Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 34

Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 Útgefandi NtMiifetíÞ Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, ÁrniJörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ' Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Listahátíð Tíunda Listahátíð í Reykjavík hefst laugar- daginn 4. júní með opnun sýningar á verkum^ Marcs Chagalls í Listasafni íslands. Listahátíð stendur til 19. júní en þar við bætist sérstakur listahátíðarauki, tónleikar Leonards Cohens, föstudag- inn 24. júní í Laugardalshöll. Sýningin á verkum Chagalls, sem er ein af perlum hátíð- arinnar, stendur yfír til 15. ágúst. Listahátíð hefur frá upp- hafí verið hugsuð sem vett- vangur alþjóðlegra lista, tækifæri fyrir almenning á Islandi til að kynnast því sem hátt ber og er áhugavert í samtíðarmenningu erlendra þjóða, auk þess sem þar er flutt markvert íslenskt efni. Fyrsta listahátíðin var haldin árið 1970. Hana sóttu 30 þúsund manns og hefur há- tíðin verið haldin annað hvert ár síðan. Árið 1976 var svo haldin fyrsta kvikmyndahátíð listahátíðar sem nú er einnig orðin að reglulegum viðburði í menningarlífí Islendinga. Á listahátíðum hefur ís- lendingum gefíst kostur á að njóta margs þess besta sem völ hefur verið á jafnt í inn- lendu sem erlendu menning- arlífí. Fjöldi frægustu lista- manna veraldar hefur sótt okkur heim eða verk þeirra verið sýnd síðan fyrsta lista- hátíðin var haldin fyrir átján árum og verður engin undan- tekning á því nú á þeirri hátíð sem er að ganga í garð. Sin- fóníuhljómsveit íslands verð- ur sem fyrr kjölfestan í lista- hátíð og verða tónleikar hennar að þessu sinni einum fleiri en á nokkurri annarri hátíð. Þó menningar- og listalíf í Reykjavík standi ávallt í mikl- um blóma setja listahátíðim- ar mikið mark á borgina þá daga sem hún stendur yfír. Þó að á tíðum hafí staðið nokkur styr í kringum fram- kvæmd hátíðarinnar, aðal- lega kostnaðarhliðina, hefur listahátíð fest sig í sessi sem einn helsti menningarvið- burður þjóðarinnar. Við höld- um ekki listahátíð til að hagn- ast á henni fjárhagslega held- ur andlega, kveikja nýjar hugmyndir og efla okkar eig- in menningu. Sá hagnaður verður ekki metinn til fjár en er síst léttvægari fyrir það. Það hafa stundum heyrst gagnrýnisraddir frá lands- byggðinni um að höfuðborgin einoki listasviðið. Rétt er að staldra aðeins við þetta og til dæmis leiða hugann að því, hve mjög alls kyns listalíf hefur dafnað á Akureyri. Þá er nýlokið M-hátíð á Sauðár- króki, þeirri þriðju í röðinni. Fyrsta M-hátíðin var haldin á Akureyri árið 1986 og sú næsta á ísafírði á síðastliðnu ári. M-hátíðimar eiga að stuðla að eflingu íslenskrar menningar og tungu. Hátíð- imar eru haldnar að frum- kvæði menntamálaráðuneyt- isins í samvinnu við bæjarfé- lögin. Þetta er jákvæð þróun og nauðsynlegt að áfram verði haldið á þessari braut. M-hátíðimar eiga þó ekki að verða einhvers konar mót- vægi landsbyggðarinnar við listahátíð. Listahátíð er fyrir þjóðina alla, en ekki eingöngu Reykvíkinga. Það er því mik- ilvægt að íbúum landsbyggð- arinnar verði gefínn kostur á að eiga ríkari