Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
17
Ingegerd Nilsson í lokaatriði óperunnar.
allt er tónninn mannlegur, þar sem
ósætti og sátt togast á án þess þó
að halli um of á annan veginn. I
lok verksins rís manneskjan upp
úr sorginni, afklæðist skugga henn-
ar og lifir.
„Þú ert ávallt hjá mér,
aðeins stund er millum okkar
og tíminn er gegnsær,
eins og gler.“
Flutningstími óperunnar er rétt-
ur klukkutími og þrátt fyrir að verk-
ið væri flutt sem einn þáttur, er
efnisskipanin fjórþætt. Verkið hefst
á „Prolog", eins konar samtali hjón-
anna. Ifyrsti þáttur er svo dauða-
stríð mannsins, sjúkrahúsið, heim-
sóknartíminn, óráðshjal en lokaorð
hans eru:
„Ég finn,
er ég einhvem tíma
kemst úr þessu fangelsi,
stendur þú
og bíður eftir mér.“
Annar þáttur er eintal konunnar
en í þriðja þætti tekst hún á við
sorgina. Þannig er heildarform
óperunnar, að forspjallið er dúett,
fyrsti þáttur kvartett, annar eintal
og þriðji kvartett. Frá leikrænu
sjónarmiði kann að virðast lítið um
að vera og í uppfærslu verksins var
lögð áhersla á einföld form leik-
myndar. Þrír segldúkar voru
strengdir frá gólfi upp í loft og einn
snjáður leðurstóll stóð á miðju svið-
inu. Um þess einföldu leikmynd léku
ljósin og mynduðu áhrifamikið sam-
band flöktandi skugga og ljósflæðis
við leikverkið og tónlistina. Leik-
stjórinn stýrði framvindu verksins
með einföldum og oft áhrifamiklum
uppsetningum söngvaranna en
gætti þess einnig að skiptingamar
væru tengdar saman með markviss:
um hreyfíngum söngvaranna. í
heild var leikmyndin því einkar
stílföst og samofín texta og tónlist.
Tónlist Karólínu Eiríksdóttur er
Karólína Eiriksdóttir.
einföld og skýr og víða mjög áhrifa-
rík. Tónferli söngraddanna er lag-
rænt og á köflum tóntegundabund-
ið í gerð en meira leikið með frjálsa
tónskipan í hljómsveitinni. Stundum
er „tematíkin" í hljómsveitarrödd-
unum þó nokkuð of áberandi, eins
og t.d. þegar ein tónhugmynd er
notuð sem þrástef verður aðferðin
jafnvel svo ljós að hún greinir sig
frá og dregur athygli hlustandans
frá söngnum. í nokkrum samsöngs-
atriðum náði Karólína að leika með
feikna falleg tónbrigði og samspil
söngs og hljómsveitar var oft mjög
áhrifamikið. Gagnsær ritháttur
Karólínu á hér einkar vel við í sam-
spili söngs og hljómsveitar.
Upphaf óperunnar er mjög fal-
legt. Konan situr ein í leðurstólnum
en skuggamynd mannsins birtist á
tjaldinu fyrir aftan hana. Þau heija
sönginn án undirleiks á orðunum
„Þú ert“. Þeim er svarað með þýðri
klamettlínu og þannig lætur Kar-
ólína sönglínumar oft heyrast án
undirleiks, svo að samspil hljóm-
sveitar og söngvara myndar eins
konar tilfínningalegt samtal, eins
og t.d. í niðurlagi verksins með
samspili fíðlu og söngraddar, er
konan syngur:
„Þú ert
svo samgróinn mér
að ég dey
og ég dey
með þér.“
... Flytjendumir stóðu sig frá-
bærlega vel. Einkum var söngur
Ingegerd Nilsson áhrifamikill, þó
söngur hinna væri ömggur og
kunnáttusamlega útfærður. Hljóm-
sveitin var ágæt en sýningunni
stjómaði Per Borin af miklu öryggi.
Með óperunni Nágon har jag
'sett, hefur Karólína Eiríksdóttir
unnið markverðan listasigur og
vonandi verður óperan flutt heima
á íslandi hið fyrsta.
Þú safnar liði og vinnur
utanlandsferð
í Fjarka-bónus
Safnaðu Fjörkum með nöfnum sjö mismunandi landsliðs-
manna í handknattleik eða sex mismunandi stórmeistara í
C A A skák og þú færð Fjarka-bónus, utanlandsferð að eigin vali
j Saga ciass með Flugleiðum.
CLASS Þú ert fljótari að fá vinning ef þú færð þér fjóra Fjarka í einu.
Það vinna fleiri í Fjarkanum - fjórði hver Fjarki ber að
jafnaði vinning. Fáðu þér fjóra Fjarka í einu. .