Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 ólst hún upp. Foreldrar hennar eru Hulda Bjömæs, Reykvfkingur, sem á ættir að rekja í Mýrdalinn og til Noregs, og Davíð Jónsson verk- stjóri hjá Vegagerð ríkisins, sem ættaður var úr Borgarfirði. Davíð lést, á besta aldri, árið 1957, en lát hans var EIlu ákaflega erfíð reynsla. Ella var elst fjögurra systk- ina. Næstur henni í aldursröð var bróðir, Jón Bjömæs, en hann lést á fyrsta aldursári, og svo systumar Hildur Hrönn og Marit. Hildur er búsett í Bandaríkjunum en Marit í Reykjavík. Haustið 1949 kynntumst við Ella, þegar við hófum nám í 1. bekk Verzlunarskóla íslands. Með okkur tókst fljótlega góð vinátta, sem efldist og styrktist er árin liðu og aldrei bar skugga á. Strax við fyrstu kynni vöktu athygli þeir eig- inleikar, sem voru svo ríkir í fari hennar, en það voru hógværð, sam- viskusemi og óvanalega mikil þrautseigja. Hún hafði líka ákaflega fallegt bros sem fylgdi svo mikil hlýja. Ella var áberandi falleg stúlka, sem vakti athygli hvar sem hún fór. Margar ógleymanlegar stundir áttum við saman innan skóla og utan næstu árin. Verzlunarprófí var lokið vorið 1953. Ella réð sig þá strax í vinnu á skrifstofu Samlags skreiðarframleiðenda og þar starf- aði hún nær óslitið þar til hún gift- ist árið 1960. Má með sanni segja að stjómendur Skreiðarsamlagsins hafí verið heppnir að njóta starfs- krafta hennar, enda hafði þáverandi forstjóri Samlagsins, Jóhann Þ. Jós- epsson, oft á orði að duglegri og samviskusamari starfskraftur væri vandfundinn. Fæmi hennar í vélrit- un var t.d. framúrskarandi, enda hafði hún hlotið „vélritunarbikar- inn“ fyrir ágætiseinkunn í vélritun á brottfararprófínu. Árið 1960 varð mikil breyting í iífí Ellu, en það ár giftist hún þýsk- um manni, Robert Greif, starfs- manni í þýsku utanríkisþjón- ustunni, sem starfað hafði um ára- bil við þýska sendiráðið í Reylq'avík. Fljótlega eftir giftinguna fluttu þau til Austur-Afríku vegna starfs Ro- berts. Þar fæddist eldri sonurinn, Stefán Bergur Davíð, og u.þ.b. tveim ámm seinna, er þau vom komin til Kanada, eignuðust þau annan son, Öm Robert. Þessir syn- ir urðu Ellu mikill gleðigjafí og af þeim var hún ákaflega stolt. I ár em þeir báðir að ljúka háskólanámi. Sem kunnugt er, fela störf við utanríkisþjónustuna í sér búferla- flutninga milli landa með nokkurra ára millibili. Það varð því hlutskipti hennar að búa í mörgum ólíkum löndum. Bjó hún t.d. um árabil, auk Austur-Afríku og Kanada, t Suður- Afríku, Bandaríkjunum, Englandi og nú síðast í Austurríki. Víst er, að margvíslegir erfíðleikar felast í því að þurfa sífellt að vera að taka upp heimili sitt og flytjast búferlum með fjölskyldu, að aðlagast nýjum siðum og aðstæðum. í þessu stóð Ella sig með hinni mestu piýði. Við þessar kringumstæður komu að góðum notum þrautseigja hennar og hæfíleikinn til að aðlagast og að gera gott úr öllu. Mikill gesta- gangur var ávallt á heimili hennar. Vinir og vandamenn komu gjaman og gistu um lengri eða skemmri tíma, auk allra hinna sem komu vegna starfs Roberts. í Ellu áttu íslendingar glæsilegan fulltrúa, sem ávallt var landi sínu og þjóð til sóma. Allir þeir sem nutu gest- risni, umönnunar og elskusemi hennar eru sammála um að þar hafí ekki verið mögulegt að gera betur. Hún heimsótti gamla Frón af og til og naut þess í ríkum mæli. Fjallið „sitt", Esjuna, varð hún að sjá sem oftast. Þótt dvölin á erlendri grund væri orðin löng, var Ella alltaf fyrst og fremst ís- lendingur, sem tengdist landi sínu sterkari tilfínningaböndum eftir því sem dvölin fjarri heimahögunum varð lengri. Þegar ég nú kveð kæra vinkonu með söknuði koma í hug mér orð Kahlils Gibrans, þar sem segir: „Þú skalt ekki hryggjast, jjegar þú skilur við vinn þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni." Og einnig: „Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öld- um lífsins, svo að hann geti risið upp i mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?“ Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur sendi ég ástvinum Ellu. Blessuð sé minning hennar. María Bergmann Kveðjuorð: Helga Ólafsdóttir, Höllustöðum Fædd 30. október 1937 Dáin 23. maí 1988 Lát hennar barst norður, þegar hvítasunnuhátíð var að ljúka og Siglfírðingar að ljúka fyrsta hluta 70 ára afmælishátíðar kaupstaðar- ins. Það fór ekki fram hjá nágrönn- um foreldra Helgu, heiðurshjón- anna Kristine og Ólafs Þ. Þorsteins- sonar, að stundin óumflýjanlega var skammt undan. Þau héldu til HöIIu- staða til að vera hjá bamabömum sínum. Helga fæddist á Siglufírði 30.10. 1937. Hún ólst upp hér ásamt Há- koni bróður sínum á sérstöku menn- ingarheimili foreldra sinna, sem í margra huga em hluti af Siglu- firði. Ólafur faðir hennar var við framhaldsnám í skurðlækningum í Noregi og kynntist hann þar sinni ágætu konu Kristine sem við hlið hans byggði hið fallega menningar- heimili, mótað af víðsýni, menntun og þroska. Ólafur var yfírlæknir Sjúkrahúss Siglufjarðar frá 1942 til 1976 eða tæp 35 ár. Bæjarstjóm Siglufjarðar samþykkti á fundi 29. október 1976 að gera hann að heið- ursborgara fyrir frábær störf í þágu bæjarfélagsins. Kristine Þorsteinsson lét félags- mál mikið til sín taka og þótt hún væri norsk fædd er hún hinn mæt- asti Siglfírðingur og var m.a. ein duglegasta driffjöðrin í Kvenfélagi sjúkrahússins og mörgum öðmm félögum. Málefni Siglufjarðarkirkju lét hún sig líka miklu varða og var formaður sóknamefndar í mörg ár. Þetta heimili, sem ég hef lítillega lýst, mótaði Helgu í æsku. Sagt er að umhverfíð móti manninn. Siglu- Qorður er umlukinn fjöllum á þrjá vegu, en opinn til hafs í norðurátt. Oft blæs köld norðanáttin inn fjörðinn okkar og andstæða hennar er hlýr samhugur fólksins sem byggir bæinn, þátttaka í gleði og sorg hvers annars. Eftir að Helga lauk skólanámi á Siglufirði fór hún I Menntaskólann á Akureyri eins og svo mörg önnur ungmenni gerðu frá Siglufírði, og lauk þaðan stúdentsprófí 1957. Elín G. Davíðsdóttir Greif - Minning Fædd 9. júlí 1935 Dáin 21. maí 1988 Útför vinkonu minnar, Elínar Guðnýjar Davíðsdóttur Greif, fer fram frá Dómkirlqunni mánudaginn 30. maí. Ella, en það var hún jafn- an kölluð af ættingjum og vinum, lést í sjúkrahúsi í Vínarborg að morgni laugardagsins 21. maí sl. Hun hafði átt við vanheilsu að stríða undanfarin misseri og hafði þurft að gangast undir tvo erfíða upp- skurði. Sjúkdómurinn sigraði að lokam. Ella var fædd í Reykjavík og þar SVNDU FYRIRHYGGJU SKÓLABÓK STYRKIR DIG í NÁMI Meö sparnaði á Skólabók ávaxtar þú sumarlaunin og ávinnur þér um leiö lánsréttindi. Hringdu eða líttu inn og kynntu þér möguleikana sem hún gefur þér. ■ '• _ • . - .j SAMVINNUBANKINN Þjónusta í þína þágu SUMARKJÖR: H CHEVROLET MONZA Við erum í sumarskapi og viljum stuðla að því að sem flestir geti farið í sumarleyfið á glænýjum Chevrolet Monza,fólksbíl sem hæfir íslensku vegakerfi. Þess vegna gefum við kr. 25.000 í sumargjöf með hverjum Monza seldum til mánaðamóta. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.