hlutdeild í hát- íðinni en verið hefur til dæm- is með sérstökum ferðatilboð- um eða að einstakir liðir há- tíðarinnar fari víðar um landið. Frá upphafí hefur verið gælt við þá hugmynd að gera listahátíð að alþjóðlegum listaviðburði sem drægi að erlenda ferðamenn. Við eig- um að stefna að því að fá hingað erlenda gesti á hátíð- ina og gera listahátíð að föst- um lið í okkar landkynningu. Aukin kynning hátíðarinnar myndi líka auðvelda okkur að fá hingað fræga listamenn og verða ferðaútveginum mikill akkur. Ef svo á að verða verður að skipuleggja hátíðina lengra fram í tímann svo dagskrá geti legið frammi fyrr en hingað til hefur tíðkast. Hugmyndir um að skipa framkvæmdastjóm listahátíðar til fjögurra ára í stað tveggja verður því að skoða grannt. að hefði verið heljar- stökk inn í náttmyrkrið að fara gömlu verð- bólguleiðina." Það var Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, sem þannig komst að orði í viðtali við Morgunblaðið 21. febrúar 1986, daginn eftir tímamótasamninga ASÍ og VSI. „Efnahagskerfíð og hefðbundin samn- ingagerð hafa ekki, eftir að verðbólgan heltók hagkerfíð, fært okkur miklar kjara- bætur. Langvarandi jafnvægisleysi, óstjóm og röng fjárfestingarstefna, ásamt óðaverðbólgu, var langt komið með að eyðileggja hagkerfíð og þar með grund- völl lífskjaranna." Það var Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar, sem þannig komst að orði í blaðagrein í apríl 1986. Launastefna Hefur Alþýðusamband íslands, Vinnu- veitendasamband íslands eða Vinnumála- samband samvinnufélaganna fastmótaða, markvissa launastefnu? Hafa þessi sam- tök, eða önnur hliðstæð, sett fram stefnu- mörkun eða útlistun á „eðlilegum" launam- un starfa, eftir mismunandi menntunar- kröfum, mismunandi ábyrgð eða mismun- andi arðsemi þeirra? Hefur ríkið, stærsti vinnuveitandinn í landinu, eða sveitarfé- lögin, sem hafa mikil umsvif, sett fram stefnumörkun að þessu leyti? Stendur það máske almennri samningagerð fyrir þrif- um að samtök launafólks — sem og aðrir samningsaðilar — hafa ekki nægilega fast- mótaða launastefíiu, flokka jafnvel um- ijöllun um launamismun, sem ætíð verður einhver, undir „feimnismál"? Víst er að ríkjandi launastefna — eða stefnuleysi — verðbólguáranna 1971-1983, bitnaði verst á þeim lægst launuðu. Þar um vitna orð Guðmundar J. og Þrastar, sem birt eru í upphafi þessa bréfs. Ums- amdar „kjarabætur" brunnu jafnharðan á verðbólgubálinu. Hundrað gamalkrónur hurfu í eina nýkrónu sem hélt áfram að smækka. Verðbólgan skekkti samkeppnis- stöðu innlendrar framleiðslu og gróf undan almennu atvinnuöryggi. Peningaspamaður hrandi og atvinnulífið varð háðara erlendu lánsfjármagni, erlendri skuldasöfnun. Óvissa um verðlagsþróun setti flestum framföram í atvinnulífí og þjóðarbúskap stólinn fyrir dymar. Það var því ekki að ósekju að Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, sagði í tilvitnaðri blaðagrein 1986: „Til lengdar era fáar kjarabætur lág- launafólki drýgri en stöðugt efnahagslíf með lítilli verðbólgu og nægri og traustri vinnu ...