Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 34
34 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988 IJR UEIHI EVIEAtyNEANNA Apinn kemur upp í manninum- eða öfugt „Hann hefur gert fínustu myrkrafantasíu síðan David Cronenberg endurgerði Fluguna árið 1986 og bestu apamynd síðan hin upp- runalega King Kong var gerð.“ Þannig tekur kvikmyndagagnrýnandi Time til orða og slík ummæli hljóta að vekja athygli. Ekki síst þegar umtalsefnið er hrollvekjuleikstjórinn George A. Romero („Night of the Living Dead"), sem hefur ekki verið í sérstöku uppáhaldi virtra gagnrýnenda, og nýjasta myndin hans, „Mon- key Shines: An Experiment in Fear“. Myndin hefur víðast fengið góð ummæli en hún fjallar um fjölfatlaðan laganema sem hefur þjálfaðan apa sér til aðstcðar er uppfyllir allar hans óskir. Allan (Jason Beghe) heitir neminn en hann lenti í bílslysi með þeim hörmulegu afleiðingum að hann getur varla hreyft putta. Honum er sagt að líta á björtu hliðarnar: „Þú færð öll bestu bílastæðin." En fyrir Allan er hann nær dauðanum en lífinu. Móðirin (Joyce Van Patten) brotnar saman, kærastan stingur af með lækninum sem vel má vera að hafi klúðr- að aðgerðinni, hjúkrunarkonan hans er sadisti sem er uppteknari af páfagaukunum sínum en sjúklingnum og besti vinur Allans er brjálaður vísindamaður (John Pankow) sem gerir tilraun- ir með apa. Einn af þeim er Ella en hún hlýtur þjálfun í að aðstoða fatlaða. Og Allan fær Ellu, sem er algjör draumur. Hún nær í hlutina, matar Allan og hreinsar jafnvel gluggana. Ap- inn sér um allar hans þarfir og á endanum sér hann líka um að veita reiði Allans gagnvart kærustunni, lækninum o.s.frv., blóðuga útrás. Apinn tekur völdin. „Þetta er Jekyll og Hyde-saga,“ segir leik- stjórinn Romero. „Apinn verður yfir-sjálf mannsins. Ella vekur dýrseðlið í honum." Það eru um tvö ár síðan Romero fékk áhuga á skáldsögunni „Monkey Shines" eftir Michael Stewart og sá í henni möguleikann, eins og alltaf, á að „skemmta fólki á yfirborðinu en vekja það til umhugsunar undir niðri“. Myndin var tekin í Pittsburg (uppáhalds tökustað Romeros síðan hann gerði „Night of the Living Dead") og margir úr kvikmyndalið- i„Monkey Shines" hafa unnið með honum við allar hans níu myndir. Það er haldið nokkuð aftur af ofbeldinu í myndinni (rafmagnsdauði í baðkari er t.d. ekki sýndur), sem mörgum þykir furðulegt fyrst myndin er gerð af manni sem vanur er að bera á borð fyrir fólk afturgöngur í leit að mannlegum aukabita. En Romero segir: „Handritið sagði fyrir um hversu mikið of- beldið skyldi vera. Ég meina, api getur ekki allt.“ Romero var spurður að því nýlega hvernig það hafi verið að vinna með öpum og hann svaraði:,, Það er allt í lagi en mjög ólíkt því sem maður hefur áður gert. Við gerðum margar upptökur. Aparnir geta einfaldlega sagt nei. Þeir eru mjög vel þjálfaðir og gera hlutina vel í hléum en þegar myndavélarnir voru komnar í gang neituðu þeir oft að framkvæma það sem þeir áttu að gera eða þeir fóru að fylgjast af áhuga með einhverju eða einhverjum. Það var erfitt." George A. Romero með nýja gœludýrið sitt, apann Ellu. Það eiga ófáir eftir að liggja í valnum eftir að Ella kemur til sögunnar. Ben Kingsley og Helen Mirren tala við leikstjórann James Dearden meðan tökur á „Pascali’s Island” stóðu yfir. James Dearden: Lífið eftir Hættuleg kynni í tuttugu ár hefur Basil Pascali sent skýrslur sínar um letilegt lífið á grískri eyju undir tyrkneskri stjórn til soldánsins í Konstantínópel. En þegar fyrri heimsstyrjöldin nálgast og endalok tyrkneskra yfirráða á eyjunni vofa yfir taka spurningar að leita á hann. Hver hefur lesið skýrslur hans? Hvers vegna hefur þeim aldrei verið svarað? Og um- fram ailt, hvaða merkingu hefur þetta líf bréfaskrifta haft? Mitt í hugarvíl hans kemur til eyjarinnar skuggalegur breskur fornleifafræðingur. Pascali dregst að þessum utanaökomandi manni og konunni sem er með honum í för, málaranum Lydiu. Úr því verð- ur ástarþríhyrningur og eins og sjálft Ottomanveldið færast þessar þrjár persónur sífellt nær sinni eig- in tortímingu. Þannig er sagan í myndinni „Pascali's Island" (Eyja Pascalis), sem James Dearden hefur skrifað og leikstýrt með Ben Kingsley, Charles Dance og Helen Mirren í aðalhlutverkunum. Þið munið eftir Bretanum Dearden. Síðast þegar hann tók upp pennann varð útkom- an Hættuleg kynni („Fatal Attrac- tion“). En Eyja Pascalis er fyrsta myndin sem hann leikstýrir. Þær gætu ekki verið ólíkari. Löngu áður en „Attraction" fór í gang hafði