Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
■ Ekkja Barschels og bróöir á blaðamannafundi eftir lát Barschels.
Þau hafa œtfð haldið því fram að um morð hafi verið að ræða.
SPD-mönnunum og skýrir þeim frá
atburðarásinni fram til þessa. Hann
virðist sármóðgaður yfir því að hafa
ekki fengið að taka þátt í fundahöld-
um Barschels og samstarfsmanna
hans. Auk þess segist hann orðinn
þreyttur á Barschel og ógeðfelldum
aðferðum hans.
Barschel leggur gildru
fyrir Pfeiffer
Morguninn eftir hringir Barschel
í Pfeiffer og biður hann að útvega
sér hlerunartæki. Skýringuna á þess-
ari undarlegu ósk segir hann vera
þá að von sé á tæknimönnum daginn
eftir og það myndi koma sér illa fýr-
ir Engholm ef hlerunarbúnaðurinn
fyndist. Pfeiffer tekst ekki að útvega
tækin og leggur heldur ekki mikið á
sig til þess. Eftir á að hyggja er
líklegast að Barschel hafi viljað
leggja gildru fyrir Pfeiffer. Hann
grunaði undirmann sinn um að hafa
lekið upplýsingum í Spiegel. Ef Pfeif-
fer kæmi hlerunarútbúnaðinum fyrir
þá gæfí hann um leið höggstað á sér.
Laugardaginn 12. september, dag-
inn fyrir kosningamar, býður Barsc-
hel nokkrum blaðamönnum og sam-
starfsmönnum til síðdegisboðs í til-
efni kosninganna. Skömmu fyrir
klukkan fjögur hringir síminn. Það
er fréttamaður frá sjónvarpinu sem
spyr forsætisráðherrann út í ásakan-
ir sem fram komi í nýjasta hefti Der
Spiegel. Blaðamaður Die Welt lýsir
þeim Barschel sem sneri aftur svo:
„Hann er ekki samur maður: Hvítur
sem vofa Hamlets leitar hann í ör-
væntingu að orðum: Ég verð að segja
ykkur nokkuð. Nokkuð ótrúlegt hef-
ur gerst." Á blaðamannafundi um
kvöldið vísar Barschel öllum ásökun-
um á bug. Hann íhugar að setja lög-
bann á upplag vikuritsins en lögfræð-
ingar ráða honum frá því, það sé of
seint. Sömuleiðis hafnar hann þeirri
hugmynd að sveija strax eið að því
að hann sé saklaus.
Á kosningadag birtir Bild am
Sonntag frétt undir yfirskriftinni
„Skítkast fyrir kosningar" og á þá
greinilega við grein vikuritsins. Með
fréttinni birtist mynd af Pfeiffer inn-
an um ógrynni af vínflöskum sem
vakti þá hugmynd með lesandanum
að hér væri óáreiðanleg fyllibytta á
ferð. Þess var hins vegar ekki getið
að maðurinn hefði verið dálkahöf-
undur um matargerðarlist og vínteg-
undir.
í viðtali við ZDF-sjónvarpsstöðina
og Suddeutsche Zeitung segist Pfeif-
fer hafa yfirgefið Barschel af sam-
viskuástæðum. Verkefnið að útvega
hlerunarbúnað hafi gert útslagið.
í fylkiskosningunum fær CDU
42,6% atkvæða, lægsta hlutfall frá
1958, PDP fær 5,2% og SPD 45,2.
Upp kemur pattstaða á þinginu því
FDP neitar að vinna áfram með CDU
fyrr en málið liggi ljóst fyrir.
Barschel eða Pfeiffer — hvor seg-
ir sannleikann? Þetta er spumingin
sem Vestur-Þjóðveijar velta fyrir sér
þá stundina. Skoðanakönnun í
Slésvík-Holtsetalandi sýnir að 36%
trúa orðum Barschels, 16% Pfeiffer
og 48% eru á báðum áttum.
Stundarsignr
Um þetta leyti fer Barschel að búa
sig undir blaðamannfund sem hann
hélt föstudaginn 18. september þar
sem hann sór þess eið að ásakanir
á hendur sér væru ekki á rökum
reistar. Hann byijaði á þvl að fá
einkaritara sinn, Brigitte Eichler, til
að skrifa undir yfirlýsingu þar sem
sagði að hún vissi ekki til þess að
afrit af skattaákæru á hendur Eng-
holm hefði komið inn á borð forsætis-
ráðherrans, að Pfeiffer hefði ekki
verið einn af nánustu samstarfs-
mönnum forsætisráðherrans og að
hún sjálf hefði pantað viðgerðar-
mennina sem líta áttu á símann hjá
Barschel. Eichler var reiðubúin að
skrifa undir tvö fyrri atriðin sem
hvorugt var þó sannleikanum sam-
kvæmt en hún hikaði varðandi
síðasta atriðið. „Þér pöntuðuð við-
gerðarmennina sjálfir," segist Eichl-
er hafa sagt við Barschel. „En trúið
þér á Guð fröken Eichler?," spurði
Barschel þá. „Ekki er ég heittrúuð
en ég trúi á Guð,“ svaraði hún. „Og
viljið þér að SPD nái völdum hér um
slóðir?" spurði þá ráðherrann. Eichler
segist hafa gengið á brott að svo
stöddu.
