Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 13

Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 13
leg hvað fylgi snertir. Alþýðuflokk- urinn varð fyrir miklu fylgishruni árið 1978. Sjáum hvaða skýringar Jón Baldvin gefur á því í viðtali við Heimsmynd í desember 1986: „Stefnuleysi flokksins, kjark- leysi, karakterleysi liggur mér við að segja. Þegar svona er komð bregðast flokkar alltaf við á sama veg af eðlisávísun. Þeir fóma for- ingjanum til árs og friðar." I þessu sama viðtali er Jóni Bald- vin tíðrætt um frjálslyndi og við- reisnarstjóm og vísar alfarið á bug tilboði Ólafs Ragnars um jafnaðar- stjóm. Hann segir reyndar: „Mér er skemmt, en ég tek þessu ekki alvarlega. Þetta er leikbrella í inn- anhússátökum í Alþýðubandalag- inu, sem ekki em til útflutnings." Eftir stendur, að Alþýðuflokkur- inn er nú í ríkisstjóm í miðju Fram- sóknarfjósinu, þar sem Ólafur Ragnar Grímsson trónir jrfir ríkis- fjármálunum. Hann og félagi Georges Marchais boða heims- byggðinni sameiginlega kommún- isma og em sammála um að taka beri peningana þar sem þeir em. Trúlega em þeir ekki margir, sem hefðu trúað því, miðað við fyrri yfirlýsingar og athafnir, að það yrði með og fyrir tilstilli Jóns Bald- vins og Alþýðuflokksins. Undrar víst fáa, að almenningur og fólk í þessu landi skilji hér hvorki upp né niður og sé orðið leitt á skrípaleikn- um í íslenskum stjómmálum. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisilokksins íReykjavík. Reykjavíkur- prófastsdæmi: Héraðs- fiindur í Viðey HÉRAÐSFUNDUR Reykjavíkur- prófastsdæmis verður að þessu sinni haldinn úti í Viðey sunnu- daginn 9. október. Farið verður úr Sundahöfh kl. 15.30 með fyrstu fundargestina og síðan strax aftur með næsta hóp. Fundurinn hefst með kaffiboði Dómkirkjusafnaðarins, en síðan hefjast venjuleg héraðsfundarstörf, en það er um að ræða aðalfund prófastsdæmisins. Dómprófastur gefur skýrslu sína, greint er frá reikningum safnaða og helztu við- burðum liðins starfsárs og lögð fram fjárhagsáætlun vegna næsta árs. Þá gefa nefndir skýrslur og rætt verður um þau mál, sem efst em á baugi og m.a. um álit nefnd- ar þeirrar, sem ráðherra skipaði til að gera tillögur um breytingar á prestaköllum og prófastsdæmum. Héraðsfund sækja prestar, sókn- arnefndarfólk og starfsmenn safn- aðanna. Reykhólar: Þangmjöl til Finn- lands Midhúsum, Reykhólasveit Urriðafoss hinn nýi, sem er 3400 lesta flutningaskip, var hér i vikunni á Reykhólum og lestar 800 tonn af þangnyöli sem eiga að fara til Finnlands. Urriðafoss. mun vera stærsta skipið sem hefur komið inn á Reykhólahöfn hingað til. Sveinn MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 13 Gáfii ljós í Krýsuvík NÝLEGA færði Jóhann Ólafsson & Co. Krýsuvíkursamtökunum að gjöf 25 loftljós af gerðinni Circolux Combi til stuðnings framkvæmdum samtakanna við fyrsta áfanga skólahússins í Krýsuvík, en nú styttist óðum að hægt verði að taka vesturhluta skólahússins í notkun. Skólahúsið er nú kynt upp með olíu en þessa dagana er verið að leita til fyrirtækja og félaga um fjárstuðning til að koma á hitaveitu á staðnum, en Krýsuvíkursamtökin mega nýta endurgjaldslaust tveggja megawatta gufuborholu til upphit- unar og ylræktar í Krýsuvík ef tekst að útvega þá fjármuni sem til þarf. Kostnaður við framkvæmdir vegna hitaveitunnar er áætlaður 2,7 millj- ónir, en samkvæmt útreikningum myndu þessar framkvæmdir borga sig upp á 4—5 árum. Framkvæmd- ir við skólahúsið hafa gengið mjög vel og er endurstofnverð byggingar- innar nú metið á um 47 milljónir, segir í frétt frá samtökunum. Þráinn Meyer sölustjóri hjá Jó- hanni Ólafssyni & Co afhendir Sigurlínu Davíðsdóttur gjöfina. PRÚTTMARKAÐ UR OFEla SPENNANDINÝJUNG Við bjóðum síðustu OPEL CORSA bílana afárgerð 1988 til sölu á prúttmarkaði sem hefst laugardag 8. október í sýningarsal okkar að Höfðabakka 9. Sýningarsalurinn verðurfullurafOpel Corsa bflum — íflestum litum og gerðum. Þú velur bílinn sem þér hentar, prúttar um verð og greiðslukjör, ákveður í hvaða ástandi bíllinn verður afgreiddur, þ. e. ryðvarinn, fullþrifinn og skrásettur eða óþrifinn og óskráður; og dundar síðan við að þrífa hann og standsetja — þér til skemmtunar um leið og þú sparar peninga. Við bjóðum margvísleg greiðslukjör og tökum e. t. v. nýlega, velfarna bíla uppí prúttverðið. Vertu velkominn á prúttmarkaðinn hjá okkur og vertu tilbúinn með ávísanaheftið. AUGLÝSINGADEIID SAMBANDSINS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.