“ Mergurinn málsins er sem sagt að ná verðbólgu í landinu niður á svipað stig og í helztu viðskipta- samkeppnisríkjum okk- ar. Vonandi skekkja utanaðkomandi efna- hagsáföll, verðfall sjávarvöra með tilheyr- andi áhrifum á gengi gjaldmiðils okkar, ekki það meginmarkmið efnahagsstefnu næstliðinna missera. Jarðgöng í Ólafs- fjarðarmúla Tilboð í jarðgangagerð í Ólafsfjarðarm- úla vóra opnuð síðastliðinn miðvikudag. Lægsta tilboðið var um 522 m.kr. eða tæplega 80% af kostnaðaráætlun Vega- gerðar ríkisins. Munurinn á hæsta og lægsta tilboði var rúmlega 458 m.kr. Út- boð í vegagerð, sem og á öðram opinberam framkvæmdum, hafa fært landsmönnum mun meira fyrir mun minna en með gömlu ríkiseinokunarleiðinni. Spurning er hvort hið opinbera á ekki að ganga lengra, láta einnig reyna á útboð í ýmsum þjónustu- verkefnum. Ráðgerð jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla verða rúmlega 3.200 metra löng. Þetta er langstærsta verkefnið í jarðgangagerð í vegakerfí okkar til þessa. Tilboðin í verk- in ganga nú til vandlegrar skoðunar áður en afstaða verður tekin tii þeirra. Að öllu óbreyttu má síðan búast við því að hjólin byiji að snúast í Múlanum um eða eftir mitt sumar. Útboð er miðað við það að framkvæmdum ljúki í marzmánuði 1991. Þá er eftir uppsetning ljósa í göngunum sem og að koma hurðum í gangamunna. Vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla hefur vissulega þjónað þörfu hlutverki. Hann hefur tengt ÓlafsQörð, sem er þróttmikill útgerðar- og fískvinnslustaður, við Eyja- fjarðarbyggðir, en góðar samgöngur skipta meginmáli á þessu atvinnusvæði sem öðram. Útsýni af þessum hrikalega fjallvegi, m.a. til Grímseyjar, hefur og glatt margan ferðalanginn. En annmarkar veg- arins vóra ýmsir. Helzti annmarki hans var hran úr fjall- inu. Gijótskriður féllu tíðum á vegarstæð- ið, einkum eftir regn. Umferð um veginn fylgdi því viðvarandi hætta. Vegurinn lok- aðist oft á vetram vegna snjóa og kostnað- arsamt var að halda honum opnum sem öðram fjallvegum. Hann nýttist því ekki nægilega vel. Þarfir byggðanna, beggja megin Múlans, stóðu til betri samgangna á landi. Þessvegna er horft til jarðganga í Ólafsfjarðarmúla. Pramkvæmdir hefjast í sumar. Máske ökum við í gegn um Múl- ann haustið 1991 eða sumarið 1992? Strákagöng við Siglufjörð Árið 1954 flutti Einar Ingimundarson, þingmaður Siglfírðinga, tillögu til þings- ályktunar um varanlegt akvegasamband við Sigluijörð. Snæbjöm Jónasson, nú vegamálastjóri, stóð fyrir þessari athugun 1955. Niðurstaða hennar var að tveir mögúleikar væra fyrir hendi: 1) Að leggja veg frá Hraunum í Fljótum um Mánár- skriður, Sauðanes og Strákafjall (utan í Qallinu) til Siglufjarðar. 2) Jarðgöng um Siglufj'arðarskarð úr Siglufjarðarbotni í Nautadal í Fljótum, 3,5 km. að lengd. Auðsætt þótti þá að hin síðari leiðin kæmi ekki til greina sakir kostnaðar. Næsti áfangi í málinu var síðan að Snæbjöm Jónasson og fleiri verkfræðingar hófu jarðvegsrannsóknir í Strákafjalli. Þær leiddu til ákvörðunar um gerð Stráka- ganga. Það var þó ekki fyrr en árið 1965 sem gangagerð um Stráka var boðin út. Síðan var stutt i framkvæmdir. Verktaki skilaði verkinu í septembermánuði 1968. Einangran Siglufjarðarkaupstaðar var loksins rofín. Milli 800-900 metra jarðgöng um fyallið