Morgunblaðið - 08.10.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
5
Menntaskólinn í Reykjavík:
Gamlir þingstólar
í gömlum þingsal
FORSETAR Alþingis afhentu í
gær Menntaskólanum í
Reykjavík til varðveislu
finuntíu þingstóla, sem voru í
sölum Alþingis frá 1934 og fram
á síðasta ár, er skipt var um
húsgögn. Stólarnir prýða nú
hátíðasal Menntaskólans, sem
var fyrsti þingsalur hins endur-
reista Alþingis frá 1845 og fram
KEA:
Starfsfólki
brauðgerðar
sagl upp
OLLUM starfsmönnum brauð-
gerðar KEA á Akureyri, 23 tals-
ins, hefúr verið sagt upp störf-
um. Að sögn Magnúsar G.
Gautasonar Qármálastjóra KEA
er ástæða uppsagnanna sú að
fyrir dyrum stendur endurskoð-
un rekstrarins.
Magnús kvaðst eiga von á að
þorri starfsmannanna yrði endur-
ráðinn að lokinni endurskipulagn-
ingu en reynt yrði að bjóða þeim
sem ekki ættu kost á endurráðn-
ingu störf innan annarra deilda
kaupfélagsins.
INNLENTV
til 1881, er Alþingishúsið var
tekið í notkun.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaðs Alþingis, hélt
ávarp er hann afhenti stólana og
gerði þar að umtalsefni hin sér-
stöku tengsl Alþingis við hátíða-
salinn. „A þeim 1058 árum sem
liðin eru frá stofnun Alþingis hafa
sum tímabil og atburðir risið mjög
hátt í sögunni og þjóðarvitund.
Þannig var einmitt háttað um
þann tíma sem Alþingi var til húsa
á þeim stað er við stöndum," sagði
Þorvaldur.
„Það var hér sem starfsvett-
vangur Jóns Sigurðssonar forseta
var. Hér var það bál kveikt og
blys tendruð sem bjarma ber af
meðan íslensk tunga og þjóðarvit-
und endist. Hér var sjálfur þjóð-
fundurinn 1851. Við stöndum nú
hér á helgum stað.“
Fyrir skömmu fékkst fjárveiting
frá Alþingi til þess að gera upp
hátíðasalinn, sem tekinn var að
láta á sjá. Guðni Guðmundsson,
rektor Menntaskólans, þakkaði
þingforsetum sérstaklega fram-
göngu þeirra í því máli. Að sögn
Guðna er salurinn enn lítt breyttur
frá því að danski arkitektinn
Meldahl teiknaði hann fyrir hálfri
annarri öld, með skrauti í ný-
klassískum stíl, blámáluðu bijóst-
þili með gylltum listum á veggjum
og jónískum súlum við myndarleg-
an útskorinn ræðustól, sem gamlir
nemendur gáfu skólanum. Þá er
salurinn prýddur málverkum af
dönskum konungum, sem ríktu
yfir landinu frá því skólahúsið var
byggt um miðja nítjándu öld, svo
og af lærifeðrum við skólann og
Jóni Sigurðssyni forseta. Málverk-
in hafa nú ölí verið hreinsuð upp.
Húsgögnin hafa undanfarin ár
Morgunbladið/Júlíus
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, Jón Kristjánsson, forseti neðri deildar, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, forseti sameinaðs þings, Karl Steinar Guðnason, forseti efri deildar og Guðni Guðmunds-
son rektor í hátíðasalnum, sem hefiir fengið húsbúnað við hæfi.
verið rytjuleg skólahúsgögn, en
þingstólamir sóma sér vel í gamla
þingsalnum. Guðni rektor sagðist
vilja halda því fram að virðulegri
sal ætti landið ekki.
Vegna húsnæðisvandræða skól-
ans hefur salurinn verið notaður
til kennslu part úr degi. Að sögn
rektors verður ekki breyting á því
í bráð, á meðan ekki rætist úr
þrengslunum. „Hér munu menn
sitja í sögutímum á sögufrægum
stólum," sagði Guðni.
„Þetta eru traustir stólar,"
sagði Karl Steinar Guðnason, for-
seti efri deildar. „Það hefur einn
þingmaður brotið svona stól, hann
var að rugga sér á honum þegar
kvað við brestur og hann féll af
stólnum — hann féll reyndar í
næstu kosningum líka.“
Sækja þarf áfram um leyfi til
útflutnings á óunnum fiski
EKKI verða veitt leyfi til útflutn-
ings á óunnum þorski, ýsu, karfa
og ufsa til Evrópulanda nema
umsóknir um þau hafi borist ut-
anríkisráðuneytinu árdegis á
föstudegi i næstu viku á undan
þeirri sem útflutningur er fyrir-
hugaður í, segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanrikisráðuneytinu.
„Eg tel ólíklegt að útflutningur á
þorski og ýsu til Bretlands verði
takmarkaður í vetur, eins og í
sumar, þar sem markaðurinn er
sterkastur yfir vetrartfmann,"
sagði Vilhjálmur Vilþjálmsson,
fulltrúi hjá Landssambandi
íslenskra útvegsmanna, í samtali
við Morgunblaðið.
Til að tryggja betri upplýsingar
um ástand og horfur á mörkuðunum
hefur utanríkisráðuneytið leitað eftir
samstarfi við aðila sem þar starfa.
Ráðgert er að ráðuneytið fái viku-
lega ráðgjöf um hversu mikið magn
hægt sé að selja á mörkuðunum án
þess að til verðhruns komi.
„Umboðsmenn í Bretlandi hafa
komið vikulega saman undanfamar
tvær vikur og sent heim upplýsingar
um markaðinn. Einnig er stefnt að
því að utanríkisráðuneytið geti dag-
lega veitt upplýsingar um hversu
mikið magn búið er að heimila sölu
á hveiju sinni,“ sagði Vilhjálmur
Vilhjálmsson.
FLJÚGÐU MEÐ OG FINNDU MUNINN
höfum
breikkað
milli sætanna í öllum flugvélum okkar innanlands.
Þú færð aukið rými - fyrir þig.
FLUGLEIÐIR