Morgunblaðið - 08.05.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
smáauglýsingar —- smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Vélritunarkennsla
Vélritunarskóling, sími 28040.
iwlioin.
Vanish-undrasápan
Ótrúlegt en satt. Tekur burt
óhreinindi og bletti sem hvers
kyns þvottaefni og sápur eða
blettaeyðar ráöa ekki viö. Fáein
dæmi: Olíur, blóð-, gras, fitu-,
lím-, gosdrykkja-, kaffi-, vin-, te-,
eggjabletti, snyrtivörubletti,
kúlupenna og tússpennablek og
fjölmargt fleira.
Nothæf alls staðar, t.d. á fatnað,
gólf, teppi, málaða veggi, gler,
bólstruð húsgögn, bílinn, utan
sem innan. o.fl.
Úrvals handsápa, algerlega
óskaðleg hörundinu. Notið ein-
ungis kalt eða volgt vatn. Nú
einnig í fljótandi formi. Fæst í
flestum matvöruverslunum um
land allt. Heilsölubirgðir: Loga-
land, heildverslun, sími 12804.
S P'ANN
Eignist eigiö orlofshús á mjög
hagstæðu verði á sólríkasta stað
Spánar. Sveigjanlegir greiðslu-
skilmálar. Kynning dagiega á
Laugavegi 18 virka daga kl.
9-18, lau. og sun. kl. 14-17.
Reglulegar kynnisferðir.
Orlofshús,
G. Óskarsson 8i Co.,
símar 17045 og 15945.
□ MI'MIR 59889057 Loka f.
I.O.O.F.3 = 169597 = LF.
w >*
Frá Sálarrannsóknar-
félagi íslands
Breski miðillinn, Gladys Field-
house, heldur skyggnilýsinga-
fund mánudaginn 9. mai kl.
20.30 og fimmtudaginn 12. mai
kl. 20.30. Einnig heldur hún
fræðslu- og tilraunafund laugar-
daginn 14. mai kl. 15.00. Fund-
irnir verða haldnir á Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18. Nánari upplýs-
ingar í sima 18130.
Stjórnin.
m
Útivist,
Grqfmni 1
Sunnudagur 8. maí
Útivistardagurinn:
Reykjavíkurganga Útivistar
Kl. 13.00 Brottför frá Grófar-
torgi (bilastæðinu milli Vestur-
götu 2 og 4). Einnig er hægt að
mæta í gönguna á eftirtöldum
stöðum:
Kl. 13.45, BSÍ, bensínsölu.
Kl. 14.15, Nauthólsvík.
Kl. 15.15, Skógræktarstöðinni,
Fossvogi.
Rútuferðir frá Elliðarárstöö að
lokinni göngu kl. 17.30. Ekkert
þátttökugjald. Fjölmennið i
gönguna og kynnist fjölbreyttri
leið um höfuðborgina, mikið til
í náttúrulegu umhverfi. Gengið
frá Grófinni meðfram Tjörninni,
um Hljómskálagarðinn,
Öskjuhliö, Fossvog og Foss-
vogsdal í Elliöaárdal. Gestir
koma í gönguna og fræða m.a.
um fuglalíf á Tjörninni, jarðfræði
Öskjuhlíðar og Fossvogs og
skógrækt.
Áning í Skógræktarstööinni með
harmónikuleik og söng. Tilvalin
fjölskylduganga. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræöumaður er Solomon Dou-
hne, Palestínumaður frá vestur-
bakka Jórdanár. Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðalfundur
Svalanna verður haldinn i Átt-
hagasal Hótel Sögu mánudaginn
9. maí og hefst hann kl. 18.00.
Lögð verður fram tillaga um
breytingar á starfsemi félagsins.
Mætum allar.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Myndakvöld
- miðvikudaginn 11. maí
Ferðafélagið vekur athygli ferða-
manna og annarra áhugamanna
á Islandi og náttúru þess, að
siöasta myndakvöld vetrarins
verður miövikudaginn 11. maí í
Risinu, Hverfisgötu 105, og
hefst kl. 20.30.
Efni: Pétur Þorleifsson sýnir
myndir frá Kili og nágrenni (ferð-
ir nr. 8 og nr. 21). Gott tækifæri
til að kynnast nýrri gönguleiö.
