Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988 Trúið þér á Guð, fröken Eichler? „EFTIR að borgin Kíl öðlaðist heimsffrægð undir lok fyrri helmsstyrjaldar fyrir uppreisnina sem lamaði flota keisarans féll hún í gleymsku eins og svo margt annað í Þýskalandí, skrifar rithöfundurinn Giinter Grass. Nú er borgin við fjörðinn aftur komin í heimsfréttirnar; að þessu sinni vegna hneykslismáls sem í fyrstu hét Pfeiffer-Spiegel-málið síðan Pfeiffer-Barschel-mélið og að lokum einfaldlega Barschel-málfð. Afsögn og dauði Uwe Barschels lóðu hneykslinu évenju mikið vægi þótt segja megi að éhróður um pólitískan andstæðing sé ekkert nýnæmi. Barschel-málið er sannarlega ekkert einsdæmi, því hefur verið líkt við Watergate í Bandaríkjunum og það er í raun ekki alvarlegra en margt annað hneykslið í sögu Vestur-Þýskalands. En atburðir síðastliðins árs í höfuðstað Slésvíkur-Holtsetalands hafa samt öðrum f remur orðið mönnum tllefni til vangaveltna um samviskuleysi stjórnmálamanna, óviðurkvæmileg tengsl fjölmiðla og stjórnmála og almenna hnignun pólitískrar siðmenningar. aður á mínum aldri, þ.e.a.s. rétt ný- búinn að slíta bams- skónum, hefur heyrt um óprúttna kosningabaráttu á íslandi þar sem svívirðingamar gengu leynt og ljóst manna í millum. Sú tíð er liðin hér- lendis en slíkt á sér enn stað í Vest- ur-Þýskalandi. Konrad Adenauer, fyrsti kanslari Sambandslýðveldisins Vestur-Þýska- lands, kunni þá kúnst að finna snögga bletti á andstæðingnum og höfða til múgmennskunnar. Hann spáði „endalokum Þýskalands" fyrir hveijar kosningar á sjötta áratugn- um ef Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) ynni sigur. Hann sagði SPD eiga rætur í Moskvu og árið 1961 reyndi hann að hafa áhrif á skoðan- ir almennings á mótframbjóðanda sínum, Willy Brandt, með því að vísa til þess að Brandt væri óskilgetið bam. í kosningabaráttunni það sama ár spurði Franz Jósef Strauss: „Við eigum rétt á því að spyrja herra Brandt: Hvað höfðuð þér fyrir stafni í 12 ár í útlöndum? Við sem voram í Þýskalandi vitum hvað við gerð- um.“ Þessi athugasemd Strauss var sérlega óforskömmuð því Brandt átti fótum fjör að launa undan nasistum vegna andspymu sinnar við þá. Öðravísi en meirihluti þeirra kjós- enda sem Strauss höfðaði til og lyftu hvorki hendi né fæti gegn nasistum í Þriðja ríkinu. í ljósi þessa er hátta- lag Kristilegra demókrata (CDU) í Barschel-málinu ekkert einsdæmi heldur einungis hið furðulegasta og óprúttnasta. Skjótur frami Uwe Barschel, fæddur 13. maí árð 1944, var metnaðarfullur ungur maður. Á meðan flestir jafiialdrar hans vora uppteknir við að krefjast ■ Uwe Barschel og elglnkona hans, Freyja, eftlr kosnlngaó- sigurlnn 13. september 1987. Frásögn af undirferli, rógburði og dularfullum dauðdaga í Genf aukinna áhrifa á námið í háskólanum varð hann sér úti um tvöfalda dokt- orsnafnbót, bæði í lögfræði og stjóm- málafræði. 25 ára gamall varð hann varaformaður CDU í Slésvík-Holtset- alandi. 27 ára komst hann á fylkis- þingið í Kíl. 29 ára gamall var hann orðinn þingflokksformaður; 35 ára fjármálaráðherra í stjóm Gerhards Stoltenbergs. Þegar Stoltenberg var gerður að fjármálaráðherra í sam- bandsstjóminni í Bonn undir forsæti Helmuts Kohls var sjálfgefið hver tæki við sem leiðtogi flokksins í Slésvík-Holtsetalandi. í mars 1983 vann Barschel stóran kosningasigur, flokkur hans fékk 49% atkvæða og hreinan meirihluta á þinginu í Kíl. Barschel gat sér orð fyrir að vera harðlínumaður í pólitík. Sem inn- anríkisráðherra í Slésvík-Holtsetal- andi safnaði hann saman stærsta lögregluliði í sögu V-Þýskalands til að dreifa 50.000 manna hópi kjam- orkuandstæðinga við Bokdorf. „Hörku verður að beita þar sem hennar er þörf,“ sagði ráðherrann. Honum féll ekki alls kostar við starfs- bróður sinn í sambandsstjóminni, Gerhart Baum, úr flokki fijálslyndra demókrata. í augum Barschels var hann of fijálslyndur enda skrifaði hann m.a. í lesendabréfi til vikurits- ins Der Spiegel: „Slq'ólstæðingar Baums era fyrrverandi hryðjuverka- menn og baráttumenn fyrir hjóna- bandi manna af sama kyni.