Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 1
JMttgtndHiittfr PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988 BLAÐ P.r ibni. nn-’ siá FLESTIR íslendingar eru sammála um að Gullfoss sé ein dýrmætasta perla íslenskrar náttúru. Margir hinna erlendu gesta sem heimsækja landið á ári hverju eru sama sinnis. Sígilt er að fara með útlendinga í skoðun- arferð að Gullfossi og Geysi og oft eru þessir staðir það eina sem útlendingar skoða hér á landi í stuttum heim- sóknum sínum. Ibókinni Landið þitt segir að Gull- foss sé í tveimur þrepum og 32 metrar á hæð að báðum með- töldum. Fossinn steypist niður í hrikalegt og fagurt gljúfur sem er allt að því 70 metra djúpt. Gljúfrið er um 2500 metra langt, skorið niður í berggrunninn á síðustu 10000 árum. Það svarar til 25 sm á ári. Gullfoss er nú í eigu ríkisins en áður var hann í eigu Brattholtsjarðar í Árnessýslu. Um tíma komst hann í eigu erlends hlutafé- lags sem ætlaði sér að virkja hann. Þessu var þó afstýrt og var það mest að þakka þáverandi eiganda og ábúanda Brattholts, Sigríði Tómasdóttur. Stór landspilda með- fram Hvítárgljúfri við Gullfoss er í eigu ríkis- ins. Þetta land tilheyrði áður jörðinni Bratt- holti en eigandi Brattholts, Einar Guð- mundsson, gaf ríkinu spilduna til að um- hverfi fossins fengi vernd samkvæmt nátt- úruverndarlögum. Margir ferðamenn telja að ekki sé nægi- lega mikið gert fyrir umhverfi Gullfoss. Bent er á að þar vanti snyrtiaðstöðu og umgengni sé ekki nógu góð. Nú horfa þessi mál til betri vegar því hugmyndir að nýjum skipulagstillögum gera ráð fyrir róttækum breytingum á aðstöðu ferðamanna við Gull- foss. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi þetta mál við nokkra hlutaðeigandi, fulltrúa Náttúruverndarráðs og Njörð Jónsson, nú- verandi bónda í Brattholti. gj^ BLg 14fi Hugmyndir um bœtta aöstööu feröamanna viÖ fossinn skoÖaÖar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.