Salbjörg Óskarsdóttir sýnir
myndir frá Landmannalaugum,
„Laugaveginum" og Þórsmörk.
Þeir, sem ætla að ganga „Lauga-
veginn" í sumar, ættu ekki að láta
þessa sýningu fram hjá sér fara.
Bjöm Rúriksson sýnir myndir frá
Norðausturiandi (ferð nr. 19),
Kverkfjöllum (ferö nr. 18) og viðar.
Bjöm sýnir bæði loftmyndir og
myndir teknar á jörðu niðri.
Þeir, sem hafa hugsaö sér að
ferðast um (sland í sumar, ættu
að sjá þessa myndasýningu og
kynna sér landslag og leiðir. All-
ir velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir. Aðgangur kr. 100.
Ferðafélag íslands.
^ VEGURINN
Kristiö samfélag
Þarabakka 3.
Samkoma ídag kl. 14.00. Ræðu-
maður Tissa Wierasingha frá Sri
Lanka. Barnakirkja á neöri hæð
á meðan predikun stendur.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir Ferðafélagsins
sunnudaginn 8. maí
Kl. 09 - Skarðsheiði (1055 m).
Gengið frá Efra Skarði upp með
Skarðsá. Verð kr. 1.000.
Kl. 13 - Eyrarfjall (424 m).
Ekið inn Miðdal og gengið frá
Eilífsdal á fjallið. Verð kr. 800.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bil.
Frítt fyrir böm i fylgd fullorðinna.
Ath.: Síðasta myndakvöld vetr-
arins verður miðvikudaginn 11.
maí í Risinu, Hverfisgötu 105.
Ferðafélag íslands.
m
Utivist,
Hvitasunnuferðir Utivistar
20.-24. maí
1. Þórsmörk. Frábær gistiað-
staða i Útivistarskálunum Bás-
um. Skipulagðar gönguferðir.
Hugað verður að örnefnum,
sögu og jaröfræði í Mörkinni og
viðar. Spennandi ferð.
2. Mýrdalur - Þórsmörk. Ferð
að hluta sameiginleg nr. 1, en
farið verður á staði sem flestir
hafa ekki kynnst áður. Gist i
skálum.
3. Fimmvörðuháls - Mýrdals-
jökull. Ævintýraferð fyrir
gönguskiöafólk. Ætlunin er að
fara nýjar leiðir. Gist í skálum.
4. Snæfellsnes - Snæfells-
jökull. Góð gisting á Lýsuhóli.
Sundlaug. Jökullinn og fjölbreytt
náttúrufar í nágr. laða að.
5. Purkey - Breiðafjarðareyjar.
Ferð fyrir alla náttúruunnendur.
Tjöld. Uppl. og farm. skrifst.,
Grófinni 1, simar: 14606 og
23732. Pantiö timanlega. Áður
frestaðri ferð um þjóðleiðina til
Þingvalla (1. ferð) verður mið-
vikudagskvöldið 11. mai kl. 20.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
KFUM OG KFUK
Kristniboðssamkoma á Amt-
mannsstig 2b i kvöld kl. 20.30.
Hvaðan kemur mér hjálp?
Ræðumaður Friðrik Hilmarsson.
Bænastund er kl. 20.00.
Allir velkomnir.
m
Útivist,
Sunnudagur 8. maíkl. 10
Fjallahringurinn 4. ferð
Skipaskagi - Akrafjall (643
m.y.s.). Brottför með Akraborg
frá Grófarbryggju kl. 10.00.
Mætið timanlega fyrir brottför.
Heimkoma kl. 18.30. Verð
1.100,- kr. Góð og hressandi
ganga. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 09 19533.
Hvrtasunnuferðir Ferða-
félagsins 20.-23. maí:
1) Öræfajökull (2119 m).
Lagt upp frá Virkisá v/Svinafell,
gengið upp Virkisjökul, utan i
Fjalljökli og áfram sem leið liggur
á Hvannadalshnúk. Gist i svefn-
pokaplássi á Hofi.
2) Þórsmörk - Flmmvörðuháls.