Stráka tengdi kaupstaðinn við nærsveitir, austustu hreppa Skagafjarðar, og þjóðvegakerfíð. Bættar samgöngur milli Siglufjarðar og Skagafjarðar skapa skilyrði til margs kon- ar samstarfs milli Sigluijarðar, Fljóta og Fellshrepps (Sléttuhlíðar). Sjávarútvegs- pláss og sveitir, sem mynda atvinnusvæði, styrkja hvert annað. Kaupstaður með bak- land, landbúnaðarhérað, fær meiri breidd í atvinnu og afkomu. Fljótin, sem eiga framtíð fyrir sér, bæði í hefðbundnum búgreinum og ekki síður fískeldi, sem þar er vaxandi, gætu og margt sótt í Siglu- fjörð. Nánara samstarf þessara sveitarfé- laga um þá þjónustu, sem sveitarfélög annast, gæti komið öllum til góða. Sjávarútvegnr og atvinnuöryggi Flest grannríki okkar í V-Evrópu stríða við mikið atvinnuleysi. Víða era fímm til tíu af hundraði fólks á vinnualdri án at- vinnu. Ekkert brýtur einstaklinginn skjótar niður en atvinnuleysið; það að fínna sig utanveltu í önn hvunndagsins, kviku þjóðlífsins. Rétturinn til vinnu er raunar hluti af almennum mannréttindum. Hér á landi hefur sem betur fer tekizt um langt árabii að tryggja atvinnuöryggi, þó að staðbundið og tímabundið atvinnu- leysi hafí lítillega gert vart við sig hér og þar. Eldra fólk man þó vel atvinnuleysi kreppuáranna, 1930-1940, svarta áratug- arins í atvinnusögu þjóðarinnar. Þar var máske sárasti kapítulinn í sögu íslenzks launafólks frá því að þéttbýli tók að mynd- ast í landinu. Sveiflur í sjávarútvegi, undirstöðugrein þjóðarbúskapar okkar, valda því hinsveg- t il’f tt R 8? ________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988_35 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 28. maí Ólafsfjörður Hér á landi hef- ur sem betur fer tekizt um langt árabil að tryggja atvinnuöryggi, þó að staðbundið og tímabundið at- vinnuleysi hafi lítillega gert vart við sig hér og þar. Eldra fólk man þó vel atvinnuleysi kreppuáranna, 1930-1940, svarta áratugarins í at- vinnusögu þjóðar-^ innar. Þar var máske sárasti kapítulinn i sögu íslenzks launa- fólks frá því að þéttbýli tók að myndast í landinu. Gijóthrun á veginn um Ólafsfjarðarmúla. Ýta við ruðning. ar, að rekstrarstaða fyrirtækja hefur oft- lega verið slök. Og rekstraröryggi fyrir- tækja er hin hliðin á atvinnuöryggi fólks. Þegar sjávarafli dregst saman, til dæmis vegna veiðitakmarkana, eða verð sjávar- vöra fellur á erlendum mörkuðum, eins og nú hefur ítrekað gerzt, er atvinnuör- yggi, einkum í sjávarplássum, hætt. Inn- lendur tilkostnaður fískvinnslu hækkaði jafnt og þétt en tekjur drógust saman. Fjölmörg fískvinnslufyrirtæki sættu rekstrartapi, söfnuðu skuldum og stefndu að óbreyttu í stöðvun á skömmum tíma. Deila má um gengislækkun, sem gerð var til að tryggja rekstur sjávarútvegs- fyrirtækja, sem og hliðarráðstafanir, enda orkar flest tvímælis þá gert er. Það kemur þó úr hörðustu átt þegar „talsmenn" launa- fólks og landsbyggðar agnúast út í ráðstaf- anir til að styrkja stöðu sjávarútvegs og atvinnuöryggi í landinu, án þess benda á nokkrar aðrar marktækar leiðir út úr vand- anum. Gengislækkun ein leysir hinsvegar ekki vanda sjávarútvegs til frambúðar. Veiði- sókn er umfram veiðiþol. Frystihús fleiri en