrir helgina
eftir viðdvöl í London og í samtali
við Morgunblaðið sagði hún að þess-
ir tónleikar hefðu tekist mjög vel
og viðtökur hefðu tæpast getað ver-
ið betri. Stjómandi á þessum áskrift-
artónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Þrándheims var Finninn Ralf Sjö-
blom, aðalstjómandi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Vasa í Finnlandi. Auk
píanókonserts Katsjatúríans var á
efnisskrá tónleikanna sjöunda sin-
fónía Prókófíeffs og hljómsveitar-
verk eftir finnska tónskáldið Aulis
Salinen.
Selma sagði að framundan væri
m.a. undirbúningur að tónleikaför
um Vestur- Þýskaland í haust með
Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara.
Á lokastigi samninganna kom
launanefndin aftur að þeim og fór
yfír þá og undirritaði ásamt fulltrú-
um Alþýðusambands Suðurlands.
Ellert Eiríksson formaður launa-
nefndarinnar sagði samninginn í
samræmi við það sem væri að ger-
ast í launamálum þessa dagana.
Byijunarlaun og launaliðir væru í
samræmi við það sem var í miðlun-
artillögu sáttasemjara í deilu versl-
unarmanna. Þó væru starfsaldurs-
hækkanir og hækkanir vegna nám-
skeiða eitthvað betri. Ellert taldi
að báðir aðilar gætu vel við samn-
inginn unað.
Samningaviðræður milli þessara
aðiia hafa staðið frá í febrúar og
hefur veið farið yfír allan samning-
inn lið fyrir lið. Byijunarlaun voru
29.795 en eru nú liðlega 36.500 og
hækka næst 1. júní um 3,25% Áður
hafði fólk í hlutavinnu 7% ofan á
launin en þau hverfa nú. Samning-
urinn gildir frá 1. mars og er það
gert til að koma til móts við það
að síðasta launahækkun var 1. okt-
óber á meðan aðrir hækkuðu í jan-
úar og febrúar.
Ingibjörg Sigtryggsdóttir for-
maður verkalýðsfélagsins Þórs á
Selfossi sagði samninginn að mörgu
leyti betri en almennt gerðist. Búið
væri að lagfæra ýmis atriði sem
valdið gátu misskilningi. Hún sagði
að miðað hefði verið við að kaupið
yrði ekki lægra en í samningum á
sams konar stofnunum á Norður-
og Austurlandi. Það mikilvægasta
í samningnum væri hækkun á sjálfu
kaupinu. Hún sagðist ennfremur
vera þokkalega ánægð með samn-
inginn eins og hægt væri að vera
með samninga.
Sig. Jóns.
Vinningsskák Jóhanns gegn Jusupov
Skáik
Margeir Pétursson
JÓHANN Hjartarson stendur
nú mjög vel að vígi á alþjóðlega
skákmótinu í MUnchen, eftir að
hafa sigrað sovézka stórmeist-
arann Artur Jusupov í fimmtu
umferð mótsins, eftir að Sovét-
maðurinn lék af sér heilum
hrók í tímahraki. Jusupov hef-
ur 2620 skákstig og þótti fyrir
mótið vera sigurstranglegast-
ur. Hann komst í úrslit i áskor-
endakeppninni 1986 og þykir
líklegur til afreka í yfirstand-
andi keppni, þar sem hann
mætir Kevin Spraggett frá
Kanada i næsta einvígi. Jóhann
hefur nú fjóra vinninga á mót-
inu í MUnchen, en næstu menn
hafa þijá vinninga.
Skák þeirra Jóhanns og Jusupovs
var nokkuð athyglisverð. Upp
kom Lasker afbrigðið í Sikileyjar-
vöm, sem Jusupov hafði mikið
dálæti á í æsku. Hann hefur nú
lagt það að mestu á hilluna en
notast við traustari byijanir, enda
þykir hann með ömggari skák-
mönnum. Vafalaust hefur það
haft áhrif á byijanaval Jusupovs
að í fímmtu einvígisskákinni við
Korchnoi í Kanada tapaði Jóhann
illa í afbrigðinu.