Blaðamannafundurinn er mikill
stundarsigur fyrir Barschel. í eina
og hálfa klukkustund geta áhorfend-
ur um gjörvallt Þýskaland fylgst með
ráðherranum hrekja fréttaflutning
Der Spiegel og framburð Pfeiffers
lið fyrir lið að því er virðist. Máli
sínu til stuðnings leggur Barschel
fram skriflegan eið átta manna.
Hann klykkir út með þvf að rekja
vafasama fortíð Pfeiffers til að sýna
hversu óáreiðanleg manneskja er þar
á ferð.
En brátt verður nánum samstarfs-
mönnum Barschels ljóst að eiðsvarin
yfirlýsing hans kemur ekki að öllu
leyti heim og saman við raunveru-
leikann. Carl Hermann Schleifer,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, minnist þess til dæmis að Barsc-
hel hafi vitað um ákæruna á hendur
Engholm fyrir skattsvik í febrúar
þótt í yfirlýsingu Barschels segi að
hann hafí fyrst lesið um hana í Spieg-
el. Pjölmiðlar í Slésvík-Holtsetalandi
eru heldur ekki ánægðir með þá
ákvörðun yfirvalda að banna öðrum
en blaðafulltrúum stjómarinnar að
tjá sig um málið. Grunur vaknar jafn-
vel hjá traustustu stuðningsmönnum
ríkisstjómarinnar um að eitthvað sé
að fela.
Barschel segir af sér
Hinn 25. september tilkynnir Uwe
Barschel afsögn sína. Sennilega
vegna þess að daginn áður frétti
forsætisráðherrann að í tölvu í inn-
anríkisráðuneytinu væru skráð öll
símtöl frá Húsinu við fjörðinn, að-
setri stjómarinnar. Því var hægt að
sanna að símtöl hefðu átt sér stað
sem Barschel hafði fram að þessu
ekki viljað gangast við. Opinberlega
sagðist Barschel vera að taka á sig
pólitíska ábyrgð á verkum Pfeiffers.
Þegar hið nýkjöma þing í Kíl kem-
ur saman er fyrsta verkefni þess að
fela rannsóknamefnd að fara í sau-
mana á embættisfærslu Barschels.
Daginn eftir, á fyrsta fundi nefndar-
innar, kemur fram að Barschel vissi
þegar í febrúar um hina nafnlausu
skattaákæru á hendur Engholm og
ýmislegt bendir til að forsætisráð-
herrann hafi sjálfur staðið þar að
baki. Eftir því sem fram líða stundir
koma fleiri vitnisburðir til sögunnar
sem styðja frásögn Pfeiffers um að
hann hafí í þjónustu Barschels gert
ýmislegt misjafnt til að koma höggi
á Engholm.
Líkt og Pfeiffer, sem farinn var í
fri til Portúgals, ákveður Barschel
að eyða tveimur vikum á Kanaríeyj-
um. En stuttu eftir komuna þangað
hringir Erich Samson, lögfræðingur
hans, og segir að hann verði að snúa
hið snarasta aftur vegna vitnaleiðslu
hjá rannsóknamefndinni. Barschel
grét í símann að sögn lögfræðings-
ins.
Hver er Roloff?
Laugardagsmorguninn 10. októ-
ber kvaddi Barschel eiginkonu sína,
Freyju, á Gando-flugvelli á Kana-
ríeyjum. Barschel sagðist verða kom-
inn aftur eftir tvo til þijá daga. Hún
segir eiginmann sinn hafa ætlað að
hitta mann að nafni Roloff á flugvell-
inum í Genf en þar hugðist Barschel
hafa viðkomu á leiðinni til Kílar.
Roloff þessi hafði að sögn Freyju
hringt og boðið upplýsingar sem
gætu hrakið framburð Pfeiffers. í
minnisblöðum Barschels er einnig
minnst á þennan Roloff. Þar segir
að hann hafi í fórum sínum mynd
af Pfeiffer með manninum sem stæði
á bak við allt saman. Á lúxushótelinu
Beau-Rivage í Genf skrifar Barsc-
hel: „Nærri lá að allt færi í vaskinn.