“ En eftir 42 ára sigurgöngu kom að því að Barschel þyrfti að láta í minni pokann. í sveitarstjómarkosn- ingum í Slésvík-Holtsetalandi í mars árið 1986 biðu Kristilegir demó- kratar mikinn ósigur. Barschel kenndi sambandsstjóminni um ósig- urinn við lítinn fögnuð margra flokksbræðra sinna. Horfumar fyrir fylkisþingkosningamar 1987 vora ekki sem bestar. Mótframbjóðand- inn, Bjöm Engholm, fyrram mennta- málaráðherra Vestur-Þýskalands, kom vel fyrir og naut í skoðanakönn- unum sama fylgis og forsætisráð- herrann. Margur jafnaðarmaðurinn fallinn í valinn Nú vora góð ráð dýr. Barschel sneri sér því til Peters Tamms, for- stjóra Axel Springer-útgáfunnar, og bað um aðstoð við að finna blaða- mann sem gæti starfað tímabundið sem einn af blaðafulltrúum fylkis- stjómarinnar. Ifyrir valinu varð Rainer Pfeiffer, sérfræðingur í „rannsóknarblaða- mennsku" þegar SPD-stjómmála- menn vora annars vegar. Margur jafnaðarmaðurinn hafði fallið í valinn fyrir penna Pfeiffers. Hans Stefan Siefritz lét af embætti sem fulltrúi f byggingamefnd í Bremen eftir að Pfeiffer upplýsti í blaðinu Weser Report að hann hefði 17 ára gamall látið andgyðingleg ummæli sér um T rey stum þ ví að almenningur viti betur en stjómmálamenn segir Björn Engholm, forsætisráðherra Slésvíkur-Holtsetalands ÞAÐ reyndist ekkl auðvelt að nð tall aff Birnl Engholm, fforsœtlsrððherra f Slðsvfk-Holtsetalandl, þegar blaðamaður var staddur f Kfl, höfuðborg fylklslns, ð dögunum. Rððherrann var mjög uppteklnn enda ekki nema þrjðr vlkur sfðan hann tók vlð embntti og gat hann því ekkl hltt mlg ð skrlffstofu sinnl. Þess f stað fðkk ðg að ffljóta með er rððherrann bauð til slgllngar f Kílarflrði í tllefni Kflarvlkunnar. Þegar ég kom nlður ð bryggju morgunlnn tlltekna ðsamt fylgdarkonu mlnnl beið múgur og margmennl eftir að komast um borð í dalllnn þrðtt fyrlr kalsaveður. Fylgdarkona mfn tróð okkur f remst í röðlna við landganginn. Fengum við svo að stíga fyrst um borð sem blaðamenn. Nú var allt á huldu um hvort Engholm hefði tíma til samtalsins þrátt fyrir allt en ég hafði ákveðið að slá til upp á von og óvon. Á efstu þiljum var lagt á borð fyrir mörg hundrað manns að því er virtist. Við settumst við hliðina á borði þar sem stóð „res- erviert" í þeirri trú að þar myndi Engholm ætlað sæti. Þegar ég virti fyrir mér fólkið um borð datt mér helst í hug að Engholm hefði boðið með sér elliUfeyrisþegum. En skömmu eftir að landfestar höfðu verið leystar drandi djúp rödd Eng- holms í hátalara og bauð hann félaga úr Jafnaðarmannaflokknum vel- komna um borð. Þeim væri með þessu auðsýnt þakklæti fyrir vel unnin störf í þágu flokksins og sam- félagsins. Skömmu síðar kom Eng- holm í salinn ásamt fylgdarliði og settist, viti menn, við borðið við hlið- ina á mér og fylgdarkonu minni. Honum var fagnað ákaft, hljómsveit skipsins lék létta sveiflu og margir komu og heilsuðu upp á ráðherrann. Furðaði ég mig á því að allir þúuð- ust enda ekki í samræmi við reynslu mína af Þjóðveijum. Fylgdarkona mín sagði mér þá að flokksbræður í Jafnaðarmannafiokknum þúuðust ætíð. Þegar borin hafði verið fram baunasúpa, með pylsubitum í, hin kjambesta fæða, gaf ritari Engholms merki um að ráðherrann væri reiðu- búinn að svara nokkram spumingum og fer viðtalið hér á eftir. Mætti ég biðja þig fyrst að lýsa því fyrir mér hvemig Kristilegir demókratar í Slésvík-Holtsetalandi skildu við eftir tæp 38 ár á valda- stóli? í fyrsta lagi heyrir þessum arfi til að Slésvík-Holtsetaland er ekki pólitískt undir nútímann búið. Þá á ég sérstaklega við sameiginlegan markað Evrópubandalagsins sem komið verður á árið 1992. Ef ekki verður gripið til harkalegra aðgerða þá verðum við óhjákvæmilega undir í samkeppninni. I öðra lagi er fylk- ið stórskuldugt. Á þessu ári einu hefur einn milljarður marka bæst við skuldaklafann vegna vaxta. Fjárhagslega er fylkið á barmi gjaldþrots. Möguleikamir fyrir framtíðina era því fremur litlir. í þriðja lagi hefur pólitískt landslag í fylkinu verið mótað áratugum saman af afturhaldsmönnum. Menn eiga því ekki að venjast að jafnaðar- menn haldi um stjómtaumana. Því verður embættismannakerfið að læra að umgangast núverandi pólitískan meirihluta. Hvemig hefur samstarfið við embættismennina farið af stað? Betur en ég bjóst við. Flestir eru bersýnilega stjómvöldum hollir og haga sér í samræmi við vilja kjós- enda sem veittu okkur eindreginn stuðning. Á mínu valdsviði hef ég ekki lent í vandræðum. í einstökum ráðuneytum gengur samstarfið stóram dráttum vel. Ég held að eftir ársfjórðung eða hálft ár verð- um við með hjálp nýrra manna- ráðninga búnir að lagfæra það sem nú er til vandræða. Heyrst hefur að lögreglan eig að beita mildari aðferðum í viður-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.