Morgunblaðið - 08.05.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
59
TVÆR ÁSJÓNUR GEORGE BLAKES:
svikari f tólf ár.
BOURKE:
fékk aðra f lið með sér.
fv. kjarnorkuandstæðingur,
stundar „friðarrannsóknir."
POTTLE:
fv. andófsmaður,
selur foramuni.
53 ára kennari í „friðarrannsókn-
um“ við háskólann í Bradford, og
Pat Pottle, 49 ára gamall fomgripa-
sali í Norður-London. Allar upplýs-
ingar Hydes og Bourkes áttu við
þessa tvo menn. Sjálfir viðurkenndu
þeir f viðtali við blaðið að þeir væru
„vafalaust" þeir tveir vitorðsmenn,
sem Hyde nefndi f-bók sinni, og
staðfestu að kona Randles héti
Anna Þeir kváðust hafa búizt við
VANESSA REDGRAVE:
borgaði hún brúsann?
leyniþjónustunni í heimsókn þegar
bók Bourkes kom út 1970, en sögðu
að þeir hefðu aldrei verið yfirheyrð-
ir.
Randle og Pottle höfðu verið
meðal stofnenda CND og 100
manna nefndarinnar og starfað við
friðarsinnablaðið Peace News.
Pottle varð einkaritari Russells lá-
varðar 1960 þegar Russel lét af
starfi forseta CND til að stofna
Hundrað manna nefndina og
Randle varð ritari nefndarinnar.
Tveimur mánuðum eftir óeirðimar
við flugstöðina í Wethersfíeld vom
þeir dæmdir í 18 mánaða fangelsi.
Á þessum ámm stjómuðu Randle
og Pottle „fjöldaandspymu" þús-
unda manna, sem hikuðu ekki við
að bijóta lög. Stjómin neyddist til
að banna mótmælaaðgerðir á Traf-
algar-torgi 1961 oghundruð manna
vom handteknir á fjölmennum
fundum í miðborg Lundúna. Margt
þekkt fólk tók þátt í þessum mót-
mælaaðgerðum, þar á meðal leik-
ritahöfundurinn John Osbome
(„Horfðu reiður um öxl“), leikkonan
Vanessa Redgrave og jazzsöngvar-
inn George Melly. Nokkrir lentu í
fangelsi eins og Randle og Pottle,
þeirra á meðal Russell lávarður og
kona hans, leikritahöfundamir Rob-
ert Bolt og Amold Wesker og skáld-
ið Christopher Logue.
Blake, Bourke, Randle og Pottle
kynntust f Wormwood Scmbs-
fangelsinu. Randle og Pottle sögðu
að þeir hefðu talið sig eiga fátt
sameiginlegt með Blake, því að
hann hefði verið „harður marxisti"
og þeir „aðeins sósíalistar." En þeir
viðurkenndu að þeir hefðu fengið
„djúpa samúð" með honum og talið
dóminn yfír honum „harðan, órétt-
látan og siðlausan", þar sem hann
hefði aðeins „verið hugsjónum
sínum trúr“ eins og þeir. „Mér
fínnst ánægjulegt að hann komst
til Moskvu," sagði Pottle.
Randle og Pottle kváðust hafa
samþykkt að hjálpa Blake að flýja
þegar þeir höfðu losnað úr fangels-
inu og aflað þeirra 700 punda, sem
Bourke hefði talið sig þurfa til að
til að greiða flutningskostnað og
húsaleigu og kaupa matvæli og
„labbrabbtæki," sem var smyglað
inn í fangelsið mörgum vikum áður
en Blake flúði. Þeir fengu einnig
lækni úr CND til að hlynna að
Blake, sem meiddist á höfði og úln-
liðsbrotnaði þegar hann klifraði yfír
fangelsismúrinn. Að svo búnu hafí
Randle og Anna smyglað Blake til
Austur-Berlínar í hjólhýsinu.
„Við viljum ekkert láta hafa eftir
okkur á þessu stigi," sagði Randle
þegar Sunday Times birti nöfn
hans, konu hans og Pottles í vetur.
„Ef ég verð spurður segist ég ekk-
ert vita,“ sagði Pottle. Hann sagði
að sanna yrði að þau væm sek og
lýsingamar í bókum Bourkes og
Hydes væm ekki órækar sannanir.
Seinna neituðu þau að svara öllum
spumingum Scotland Yards um
flótta Blakes og hlutverk þeirra.
