Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 14
a 44 B MORGUNBLAÐIBj SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988 Gullfoss í sumar hefur stórt svæði við Gullfoss, neðan bilastæðanna, verið lokað allri umferð vegna gróðureyðingar. Morgunblaðið/HÞI ÞÓRODDUR F. ÞÓRODDSSON FRAMKVÆMDASTJÓRINÁTTÚRUVERNDARRÁÐS: Brýn þörf á úrbótum Morgunblaðið/KGA Þóroddur F. Þóroddsson framkvæmda- stjóri Náttúruverndarráðs. AÐ sögn Þórodds F. Þór- oddssonar framkvæmda- stjóra Náttúruverndarráðs var Gullfoss og næsta ná- grenni hans vestan Hvítár friðlýst samkvæmt Nátt- úruverndarlögum þann 9. mars 1979 og er svæðið friðland. Allar fram- kvæmdir og breytingar á fyrirkomulagi umferðar við Gullfoss heyra því beint undir Náttúruvernd- arráð. Friðlandið við Gullfoss er það svæði sem Einar Guðmundsson í Bratt- holti gaf ríkinu með af- salsbréfí dagsettu 11. desember 1976. Um friðlandið gilda m.a. þær reglur að mannvirkjagerð og jarðrask og aðrar breytingar á svæðinu eru óheimilar án leyfís Náttúruvemdarráðs og akstur utan vega og merktra ökuslóða er bann- aður. Ekkert gert undanfarin ár Árið 1978 voru fyrst kynntar til- lögur frá Ferðamálaráði um þjón- ustumiðstöð við Gullfoss. Frá þeim tíma hefur lítið verið gert fyrir umhverfí Gullfoss. „Undanfarin ár hafa menn rætt um það hér í Náttúruvemdarráði og víðar hvaða stefnu skyldi taka varðandi Gullfoss. Sumir töldu að í engu bæri að hrófla við umhverfi fossins og vildu því engin mann- virki á svæðinu. Einnig ræddu menn mikið um umfang þeirrar ferða- mannaþjónustu sem þar skyldi rek- in og um staðsetningu mannvirkj- anna. Allt tók þetta langan tíma og fyrst núna eru menn alveg sam- mála um þessa hluti. Annað sem hefur hindrað að- gerðir við Gullfoss er fjárskortur. Náttúruvemdarráð hefur takmörk- uð fjárráð og undanfarin ár hafa þeir peningar verið notaðir til upp- byggingar í þjóðgörðunum tveimur, í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum.“ Snyrtiaðstaða og veitinga- sala í smáum stíl Að sögn Þórodds gera samþykkt- ar tillögur ráð fyrir því að þjónustu- miðstöð verði staðsett uppi á gljúf- urbarminum, ofan núverandi bíla- stæða. Þaðan á að liggja vandaður göngustígur niður að núverandi bílastæði við fossinn. „Þjónustumiðstöðin verður vænt- anlega hönnuð þannig að mögulegt verði að stækka hana til að mæta auknum fjölda ferðamanna. Hug- myndin er að í miðstöðinni verði salemi fyrir ferðamenn og veitinga- aðstaða fyrir 120-150 manns þar sem hægt verður að kaupa kaffi, kökur og brauð. Þar verður einnig ferðamannaverslun og sérstakt fræðsluherbergi fyrir ferðamenn. Loks er gert ráð fyrir því að í mið- stöðinni verði aðstaða fyrir eftirlits- mann svæðisins. Bensínsala verður líklega í sérstöku húsi skammt frá þjónustumiðstöðinni." í sumar fóru fulltrúar Náttúru- vemdarráðs, Ferðamálaráðs og Biskupstungnahrepps í skoðunar- ferð að Gullfossi ásamt fulltrúum úr fjárvetinganefnd Alþingis. Þá voru aðstæður við fossinn kjmntar ásamt núverandi tillögum til úrbóta. „Fulltrúar fjárveitinganefndai' voru mjög jákvæðir og sammála því að úrbóta væri þörf. Nú þarf að komast að niðurstöðu um nánara skipuiag, stærð hússins og fram- kvæmdahraða áður en hafíst verður handa. EINAR SÆMUNDSSEN LANDSLAGSARKITEKT: Mannvirki við fossinn verða látlaus EINAR Sæmundssen landslagsarkitekt á sæti í Náttúruverndarráði og er kunnugur skipulagshugmyndun- um við Gullfoss. Að sögn Einars verður Kjalvegur fluttur til og mun hann í framtíðinni liggja vestar en núver- andi vegur. Á milli hins nýja vegar og gljúfurbarmsins, skammt ofan við núverandi bíla- stæði, verður nýja þjónustumiðstöð- in reist. Mannvirki látlaus „Það er ríkjandi sjónarmið að öll mannvirki við Gullfoss verði lát- laus. Þau eiga að falla vel inn í Morgunblaðið/HÞI Ætlunin er að í framtíðinni verði göngustígar við Gullfoss fleiri en nú og vandaðri. Stígurinn á mynd- inni hefur reynst mörgum ferðamanninum Þrándur í Götu í sumar enda hentar hann betur til hindrun- arhlaups en gönguferða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.