Morgunblaðið - 08.10.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
O.N. Olsen á ísafírði:
Starfsmenn hindr-
uðu útskipun rækju
Viðræður í gangi um kaup á þrotabúinu
STARFSMENN rækjuverksmiðju O. N. Olsen á ísafirði komu í gær
i veg fyrir að tækist að skipa út talsverðu magni af rækju sem fúll-
unnin var áður en til gjaldþrots fyrirtækisins kom. Rækjan var full-
veðsett Landsbanka íslands og hefðu tekjur af sölunni runnið til
hans. Að sögn Lilju Sigurgeirsdóttur talsmanns starfsmannanna
vakti það fyrir starfsmönnunum, sem alls eru um 20, að krefjast
ógreiddra launa frá fyrirtækinu. Starfsmenn hafa ekki fengið greidd
iaun frá því í ágústmánuði og áttu þriggja vikna laun inni þegar til
gjaldþrots kom. Fólkinu hefiir ekki verið sagt upp. Þtjú tilboð hafa
borist í eigur þrotabúsins.
Fundur veðkröfuhafa í þrotabú
O. N. Olsen hefur samþykkt að
ganga til samninga við Ama Sig-
urðsson á ísafirði sem átti hæst
þriggja tilboða sem gerð vora í
þrotabúið. Árni bauð 152 milæljón-
ir króna í eignir og rekstur verk-
smiðjunnar. Arni mun, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, vera í
félagi við Ásgeir Erling Gunnars-
son, framkvæmdastjóra Pólstækni,
Bjöm Hermannsson á ísafirði, Jón
GuðlaugMagnússon, framkvæmda-
Heimsbikar-
mótið í skák::
Glæsileg-
ursigur
hjá Tal
HEIMSMEISTARINN fyrr-
verandi, Mikhail Tal, sýndi
að lengi lifir í gömlum glæð-
um, þegar hann vann skák
sina við Speelman í 4. umferð
Heimsbikarmóts Stöðvar 2 á
glæsOegan hátt. Upp kom
Pirc-vörn í byrjuninni og
bauð Speelman jafiitefli f 21.
leik. Því boði svaraði Tal með
því að fórna manni og vinna
síðan skákina í 34. leikjum.
Önnur úrslit í 4. umferð,
urðu þau, að Jóhann Hjartarson
vann Margeir, skák Spassky
og Nicolic fór í bið, jafntefli
gerðu Sokolov og Portisch og
Kasparov og Ribli. Þá varð
jafntefli í skák Korstnoj og
Anderson og Nunn og Júsúpov.
Beljavsky vann Ehlverst í 21.
leik sem teljast verður óvenju-
legt í jafnsterku móti.
stjóra Marbakka í Kópavogi og
Eirík Böðvarsson framkvæmda-
stjóra Niðursuðuverksmiðjunnar hf
á ísafirði. Mun ætlun þeirra að
stofiia hlutafelag um reksturinn og
yrðu stærstu hluthafar þeir Ámi
Sigurðsson og Bjöm Hermannsson
með 17% eign hvor. Veðkröfuhafar
veittu þeim félögum frest fram yfir
helgi til að mæta ákveðnum skilyrð-
um um Qármögnun og tryggingar.
Auk Áma Sigurðssonar bauð Guð-
mundur Sigurðsson á Hnífsdal 121
milljón í fyrirtækið og Óttar Yngva-
son í Reykjavík bauð 112 milljónir.
Að sögn Lilju Sigurgeirsdóttur
var horfið frá útskipun rækjunnar
vegna mótmæla starfsmannanna.
Jaftiframt var þeim tjáð að skýr
svör um hvenær af launagreiðslum
yrði fengjust ekki fyrr en ljóst yrði
hvort tækist að selja fyrirtækið.
