Morgunblaðið - 29.05.1988, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
58
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
2. vélstjóra
vantar nú þegar á Garðar II SH-164.
Upplýsingar í síma 93-61200.
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu.
Málmiðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða málmiðnaðarmenn til
starfa í málmgluggadeild fyrirtækisins. Mötu-
neyti er á staðnum. Góð vinnuaðstaða.
Allar upplýsingar veitir framkvæmdastjóri.
T? ct "fj h IT _
Hafnarfirði, sími 50022.
Skólastjórastaða
Staða skólastjóra við Heimilisiðnaðarskólann
er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Sigurðar-
dóttir í síma 91 -73329 og í síma 91 -17800.
Heimilisiðnaðarfélag íslands.
Kennarar
Við grunnskólana í Kópavogi eru lausar til
umsóknar kennarastöður í heimilisfræðum,
myndmenntum, handmenntum, leikfimi
stúlkna, tónmenntum, dönsku, samfélags-
fræðum, stærðfræði, raungreinum, sér-
kennslu og almennri kennslu.
Upplýsingar á skólaskrifstofu Kópavogs,
Hamraborg 12, sími 41988.
Skólafulltrúinn í Kópavogi.
Atvinnurekendur -
nú er tækifærið
38 ára gamall maður með mikla og góða
reynslu í rekstri fyrirtækis og sem sölustjóri
hjá öðrum óskar eftir atvinnu hjá traustu
fyrirtæki. Óskað er eftir starfi viðkomandi
gjaldkerastörfum, útleysingu úr tolli og/eða
alhliða sölumennsku. Mjög góð meðmæli
fyrir hendi. Getur byrjað strax.
Tilboð sent auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Snjallræði - 1589“ fyrir 4. júní.
Sölustarf -
skrifstofustarf
Því miður þurfum við að auglýsa ofangreinda
stöðu þar sem núverandi starfskraftur hygg-
ur á frekara nám.
Starfið er sambland af sölumennsku og skrif-
stofustarfi. Það felst í sölu, ásamt síma-
vörslu, vélritun og reikningaútskrift.
Vinnustaðurinn er bjartur og rúmgóður sýn-
ingasalur þar sem allir hafa gaman af sinni
vinnu.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér ofan-
greint starf vinsamlegast leggið inn á auglýs-
ingadeild Mbl. nöfn ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf merkt:
„E - 1586“ fyrir 3. júní.
Sveitarstjóri
Laust er starf sveitarstjóra í Súðavíkur-
hreppi. Umsóknarfrestur er til 8. júní nk.
Frekari upplýsingar veita oddviti í síma
94-4899 og sveitarstjóri í síma 94-4912.
Símavarsla o.fl.
Starfskraftur óskast við símavörslu o.fl.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra.
Kokkur-
kjötiðnaðarmaður
Óskum að ráða kokk eða kjötiðnaðarmann
um lengri eða skemmri tíma.
Allar upplýsingar gefur Benedikt Lárusson í
símum 93-81306 eða 93-81230
Vöruhúsið Hólmkjör, Stykkishólmi.
Kennarar
Kennara vantar að Heppuskóla, Höfn.
Aðalkennslugrein er enska í 6.-9. bekk.
í boði eru ýmis hlunnindi.
Upplýsingar í síma 97-81321.
Skólastjóri.
Sölumenn - bóksala
Vantar sölumenn til starfa sem fyrst á Stór-
Reykjavíkursvæðið og út á land. Um er að
ræða þekkta bókaflokka, nýjar bækur og eldri
sígild verk, frá ýmsum stærstu bókaforlögum
landsins.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bíl til
umráða.
Allar upplýsingar gefur sölustjóri okkar, Jón
Kristleifsson, í síma 689133.
Bóksala Bjarna og Braga,
Bolholti 6.
Múrverk
Múrara og menn vana múrverki vantar í
vinnu. Upplýsingar í síma 641340.
IÁLFTÁRÓS HFI
SMIÐJUVEG 11200 KÓPAVOGI - S: 91-641340
Hálfsdagsvinna
Starfskraftur óskast hálfan daginn til að sjá
um heimili fyrir tvær manneskjur, 4 tíma á
dag á tímabilinu frá kl. 15.00 til 21.00.
Um er að ræða tiltekt, þvott á fatnaði og
eldamennsku (jurtafæði, ein kvöldmáltíð fyrir
tvo). Byrjunarlaun verða kr. 30.000 á mán-
uði. Upplýsingar um aldur og fyrri störf ósk-
ast sendar auglýsingadeild Mbl. merktar:
„A - 1585“ fyrir 10. júní.
Starfskraftur óskast
Lítil og traust heildverslun óskar eftir reglu-
sömum pilti eða stúlku til almennra skrif-
stofustarfa og snúninga í toll og banka.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 5. júní nk. merktar: „X - 3743“.
Plötusnúður
Plötusnúður óskast til starfa sem fyrst á eitt
vinsælasta diskótek landsins. Reynsla er
skilyrði. Lágmarksaldur 20 ára.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
1. júní merktar: „Diskótek - 8268“.
Lögfræðingur
Fulltrúi óskast til starfa á lögmannsstofu utan
Reykjavíkur. íbúð getur fylgt starfinu.
Þeir sem áhuga hafa leggi upplýsingar inn á
auglýsingadeild Mbl. merktar: „Fulltrúi - 6691 “
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál.
Bókhald
Óskum að ráða starfsmann til bókhalds-
starfa.
Aðeins vanur starfsmaður kemur til greina.
Um er að ræða 50-80% vinnu.
Við bjóðum sveigjanlegan vinnutíma.
Við erum ungt fyrirtæki í örum vexti.
Viðkomandi þarf að sjá um allt bókhald og
daglega umsjón með fjármálum.
Umsóknir sendist til auglýsingadeilar Mbl.
fyrir mánudaginn 6. júní merktar: „VT - 792“.
Kjötbúð - sjálfstætt
Sérverslun með kjöt og heitan mat óskar að
ráða dugandi mann sem verslunarstjóra.
Viðkomandi þarf að vinna sjálfstætt, hafa
góða innsýn í kjöt, kjötafurðir og matargerð.
Launafyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Með allar umsóknir verður farið með sem
trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Umsóknir, merktar: „Matur 88“, skilist inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 3. júní nk.
Deildarstjóri
Vaxandi fjármálafyrirtæki óskar að ráða
deildarstjóra til þess að sjá um og stjórna
vaxandi verðbréfakerfi og innheimtu. Mikil
tölvuvæðing. Umsækjandi þarf að geta unn-
ið sjálfstætt og haft mannaforráð. Æskileg
er verslunarmenntun og góð reynsla í með-
ferð skuldabréfa. Umsóknum sé skilað til
auglýsingadeildar Morgunblaðsins merktum:
„K - 1584“ eigi síðar en 3. júní nk.
Flutningastjóri
(logistik)
Starfið.: Nýtt starf í framleiðslu- og innflutn-
ingsfyrirtæki. Starfið felst í því að panta vör-
ur frá innlendum og erlendum aðilum og
fylgja pöntunum eftir.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og
viðkomandi þarf að hafa yfirsýn yfirflutninga-
tækni, flutningaleiðum svo og framleiðslu.
Leitað er að starfskrafti með haldgóða
menntun og gott vald á ensku og einu Norð-
urlandamáli.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „Q - 14516“ fyrir
6. júní nk.