í miðtaflinu fómaði Jusupov
tveimur peðum til að ná fmm-
kvæðinu og staða Jóhanns var um
tíma mjög viðsjárverð. Bæði var
riddari hans mjög illa settur úti á
kanti og þar að auki átti Jusupov
ýmsar lúmskar hótanir gegn
kóngi Jóhanns. Þar að auki var
Jóhann í tímahraki, en hann varð-
ist vel og eftir að Jusupov hugs-
aði mjög lengi um sinn 30. leik,
jafnaðist tíminn. í tímahrakinu
létti Jóhann á stöðu sinni með því
að fóma skiptamun og varð stað-
an nokkuð jaftiteflisleg. Þá gekk
heppnin í lið með honum, Jusupov
lék hrikalega slæmum afleik,
hann sá hreinlega ekki að Jóhann
setti á hrók með drottningu. Ju-
supov hvorki valdað hrókinn, né
vék honum undan og varð síðan
að gefast upp. *
Þetta var auðvitað heppnissig-
ur hjá Jóhanni, en útsjónarsemi í
tímahraki er einmitt ein af hans
sterkustu hliðum, rétt eins og hjá
Friðriki Ólafssyni.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Artur Jusupov
Sikileyjarvöm
I. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4
— cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3
- e5 6. Rdb5 - d6 7. Bg5
Gegn Korchnoi lék Jóhann hér
7. Rd5!? - Rxd5 8. exd5 - Re7
9. c4, en 7. Bg5 er algengara.
7. - a6 8. Ra3 — b5 9. Bxf6 —
gxf6 10. Rd5 — Bg7
Hér er miklu algengara að leika
10. - f5.
II. Bd3 - Re7 12. Rxe7 - Dxe7
13. c4 - f5 14.0-0 - 0-0 15. Dh5
Allt fram að þessu hafa kepp-
endur fylgt skákinni Benedikt
Jónasson-Haukur Angantýsson,
Reykjavíkurskákmótinu 1984. Sú
skák vakti mikla athygli á sínum
tíma, bæði hér heima og erlendis
fyrir það að hvítur var svo óhepp-
inn að gefast upp í unninni stöðu:
15. De2 - bxc4 16. Rxc4 - Hb8
17. exf5 - d5 18. Re3 — Hd8
19. Bxa6 - Bxa6 20. Dxa6 -
e4 21. Hadl - d4 22. Rc4 - e3
23. fxe3 - dxe3 24. Hxd8+ -
Hxd8 25. f6 - e2 26. fxe7 -
Bd4+ og í staðinn fyrir að gefa
hefði hvítur getað unnið með því
að leika 27. Re3! — Bxe3+ 28.
Khl
15. - Hb8
Endurbót Jusupovs á skák
tveggja Sovétmanna, Markov og
Schipkov frá í fyrra, sem er f
nýjasta hefti Informators. Þar
varð staðan mjög tvísýn eftir 15.
- Db7 16. exf5 - e4 17. Bc2 -
He8 18. f3 e3!
1«. exf5 - e4 17. Hael - Bb7
18. He3 - bxc4 19. Bxc4 - d5
Ef hvítur hörfar nú með biskup-
inn er svartur kominn með mjög
'virka og skemmtilega stöðu fyrir
peðið. Jóhann þvingar því fram
mikil uppskipti:
20. Bxd5 - Bxd5 21. f6 - Dxf6
22. Dxd5 - Hxb2 23. Hxe4 -
Hd8 24. Dc4 - Dc3 25. Dxa6 -
Dc5
Þrátt fyrir að staðan hafí ein-
faldast mikið er samt sem áður
ljóst að svartur hefur fullnægjandi
bætur fyrir peðin sem hann hefur
fómað. Riddarinn á a3 er mikill
vandræðagripur og þar að auki
hótar Jusupov nú 26. — Hxf2.
26. Hc4 - Df5 27. Da7 - He8
28. g3 - Hxa2 29. Da4 -Hb8
30. Da7 - He8 31. Da4 - Hel
Þvingar Jóhann til að fórna
skiptamun, en nú kemst riddarinn
yfír í vömina á kóngsvæng og
verður að manni að lokum.
32. Hc8+ - Bf8 33. Hxf8+ -
Kxf8 34. Db4+ - He7 35. Rc4
- De4 36. Dc3 - Kg8 37. Re3
- De5 38. Dc4
Þessi staða er orðin mjög jafn-
teflisleg, en í tímahrakinu leikur
Jusupov af sér heilum hrók:
38. — He8?? 39. Dxa2 og svart-
ur gafst upp.