sjávarafli gefur tilefni til. Einhver upp- stokkun í sjávarútvegi sýnist nauðsynleg. í þeim efnum verður þó að ganga fram með gát vegna atvinnu-, byggða- og þjóð- hagssjónarmiða á líðandi stundu. Atvinnuvandi á Suöurlandi Sem fyrr segir hefur staðbundið at- vinnuleysi sagt tímabundið til sín hér og þar, þótt landsmenn hafí lengi búið við atvinnuöyggi á heildina litið. Þetta stað- bundna atvinnuleysi hefur fyrst og fremst tengst sveiflum í sjávarafla. Atvinnuvandi Sunnlendinga, einkum austan Þjórsár, er þó af öðram toga. Þrjár meginástæður liggja til grandvall- ar atvinnuvanda þeirra: í fyrsta lagi samdráttur í landbúnaði. Hann hefur fækkað störfum í margs kon- ar þjónustu við sveitimar sem og í úr- vinnslugreinum búvöru. Þessi samdráttur segir nær hvarvetna til sín í byggðalq'öm- um stijálbýlis. í annan stað rekstrarvandi í iðnaði, eink- um veijariðnaði, sem var og er nokkur í Suðurlandskjördæmi. í þriðja lagi, og síðast en ekki sízt, sam- dráttur og raunar stöðvun í virkjanafram- kvæmdum. Stórframkvæmdir í orkumál- um á þessu svæði drógu fjölda fólks til Suðurlands, sem og frá öðrum störfum á svæðinu, meðan á þeim stóð, enda mikil vinna og góðar tekjur í boði. Þegar fram- kvæmdum lauk vóra ekki tiltæk önnur sambærileg störf, að minnsta kosti ekki í nægilegum mæli. Vandamál landsbyggðarinnar og ein- stakra landshluta eru ekki ný af nálinni. Byggðastofnun hefur lengi fjallað um þau — og stutt við margs konar atvinnustarf- semi. Sérstök byggðanefnd þingflokka fór einnig ofan í saumana á landsbyggðar- vandanum og skilaði skýrslu þar um. Ljóst er að lausnin á vandanum er margþætt. Hér verður þó aðeins staldrað við einn þátt hennar. í umræðum á Alþingi um atvinnumál Sunnlendinga komst einn þingmaður kjör- dæmisins, Guðni Ágústsson, svo að orði: „Mér verður hugsað til Eyfirðinga. Þeir stofnuðu með sér iðnþróunarfélag. Þeir hafa með samstilltu átaki, vinnu og vilja sótt verkefni, sótt heil fyrirtæki hingað á þetta svæði og flutt heim í byggðina sína af því að þeir vora menn til þess og þeir stóðu saman. Þessvegna mæli ég með sam- vinnu sveitarstjómarmanna, eigenda fyrir- tækja og ríkisvalds.“ Fordæmi Eyfírðinga vakti athygli á ráð- stefnu Byggðastofnunar og Sambands íslenzkra sveitarfélaga á Selfossi síðastlið- inn vetur, sem haldin var um spuming- una: „Hefur byggðastefnan bragðizt“? Þeirri spumingu verður ekki svarað hér. Hitt má staðhæfa að Eyfirðingar bragðuzt ekki byggð sinni þegar þeir stofn- uðu Iðnþróunarfélag Eyfirðinga — til að styrkja atvinnuöryggið norður þar. Sveiflur í sjávarútvegi, undirstöðugrein þjóðarbúskapar okkar, valda því hinsveg- ar, að rekstrarstaða fyrirtækja hefur oft- lega verið slök. Og rekstraröryggi fyrir- tækja er hin hliðin á atvinnuöryggi fólks. Þegar sjávarafli dregst saman, til dæmis vegna veiðitakmarkana, eða verð sjávar- vöra fellur, eins og nú hefur ítrekað gerzt, er atvinnuöryggi, einkum í sjávarplássum, hætt... Það kemur úr hörðustu átt þegar „tals- rnenn" launafólks eða landsbyggðar agnú- ast út í ráðstafanir til að styrkja stöðu sjávarútvegs — og atvinnuöryggi í landinu...“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.