Morgunblaðið - 11.09.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
25
Þing um upp-
eldismál
Uppeldismálaþing verður
haldið dagana 24. september og
15. október nk. á vegum Hins
íslenska kennarafélags og Kenn-
arasambands íslands. Fyrra
þingið verður haldið i Sjallanum
á Akureyri og hið síðara í Borg-
artúni 6 í Reykjavík.
Efni uppeldismálaþinganna er
skólaþróun og verða haldnir þrír
fyrirlestrar: Hanna Kristín Stefáns-
dóttir kennari fjallar um hlut kenn-
ara í skólaþróun. Fyrirlestur Ingv-
ars Sigurgeirssonar kennslufræð-
ings ber heitið „Námsefnið — þarf-
ur þjónn eða harður húsbóndi" og
loks flytur Húgó Þórisson sálfræð-
ingur fyrirlestur um uppeldisþáttinn
í skólastarfi.
Á dagskrá eru einnig 13 styttri
erindi um kannanir og nýbreytni í
skólastarfi og gefst þátttakendum
kostur á að hlýða á 2 þeirra.
Efni þingsins, skólaþróun, varðar
alla kennara á hvaða skólastigi sem
þeir starfa, enda er markvisst starf
að skólaþróun forsenda allra fram-
fara í íslenskum skólum.
(Fréttatilkynning)
Kópavogur:
Vetrarstarf
Hjálparsveit-
ar skáta
Vetrarstarf Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi fer nú að hefj-
ast. Þann 14. september nk. verð-
ur haldinn kynningarfundur í
húsnæði sveitarinnar, Hafnar-
skemmunni við Hafnarbraut í
Kópavogi, kl. 20.30.
Þeir sem náð hafa 17 ára aldri
og áhuga hafa á að starfa með
sveitinni mæti stundvíslega kl.
20.30. (Fréttatilkynning)
Leigumiðlun
húseigenda
tekur til starfa
LEIGUMIÐLUN HÚ SEIGENDA
hf., löggilt leigumiðlun, hefur
hafið starfsemi að Armúla 19 í
Reykjavík. Fyrirtækið annast og
sér um leigu á ýmis konar hús-
næði svo sem íbúðum, verslunar-
húsnæði, iðnaðarhúsnæði,
geymslum o.fl. Leigumiðlunin
aflar leigjenda og skráir þá án
gjaldtöku. í tengslum við leigu-
miðlunina er rekin Fasteignasal-
an Borg hf. og Lögstofan hf.
Meðal þjónustuþátta Leigumiðlun-
ar húseigenda eru bankábyrgð á
leigugreiðslum, innheimta gjaldfall-
innar leigu, eftirlit með leiguhús-
næði, ábyrgð á eðlilegu skilaástandi
leiguhúsnæðis, hreingemingaþjón-
usta, viðhalds- og viðgerðaþjónusta,
upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta,
vátryggingaþjónusta, skoðun við
upphaf og lok leigutíma ásamt lög-
fræðiþjónustu lögmanns.
Aðaleigandi nefndra fyrirtækja og
framkvæmdastjóri er Ólafur Gránz,
byggingameistari. Sameigandi og
leyfishafi er Barði Þórhallsson, hér-
aðsdómslögmaður.
í vetur bjóða þaulvanir fararstjórar Flugleiða
nýja og gamalreynda farþega velkomna til hinnar
fögru eyjar, GRAN CANARIA. Þar fara náðugir
dagar í hönd á þægilegum gististöðum, íslenskum
Kanaríförum að góðu kunnir, t.d. San Valentin
Park og Corona Blanca. Tveir nýir staðir eru
Broncemar og Barbacan Sol.
Beint dagflug til Gran Canaria:
Föstudaginn 04.11. ’88, 3ja vikna ferð
» Föstudaginn 25.11. ’88, 25 daga ferð
7 Þriðjudaginn 20.12. ’88, 22ja daga ferð
S Miðvikudaginn 11.01. ’89, 3ja vikna ferð
s Miðvikudaginn 01.02.’89, 3ja vikna ferð
| Miðvikudaginn 22.02.’89, 3ja vikna ferð
* Miðvikudaginn 15.03.’89, 3ja vikna ferð
Miðvikudaginn 05.04.’89, 3ja vikna ferð
Verðdæmi: Frá kr. 48.400* á mann miðað við
þrjá saman í íbúð á BRONCEMAR í 3 vikur.
Brottför 4. nóvember.
* Staðgreiðsluverð miðað við gengi 29.8.’88. Verð án
flugvallarskatts.
Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni;
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIÐIR
fyrir þíg
FÍRDASKRIFSTOFAN ÚRVAí
- fólk sem kann sitl fag!
Pósthússtrœli 13 - Sími 26900
SHmíðstöoin
Aðalstræti 9, Sími: 28133
FERÐASKRIFSTOFA
oTvxvm
Hallveigarstíg 1, Sími: 28388
FERDASKRIFSTOFAN
POLAfí/S
Kirkjutorgi 4 Sími 622 011
Feróir
SlMI 641522 HAMRABORC I J
larandi
VESTUHGÖTU 5 • REYKJAVÍK • SÍMI 622420
FERÐASKRI FSTOFA
REYKJAVÍKUR
ADALSTRÆTI 16 101 Rfc YKJAVIK
SÍMI 621490