Morgunblaðið - 08.05.1988, Síða 17

Morgunblaðið - 08.05.1988, Síða 17
ÚLFAR ÖRN AUGLÝSII 'pr ÍAM R HTJr)AGUWW£? QIQA TflVÍITt)HOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988 91 17 FÉLAG FASTEIGNASALA Fasteignaviðskipti snúast í mörgum tilfellum um aleigu fólks. Öryggi viðskipt- anna skiptir því meginmáli. Með tilkomu nýrra laga um fasteignasölu, vill Félag fasteignasala vekja athygli á eftirfarandi atriðum: ÍVjú ný eyðublöð koma til sögunnar - söluumboð, söluyfirlit og yfirlýsing húsfélags. Söluumboðið er skriflegur samningur milli seljanda fasteignar og fasteignasala um sölutilhögun eignarinnar. Söluumboðið er útfyllt og undirritað af báðum aðilum við skoðun eignarinnar. Er þá greitt skoðungargjald sem er í dag kr. 5.600,- (með söluskatti), sem dregst síðan frá söluþóknun er eignin selst. Nýju lögin gera ráð fyrir aukinni og mun nákvæmari upplýsingaskyldu um fasteignir en verið hefur. Aður en heimilt er að bjóða fasteign til sölu, verður að útfylla sérstakt söluyfirlit. í söluyfirliti skulu vera nákvæmar upplýsingar um eignarheimild seljanda, stöðu allra áhvílandi veðskulda, lýsing eignar, þ.m.t. stærð, aldur, ástand, kvaðir, gallar, byggingarefni, opinber möt eignarinnar, tekjur og gjöld af eigninni, fyrirhugaðar endurbætur o.fl. Tn að auðvelda seljendum öflun gagna vegna gerðar söluyfirlits hefur Félag fasteignasala útbúið sérstakan leiðarvísi er nefnist Minnislisti seljanda og liggur hann frammi á öllum fasteignasölum í Félagi fasteignasala. • • Oryggi fasteignaviðskipta er enn aukið með tilkomu starfsábyrgðartrygginga fasteignasala í Félagi fasteignasala. Tryggingamar eru þær hæstu og yfirgripsmestu sem um getur hjá nokkurri starfsstétt hér á landi. Félag fasteignasala fagnar tilkomu þessara trygginga. Þær veita viðskiptavinum okkar aukna vemd í viðskiptunum og okkur aukið öryggi í störfum okkar. Fasteignasalar í Félagi fasteignasala eru sérfræðingar í fasteignaviðskiptum. Hjá þeim er þekkingin og reynslan sem veitir öryggi og tryggingu fyrir traustum fasteignaviðskiptum. MGIRA ÖRYGGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.