Gat þó hitt R.R. eftir að hafa ekið
nokkra hringi í kringum flughöfn-
ina.“
Hver er þessi Roloff sem Barschel
á að hafa hitt helgina sem hann lést?
Margt bendir til að Barschel hafi
fundið hann upp til að koma höggi
á Pfeiffer að sér látnum og vekja
grunsemdir um tildrög dauða síns.
Athugasemdimar á minnisblöðunum
eru margar hveijar augljós skáld-
skapur eins og það að hafa ekið
marga hringi í kringum flugvöllinn.
Auk þess sem fara þyrfti yfir landa-
mæri Frakklands og Sviss til að kom-
ast í kringum völlinn hefur viðkom-
andi leigubílstjóri sagst hafa ekið
Barschel beint á hótelið.
Eftir að hafa hitt bróður sinn
síðdegis f Genf fór Barschel upp á
hótelherbergi og pantaði sér eina
flösku af rauðvíni. Þjónninn sem
færði honum flöskuna um klukkan
18:30 er líklega sá síðasti sem sá
Barschel á lífí.
Á hádegi daginn eftir finna blaða-
maður og ljósmyndari Stern lík
Barschels í baðkari á herbergi 317.
Á rúminu sem var uppábúið lá eitt
bindi úr ritsafni Jean-Pauls Sartre.
Framarlega er frásögn sem heitir
„Veggurinn" en hana hefur Barschel
að öllum líkindum lesið: „Á þessu
andartaki fannst mér eins og ég sæi
líf mitt í einni sjónhendingu. Og ég
husaði með mér: Þetta er ein hélvít-
is lygi. Það er einskis virði meir. . .“
I maga hins látna fundust leifar
af þrenns konar róandi lyflum auk
stórs skammts af svefnlyfinu cyclo-
barbital. Ættingjar Barschels neit-
uðu að taka aðra skýringu en morð
gilda. Lögregluyfirvöld í Sviss gáfu
hins vegar út þá yfirlýsingu eftir
krufninguna að Barschel hefði tekið
inn svefnlyf eftir að hafa neytt ró-
andi lyfja. Sá úrskurður hefur nýlega
verið dreginri í efa og segja sumir
eiturefnafræðingar að Barschel hafí
verið orðinn meðvitundarlaus vegna
róandi lyfja þegar hann fékk ban-
væna skammtinn af svefnlyfinu.
Höggvið að rótum lýðræðis
Hinn 27. október fór fram minn-
ingarathöfn um hinn látna í dóm-
kirkjunni í Lubeck. í prédikun sinni
fórust Ulrich Wilckens biskupi svo
orð: „Hinn sviplegi dauði Uwe Barsc-
hels, forsætisráðherra, í ólgusjó
hneykslismála, snertir ekki einungis
fjölda fólks persónulega heldur angr-
ar og samvisku okkar vegna þess
þjóðfélags sem við hrærumst í . . .
A meðan það er talin skömm að
missa völdin, á meðan valdatöku
nýrra manna er líkt við heimsendi,
þá er hin aldagamla hætta fyrir hendi
að valdafiknin höggvi að rótum hins
lýðræðislega samfélags. Og ég óttast
að við höfum fyrir augum sjúkleika
sem varð ekki einungis Uwe Barsc-
hel að falli heldur hefur og tekið sér
bólstað í svo mörgum öðrurn."
Klaus Staeck, myndlistarmaður í
Heidelberg, hafði hins vegar þetta
um málið að segja: „Hvað er hættu-
legra en stjómmál? Og hvað er mikil-
• vægara en stjómmál? Sá sem heyrir
stjórrimálamönnum hallmælt ætti að
koma þeim til vamar og sá sem heyr-
ir yfirlýsingar eins og þá að stjóm-
mál séu nú einu sinni valdabarátta
þar sem tilgangurinn helgar meðalið
ætti að mótmæla kröftuglega. Snúist
maður ekki stjómmálunum til vamar
heldur tekur undir þegar sagt er
„Allir stjómmálamenn eru spilltir"
hvemig er þá hægt að greina á milli
Uwe Barschels og Bjöms Eng-
holms?"
Páll Þórhallsson tók saman
TILBOÐ OSKAST
í Chevrolet Blazer S-10,4x4, árgerð ’85 (ekinn 26 þús mílur) og Ford Tempo
GLárgerð ’84, ásamt öðrum bifreiðum erverða sýndar á Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 23. ágúst kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Skyndisala
á kuldaskóm og grófum
götuskóm!
Allt að 70%
afsláttur
Stærðir: 28-36
SMÁSKÓR,
Skólavörðustíg 6b
(gegnt Iönaðarmannahúsinu).
Póstsendum.
Sími 622812.
Dæmi:
Aður: kr. 3.150.-
Nú: kr. 1.575.-