Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 21 Starfenám í matvæla- iðnaði hefet eftir helgi Óþroskaður flármagusmarkaður Heimildarmenn Morgunblaðsins við þessa athugun bentu margir á, að ekki væri tímabært að krukka í lánskjaravísitöluna nú og enn síður að afnema hana. Það misgengi sem menn óttast og kann að verða á milli launa og lánskjaravísitölu ætti fremur að leiðrétta með vöxtum. Ýmist var talað um vaxtaákvarðan- ir, eða að markaðurinn lagaði sig að þessu ástandi. Bent er á, að fjár- magnsmarkaðurinn á íslandi hefur haft mjög skamman tíma til að aðlaga sig nýfengnu frelsi á pen- ingamarkaðnum og því ekki óeðli- legt að einhverjir vaxtarverkir fylgi aðlöguninni. „Afhám“ vísitölunnar Ríkisstjómjn hefur boðað afnám vísitölunnar. í yfirlýsingu um fyrstu aðgerðir segir: „Ríkisstjómin ætlar sér að koma í veg fyrir víxlverkan- ir verðlags og lánskjara, þegar jafn- vægi í efnahagsmálum er náð.“ Þetta hefur verið túlkað svo, að afnema eigi verðtryggingu, stund- um kallað að afnema vísitöluna. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra segir í samtali við Morg- unblaðið: „Ég tel að við eins og aðrar þjóðir verðum að losa okkur úr þessari víxlverkun vísitölu á ýmsum sviðum og sérstaklega á sviði fjármagns." Um tímasetningu þessarar gjörðar segir Steingrímur: „Ég hef sjálfur sagt, að mér finnist það vera mælikvarði þegar verð- bólga er komin niður fyrir 10 af hundraði í þrjá mánuði." Þetta er stærra mál en kann að sýnast í fyrsta tilliti. Fyrsta spum- ingin er: Hvað á að verða um þegar gerða samninga sem fela í sér verð- tryggingarákvæði? Er ætlun stjóm- valda að ógilda ákvæði þeirra? Á að banna mönnum að semja um verðtryggingu skuldbindinga? Á að afnema Olafslög, eða þau ákvæði þeirra sem lúta að verðtryggingu íjármuna? Samningsfrelsi í áliti Verðtryggingamefndar segir. „Ein af grundvallarreglum samningsréttarins er reglan um frelsi til samningsgerðar. í þeirri grundvallarreglu felst að aðilum sé ftjálst að semja um hvað eina, sem ekki er talið andstætt lögum eða velsæmi. Gmndvallarreglan um samningsfrelsið er lagagrundvöllur verðtryggingar í fjárskuldbinding- um hér á landi." Um breytingar á lánskjaravísi- tölu segir nefndin: „Sú skoðun skal hér sett fram að því séu formlega litlar skorður settar hverjar breyt- ingar verði gerðar á lánskjaravísi- tölunni svo lengi sem breytingunum er ekki ætlað að taka til áunninna réttinda, t.d. áfallinna verðbóta skv. lánssamningi. Slík áunnin réttindi verður að telja að njóti vemdar eignarréttarákvæðis stjómarskrár- innar." Þegar ríkisstjómin talar um af- nám verðtryggingar, hlýtur hún að eiga við, að samningar sem gerðir verða í framtíðinni verði opnir fyrir verðtiyggingarákvæðum, að það verði í valdi aðila hvers máls að semja um það sín í milli og, væntan- lega, að ríkissjóður muni ekki hafa verðtryggingarákvæði í neinum af sínum skuldbindingum, þar með skuldabréfum sem seld verða á al- mennum markaði. Varla er þess að vænta, að ríkisstjómin ætli að bijóta gegn stjómarskrárákvæðum um eignarréttinn með því að af- nema ákvæði þegar gerðra samn- inga? Að vísu töldu sumir viðmælendur blaðsins ekkert því til fyrirstöðu, að Seðlabankinn hætti einfaldlega að birta lánskjaravísitöluna. Það kæmi hins vegar ekki í veg fyrir að hún verði reiknuð og að hún yrði birt einhvers staðar annars staðar, til dæmis einfaldlega í dag- blöðum Mikið álitamál Seðlabankinn mun skila sínu áliti í næstu viku, um breytingar á láns- kjaravísitölu. Verðtryggingamefnd hefur þegar skilað áliti sínu. Nefnd- in álítur, í stuttu máli sagt, að laga- lega séð sé ekkert því til fyrirstöðu að breyta lánskjaravísitölunni, með þeim fyrirvara sem fram kemur hér að framan. Nefndin telur hins vegar ekki rétt að breyta henni nú og hún telur rétt að bíða með áform um afnám verðtryggingar þar til jafn- vægi hefur komist á fjármagns- markaðinn. Það er margþætt álitamál hvort og þá hvemig hægt er að þætta launavístölu inn í lánskjaravísi- töluna. Enn meira álitamál er hvort þetta eigi að gera. Gifurlegir hags- munir úti um allt þjóðfélagið em í húfi. Sama má segja um „afnám" verðtryggingar. Ekki hefur enn verið skilgreint hvemig framkvæmd þessara mark- miða ríkisstjómarinnar á að verða. Forsætisráðherra hefur talað um að miða við þrjá mánuði til þess að skilgreina að jafnvægi sé komið á efnahagslífið. Öðrum finnst það full knappur tími. Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda sagði á fundi Verslunar- ráðs fyrr í vikunni, að ekki væri marktækt að miða við nokkra mán- uði, ár væri nær lagi. Fjármagns- markaðurinn er í mótun og sparifj- áreigendur áhyggjufullir vegna margvíslegra yfirlýsinga stjóm- málamanna um að Iækka eigi vext- ina. Ofstórbiti Af framanrituðu verður að draga þá ályktun, að breyting lánslq'arav- ísitölunnar og hugsanlegt „afnám" verðtryggingar, sé stærra mál og umfangsmeira en svo, að nokkur ríkisstjóm geti leyft sér að ákveða það með tilskipunum eða bráða- birgðalögum. Hér verður að koma til kasta Alþingis, enda benda líkur til þess, að þessi markmið séu ekki framkvæmanleg án víðtækra laga- breytinga. STARFSNÁM í matvælaiðnaði hefst 10. október nk. í Hafnar- firði og Reykjavík, en síðar í mánuðinum á Akureyri. Með námskeiði þessu er kominn fyrsti vísir að fagmenntun aimennra sLarfsmanna í matvælaiðnaði. Samið hefur verið um nám- skeiðsálag eða launahækkun tíl handa þeim sem þátt taka í starfsnáminu en á þriðja þúsund manns eiga kost á þvi. í kjarasamningum í mars sl. náð- ist samkomulag um fræðslu og starfsþjálfun og er starfsnámið lið- ur í þeirri framkvæmd. Námskeiðið er haldið á vegum Félags íslenskra iðnrekenda og Iðju, félags verk- smiðjufólks, og umsjón með fram- kvæmd og uppbyggingu starfs- námsins hefur Iðntæknistofnun ís- lands. Námskeiðið fer fram víða um land og fer innritun sem þegar er hafin fram í fyrirtækjum tengdum matvælaiðnaði, hjá Iðntæknistofn- un, FÍI og Iðju. Á fyrstu námskeiðunum sem heflast þann 10. október fer kennsl- an í Hafnarfirði fram í Flensborgar- skólanum, en í Reykjavík fer fyrri hluti námskeiðsins fram í Mennta- skólanum við Sund en síðari hlutinn í Kennaraháskóla íslands. Á Akur- eyri verður kennt í Iðnaðarhúsinu. Hvert námskeið er í heild 40 stund- ir og fer fram í 10 fjögurra stunda einingum. í hverri námseiningu eru ýmist ein eða tvær námsgreinar. Kennt verður síðdegis á laugardög- um og er áætlað að námskeiðið taki um 10 vikur. Rétt til að sækja námskeiðið eiga allir félagar í Landssambandi iðnverkafólks og Verkamannasambandi íslands. For- gangsrétt hafa þeir starfsmenn sem unnið hafa í minnsta kosti eitt ár hjá sama fyrirtæki. Alls hafa um 3.000 manns möguleika til þátttöku ef með eru taldir ófaglærðir starfs- menn í mjólkuriðnaði. í tengslum við starfsnámið verð- ur haldið annars konar námskeið fyrir verkstjóra og stjómendur í matvælaiðnaði sem er gert til að búa stjómendur undir að taka á móti starfsfólki með aukna starfs- þekkingu. Operuskóli hjá Söng- skólanum VID Söngskólann I Reylgavík er að fara af stað Óperuskóli, sem nýtur samvinnu Islensku óper- unnar og mun hann starfa til reynslu fram yfir áramót, segir í fréttatilkynningu frá Söngskól- anum. Verkefni Ópemskólans verða ákveðin í kjölfar inntökuprófs sem fram fer sunnudaginn 9. október nk. og er öllum söngvuram, hvort sem þeir era í námi eða ekki, fijálst að þreyta prófið. Aðalkennarar Óperaskólans era Már Magnússon og Catherine Williams. Kennt verð- ur í Tónleikasal Söngskólans og í íslensku óperanni. Við Söngskólann í Reykjavík hefur verið starfandi óperadeild um árabil. Hefur deildin staðið fyrir óperasýningum og óperatónleikum. Þuríður Pálsdóttir óperasöngkona, yfirkennari skólans, hefur veitt þessari deild forstöðu. ÓDÝR DÖN Kynnist einstæðu tilboði ó dönskum kvik eldhús- og baðinnréttingum. Pér bjóðast margskonar útfærslur, góðar viðartegundir og ýmsir litir ó miklu betra verði en þú hefur kynnst hérlendis. Hefurðu séð það betra: þriggja vikna afgreiðslufrestur • 10 ára framleiðsluábyrgð • AEG eldhústæki og eldhúsinnrétting á einum og sama kaupsamningi í allt að 10 mánuði ■ 10% afsláttur í október • Ódýr lausn en vönduð. Opið hús f dag frá 10.00 - 16.00 og 6 morgun sunnudag 13.00 - 16.00 FJARÐARKAUP innrettingar HÓLSHR. Skútahrauni 2 220 Hofnorfirði Simi: 6S1499

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.