Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
17
ísagörður:
Tónleikar í miimingu
Ragnars H. Ragnar
Isafirði.
JÓNAS Ingimundarson, píanó-
leikari, var með all sérstæða tón-
leika hér á ísafirði á sunnudag.
Tónleikarnir voru haldnir til
minningar um Ragnar H. Ragn-
ar, skóiastjóra Tónlistarskóla
Landsfiindur
Kvennalistans
Á Snæfellsnesi
4.- 6. nóvember
SJÖTTI Landsfundur Kvenna-
listans verður haldinn að Görð-
um á Snæfellsnesi dagana 4.—
6. nóvember. AðalumQöliunar-
efiii fundarins verða efiiahags-
mál.
ísafjarðar, en Ragnar hefði orð-
ið níutíu ára þann 29. september
síðastliðinn hefði hann lifað.
Aðeins eitt verk var á efnis-
skránni, Óður steinsins, eftir Atla
Heimi Sveinsson, Kristján frá
Djúpalæk og Ágúst Jónsson. Ágúst
Jónsson hefur lagt fyrir sig að ljós-
mynda steina á mjög sérstæðan
hátt. Kristján frá Djúpalæk samdi
ljóðið Óður steinsins eftir að hafa
skoðað myndir Ágústs. Síðan kom
Atli Heimir til sögunnar og samdi
30 smálög við ljóðin.
Rúnar Guðbrandsson, kennari á
ísafirði, las ljóðin, Jónas lék á
píanóið og eiginkona hans, Ágústa
Hauksdóttir, sýndi litskyggnur af
steinunum. Frímúrarasalurinn á
ísafirði var fullskipaður og lista-
mönnunum var forkunnarvel tekið.
Úlfar.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Gunnlaugur Jónasson, stjórnarmaður í Tónlistarfélagi ísaQarðar, flutti ávarp og þakkaði listamönnun-
um góðan flutning. Talið frá vinstri: Gunnlaugur Jónasson, Ágústa Hauksdóttir, Jónas Ingimundarson
og Rúnar Guðbrandsson.
Landsfundurinn er að þessu sinni
haldinn utan höfuðborgarsvæðisins,
til að mæta auknum áhuga kvenna
utan þéttbýlis á stefnumótun sam-
takanna, að því er segir í frétt frá
Kvennalistanum. Aðalumfjöllunar-
efni fundarins tengist efnahagsmál-
um: Hvemig telja konur efnahag
heimilanna, og um leið þjóðarbús-
ins, best komið við þær aðstæður
sem ríkja á landinu í dag?
I fréttabréfi frá Kvennalistanum
kemur fram að á fyrri Landsfundum
hafi verið mikil og góð þátttaka og
vonast sé til að svo verði einnig nú,
enda séu allar konur velkomnar.
Hópferðir verða skipulagðar úr
Reykjavík og fyrirgreiðsla veitt
þeim konum sem koma langt að.
Hanns» Holmsleinn Gissurarson
MARKAЧOFL
OGMIÐSTYRING
BSE-bók:
Markaðsöfl
og miðstýring
BÓKAVERSLUN Sigfusar Ey-
mundssonar hefur gefið út bók-
ina Markaðsöfl og miðstýringu
eftir dr. Hannes Hólmstein Giss-
urarson Iektor. Þetta rit er ætlað
til kennslu í hagfræði, félags-
fræði og stjórnmálafræði í Há-
skóla íslands og öðrum fram-
haldsskólum, jafnframt því sem
kostað hefur verið kapps um að
gera það aðgengilegt og auðlæsi-
legt fyrir áhugasama leikmenn.
Lýst er kenningum fræðimanna
frá Adam Smith og Karli Marx á
fyrri tíð til Johns Maynards Keynes
og Friedrichs von Hayeks á okkar
dögum um æskilegt fyrirkomulag
framleiðslu og viðskipta. Einnig er
rætt um einstök ágreiningsefni
nútímamanna, svo sem hvort áætl-
unarbúskapur hafi í för með sér
ófrelsi, hvort tekjuskipting á frjáls-
um markaði sé réttlát, hverjir eigi
fískinn í sjónum umhverfis ísland,
hvort áframhaldandi hagvöxtur sé
eftirsóknarverður, hvort konur búi
við misrétti á íslandi og hvort ís-
lendingar eigi að veita þróunarað-
stoð.
Ræktid
/ i 1 i §
olalauKa!
Stórar plöntur
-Nýsending
Vorum að fá nýja sendingu af stórum plöntum:
PÁLMARj FÍKUSAR,
DREKATRE O.FL. O.FL.
Erika
- (stofulyng)
Eigum nú óvenju
fallegar Erikur
á góðu verði.
(Eremurus Robustus)
Sjá nánar
í „Blóm vikunnar“
í Morgunblaðinu 17,
september sl.
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
Ræktið sjálf eigin jólahýasintur,
jólatúlipana, jólakrókusa
og jólaliljur.
Góðar leiðbeiningar fylgja.
Nú er rétti tíminn til að planta
jólalaukunum. Þessa helgi leggj
um við sérstaka áhersiu á rækt-
un alls konar innilauka.
(Fréttatilkynning)