Hjálpfús leikkona
Scotland Yard komst svo að því
að Bourke hefði afhent lögfræðing-
um sínum nákvæmar upplýsingar,
sem bendluðu leikkonuna Vanessu
Redgrave við flótta Blakes,
skömmu áður en hann lézt. Bourke
mun hafa sagt að megnið af þeim
700 pundum, sem Randle og Pottle
söfnuðu til að fjármagna flóttann,
hefði komið frá henni og verið not-
að til þess að kaupa bilinn, sem
Blake var smyglað með til Austur-
Berlínar.
Vanessa Redgrave lét oft fé af
hendi rakna til Hundrað manna
nefndarinnar, Víetnam-nefnda og
róttækra friðarhópa og vann með
Randle og Pottle að nokkmm rót-
tækum baráttumálum. Hún bar
vitni fyrir þá í réttarhöldunum gegn
þeim og kvaðst hafa hjálpað þeim
að undirbúa aðgerðimar í Wethers-
field.
Lögfræðingur Bourkes, John
Gore-Grimes, sagðist oft hafa heyrt
Bourke halda því fram að Vanessa
Redgrave hefði verið viðriðin flótta
Blakes að sögn Sunday Times.
Hann kvaðst hafa trúað Bourke,
en telur að hún hafí ekki vitað til
hvers hafí átt að nota peningana.
Þingmaðurinn Kemmy og blaða-
maðurinn Kevin O’Connor, sem
gerði þátt um Bourke fyrir frska
útvarpið 1984, heyrðu einnig Bo-
urke bendla ungfirú Redgrave við
flóttabílinn.
Leikkonan neitaði að svara öllum
spumingum Scotland Yards um
hvort hún hefði lagt fram fé til
flótta Blakes. Við Sunday Times
sagði hún aðeins: „Ég var á engan
hátt viðriðin flótta Georges Blakes
úr fangelsi, hvorki beint né óbeint."
í fyrstu vildu Randle og Pottle
ekkert segja um ásakanir Bourkes
gegn Vanessu Redgrave, en þeir
sögðu að lokum: „Við viljum ... lýsa
því afdráttarlaust yfír að við feng-
um enga peninga frá ungfrú
Redgrave." Yfirvöld virðast hafa
látið nægja að yfírheyra þau þrjú
og svipað virðist því hafa orðið upp
á teningnum nú og 1970, þegar bók
Bourkes kom út. Lítill vafí leikur á
því að þau hafí verið viðriðin flótta
Blakes, en það þarf ekki að afsanna
að KGB hafí skipulagt flóttann,
þótt þau hafl ekki vitað það.
GH
Ný sending frá
Dinö Valiano
Full búð
af klæðilegum
sumarfatnaði
Opið frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-14.
Christine,
Pósthússtræti 13.
Starfsfólk
óskast
ýraist í fullt starf
eáa hlutastarf
Þroskaþjálfar
Kópavogshæli.
Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa sem fyrst í 70%
starf bæði til frambúðar og í sumarafleysingar.
Næturvaktir. í starfinu felst m.a. að vera yfir
naeturvakt.
Umsóknarfrestur til 15. maí. Upplýsingar gefur
yfirþroskaþjálfi, sími 41500.
Hjúkrunarfrxðíngar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga sem fyrst
í 70% starf bæði til frambúðar og í sumarafleys-
ingar. Næturvaktir. í starfinu felst m.a. að vera
yfir næturvaktinni.
Umsóknarfrestur til 15. maí. Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri, sími 41500.
Starfsmenn og aðstoðarmenn
Óskum eftir að ráða sérhæfða aðstoðarmenn
og/eða starfsleiðbeinendur sem fyrst. Fullt starf.
Vinnutími 08:30-16:30. Starfið felst í verkstjórn
og aðstoð við þjálfun vistmanna á vinnustofum
Kópavogshælis. Æskilegt að umsækjendur hafi
starfað áður með þroskaheftum. Upplýsingar gef-
ur framkvæmdastjóri eða yfirþroskaþjálfi, sími
41500.
Starfsmenn óskast sem fyrst til sumarafleysinga
og til frambúðar. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Um er að ræða vaktavinnu. Starfið felst í umönn-
un og þátttöku í þjálfun og meðferð heimilis-
manna á deildum og sambýliseiningum. Æskilegt
er að umsækjendur hafi einhverja reynslu af störf-
um með þroskaheftu fólki. Vegna aldurs og kynja-
hlutfalla heimilismanna á Kópavogshæli vantar
okkur nú sérstaklega konur frá fertugu og eldri.
Nánari upplýsingar gefur yfirþroskaþjálfi eða fram-
kvæmdastjóri í síma 41500, milli kl. 08 og 16 virka
daga.
RÍKISSPÍTAIAR
KÓPAVOGSHÆU