Komi tíl ábyrgðar af hálfu ríkis-
sjóðs munu greiðslur samkvæmt því
f fyrsta lagi geta komið í desember-
mánuði. Lilja sagði að starfsmenn-
imir myndu ráða sér lögfræðing til
að gæta hagsmuna sinna strax eft-
ir helgi, það héfði þegar dregist úr
hömlu.
Orvar HU 21.
• •
Orvar HU 21 bæði með
mest verðmæti og afla
Frystitogarinn Örvar HU 21
var að loknum ágústmánuði
það skip, sem bæði mestan afla
hafði þá fært á land og verð-
mætastan. Örvar hafði þá aflað
4.421 tonn að verðmæti 290,4
miRjónir króna. AIls höfðu á
þessum tíma 7 frystitogarar
aflað fyrir meira en 200 mil\j-
ónir króna og 15 ísfisktogarar
fyrir meira en 100 mil^jónir.
Akureyrin EA 10 er í öðra
sæti frystiskipa með 281 milljón
og 4.263 tonn og í þriðja sæti er
Venus HF 519 með 215,8 milljón-
ir og 3.574 tonn. Örvar hafði á
þessum tíma landað 13 sinnum,
Akureyrin 10 sinnum og Venus 8
sinnum.
Af ísfísktoguram er Guðbjörg
ÍS 46 að vanda með mest afla-
verðmæti, en tveggja þriðju hluta
þess er aflað með sölu erlendis.
Aflaverðmætið er alls 157,5 millj-
ónir og aflinn 3.484 tonn. í öðra
sæti er Bessi ÍS 410 með 139,2
milljónir og 3.265 tonn. 85 millj-
ónir fékk Bessi fyrir sölu afla er-
lendis. í þriðja sæti er Vigri RE
71 með 137,8 milljónir króna og
2.554 tonn. 116,5 milljónir fékk
Vigri fyrir sölu afla erlendis.
Af toguram frá Vestmannaeyj-
um til Snæfellsness náðu þrfr að
fiska fyrir meira en 100 milljónir,
Breki, Ottó N. Þorláksson og
Sturlaugur H. Böðvarsson, en
Ottó var jafnframt með næstmest-
an afla yfir allt landið, 4.314 tonn.
Á Vestfjörðum fóra fímm yfír 100
milljónir, Bessi, Guðbjörg, Gyllir,
Júlíus Geirmundsson og Slétta-
nes. Arnar var eini togarinn á
Norðurlandi, sem náði þessu
marki, en sala afla erlendis af
þessu svæði er minni en frá öllum
öðram landshlutum. Á AustQörð-
um öfluðu Gullver og Snæfugl
fyrir meira en 100 milljónir. Fimm
stórir togarar náðu þessu marki,
Engey, Viðey, Víðir, Vigri og
Ögri.
Seðlabankinn gerði athuga-
semd við tillögur eins banka um
vaxtalækkun, eftir að bankarnir
skiluðu inn tillögum sínum f gær-
morgun. Flestir bankanna leggja
til lækkun nafnvaxta á bilinu 4
tU 5 prósent. Allir leggja til raun-
vaxtalækkun á bilinu 0,25 til 0,50
prósent. Sverrir Hermannsson
bankastjóri Landsbankans segist
ekki vera sáttur við þessar lækk-
anir, hann sjái ekki tilefiii til
þeirra. Vaxtabreytingar bank-
anna verða ákveðnar á mánudag.
Viðskiptabankamir sendu Seðla-
bankanum tillögur sínar um vaxta-
ákvarðanir í gærmorgun. Seðla-
bankinn hafði farið fram á að bank-
ar og sparisjóðir lækkuðu nafnvexti
um 5 prósentur og raunvexti
0,75 prósentur.
