Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
44
hL/ÓLAÐ
í ÞÁGU
FATLAÐRA
í dag kl. 14.00
Hjólað verður í Kringluna frá eftirtöldum stöðum:
ÁRBÆJARSKÓLA LANGHOLTSSKÓLA
MELASKÓLA HÓLABREKKUSKÓLA
SEUASKÓLA AUSTURBÆJARSKÓLA
BREIÐAGERÐISSKOLA
BYKO - NÝBÝLAVEGI - KÓPAVOGI
KRINGWN
Hermann B. Hálfdán-
arson - Afmæliskveðja
Hermann B. Hálfdánarson, til
heimilis á Hverfísgötu 119,
Reykjavík, verður sjötugur mánu-
daginn 30. maí.
Hermann fæddist á Þingeyri við
Dýrafjörð 30. maí 1918, sonur hjón-
anna Jóhönnu Sigurðardóttur og
Hálfdánar Bjarnasonar trésmiðs.
Hermann fluttist til ísafjarðar
1932 og vann þar við sjómennsku
og smíðar. 1962 fluttist hann til
Reykjavíkur og starfaði meðal ann-
ars við húsasmíðar. Hann hóf starf
sem eftirlitsmaður á Borgarspítal-
anum þegar hann var tekinn í notk-
un og starfar þar enn.
Hermann er giftur Guðríði Mark-
úsdóttur, ættaðri frá Súðavík, eiga
þau einn son, Hálfdán flugvélstjóra,
giftur Erlu Ellertsdóttur, eiga þau
eina dóttur, Hrönn Guðríði, sambýl-
ismaður hennar er Þorsteinn Krist-
jánsson. Einnig ólu þau Hermann
og Guðríður upp fósturdóttur, Ás-
dísi Magnúsdóttur, gift Jóni Sig-
urðssyni lækni. Eiga þau 3 börn;
Sigurð Öm, Þorbjörgu og Hermann
Pál.
Hermann átti átta alsystkini;
Jósep, giftur Sigríði Gísladóttur,
Bjama, giftur Layfeyju Markús-
dóttur, em þau öll látin, Guðbjörgu,
gift Óskari Valdimarssyni, er hún
einnig látin, Harald, giftur Rögnu
Guðbjömsdóttur, Guðjón, giftur
Lám Hjartardóttur, Hreiðar, sam-
býliskona Álfheiður Jónsdóttir, Há-
varð, giftur Jóhönnu Jónasdóttur,
sem er látin, Rósu, gift Jóni Jens-
syni, sem er látinn.
Hálfsystkinin em fímm; Heið-
veig, gift Sigurbimi Þórðarsyni,
Jóhanna, gift Hauk Sigurðssyni,
Nanna, var gift Brynjari Gunnars-
syni, Oskar, giftur Dagnýju Jó-
hannsdóttur, Þorbjörg, gift Þor-
steini, en hún er látin.
Hermann tekur á móti gestum á
heimili sonar síns á Brúarflöt 6,
Garðabæ, laugardaginn 4. júní eftir
klukkan 18.00.
Vinur
£
*
2
Á
ALDREIFERSKARI'
ENEINMITTNÚ