áhugi Deardens kveiknað á sögu Barry Unswort um Pascali. „Mér fannst hún falleg, margslungin og ég sá byggingu hennar fyrir mér í kvikmyndalegum skilningi þegar ég las bókina, sem skrifuð er í formi bréfaskrifta til soldánsins," segir Dearden. „Sér- staklega þótti mér Pascali dásam- leg persóna og að fá sterkan leik- ara til að leika hann gerði verkef- nið enn skemmtilegra." Dearden sá Kingsley fyrir sér í hlutverkinu strax í upphafi og hinn virti leikari samþykkti þegar að leika Pascali. En meira um Hættuleg kynni. Sú umdeilda mynd varð til úr hand- riti Deardens að stuttmyndinni „Diversion" frá árinu 1979. Hún var um mann sem hringir í vinkonu sína eftir að eiginkonan hefur farið í ferðalag um helgina og þau hitt- ast. Eitt leiðir af öðru en svo fara hlutirnir úr böndunum þegar vin- konan fer að hringja heim til hans þegar eiginkonan er komin aftur. En eftir að eiginkonan hefur svarað einu sinni í símann hætta hringing- arnar og sagan endar. „Þetta var lítil dæmisaga um hættur fram- hjáhaldsins. Menn og konur kom- ast upp með það í 99 prósent til- fella en mig langaði að fjalla um þetta eina prósent sem brennir sig á því." Seinna sáu bandarísku framleið- endurnir Stanley Jaffe og Sherry Lansing „Diversion" og báðu hann að fylla útí söguna. Hann hófst handa. „Til að gera hana að mynd fyrir fjöldann vissi ég að ég yrði að stigmagna hið sálfræðilega of- beldi sem að lokum yrði líkamlegt. Þannig varð sagan um Manhattan- fólkið Dan og Alex til. Þegar Dan reynir að draga sig útúr stuttu Á milli Hare og Hitchcock Við upptökur á „Paris by Night“; David Hare undirbýr skot af Charlotte Rampling. „Sem höfundur hef óg alltaf haft áhuga á að brjóta upp hefð- bundin viðbrögð við hlutum. Fólk gengur um og heldur að það viti hvað það hugsi um hlut- ina en í fyrsta lagi kannar fólk sjaldnast oní kjölinn hvað það trúir á. Og í öðru lagi þegar það stendur frammi fyrir raunveru- legri list þá rennur upp fyrír því að það trúir í rauninni ekki þeim hlutum sem það hélt sig trúa á. Mikil list fær þig til að sjá að þú trúir því ekki sem þú taldir þig trúa.“ Skilið? Sá sem hór talar er breski leikritahöfundurinn og kvikmyndaleikstjórinn David Hare („Plenty") en hann hefur nú gert nýja mynd, sem er þrill- er, og heit ir „Paris by Night" eða París um nótt. f myndinni leikur Charlotte Rampling vin- sæla og metnaðargjarna stjórn- málakonu sem hefur lítinn tíma til að sinna eiginmanni sínum og syni. Hún þolir ekki óagaða framkomu, hún hatar óreiöu og hún hleypir henni ekki inní líf sitt. Myndin sýnir hvað gerist þegar hún missir tökin. „Ég mundi lýsa myndinni sem skapgerðarkönnun á nýrri teg- und bresks kvenfólks," segir Hare, sem skrifaði einnig hand- ritið. „Hún er úrtak á vissu hug- arástandi sem nýlega hefur gert vart við sig í Bretlandi og víðar { Vestur-Evrópu. Aðalpersónan trúir á marga heimskulega og lítt hugsaða hluti, hefur litla þolinmæði fyrir öðru fólki, frem- ur hryllilegan hlut í myndinni en samt vildum við láta kenna i brjósti um hana. Viö vildum koma áhorfendum í þá stöðu að þeir hefðu mikla samúð og skilning á einhverjum sem þeir ættu, eftir öllum regl- um sem þeir halda aö þeir trúi á, að kunna illa viö. Þú getur séð að hún gerir hrylliiega hluti, samt er eins og þér geti ekki verið illa við hana en þér getur heldur ekki líkað við hana. Það er hræðilega erfitt fyrir áhorf- andann sem er auövitað einmitt það sem ég vil." Helsta áhyggjuefni hans þessa stundina er hvort þetta innihald henti þrillerforminu. „í venjulegum þriller eru góðir gæjar og vondir gæjar en sjaldn- ast nokkur persónusköpun," segir hann. „Það þarf enginn að segja þér hver Harrison Ford er; hann er góði gæinn og þeg- ar þú veist það getur þú hallaö þér aftur og notið ferðarinnar." En hver er uppruni myndar- innar? „Allt þetta hófst vegna þess að ég skrifaöi einu sinni kvikmyndahandrit („Saigon: Year of the Cat") er filmað var í Bangkok, sem er einhver versta borg á jörðinni, og ég sat einn daginn við vegarspotta með þessum fúla skurði með- fram honum en skammt frá var flugbraut og hraðbraut en Step- hen Frears (leikstjórinn) og Judi Dench (stjarnan) sátu með mér. Dench snéri sér allt ( einu að mér og sagði: „Drottinn minn, getur ekki næsta mynd sem þú skrifar bara verið um mig á in- dælu hóteli í París?" Hann skrifaði fyrsta uppkas- tið að handriti á sex vikum en það tók hann fjögur ár að gera myndina. Eitt af helstu vanda- málunum var að fé einhvern til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.