„Það sem við höfum era þeirra
hugmyndir, eða drög, að breyting-
um,“ sagði Eiríkur Guðnason að-
stoðarbankastjóri í Seðlabankanum
í gær. Eiríkur sagði að hugmyndim-
ar væra um nafnvaxtalækkun allt
um un um
Togarasmíði Stálvíkur:
Marokkómenn þurfa að fá
1,1 milljarð króna að láni
Leitað til Norræna flárfestingabankans
JÓN GAUTI Jónsson fram-
kvæmdastjóri Stálvfkur segir að
kaupendur togaranna 10 f Mar-
okkó sem Stálvík hefúr samning
um að smíða þurfi að fá helming
samningsupphæðarinnar að láni.
Sem kunnugt er hljóðar samn-
ingsupphæðin upp á 2,3 milljarða
króna og því er hér um 1,15
rnilljarða króna lán að ræða.
Stálvík hefúr sent gögn um mál-
ið til Norræna Qárfestingabank-
ans og hyggst leggja þar inn láns-
umsókn fyrir fyrrgreindri upp-
hæð.
Aðspurður um hvort Stálvík hafi
aflað sér upplýsinga um greiðslu-
getu og lánstraust kaupenda togar-
anna í Marokkó segir Jón Gauti svo
vera. Hafi Landsbankanum borist
bankayfirlýsing frá virtum dönsk-
um banka um það og hafi Lands-
bankinn tjáð Stálvík að sú yfirlýsing
sé jákvæð.
Hvað varðar tryggingu fyrir því
láni sem veita þarf kaupendum seg-
ir Jón Gauti að hún felist einkum
í veðrétti í skipunum sjálfum. Einn-
ig komi til ríkisábyrgð af hendi
Marokkóstjómar. Sé hún mismun-
andi mikil eftir byggingartíma tog-
aranna og eftir þeim lánum sem
tekin verða.
Jón segir að stjómvöld í Marokkó
standi ekki að baki kaupunum heid-
Stálvfk hyggst sefja 10 togara þessarar gerðar til Marokkó.
Bankarnir leggja til minni
vaxtalækkun en beðið var um
Ekki tilefiii til raunvaxtalækkana, segir Sverrir Hermannsson
ur aðilar í öðru Arabalandi og hafi
þeir aðilar fullt traust banka eins
og greint er frá í dönsku bankayfir-
lýsingunni.
að 5 prósentum og raunvaxtalækk-
0,25 til 0,50 prósentur.
Seðlabankinn gerði athugasemd við
drög eins bankans, sem lagði til
minna en 4 prósenta lækkun. Tveir
bankanna lögðu t.il 5 prósenta lækk-
un nafnvaxta. Hver banki fyrir sig
leggur fram tillögur um vexti og
era tillögumar jafnt um útlán sem
innlán.
Á mánudag verður endanleg
ákvörðun tekin um vextina, á
grandvelli þessara tillagna bank-
anna að fengnu samþykki Seðla-
banka. Breytingamar taka gildi
þann 11. október næstkomandi, en
einhver hluti þeirra þó ekki fyrr en
þann 21.
Stefán Pálsson bankastjóri Bún-
aðarbankans sagði þann banka hafa
lækkað í takt við hugmyndir Seðla-
bankans, en var að öðra leyti ekki
reiðubúinn til að tjá sig um breyt-
ingamar.
Sverrir Hermannsson bankastjóri
Landsbankans sagðist vera ákaf-
lega staður við þessar breytingar.
„Eg sé ekki tilefni raunvaxtalækk-
unar,“ sagði Sverrir. „Þetta er há-
mark nafnvaxtalækkunar sem ég
gat fyrir mitt leyti fallist á. 0,5
prósent lækkun raunvaxtanna varð
niðurstaðan og 5 prósent á hinu og
læt það vera. Menn verða að fara
með mikilli gát. Það er væntanlega
ekki tilætlan nokkurs manns að
hrugga við eða stórskaða spamað-
arhyggju fólks. Við þurfum að gera
allt annað. Það er eyðslusemin í
þjóðfélaginu sem við verðum að
fara að venja fólk af, en ekki öfugt
eins og gert væri með óvarkámi í
þessum sökum," sagði Sverrir Her-
mannsson.