Gönguferðir um Mörkina og yfir
Fimmvörðuháls að Skógum. Gist
í Skagfjörðsskála/Langadal.
Snæfellsnes - Snæfellsjökull.
Gengiö á Snæfellsjökul (1446
m) og farnar skoðunarferðir á
láglendi. Gist i svefnpokaplássi
í félagsheimilinu Breiðabliki.
Brottför í allar ferðirnar kl. 20
föstudag 20. maí.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu FÍ, Öldugötu 3.
Ath.: Greiðslukortaþjónusta.
Til athugunar fyrir ferðamenn:
Um hvítasunnu verður ekki
leyft að tjalda í Þórsmörk,
vegna þess hve gróður er
skamm' á veg kominn.
Ferðafélag Islands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Krossinn
Auðbrekku 2,200 Kópavogur
Almenn samkoma i dag kl.
16.30. John Bower kynnir komu
Anno Domini. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Ræðumaður Salomon
Douhne frá israel.
fíímhj
ólp
í dag kl. 16.00 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill og fjölbreyttur söngur.
Barnagæsla. Ræðumaður er Óli
Ágústsson. Allir velkomnir.
Samhjálp
Víkingskonur
Farið verður út að borða föstu-
daginn 13. maí. Þátttaka tilkynn-
ist fyrir miðvikudaginn 11. maí i
sima 651126 Jóhanna eða
652021 Erla.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
i dag kl. 17.00: Samkoma.
Flokksforingjarnir stjórna og
tala.
Mánud. kl. 16.00: Heimilasam-
bandið (lokafundur).
Verið velkomin.
radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsíngar
| tilkynningar |
Þjóðhátíð
Vestmannaeyja 1988
Þeir skemmtikraftar, sem áhuga hafa á að
koma fram á skemmtidagskrá Þjóðhátíðar,
vinsamlega sendi skriflegar upplýsingar fyrir
1. júní merkt: Þjóðhátíðanefnd Þórs, box
175, 902 Vestmannaeyjum.
íþróttafélagið Þór,
Vestmannaeyjum.
Félagsmenn F.Í.A.
Umsóknarfrestur um dvöl í orlofshúsum
F.Í.A. sumarmánuðina júní, júlí og ágúst er
til 20. maí nk. Tekið verður á móti umsóknum
á skrifstofu F.Í.A., Háaleitisbraut 68, sími
35485.
Orlofsnefnc/ F.Í.A.
Hraunborgir
Orlofshús Sjómannasamtakanna, Grímsnesi,
verða leigð frá og með laugardeginum 21.
maí. Væntanlegir dvalargestir hafi samband
við undirrituð félög sín:
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi,
Vestmannaeyjum,
Vélstjórafélag Vestmannaeyja,
Starfsmannafélag Reykjalundar,
Sjómannafélag Reykjavíkur,
Sjómannafélag Hafnafjarðar,
Sjómannafélag Akranes,
Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps,
Verkalýðs- og sjómannafélag Grindavíkur,
Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps,
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur,
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári,
Hafnarfirði,
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan,
ísafirði,
Happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna,
Staiismannafélög Hrafnistu í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Læknamóttaka
Hef opnað læknamóttöku á göngudeild
St. Jósefspítala, Suðurgötu 44, Hafnarfirði.
Tímapantanir í síma 53888.
Jens Kjartansson,
sérgrein, lýtalækningar.
Auglýsing
um verklegt próf í endurskoðun
Samkvæmt reglugerð nr. 208/1979, sbr.
reglugerð nr. 1/1980 verður haldið verklegt
próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa
og er áætlað að það verði á tímabilinu frá
20. október til 10. nóvember 1988.
Þeir, sem hyggjast þreyta prófraun sendi
prófnefnd löggiltra endurskoðenda, c/o fjár-
málaráðuneytið tilkynningu þar að lútandi
fyrir 13. júlí nk. Tilkynningunni skulu fylgja
skilríki um að fullnægt sé skilyrðum til að
þreyta prófraun sbr. lög nr. 67/1976.
Prófnefndin mun boða til fundar með próf-
mönnum í september nk.
Reykjavík, 3. maí 1988,
prófnefnd löggiltra endurskoðenda.